Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2010, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 27. janúar 2010 MIÐVIKUDAGUR 9
Ásbjörn Óttarsson, þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins og útgerðarmaður af
Snæfellsnesi, hefur skilað 20 milljóna
króna arðgreiðslu úr Nesveri ehf., fyr-
irtæki sínu og fjölskyldu sinnar. Hann
sagðist í Kastljósþætti Sjónvarpsins á
þriðjudagskvöld hafa tekið arð úr fyr-
irtækinu 2007 frá árinu áður, en þá var
félagið rekið með tapi og skuldir þess
umfram eignir voru á þriðja hundrað
milljónir króna.
Ásbjörn bar við vankunnáttu og að
hann hefði ekki vitað að það varðaði
við lög að taka arð af neikvæðu eigin
fé. Hann gaf engar einhlítar skýringar
á ósundurgreindum aflaheimildum í
bókhaldi Nesvers sem færðar eru sem
óefnisleg eign fyrir 240 milljónir króna.
DV skýrði frá því 20. janúar síð-
astliðinn að Ásbjörn hefði tekið út
65 milljóna króna arð árið 2008 og 20
milljónir króna árið áður. Hann hefur
nú skilað 20 milljónunum inn í félag-
ið aftur og kvaðst hafa gert það í síð-
ustu viku eftir að Fréttablaðið hefði
borið arðgreiðsluna árið 2007 sér-
staklega undir hann.
Ásbjörn sagði að útgerð Nesvers
ehf. gengi vel og að hún ætti fyrir af-
borgunum af lánum út allt þetta ár.
Skuldir félagsins nema 1.140 millj-
ónum króna. Árið 2008 nam tap fé-
lagsins 574 milljónum króna og var
eigið fé þess í árslok bókfært 157
milljónir króna.
johannh@dv.is
SPENNA VEGNA
PRÓFKJÖRSAÐFERÐA
Samkvæmt nýjum lögum mátti kostnaður sérhvers frambjóðanda í prófkjöri Sjálf-
stæðisflokksins ekki fara upp fyrir 7,8 milljónir króna. Kostnaður við úthringiþjón-
ustu eina og sér, nam 7 milljónum króna. Frambjóðendur telja margir að það hafi
verið brot gegn tilmælum og þegjandi samkomulagi að leggja í slíkan kostnað.
Kostnaður efstu frambjóðenda
Sjálfstæðisflokksins við prófkjör-
ið um síðustu helgi er frá nokk-
ur hundruð þúsund krónum upp
í nokkrar milljónir króna. Dýrast
varð það hjá nokkrum þeirra sem
sóttust eftir öðru sæti listans. Geir
Sveinsson, sem hafnaði í 6. sæti,
gefur þó upp að heildarkostnað-
ur sinn hafi ekki verið meiri en 1,2
milljónir króna.
Nokkur atriði hamla gegn
kostnaðarsömum prófkjörum að
þessu sinni. Vörður, fulltrúaráð
sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík,
mæltist til þess að frambjóðend-
ur legðu ekki í meiri kostnað en
sem nemur 1,5 milljónum króna.
Frambjóðendur í prófkjöri Sjálf-
stæðisflokksins um síðustu helgi,
sem DV hefur rætt við, segja að
vilji hafi verið til þess að fylgja
eins konar samkomulagi um að
halda kostnaði í skefjum. Það hafi
hins vegar ekki tekist í öllum til-
vikum. Áslaug Friðriksdóttir, sem
hafnaði í 7. sæti, segist hafa sett
upp stranga áætlun í samræmi við
tilmælin og kostnaðurinn eigi ekki
að hafa farið fram úr því marki.
Í öðru lagi eru hömlur í nýju
lögunum lagðar við framlögum
til frambjóðenda. Í sjöundu grein
laganna segir berum orðum:
„Heildarkostnaður frambjóðenda
í prófkjörum af kosningabaráttu
má ekki vera hærri en sem nemur
1 milljón króna króna að viðbættu
álagi.“
Álagið sem kveðið er á um
nemur 75 krónum fyrir hvern íbúa
18 ára og eldri á kjörsvæði með
fleiri en 50 þúsund íbúa.
Íbúar í Reykjavík, 18 ára og
eldri, eru um 90 þúsund. Það
merkir að kostnaður við hvern
frambjóðanda í prófkjöri má vera
6,75 milljónir króna auk einnar
milljónar til viðbótar.
Frambjóðandi í Reykavík er því
innan löglegra marka ef kostnað-
ur hans fer ekki yfir 7,75 milljónir
króna.
