Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2010, Side 8
8 MIÐVIKUDAGUR 27. janúar 2010 FRÉTTIR
Sérstakur saksóknari, Ólafur Hauks-
son, rannsakar niðurfellingu per-
sónulegra ábyrgða á lánum til lyk-
ilstarfsmanna Exista sem nema 1,2
milljörðum króna. Lánin voru veitt til
kaupa á hlutabréfum í Exista og má
áætla að þau hafi hækkað mikið þar
sem þau voru í erlendum myntum. Lík-
lega er upphæðin því nær 2 milljörðum
króna í dag sé tekið mið af gengisbreyt-
ingum. Niðurfærslan á ábyrgðunum
átti sér stað skömmu eftir bankahrunið
haustið 2008.
Ólafur gaf það út á þriðjudag að
hann væri að rannsaka niðurfærslu
ábyrgðanna auk fjögurra annarra at-
riða í starfsemi Exista sem kunna að
varða við lög. Fjöldi húsleita var gerð-
ur hér á landi og í Bretlandi í höfuð-
stöðvum Exista og hjá Deloitte og lög-
mannsstofunni Logos.
Fullyrða má að helstu stjórnend-
ur og eigendur Exista verði yfirheyrðir
vegna málsins, meðal annars Bakka-
bræðurnir Lýður og Ágúst Guðmunds-
synir og forstjórarnir Sigurður Valtýs-
son og Erlendur Hjaltason.
Yfirheyrslur fóru fram frá hádeg-
isbilinu á þriðjudag og fram á kvöld
og voru margir yfirheyrðir samkvæmt
heimildum DV. Ekki hefur tekist að
fá uppgefið hverjir þetta voru en yfir-
heyrslurnar halda áfram á miðvikudag.
Fengu lán frá Kaupþingi
Starfsmennirnir fengu upphaflega lán
frá Kaupþingi árið 2006 til að kaupa
hlutabréfin í Exista. Veðið fyrir bréf-
unum var í hlutabréfunum sjálfum en
Exista var stærsti hluthafi Kaupþings
og stærsti skuldari bankans. Exista yf-
irtók síðar lán starfsmannanna frá
Kaupþingi og í nóvember 2008 sendu
Sigurður Valtýsson og Erlendur Hjalta-
son, sem sjálfir höfðu fengið lán til að
kaupa hlutabréf í Exista, bréf til starfs-
manna félagsins þar sem þeir létu þá
vita að þeir væru ekki í persónulegum
ábyrgðum vegna lánanna. Þegar verð-
gildi bréfanna í Exista lækkaði má því
segja að verðmæti veðanna fyrir lánun-
um hafi líka lækkað.
Ólafur Hauksson mun meðal ann-
ars vera að rannsaka hvort niðurfærsla
ábyrgðanna varði við 76. grein hlutafé-
lagalaga en ákvæðið á að meina huta-
félagi að mismuna ákveðnum hlut-
höfum eða öðrum á kostnað annarra
eigenda félagsins. Einnig er hugsan-
legt að um sé að ræða brot á auðgunar-
brotakafla hegningarlaga.
Niðurfærslan á lánum starfs-
mannanna er enn eitt dæmið um kúlu-
lánveitingar hjá íslenskum félögum
og fyrirtækjum á árunum fyrir banka-
hrunið. Áður hefur meðal annars verið
fjallað um sams konar skuldaniðurfell-
ingu hjá lykilstarfsmönnum Kaupþings
rétt fyrir bankahrunið. Exista-málið er
þó það fyrsta sem skoðað er með tilliti
til mögulegra lögbrota.
Erlendur hæstur
Erlendur Hjaltason, annar forstjóra Ex-
ista, skuldar í gegnum félag sitt Háu-
kletta ehf. 611 milljónir króna. Félagið
átti hlutabréf í Exista og voru langtíma-
lán félagsins í erlendum myntum sam-
kvæmt ársreikningi félagsins fyrir árið
2008.
Samkvæmt tilkynningu sem Exista
sendi til Kauphallarinnar árið 2006
áttu synir Erlends, þeir Hjalti Geir og
Valgeir, félagið Háukletta með föður
sínum. Ekki liggur ljóst fyrir hvenær
synir Erlends seldu hlut sinn í félaginu.
