Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2010, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2010, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 27. janúar 2010 FRÉTTIR Varaborgarfulltrúarnir Margét Sverr- isdóttir og Marsibil Sæmundsdótt- ir hafa fengið greidd laun frá Reykja- víkurborg upp á hátt í fjórar milljónir króna á ári þrátt fyrir að hafa báðar hætt störfum fyrir þá flokka sem þær fengu kosningu fyrir. Báðar fengu þær úthlutað af Samfylkingunni sætum í fagráðum borgarinnar og fyrir þau störf hljóta þær launin en ólíkt öðr- um varaborgarfulltrúum eru þær ekki kallaðar til borgarstjórnarfunda fyrir borgarfulltrúa flokkanna. Margrét og Marsibil verða á launaskrá borgarinn- ar fram á vor þegar kosið verður á ný til sveitarstjórna. Fyrstu varamenn borgarfulltrúa stjórnmálaflokkanna sitja í ýmsum fagráðum og nefndum borgarinn- ar og fá tæpar þrjú hundruð þúsund krónur í mánaðarlaun, eða því sem nemur sjötíu prósent af launum borg- arfulltrúa. Þar að auki fá þeir ýmis önnur hlunnindi, líkt og farsímastyrk, internet-tengingu og fartölvu frá Reykjavíkurborg. Samanlagt eru þessi laun og hlunnindi yfir þrjú hundruð þúsund krónur á mánuði. Vel borgað Marsibil og Sif Sigfúsdóttir, varaborg- arfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, sitja í flestum ráðum á vegum borgarinnar en báðar eru þær aðalmenn í tveimur ráðum og varamenn í einu. Þær þurfa sem aðalmenn að sækja fjóra fundi í mánuði eða 40 fundi á ári þegar sum- arfrí er dregið frá. Sé heildarlaunun- um deilt niður á fundafjöldann fá þær tæpar hundrað þúsund krón- ur á fundinn en Sif fær nokkru meira því hún er varamaður í borgarráði og fær fyrir það nærri 20 þúsund króna launaálag. Dofri Hermannsson, varaborgar- fulltrúi Samfylkingarinnar, og Her- mann Valsson, varaborgarfulltrúi Vinstri-grænna, eru báðir aðalmenn í tveimur ráðum borgarinnar og þurfa því að sækja jafnmarga fundi og þær tvær. Launin eru þau sömu og því fá þeir borgaðar tæpar hundrað þúsund fyrir fundinn. Margrét rekur lestina en hún sit- ur sem aðalmaður í umhverfis- og samgönguráði. Þangað sækir hún tvo fundi á mánuði eða 20 fundi yfir árið. Hún fær því hátt í 200 þúsund krónur fyrir hvern fund. Mismikil vinna Marsibil segir að hlutverki sínu sem varaborgarfulltrúi fylgi mikil vinna og þetta séu hófleg laun miðað við vinnuframlag. Hún hlakkar engu að síður til að hætta störfum hjá borg- inni í vor því hún hafi fengið alveg nóg af vinnubrögðunum sem viðhöfð eru í stjórnmálum almennt. „Þetta snýst um miklu meira en sjálfa fund- ina því við þurfum að vera inni í þess- um málaflokkum, fylgjast með öllu og lesa öll gögn. Það er í raun á fund- unum sem sjálfar ákvarðanirnar eru teknar en þangað getur maður ekki komið óundirbúinn. Þetta er heilm- ikil vinna og launin eru því réttlætan- leg,“ segir Marsibil. Margrét segist reyna að vinna alla þá vinnu sem hún kemst í en sem réttkjörinn varamaður þiggi hún þau laun sem henni ber. Hún viðurkennir að hún muni sjá eftir laununum komi til þess. „Ég hef ekki alveg náð að funk era sem fyrsti varamaður þó ég sé réttkjörin til þess. Ég hef hins vegar ekki verið nýtt sem slíkur en hef sinnt fundum þess ráðs og þeirrar nefndar sem ég sit í en þetta er nú ekki mjög mikið sem ég hef verið að fá