Hringja fyrir 4.000 á tímann
Frambjóðendur í prófkjörum beita
ýmsum aðferðum við að ná til kjós-
enda. Prófkjör Sjálfstæðisflokksins
eru nánast dæmd til þess að vera
kostnaðarsöm þar eð fjöldi sjálf-
stæðismanna á skrá í höfuðborginni
er hartnær 20 þúsund.
Algengt er að frambjóðend-
ur prenti bæklinga eða dreifirit og
beri þau út til borgarbúa eða flokks-
bundinna manna. Kostnaðurinn
við þetta skríður hæglega yfir eina
milljón. Aðkeypt dreifingarþjónusta
hleypur umsvifalaust á hundruðum
þúsunda króna.
Önnur aðferð er að auglýsa í fjöl-
miðlum. Auglýsingar frambjóðenda
Sjálfstæðisflokksins í prófkjörinu
um síðustu helgi voru áberandi síð-
ustu dagana, ekki þó heilsíðuauglýs-
ingar, enda reyndu þeir margir að
virða heiðursmannasamkomulag
um að hleypa ekki kostnaði upp úr
öllu valdi.
Þriðja aðferðin er sú að hafa sam-
band við hvern flokksbundinn kjós-
anda. Þetta reyna frambjóðendur og
stuðningsmenn þeirra oft að gera
sjálfir. En það er yfirgripsmikið verk
að hafa samband við nær 20 þúsund
flokksbundna menn.
DV hefur góðar heimildir fyrir
því að frambjóðendum Sjálfstæðis-
flokksins hafi boðist fagleg úthringi-
þjónusta þar sem innheimtar eru allt
að 4.000 krónur á tímann. Að gefn-
um tilteknum forsendum um afköst
getur slíkur reikningur hæglega far-
ið í 8 milljónir króna. Viðkomadi út-
hringjendur voru reiðubúnir til þess
að veita nokkurn afslátt sem komið
gat þessum kostnaði niður í um 7
milljónir króna.
Engar 10 milljónir
Að því gefnu að frambjóðandi hafi í
senn auglýst og keypt slíka úthringi-
þjónustu virðist kostnaðurinn auð-
veldlega geta nálgast 10 milljónir
króna.
Júlíus Vífill Ingvarsson hreppti
annað sætið í prófkjöri Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavík. Hann studdist
við aðkeypta úthringiþjónustu að
eigin sögn auk þess sem hann aug-
lýsti í blöðum. Úthringingar ann-
arra frambjóðenda virðast hafa ver-
ið óformlegri og framkvæmdar af
stuðningsmönnum fremur en með
aðkeyptri þjónustu.
Júlíus Vífill segir að kostnaður
liggi fyrir eftir nokkra daga en þver-
tekur fyrir að hann hafi nálgast 10
milljónir króna. „Þessar tölur eru
fráleitar og algerlega fjarri lagi. Blað-
ið byggir þetta á forsendum sem það
gefur sér um minn kostnað. Þær eiga
sér enga stoð í veruleikanum. Rétt-
ar tölur verða birtar þegar þær liggja
fyrir og verða afhentar opinberum
aðilum eins og lög gera ráð fyrir,“
segir Júlíus Vífill.
JÓHANN HAUKSSON
blaðamaður skrifar: johannh@dv.is
Viðkomandi úthringjend-
ur voru reiðubúnir til
þess að veita nokkurn
afslátt sem komið gat
þessum kostnaði niður
í um 7 milljónir króna.
Lenti í 6. sæti Geir Sveinsson upp-
lýsir að hann hafi lagt um 1,2 milljónir
króna í prófkjörið. Með honum á
myndinni er Jóhanna Vilhjálmsdóttir
eiginkona hans.
Lenti í 7. sæti Áslaug Friðriksdóttir
kveðst hafa sett upp stranga áætlun
og haldið kostnaði í námunda við
1,5 milljónir króna. Hún studdist við
úthringingar.
Lenti í 2. sæti Nokkrum frambjóðendum gremst að Júlíus Vífill Ingvarsson hafi
hleypt kostnaði langt upp fyrir þau tilmæli sem gefin höfðu verið. Hann er þó ekki
einn um að hafa keyrt fram úr. Með honum á myndinni er Svanhildur Blöndal.
Ásbjörn Óttarsson Upplýsti í Kastljósþætti að hann hefði skilað 20 milljóna króna
arðgreiðslu úr fyrirtæki sínu.
Ásbjörn Óttarsson segist ekki viljandi hafa tekið arð ólöglega úr fyrirtæki sínu:
Skilaði 20 milljónum eftir umfjöllun
inkonu hans eftir bankahrunið. Svar-
aði Sigurður fyrirspurn DV á þá leið að
þar sem þetta væru spurningar sem
vörðuðu hans persónulegu fjárreiður
ætlaði hann ekki að svara þeim á op-
inberum vettvangi.