Hjalti Geir starfaði fyrir bankahrun
sem blaðamaður á Viðskiptablaðinu
sem þá var í eigu Exista.
Erlendur færði hús sitt að Auðar-
stræti 3 í Reykjavík yfir á Aðalheiði Val-
geirsdóttur, eiginkonu sína, þann 25.
september 2008. Sigurður Valtýsson
færði hús sitt ekki yfir á eiginkonu sína
fyrr en 20. október 2008. Endurskoð-
andi Erlendar er Reynir Vignir, for-
maður skilanefndar Straums. Reynir er
stjórnarformaður PricewatehouseC-
oopers á Íslandi og einn eigenda.
Sigurður viðriðinn tvö mál
Sigurður Valtýsson, annar forstjóra Ex-
ista, færði allan eignarhlut sinn í Ex-
ista til félagsins Yenvis Inc. á Tortóla
11. september 2008 einungis nokkr-
um vikum fyrir bankahrunið. DV sagði
frá þessu í maí 2009 og rannsakar sak-
sóknari þetta mál sem mögulegt brot
gegn auðgunarbrotakafla hegningar-
laga. Sigurður er sonur Valtýs Sigurðs-
sonar ríkissaksóknara og bíður það
væntanlega starfsmanna sérstaks sak-
sóknara að yfirheyra hann sem verður
að að teljast nokkuð sérkennileg staða.
Í tilkynningu sem Exista sendi til
Kauphallarinnar 12. september 2008
keypti Yenvis Inc. öll bréf félaganna
Svalt ehf. og Sigurlindar ehf. Þau félög
voru á þeim tíma í eigu Sigurðar. Berg-
lind Skúladóttir Sigurz, eiginkona Sig-
urðar, er hins vegar skráð fyrir félögun-
um í dag.
Auk þess að færa íslensk hlutafélög
sín yfir á eiginkonu sína færði Sigurð-
ur hús sitt að Iðulind 2 í Kópavogi yfir
á hana haustið 2008 stuttu fyrir banka-
hrunið. Húsið er um 250 fermetrar og
markaðsverðmæti þess vart undir 60
milljónum króna.
Samkvæmt ársreikningum félag-
anna Svalt og Sigurlindar sem nú eru
í eigu eiginkonu Sigurðar hafa félögin
náð að losa sig undan skuldum við ís-
lenskar lánastofnanir þegar bréfin í Ex-
ista voru færð til Tortóla-félagsins Yen-
vis.
Félagið Svalt veitti Sigurlind 140
milljóna króna óverðtryggt íslensk lán
með 16,5 prósenta vöxtum árið 2008.
Er lánið á gjalddaga árið 2012. Sigur-
lind skuldaði árið áður 86 milljónir
króna í dollurum, jenum og frönkum.
Voru allar langtímaskuldir til greiðslu í
einu lagi árið 2009. Ekki liggur ljóst fyrir
hvernig Yenvis Inc. greiddi fyrir bréfin í
Exista sem urðu nánast verðlaus mán-
uði eftir að þau voru seld til Tortóla.
Einkamál Sigurðar
Þegar DV fjallaði um málið í maí
2009 voru Sigurði Valtýssyni send-
ar fimm spurningar. Var hann spurð-
ur af hverju hann færði bréfin til Tor-
tóla, hvernig Yenvis stæði, önnur félög
hans og af hverju hús hans að Iðulind
2 í Kópavogi hefði verið fært yfir á eig-
Sérstakur saksóknari rannsakar lán til starfsmanna Exista upp á annan milljarð króna sem voru felld niður.
Lánin voru ætluð til hlutabréfakaupa í Exista. Saksóknari rannsakar fjögur atriði tengd Exista sem eru
möguleg lögbrot. Fjöldi húsleita var gerður í Reykjavík og London á þriðjudag. Yfirheyrslur stóðu yfir á
þriðjudag og halda áfram á miðvikudag.
