Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2010, Qupperneq 13
NEYTENDUR 27. janúar 2010 MIÐVIKUDAGUR 13
GEYMSLUTÍMI Í ÍSSKÁP Smjör geymist í 2 til 3
vikur; smjörlíki í 2 til 3 mánuði; ostur í 1 til 4 vikur og
egg í 3 vikur að því er fram kemur í Handbók heimil-
isins. Í bókinni, sem er frá árinu 1992, má finna gríðar-
mikinn fróðleik um allt sem viðkemur heimlinu. Um
geymslu matvæla í ísskáp segir meðal annars að jóg-
úrt geymist í 1 til 2 vikur, hrátt kjöt í bitum í 2 til 3 daga
og stórar steikur í 5 daga, rétt eins og beikon.
EKKI FRYSTA ALLT Venjulegur ostur, jógúrt, sýrð-
ur rjómi og majónes er á meðal þess sem ekki ætti að
frysta. Osturinn getur molnað og hitt sem upp er talið
getur skilið sig við frystingu. Kryddmikla rétti ætti ekki
að frysta þar sem bragðið getur breyst og orðið enn
sterkara. Pastaréttir breyta um áferð við frystingu. Þá
ber að varast að margfrysta og þíða matvæli, það getur
valdið eitrun.
SÚRMATUR
HÆKKAR
Súrmaturinn vinsæli sem borð-
aður er á þorranum virðist vera
að hækka í verði samkvæmt
nýrri verðkönnun Neytenda-
samtakanna á verði á súrmati
í fötu í nokkrum verslunum.
Neytendastofa telur að súrmat-
urinn virðist hafa hækkað um
nokkur prósentustig á milli ára í
flestum búðum nema hjá Bónus
sem var í hópi dýrustu verslana
áður en er nú í hópi ódýrustu.
Kraftaverkalausninni MMS skal fargað eins og spilliefni:
„HÆTTULEG VARA“
MMS ætti lögum samkvæmt að vera merkt með
varnaðarmerkinu X, sem gefur til kynna að var-
an sé hættuleg, auk níu annarra varnaðarsetn-
inga og er það innflytjandi eða umboðsaðili
sem ber ábyrgð á því að varan sé rétt merkt. Frá
þessu er greint á heimasíðu Neytendasamtak-
anna.
Kraftaverkalausnin MMS hefur verið til um-
ræðu í fjölmiðlum frá því upp komst að í drykkn-
um er natríum klórít, sem er einfadldlega eitur,
„sem getur valdið alvarlegum veikindum og
jafnvel dauða,“ að því er kom fram í tilkynningu
á vef Landlæknisembættisins frá Eitrunarmið-
stöð Íslands. Kraftaverkalausninni var ætlað
að lækna marga skjúkdóma, allt frá alnæmi til
berkla.
Neytendasamtökin höfðu samband við Heil-
brigðiseftirlit Reykjavíkur og Heilsubúðina á
Njálsgötu sem hafði vöruna til sölu. Heilbrigð-
iseftirlitið staðfsesti að ekki mætti selja vöruna
vegna ófullnægjandi merkinga. „Rekstraraðilar
Heilsubúðarinnar benda á að umfjöllun um vör-
una hafi verið mjög einhliða og þess misskiln-
ings gæti að varan sé ætluð til beinnar neyslu.
Hið rétta er að kaupa þarf annað efni samhliða
MMS og þegar þessum efnum er blandað sam-
an í réttum hlutföllum er efnablandan örugg til
neyslu. Hins vegar hefur Heilsubúðin ákveðið
að selja vöruna ekki á næstunni og bjóða þeim
endurgreiðslu sem ekki vilja nota vöruna í kjöl-
far umfjöllunarinnar. Öðrum, sem vilja losa sig
við vöruna, er bent á að þar sem um efnavöru er
að ræða þarf að koma henni í förgun til Sorpu
eða spilliefnamóttöku,“ segir á ns.is. baldur@dv.is
ALLIR TIL AUSTUR-EVRÓPU
gengi krónunnar gagnvart jeni hef-
ur styrkst um 2 prósent og gagnvart
Bandaríkjadal um heilt 1 prósent frá
því fyrir ári.
Á hinn bóginn geta þeir bölvað
því að ástralskur dalur er nú 37 pró-
sentum dýrari en í fyrra, brasilískt
ríal 29 prósentum dýrara, sterlings-
pund kostar nú 16 prósentum meira
en fyrir ári og evran er 8 prósentum
dýrari. Flestir gjaldmiðlar kosta nú
fleiri krónur en í fyrra, þrátt fyrir að
mesta gengishrunið hafi orðið í hitt-
iðfyrra; árið 2008.
Þó skal bent á að gengisþróun síð-
ustu tveggja ára segir ekkert til um
verðlag í löndunum fyrir. Þannig fær
fólk yfirleitt mest fyrir peninginn í
Asíu, þó það hafi breyst til hins verra
frá því gengi krónunnar fór að hrynja.
