Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2010, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2010, Blaðsíða 17
Hver er maðurinn? „Sigurður Atlason.“ Hvað drífur þig áfram? „Bjartsýni og glaðværð.“ Hver er fyrsta minning þín úr æsku? „Mig minnir að það hafi verið þegar ég var að ganga eftir götusteini þegar ég var lítill, raulandi lag eftir Karlakórinn á Siglufirði sem var vinsælt þá. Lagið fjallaði eitthvað um að kyssa steina og ég elti þennan stein daglangt og söng stef úr því.“ Hver er uppáhaldsmaturinn þinn? „Lambakjöt a la amma.“ Hverju ertu stoltastur af? „Ég er stoltastur af afastelpunum mínum.“ Hvernig er að vera Strandamaður ársins 2009? „Það er ágætistilfinning. Það er alltaf gott að það veki athygli að fólk úti á landi skuli gera hluti sem tekið er eftir. Þessar hvunndagshetjur eru í uppháhaldi.“ Hvers vegna galdrar? „Íslenskur galdur er hluti af okkar menningu. Fallegast við hann er að hann gengur út á að gera morgundaginn bærilegri en gærdaginn. Hugsunarháttur sem skiptir svo miklu máli. Það felst svo mikil bjartsýni í galdrinum þó að einn og einn galdur feli í sér að gera eitthvað slæmt.“ Stundar þú galdra? „Ég stunda galdra á hverjum degi. Í þeirri merkingu sem hver vill skilja. Ég hef alltaf trú á morgundeginum.“ Myndirðu kalla sjálfan þig ofvirkan? „Nei, ég held ekki. Ég heyrði umræðu um daginn og þar var komist að þeirri niðurstöðu að ég væri það ekki.“ Hver eru helstu áhugamál þín? „Það er samfélag og framgangur ferðaþjónustu.“ Hvað er fram undan? „Næsta verk- efni mitt er að vinna að ráðstefnu um umhverfisvottaða Vestfirði í apríl og svo auðvitað að halda upp á tíu ára afmæli Galdrasýningarinnar á Ströndum.“ HEFUR ÞÚ GEFIÐ TIL HAÍTÍ-SÖFNUNAR? „Nei, en ég ætla að gera það.“ LILJA EÐVARDSDÓTTIR 53 ÁRA, ATVINNULAUS „Nei, ég bíð eftir að geta gefið.“ INGVELDUR EYJÓLFSDÓTTIR 47 ÁRA, VINNUR Í VERSLUN „Ég er ekki búinn, en hyggst gera það.“ EÐVARÐ ÞÓR GRÉTARSSON 29 ÁRA, SJÓMAÐUR „Nei, því miður. Ég á það eftir.“ ARNDÍS SUMARLIÐADÓTTIR 59 ÁRA, VINNUR Á DVALARHEIMILINU HOLTSBÚÐ DÓMSTÓLL GÖTUNNAR SIGURÐUR ATLASON var á dögunum kosinn Strandamaður ársins 2009. Framlag hans til menn- ingar, ferðaþjónustu og afþreyingar á Ströndum er ómetanlegt að mati kjósenda. Hann var framkvæmda- stjóri Strandagaldurs í fyrra ásamt því að leggja hinum ýmsu atburðum lið. GALDRAR HLUTI AF MENNINGUNNI „Já, ég gaf í símasöfnun.“ ÞÓRÐUR ÞRASTARSON 28 ÁRA, VINNUR Á HJÓLBARÐAVERKSTÆÐI MAÐUR DAGSINS Ef Sjálfstæðisflokkurinn hefði tekið þó ekki væri nema snefil ábyrgðar á gjörðum sínum eftir 18 ára stjórnar- setu, sýnt auðmýkt og samstarfsvilja, væri hann ekki upptekinn við það nú að baka þjóðinni hámarkstjón öðru sinni á tveimur árum. Ef Sjálfstæðisflokkurinn hefði tekið eigin endurreisnarskýrslu al- varlega frekar en að láta Davíð Odds- son ganga frekjulega yfir sig á skítug- um skónum á landsfundi í lok mars í fyrra, væri öðruvísi umhorfs nú, bæði á stjórnmálasviðinu og í efna- hagslífi þjóðarinnar. Ef Sjálfstæðisflokkurinn hefði haft vit á því að styðja Icesave-niðurstöð- una síðastliðið sumar allt til enda, en greiða ekki atkvæði gegn henni á þingi, hefði þingflokkurinn áreið- anlega látið skynsemina ráða þegar kom að því að semja við Hollendinga og Breta um niðurstöðu Alþingis. Ef Sjálfstæðisflokkurinn hefði stutt Icesave-samninginn um ára- mótin hefði forseti Íslands aldrei þorað að vísa málinu til þjóðarinnar. Hann hefði þá heldur aldrei fengið átyllu til þess að fela ákvörðun sína á bak við einhver álitamál um meiri- hluta eða minnihluta á þjóðþinginu. Vitstola þjóð Icesave er að þessu leyti stærsta og örlagaríkasta smjörklípan í lífi þjóð- arinnar. Henni var klínt í strokinn feld for- setans. Hann brást við klípunni með því að vísa málinu til þjóðarinnar sem dregið hefur á langinn uppgjör- ið við Sjálfstæðisflokkinn, þetta vígi sérhagsmunanna og forréttindanna. Samt fékk hann í hendur bréf og varnaðarorð, meðal annars frá Frið- riki Má Baldurssyni hagfræðingi. Það er einnig í hæsta máta und- arlegt að hefja beint lýðræði skyndi- lega til vegs um lánskjör í útlöndum en sniðganga fulltrúalýðræðið í leið- inni. Auðvitað er reynandi að semja um breytilega vexti