Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2010, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2010, Blaðsíða 22
22 MIÐVIKUDAGUR 27. janúar 2010 FINNDU ÁSTINA SETTU RÉTTU KRÖFURNAR Misskildar kröfur: Flest okkar setja einhverjar kröf- ur varðandi útlit þegar við erum í makaleit. Samkvæmt rannsóknum virðist sem fallegt fólk laðist frek- ar að öðru fallegu fólki og þeir sem þykja síður myndarlegir að sínum jafnokum. Þýðir þetta að við horf- um mismunandi augum á hvað þýð- ir að vera aðlaðandi? Sérfræðingar frá Columbia-háskólanum ákváðu að athuga málið með hjálp stefnu- mótasíðu. Á síðunni www.HOTorNOT.com geta meðlimir gefið útliti hver ann- ars einkunn. Aðstandendur rann- sóknarinnar skoðuðu síðuna vand- lega og sérstaklega þann hluta þar sem meðlimir bjóða hver öðrum á stefnumót. Niðurstöður fyrri rann- sókna, um að fólk í svipuðum út- litsflokki sé líklegra til að hitta hvort annað, voru staðfestar en þar að auki kom í ljós að felstir vilja deita þá sem þykja aðeins myndalegri en þeir sjálfir. Í ljós kom að karlmenn setja meiri kröfur varðandi útlit kvennna sem þeir vilja deita og þeir eru með minni áhyggjur af eigin útliti en kon- ur. En niðurstöðurnar gefa einnig til kynna að flest okkar hafa mjög líkan smekk þegar kemur að útliti. Lang- felstir, sama í hvaða útlitsflokki þeir eru sjálfir, höfðu sömu skoðun á því hverjir þykja myndalegir og hverjir ekki. Útlit okkar sjálfra hefur því ekki áhrif á skoðun okkar á því hverjir eru myndarlegir og hverjir ekki. Hins vegar, þegar aðrar breytur voru skoð- aðar, kom í ljós að þeir sem þykja ekki mjög aðlaðandi sjálfir láta aðra þætti en útlit vega þyngra þegar þeir leita sér að maka, líkt og húmor. Lík- lega má því segja að fólk finni leið til að elska þá sem þeir geta verið með. Samkvæmt rannsóknum er algengast að við löðumst að fólki sem flokkast í svipaðan útlitsflokk og við sjálf. Samt erum við flest sammála um hverjir þykja aðlaðandi og hverjir ekki. Sérfræðingar í Col- umbia-háskólanum skoðuðu stefnumótasíðu og komust að því að útlit okkar hefur ekki áhrif á skoðun okkar á því hverjir þykja myndarlegir og hverjir ekki. Þeir síður myndarlegu láta aðra þætti vega þyngra í leit sinni að maka og finna sér þannig leið til að elska þá sem þeir geta verið með. Verður að hafa hár Hár er fínt en hvað ef efst á hans lista væru stór brjóst? Má hvorki eiga fyrrver- andi né börn Viltu virkilega minnka tjörnina, sem er ekki stór fyrir? Má ekki klæðast flís Grunnt en það má halda því fram að þeir karlmenn sem klæðast flíspeysu daginn út og inn séu líklegir til að bjóða konunni sinni út í sjoppu á brúðkaupsdaginn. Má ekki bera skartgripi Þú getur lesið heilmargt í karlmann með því að skoða skartið hans. Ef hann gengur með leðuról um hálsinn bundna í hauskúpu er líklegt að um egóista sé að ræða sem á sér enn drauma um að komast í Rolling Stones. Karlmaður yfir fertugu með eyrnalokka er vísbending um gráan fiðring. Stórar gullkeðjur á bringunni jafngildir stórri fingurnögl á litla putta. Sem sagt subbulegt. Verður að vera í góðri vinnu ... án þess að þurfa að hanga þar allan sólarhringinn og dröslast með fartölvuna í sumarfríið. Má ekki klæðast hettupeysum eða engu innan undir V-hálsmáls peysur Hettupeysur eru fyrir stráka. Bert undir V-hálsmáli er annað merki um egóista. Í þetta skiptið í bland við „ég er svo heitur“. Svona hljóma kröfulistar margra kvenna en ef þú skoðar listann betur sérðu að hann hentar 18 ára stúlku betur en þér. Ekkert á þessum lista er ófyrirgefanlegt eða óumsemjanlegt. Samband snýst um málamiðlanir. Er hann ekki þín týpa? Og þér sem hefur gengið svo vel með þær. Eða þannig. Hentu listanum og skoðaðu þessi atriði hér á eftir: Verður að vera góður Ef þú hefur heyrt hann öskra á einhvern, séð hann sparka í kettling, börn eða þreytandi afgreiðslufólk, þá er hann ekki sá rétti fyrir þig. Verður að laðast að konum Þótt það sé oft erfitt að hugsa til þess að maðurinn sem þú laðast að hafi elskað aðrar konur er það mun betra en að hann hafi elskað karlmenn. Verður að dýrka þig Verður að vera klárari en þú Allavega jafngáfaður. Annars ertu alltaf að leita að einhverju til að hanka hann á. Verður að hafa stærri fætur en þú Kannski ekkert sem er ófyrirgef- anlegt en betra. Og verður að vera loðnari. Verður að geta látið þig hlæja í öllum aðstæðum Líka þegar þið eruð mætt á flugvöllinn og hann uppgötvar að hann gleymdi vegabréfinu á náttborðinu. Þú verður að dýrka hann Ef þú getur ekki krossað við öll atriðin í þessum lista skaltu hugsa þig alvarlega um. Nauðsynlegar kröfur:

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.