Fæðið borgað fyrir fram
Tómas Gestsson, framkvæmdastjóri
Heimsferða, segir að staðir eins og
Tyrkland og Spánn verði áfram vin-
sælir. Líran hafi vissulega ekki hækk-
að eins mikið í verði og aðrir gjald-
miðlar en evran sé þó mikið notaður
gjaldmiðill í Tyrklandi. Hann segir
að færst hafi í aukana að fólk kaupi
ferðir þar sem matur og drykkur sé
innifalið í verðinu, ýmist hálfan eða
allan daginn auk þess sem sú nýjung
að bjóða tíu til ellefu nátta ferðir til
Tyrklands hafi mælst vel fyrir. Með
því að taka fæði viti fólk fyrir fram
hvað ferðin muni kosta. Tómas segir
að ferðirnar í vetur hafi nánast selst
upp og eitthvað sé laust í vorferðum
í mars. „Svo erum við núna að bjóða
tíu þúsund króna afslátt af mörgum
ferðum, það getur sparað fólki mik-
inn pening þegar um fjölskyldur er
að ræða,“ bendir hann á.
Þorsteinn Guðjónsson, forstjóri
Úrvals Útsýnar, er, rétt eins og Tóm-
as, nokkuð bjartsýnn fyrir sumarið.
Hann segir að salan fari af stað með
meiri krafti nú en í fyrra og stað-
ir á borð við Tyrkland og Spán séu
vinsælir. „Fólk gerir eftir sem áður
kröfur til góðra gististaða og um-
hverfis þar sem afþreying er góð og
fjölbreytt. Líran í Tyrklandi hefur
verið hávaxtamynt og hún hefur líka
fallið gagnvart evrunni, eins og krón-
an,“ bendir Þorsteinn á.
Hann segir algengt að fólk vilji
kaupa ferðir þar sem fæði er innifal-
ið. Það reynist oft hagstæðara.
Hækkun gjaldmiðla gagnvart
krónunni frá janúar 2008.
Tyrknesk líra 56,48%
Sterlingspund 60,08%
Rússnesk rúbla 60,10%
Pólskt slot 66,21%
Indversk rúpía 66,74%
Sænsk króna 74,21%
Ungversk forinta 78,35%
Norskt króna 83,89%
Tékknesk króna 86,15%
Króatísk kúna 87,05%
Búlgarskt lev 87,56%
Evra 87,58%
Kanadadalur 87,60%
Dönsk króna 87,72%
Bandaríkjadalur 94,87%
Hong Kong dalur 95,78%
Ástralskur dalur 100,40%
Svissneskur franki 105,54%
Kínverskt júan 106,70%
Japanskt jen 132,48%
Óhagstætt gengi
NOREGUR
+84%
0,6 SVÍÞJÓÐ
+74%
0,9
DANMÖRK
+88%
0,8
TYRKLAND
+56%
2,0
JAPAN
+132%
1,1
KÍNA
+107%
4,2
PÓLLAND
+66%
3,6
LETTLAND
+85%
1,6
SVISS
+106%
1,2
BELGÍA
+88%
2,8
BRETLAND
+60%
1,4
BÚLGARÍA
+88%
5,1
RÚSSLAND
+60%
3,0
TÉKKLAND
+86%
5,0
SPÁNN
+88%
1,8
Getur valdið dauða MMS er hættulegt og getur
valdið dauða.
SUMARFRÍ FJÖGURRA MANNA
FJÖLSKYLDU Á ÍSLANDI
n Ferðamáti: Heimilisbíllinn.
n Bensín hringinn í kringum
landið: 26.000 kr.
n Tjaldsvæði í viku: 22.000 kr.
n Matur á dag: 5.000 kr.
n Einn bjór á veitingastað: 760 kr.
SUMARFRÍ FJÖGURRA MANNA
FJÖLSKYLDU Í TYRKLANDI
n Ferðamáti: Vita-ferðir.
n Lengd ferðar: Tíu nætur um
miðjan júlí.
Gisting á þriggja stjörnu íbúðarhót-
eli.
Allt fæði og drykkir eru innifaldir.
n Verð á mann ef 4 deila íbúð með
einu svefnherbergi: 106.700 kr.
n Bjór utan hótels: 380 kr.
SUMARFRÍ ÞRIGGJA MANNA
FJÖLSKYLDU Á SPÁNI
n Ferðamáti: Heimsferðir.
n Lengd ferðar: Átta nætur í lok
maí.
Gisting á þriggja stjörnu hóteli.
Allt fæði og drykkir innifaldir.
Miðað við 2 fullorðna og barn.
n Verð á mann: 113.867 kr.
n Bjór utan hótels: 420 kr.
Dæmi um
sumarfrí
Land Fjöldi*
Búlgaría 5,1
Tékkland 5
Slóvakía 4,6
Kína 4,2
Ungverjaland 3,6
Pólland 3,6
Litháen 3
Rússland 3
Portugal 3
Belgía 2,8
Króatía 2,8
Slóvenía 2,6
Eistland 2,3
Bandaríkin 2
Tyrkland 2
Holland 1,9
Spánn 1,8
Land Fjöldi*
Lettland 1,6
Hong Kong 1,5
Grikkland 1,5
Austurríki 1,4
Taívan 1,4
Kanada 1,4
Bretland 1,4
Ástralía 1,3
Sviss 1,2
Japan 1,1
Ítalía 1
Írland 1
Finnland 1
Svíþjóð 0,9
Frakkland 0,8
Danmörk 0,8
Noregur 0,6
Bjórverð
* BJÓRAR SEM HÆGT ER AÐ FÁ Á VERÐI EINS ÍSLENSKS BJÓRS.