FELLDI NIÐUR LÁN
FYRIR 1,2 MILLJARÐA
Starfsmenn Exista sem fengu lán til að
kaupa í Exista:
Skuldir eignarhaldsfélaga
Erlendur Hjaltason, forstjóri 611 milljónir
Sigurður Valtýsson, forstjóri 86 milljónir
Bjarni Brynjólfsson, framkvæmdastjóri
eigin viðskipta
85 milljónir
Sveinn Þór Sveinsson, markaðsstjóri 45 milljónir
Guðrún Þorgeirsdóttir, forstöðumaður 75 milljónir
Haraldur I. Þórðarson, forstöðumaður 102 milljónir
Ásmundur Tryggvason, lögmaður 147 milljónir
Heildarupphæð 1151 milljón
Exista
ANNAS SIGMUNDSSON OG
INGI F. VILHJÁLMSSON
blaðamenn skrifa: as@dv.is og ingi@dv.is
Rannsakaðir Eigendur og
stjórnendur Exista verða nær
örugglega yfirheyrðir vegna
rannsóknar sérstaks saksóknara
á málefnum félagsins. Fyrstu
fjórir frá vinstri eru Lýður Guð-
mundsson, Sigurður Valtýsson,
Erlendur Hjaltason og Ágúst
Guðmundsson.
Færði sitt til Tortóla
Sigurður Valtýsson, forstjóri
Exista, er innviklaður í rann-
sókn sérstaks saksóknara.
Bæði sem forstjóri félagsins
og eins fyrir að hafa fært
skuldir og hlutabréf í sinni
eigu yfir til Tortóla skömmu
fyrir bankahrunið 2008.
11. SEPTEMBER
2006
n Starfsmenn
og stjórnendur
Exista fá að
kaupa hlutabréf í
félaginu og fá til
þess erlend lán hjá
Kaupþingi.
2. ÁGÚST 2008
n Lýður Guðmundsson,
stjórnarformaður
Exista, gefur það út
á kynningarfundi að
Exista sé fjármagnað að
fullu næstu 79 vikur eða
út árið 2009.
2 0 0 6
ATBURÐARÁSIN HINGAÐ TIL
11. SEPTEMBER 2008
n Sigurður Valtýsson,
forstjóri Exista, færir
allan eignarhlut sinn í
Exista til Yenvis Inc. á
Tortóla.
25. SEPTEMBER 2008
n Erlendur Hjaltason,
forstjóri Exista, færir
hús sitt að Auðarstræti
3 í Reykjavík yfir á
eiginkonu sína.
26. JANÚAR 2010
n Sérstakur saksóknari
og breska efnahagsbrota-
deildin gera húsleit á átta
stöðum á Íslandi og fjórum
stöðum í Bretlandi í tengsl-
um við hugsanleg brot
tengd Exista. Yfirheyrslur
hófust á sama tíma.
2 0 1 0
10. OKTÓBER 2008
n Bakkabræður færa 40 prósenta eignarhlut Exista yfir í
félagið Ell 182 ehf. Félagið fær „seljendalán“ hjá Exista en
nýja félagið er í eigu þeirra sjálfra.
20. OKTÓBER 2008
n Sigurður Valtýsson, forstjóri Exista,
færir hús sitt að Iðulind 2 í Kópavogi
yfir á eiginkonu sína.
30. OKTÓBER 2008
n Gefin heimild til að auka hlutafé
Exista um 50 milljarða króna að nafnverði. Greitt með hlutafé
í félaginu Klakki ehf. að nafnvirði einn milljarður króna eða
1/50 hluta af raunverulegu verðmæti. Með gjörningnum
hefðu Ágúst og Lýður strax eignast 78 prósent í Exista í
gegnum félagið BBR ehf.
3. NÓVEMBER 2008
n Forstjórar Exista senda starfs-
mönnum félagsins tölvupóst og
tilkynna þeim að þeir beri enga
persónulega ábyrgð á lánum til
hlutabréfakaupa í Exista. Lánin
séu tryggð með veði í Existabréf-
um en engar kröfur verði gerðar
á hendur starfsmönnum hrökkvi
andvirði bréfanna ekki fyrir
eftirstöðvum skuldanna.
2 0 0 8