Samkvæmt ársreikningi eignar-
haldsfélags Sigurðar árið 2007 voru
hlutabréf hans í Exista bókfærð á
rúmar 93 milljónir króna. Á sama tíma
voru langtímaskuldir félagsins um 86
milljónir króna. Persónulegar ábyrgð-
ir hans á eigin skuldum voru því líkast
til einnig felldar niður með ákvörðun-
inni eftir bankahrunið árið 2008.
Sonur Brynjólfs með kúlulán
Af öðrum lægra settum starfsmönn-
um sem fengu lán til að kaupa hluta-
bréf í Exista má nefna Bjarna Brynj-
ólfsson, sem var framkvæmdastjóri
eigin viðskipta hjá Exista, en sam-
kvæmt ársreikningi félags hans, B2
ehf., voru skuldir hans rúmar 85 millj-
ónir króna í árslok 2007. Í ársreikn-
ingnum er tekið fram að þessar skuldir
séu kúlulán sem koma áttu til greiðslu
á árinu 2009. Bjarni er, sem kunnugt
er, sonur Brynjólfs Bjarnasonar, for-
stjóra Skipta, sem einnig er í eigu þeir-
rra Bakkabræðra.
Heimildir DV herma að ekki liggi
fyrir hvort þessir lægra settu stjórn-
endur verði yfirheyrðir en það er ekki
útilokað þar sem rannsóknin á mál-
inu hjá sérstökum saksóknara er enn
á frumstigi og verið er að ná utan það
hjá embættinu. Til að mynda er hvorki
vitað hversu margir starfsmenn fengu
felldar niður persónulegar ábyrgðir á
lánum sínum né hversu há heildar-
upphæðin var nákvæmlega. Heimild-
ir DV herma að þær séu þó á annan
milljarð.
Fjármálastjóri og
forstöðumenn skulduðu
Fjármálastjóri Exista, Sveinn Þór
Sveinsson, mun sömuleiðis hafa
skuldað tæpar 45 milljónir króna í árs-
lok 2007 vegna hlutabréfakaupa í Ex-
ista. Skuldirnar voru á gjalddaga árið
2009. Hlutabréfin voru inni í eignar-
haldsfélaginu Halasund sem er í eigu
hans og konu hans.
Einn af lögfræðingum Exista, Ás-
mundur Tryggvason, átti hlutabréf
í Exista sem metin voru á nærri 140
milljónir króna á kostnaðarverði í árs-
lok 2008. Félagið skuldaði nærri 150
milljónir króna og átti að greiða þessar
skuldir á árinu 2009. Félag Ásmundar
heitir Aplus.
Tveir af forstöðumönnum Exista
fengu sömuleiðis kúlulán til að kaupa
bréf í félaginu. Annar þeirra, Guðrún
Þorgeirsdóttir, átti hlutabréf í Exista
sem voru 50 milljóna virði á kostnað-
arverði í árslok 2008. Skuldir eignar-
haldsfélags hennar, Olympus Mons,
voru um 75 milljónir á sama tíma og
voru á gjalddaga á árinu 2009. Líkt og í
hinum tilfellunum má fullyrða að lán-
ið hafi verið veitt til að kaupa umrædd
hlutabréf í Exista.
Forstöðumaðurinn, Haraldur
Þórðarson, skuldaði einnig rúmlega
102 milljónir króna í árslok 2008 og
var hann skráður fyrir hlutabréfum í
Exista sem voru bókfærð á 50 milljónir
króna í ársreikningi eignarhaldsfélags
hans, Drápuhlíðar.
Eins og áður segir liggur ekki ljóst
fyrir hverjir af þessum einstaklingum
hjá Exista verða teknir til yfirheyrslu
hjá sérstökum saksóknara eða hvort
rannsóknin beinist að þeim beint.
Hins vegar má fullyrða að rannsókn
sérstaks saksóknara á þessum fjórum
atriðum mun fela í sér að rætt verður
við aðaleigendur félagsins, Lýð og Ág-
úst Guðmundssyni, og forstjórana, Er-
lend Hjaltason og Sigurð Valtýsson.
n 1. Sala á Bakkavör frá Exista
haustið 2008. Ákvæði í lána-
samningum bönnuðu sölu eigna
undan samstæðunni án samþykkis
kröfuhafa.
n 2. Niðurfelling persónulegra
ábyrgða á lánum sem veitt voru við
kaup starfsmanna á hlutabréfum í
félaginu 2006.
n 3. Yfirfærsla skuldar og hlutabréfa
í félag í eigu annars af tveimur
forstjórum félagsins.
4. Tilkynning um hlutafjáraukningu í
félaginu Exista um 50 milljarða.
Atriði sem sak-
sóknari skoðar
varðandi Exista