Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2010, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2010, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 27. janúar 2010 FRÉTTIR Mannskæðar vetrarhörkur Undanfarna daga hafa tugir manns látið lífið í Mið- og Aust- ur-Evrópu vegna mikilla kulda. Mikið fannfergi hefur verið víða í vesturhluta Tyrklands, Búlgar- íu og Rúmeníu og hefur valdið einangrun þorpa og umferðar- öngþveiti. Í Rúmeníu létust 22, en þar hafa vegir lokast og frost farið niður í 32 gráður. Ellefu manns dóu um helgina í Póllandi og er fjöldi þeirra sem dáið hafa þar vegna vetrarhörkunnar kominn yfir 200. Flestir þeirra sem hafa dáið voru heimilisleysingjar eða eldra fólk. Átök vegna lok- unar sjónvarps- stöðva Lögreglu og mótmælendum laust saman í nokkrum borgum Venesúela í gær eftir að lokað var fyrir útsendingar sjónvarps- stöðvarinnar RCTV sem er ekki fylgitöm Hugo Chavez forseta landsins. Samkvæmt fregnum lét einn námsmaður lífið í borginni Mer- ida og nokkrir lögreglumenn slösuðust í átökum hópa sem voru annars vegar fylgjandi for- setanum og hins vegar andvígir honum. RCTV er ein sex kapalstöðva sem hefur verið lokað fyrir þær sakir að hafa ekki sent beint frá ræðuhöldum Chavez. Picasso rifinn Listaverkaunnandi reif fyr- ir slysni málverk eftir Picasso á Metropolitan-safninu í New York. Málverkið sem um ræðir er „The Actor“ og er það metið á 130 milljónir Bandaríkjadala, 16,5 milljarða króna. Óhappið gerðist með þeim hætti að kona nokkur missti jafnvægið og reif fimmtán senti- metra rifu á neðra hægra horn verksins og hrósa starfsmenn safnsins happi yfir því að rifan kom ekki á miðju verksins. Picasso málaði verkið vetur- inn 1904–1905 og er það talið marka skil bláa og rauða tíma- bils málarans. Barnaverndarsamtök hafa verulegar áhyggjur af eftirmálum jarðskjálft- ans á Haítí. Þúsundir barna fylla göt- ur höfuðborgarinnar Port-au-Prince og neyðast til að sjá um sig sjálf. Fyr- ir skjálftann blómstraði verslun með börn og hætta er á að ástandið ver- sni til muna nú þegar skólar eru lok- aðir, velferðarkerfið í rúst og innviðir samfélagsins í molum. Óreiða ein- kennir störf lögreglunnar og til að bæta gráu ofan á svart tókst 4.000 glæpamönnnum að flýja úr fangelsi í kjölfar skjálftans. Nadine Perrault, fulltrúi barna- hjálpar Sameiðu þjóðanna á svæð- inu, fer ekki í grafgötur með áhyggjur sínar. „Það er fjöldi vísbendinga um skjótar aðgerðir mansala sem svífast einskis,“ sagði Nadine Perrault. Að hennar mati hefur öngþveitið skap- að „meiriháttar tækifæri fyrir geng- in“. Mansalar og melludólgar Jon Bugge, framkvæmdastjóri sam- skiptadeildar Save the Children, tók í sama streng á vefsíðu The Ti- mes: „Jafnvel fyrir jarðskjálftann var Haítí hættulegur staður fyrir börn og núna er það enn hættulegra. Þau eru ótrúlega berskjölduð gagnvart svívirðu, misnotkun eða skaða.“ Í bráðabirgðabúðum sem komið hefur verið upp á fótboltavelli í Del- mas eru um 450 fjölskyldur. Þar er einnig að finna á fjórða tug barna sem hafa annaðhvort misst eða orð- ið viðskila við foreldra sína. Blemurned Junior, yfirmað- ur búðanna, deilir áhyggjum með Nadine Perrault og Jon Bugge og segir börnin í hættu vegna mögu- legrar misnotkunar. „Þau gætu fall- ið í hendur mansala og melludólga – sérstaklega stúlkurnar,“ sagði Jun- ior. Samkvæmt The Times eru nú þegar óbeinar vísbendingar um að mansal sé hafið í því öngþveiti sem ríkir í höfuðborginni og flugvöllur hennar sé nýttur af fólki sem standi í ólöglegum ættleiðingum, stund- um velviljuðum útlendingum sem vilja aðstoða fórnarlömb jarðskjálft- ans. Haft er eftir hjálparstarfsfólki að sést hafi til flottra bíla sem sé rennt upp að leiguflugvélum og skilin séu Að mörgu er að hyggja á Haítí nú þegar leit að lifandi fólki í rústum hefur verið form- lega hætt. Eitt þeirra mála sem brenna á starfsfólki hjálparstofnana snýr að örlögum fjölda barna sem misst hafa foreldra sína eða samband við þá. Ítalskur embættismaður gagnrýnir Bandaríkjamenn og segir þá rugla saman hernaðaríhlutun og neyðaraðstoð. HAÍTÍSK BÖRN Í HÆTTU KOLBEINN ÞORSTEINSSON blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is Pólverjinn Josef Guzy, 76 ára, má kallast stálheppinn. Búið var að kistuleggja Josef, enda hafði hann hnigið niður fyrr um daginn og verið úrskurðaður látinn af lækni. Í sömu andrá og innsigla átti kist- una bar hin syrgjandi ekkja fram þá bón að fá í hendurnar hálsmen eig- inmanns síns sáluga auk þess sem tengdasonur hans vildi fá úrið hans sem minjagrip. Þegar útfararstjórinn seildist eft- ir hálsmeninu fannst honum sem hann fyndi veikan púls og við nánari athugun kom í ljós að herra Guzy var í reynd á lífi. Nú þurfti snör handtök og Guzy var fluttur á bráðamóttöku og sami læknir og hafði úrskurðað hann látinn komst að því að púlsinn mældist 20 til 30 slög á mínútu. Josef Guzy náði fullri heilsu eftir nokkrar vikur og getur prísað sig sælan fyr- ir að konan hans vildi fá hálsmen- ið, tengdasonurinn úrið og að út- fararstjórinn, Darius Wysluchato, fyrrverandi námaverkamaður, hafði lært fyrstu hjálp. Darius Wysluchato lýsti því síðar hvernig honum brá við þegar hann fann púls í „líki“ sem hann hafði fyrr um daginn, ásamt aðstoðarmanni sínum, komið fyrir í kistu. „Þegar við komum hafði maður- inn legið sveipaður ábreiðu í nokkra klukkutíma. Rétt áður en loka átti kistunni bað fjölskylda hans um nokkra dýrmæta hluti af líkinu. [...] Eitthvað fékk mig til að snerta háls- inn og ég varð fyrir áfalli. Ég athug- aði það aftur og hrópaði: Það er púls! [...] Guð minn góður. Þetta er krafta- verk,“ sagði útfararstjórinn. Jósef Guzy, sem er býflugna- bóndi, sýndi útfararstjóranum þakk- læti sitt þegar hann losnaði af spítala og færði honum fötu af hunangi. Kistu lokað, sviðsett mynd ýflugnabóndinn Jósef Guzy getur þakkað sínum sæla. MYND AFP Pólverjinn Josef Guzy slapp með skrekkinn í eigin kistulagningu: Reis upp frá dauðum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.