útborg- að. Eins og ég get hef ég reynt að finna fyrir þessum launum en ég hef haft annað aðalstarf. Ég get nú alveg við- urkennt að ég mun sjá eftir þessum launum því það munar um þau,“ segir Margrét. Fulltrúi Borgarráð Menningar- og ferðamálaráð Leikskólaráð Umhverfis- og samgönguráð Mannréttindaráð Velferðarráð Menntaráð Dofri Hermannsson Aðalmaður Aðalmaður Hermann Valsson Aðalamaður Aðalmaður Margrét Sverrisdóttir Aðalmaður Marsibil Sæmundsdóttir Aðalmaður Varamaður Aðalmaður Sif Sigfúsdóttir Varamaður Aðalmaður Aðalmaður Störf varaborgarfulltrúanna í fagráðum borgarinnar: Laun m/hlunnindum: 305.800 krónur Laun varaborgarfulltrúanna: Mánaðarlaun: 282.800 krónur Dofri Hermannsson Hermann Valsson Margrét Sverrisdóttir Marsibil Sæmundsdóttir Sif Sigfúsdóttir Varaborgarfulltrúinn Margrét Sverrisdóttir fær greiddar tæpar 170 þúsund krónur fyrir hvern fund að meðaltali. Bæði hún og Marsibil Sæmundsdóttir eru hættar störf- um fyrir þá flokka sem þær voru kosnar fyrir, en fá borgaðar hátt í fjórar milljónir króna á ári frá borginni. 170 ÞÚSUND Á HVERN FUND HELGI HRAFN GUÐMUNDSSON blaðamaður skrifar: helgihrafn@dv.is Þetta er heilmik-il vinna og launin eru því réttlætanleg. Komin með nóg Marsibil Sæmundsdóttir hefur fengið nóg af borgarmálunum og vinnubrögðunum í stjórnmálum almennt. Missti sætið Margrét Sverrisdóttir var hluti af Tjarnarkvartettinum sem myndaði borgarstjórn allra flokka nema Sjálfstæðisflokks. Samflokksmað- ur hennar, Ólafur F. Magnússon, var þá í veikindaleyfi. Þegar hann sneri aftur felldi hann borgarstjórnina. Margrét missti sætið sitt um leið og klofningur varð milli hennar og Ólafs. Hún býður sig fram í prófkjöri Samfylkingarinnar um helgina. MYND STEFÁN KARLSSON Stýrivextir lækki Lækkun vísitölu neysluverðs nú eykur líkur á því að stýrivextir Seðlabankans verði lækkaðir, að mati Greiningar Íslandsbanka. Peningastefnunefnd bankans tilkynnir í dag um hvort stýri- vextir verði lækkaðir. Greiningin reiknar með því að ákveðið verði að lækka vexti bankans lítillega og gætu stýrivextir lækkað um 0,5 prósent og farið niður í 9,5 prósent. Greining Íslandsbanka hafði áður spáð því að stýrivextir myndu haldast óbreyttir. Missti næstum af vinningi Fjölskyldumaður sem keypti sér lottómiða í söluturninum Tröll- inu í Spönginni á dögunum var næstum því búinn að missa af 5 milljóna lottóvinningi. Hann heyrði auglýsingu í fjölmiðlum um að verið væri að leita að vinn- ingshafa í útdrætti 9. janúar síð- astliðinn. Í tilkynningu frá Íslenskri getspá kemur fram að manninn minnti að hann hefði keypt miða á þessum tiltekna sölustað. Hann hringdi í Getspá og frétti að hann hefði unnið 5 milljónir króna. Harpa í boði Icesave Hjálmar Sveinsson, frambjóðandi Samfylkingarinnar í Reykjavík, segir að Tónlistar- og ráðstefnu- húsið Harpa sé líklegast fjár- magnað að hluta til með Icesave. Hjálmar bloggaði um málið á Eyjunni, þar sem hann vísaði í samtal sitt við framkvæmda- stjóra Portus, sem var áður í eigu Landsbankans. Sá á að hafa sagt Hjálmari árið 2007 að fram- kvæmdir við húsið væru stopp vegna þess að Landsbankinn gæti ekki fjármagnað sig. Þegar verkið hófst aftur hafi framkvæmdastjór- inn ekki verið í vafa um að þar væru Icesave-peningar á ferð.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.