í stað fastra 5,5 prósenta vaxta. En það er fráleitt að leggja í þjóðaratkvæðagreiðslu um það eitt. Þjóðaratkvæðagreiðsla um vexti? Er þjóðin orðið viti sínu fjær? Á sama tíma lætur nærri að þrota- bú Landsbankans standi undir Ice- save-kröfunum. Með fyrirsjáanleg- um bata í Bretlandi og uppgangi í London í tengslum við Ólympíuleik- ana þar í borg árið 2012 er alls ekki óraunhæft að heimtur upp í Icesave- höfuðstólinn verði 95 til 100 prósent! Ólafur Ragnar kannast áreiðan- lega við svartsýni finnska heimspek- ingsins Georgs Henriks von Wright um lýðræði og hnattvæðingu: „Menn geta enn haldið fast við þá trú að þróun samfélags í átt til auk- ins lýðræðis séu framfaraspor á leið til hamingju. Ég er sjálfur hallur und- ir þá trú. Ég dreg þó í efa að áfram- haldandi framfarabraut iðnvæðing- ar verði sigurför lýðræðis – nema þá ef til vill í algerlega formlegri og þar með inntaksrýrri merkingu. Hug- myndin um slíkt er goðsögn – rétt eins og sú ímyndun að meiri rann- sóknir og betri tækni geti afstýrt þeirri ógnun við tilveru okkar sem þær hafa sjálfar sært fram.“ Snautleg stjórnsýsla Auk heldur neyðist þjóðin til að taka við skoðunum um Icesave ofan úr Hæstarétti þar sem því er lýst að ís- lenskir stjórnmálaflokkar ættu að sameinast um að réttað verði í Ice- save-málinu fyrir íslenskum dóm- stóli. Eða gerðardómi sem væri rétt- látlega og hlutlaust skipaður. Dæma helst í leiðinni um beitingu bresku hryðjuverkalaganna og gildistöku ís- lensku neyðarlaganna. „Víst má telja að Bretar og Hollendingar muni taka vel í þessa afstöðu Íslands enda eru þetta hvort tveggja þjóðir sem teljast til réttarríkja og hafa langa hefð fyr- ir því að tryggja mönnum aðgang að dómstólum þegar deilt er um rétt- indi þeirra og skyldur.“ Vel má skilja að Jón Steinar Gunn- laugsson hæstaréttardómari skrifi undir svona texta í Morgunblað- inu, blaði Davíðs Oddssonar vin- ar síns. Verra er að sjá Sigurð Líndal lagaprófessor emeritus kvitta einnig undir þennan barnaskap. Viðsemj- endurnir hafa öll spil á hendi og geta hindrað dómstólaleiðina eins og þeim sýnist. Hér á landi er stjórnsýslan svo kauðsk og gegnsýrð af subbuskap að hæstaréttardómurum þykir sjálfsagt að taka að sér verk úti í bæ gegn þókn- un og láta skoðanir sínar í ljósi um pólitísk álitamál þegar það hentar. Gott væri að eiga forseta sem hefði meiri áhuga á aðskilnaði dómsvalds, framkvæmdavalds og löggjafarvalds en beinu vaxtalýðræði. Icesave: stærsta smjörklípa sögunnar KJALLARI MYNDIN 1 Hosmany Ramos: Enginn hnífur, engin árás Brasilíski læknirinn sem situr í fangelsi á Íslandi ber af sér allar sakir um að hann hafi ráðist á fangavörð. 2 Evrópumet í forsíðum Ásdís Rán heldur því fram að hún hljóti nú að vera búin að setja Evrópumet í að vera á flestum forsíðum á stystum tíma. 3 Chavez situr á olíuauðlind Það kann að vera að Hugo Chavez, forseti Venesúela, og þjóð hans sitji á stærstu olíuauðlindum heims. 4 Ice-T og Coco elska tölvuleiki Stjörnuparið Ice-T og Coco Austin drepa tímann á milli partía, leik- og fyrirsætu- starfa með því að hanga í tölvuleikjum. 5 Glitnir dældi peningum í Fons rétt fyrir hrun Fons, fjárfestingafélag í eigu Pálma Haraldssonar, fékk tugi milljarða króna að láni frá Glitni skömmu áður en allt hrundi . 6 Sendiherra Þýskalands lést í bílslys Sendiherra Þýskalands, doktor Karl-Ulrich Muller, fannst látinn í bifreið sinni í Norðurárdal á mánudaginn. 7 Atkvæðagreiðslu um Icesave hugsanlega frestað Hugsanlegt er að þjóðaratkvæðagreiðsl- unni um Icesave verði frestað nái hugmyndir nokkurra stjórnarliða fram að ganga. MEST LESIÐ á DV.is JÓHANN HAUKSSON útvarpsmaður skrifar „Ef Sjálfstæðisflokkurinn hefði stutt Icesave-samn- inginn um áramótin hefði forseti Íslands aldrei þorað að vísa málinu til þjóðarinnar.“ UMRÆÐA 27. janúar 2009 MIÐVIKUDAGUR 17 Ungar hetjur Á meðan Íslendingar léku rússneska björninn grátt í handboltanum höfðu þær Leonóra Dan Gústafsdóttir og Íris Ruth Hjartardóttir, nemendur í Langholtsskóla, komið sér fyrir við verslunina Rangá við Skipasund. Þar héldu þær stöllur tombólu til að safna fé fyrir Rauða krossinn og Kattholt. MYND RÓBERT REYNISSON

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.