Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2010, Síða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2010, Síða 20
Friðrik Ólafsson SKÁKMEISTARI, FYRRVERANDI FORSETI FIDE OG FYRRVERANDI SKRIFSTOFUSTJÓRI ALÞINGIS Friðrik fæddist í Reykjavík og ólst þar upp. Hann lauk stúdentsprófi frá MR 1955. Hann helgaði sig skákinni um nokkurra ára skeið en hóf síðan nám í lögfræði við HÍ 1962 og lauk embætt- isprófi þaðan 1968. Friðrik var fulltrúi í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu 1968-74, at- vinnuskákmaður 1974-78, forseti Alþjóða skáksambandsins (FIDE) 1978-82, ritstjóri Lagasafns Íslands 1982-83 og skrifstofustjóri Alþingis 1984-2005. Friðrik er einn sigursælasti skák- maður Íslendinga, fyrr og síðar, og var um skeið í hópi allra sterkustu skák- manna heims. Hann varð fimm sinn- um Íslandsmeistari í skák, fyrst 1952, og tvisvar sinnum Norðurlanda- meistari í skák, 1953 og 1971. Friðrik varð alþjóðlegur skák- meistari 1956 og fyrsti íslenski stór- meistarinn í skák 1958. Á skákferli sínum tefldi Friðrik á skákmótum víða um heim og bar sigur úr býtum á skákmótinu í Hastings 1955-56, í Beverwijk í Hollandi 1959, í Mari- anske Lasne í Tékkóslóvakíu 1961, á alþjóðlegu skákmótunum í Reykja- vík 1966, 1972 og 1976 og í Wijk an Zee í Hollandi 1975, auk fjölda ann- arra. Á millisvæðamótinu í Portoroz 1958 vann hann sér rétt til þátttöku í áskorendakeppninni um heims- meistaratitilinn í skák í Júgóslavíu 1959 þar sem hann varð sjöundi í röðinni. Friðrik starfrækti Skákskóla Frið- riks Ólafssonar 1982-84. Friðrik hefur samið bækurn- ar Lærið að tefla, kennslubók í skák, ásamt Ingvari Ásmundssyni, útg. 1958; Heimsmeistaraeinvígið í skák, 1972, ásamt Freysteini Jóhannssyni, útg. 1972, og Við skákborðið í aldar- fjórðung, útg. 1976. Þá hefur hann skrifað fjölda greina um skák í tímarit og dagblöð. Hann hlaut riddarakross fálkaorðunnar 1972 og stórriddara- kross 1980. Fjölskylda Kona Friðriks er Auður Júlíusdótt- ir, f. 4.3. 1941, Foreldrar hennar voru dr. Júlíus Sigurjónsson, prófessor í Reykjavík, og k.h. Bergljót Sigurjóns- son f. Patursson. Börn Friðriks og Auðar eru Berg- ljót, f. 24.8. 1962, gift Friðriki S. Hall- dórssyni, og Áslaug, f. 17.8. 1969. Systur Friðriks eru Margrét, f. 28.11.1930, og Ásta, f. 26.1.1932. Foreldrar Friðriks voru Ól- afur Friðriksson, f. 14.2.1905, d. 19.10.1983, verslunarmaður í Reykja- vík og fyrrv. forseti Skáksambands Ís- lands, og k.h., Sigríður Á.D. Símonar- dóttir, f. 8.1. 1908, d. 9.12. 1992. Ætt Föðurbróðir Friðriks, samfeðra, var Friðrik, prófastur á Húsavík, faðir Arnar, prófasts á Skútustöðum. Ólafur var sonur Friðriks, húsvarðar Ólafs- sonar, b. í Vestra-Súlunesi Ólafssonar. Móðir Ólafs var Valgerður Magnús- dóttir, b. í Litladal í Skagafirði Jóns- sonar, og Sigurrósar Sigurðardóttur. Móðurbræður Friðriks, samfeðra: Hallur blaðamaður og Símon Sím- onarsynir, margfaldir Íslands- og Norðurlandameistarar í bridge. Sig- ríður var dóttir Símonar, skipstjóra í Reykjavík Sveinbjarnarsonar, for- manns á Kalastöðum Þorvarðssonar, hreppstjóra á Kalastöðum Ólafsson- ar, langafa Þórarins, föður Guðmund- ar, fyrrv. forseta Skáksambands Ís- lands. Móðir Þorvarðar var Margrét Sveinbjarnardóttir, pr. á Staðarhrauni Sveinbjarnarsonar, bróður Þórð- ar dómstjóra. Móðir Margrétar var Rannveig Vigfúsdóttir, sýslumanns á Hlíðarenda í Fljótshlíð Þórarinsson- ar, og Steinunnar Bjarnadóttur, land- læknis Pálssonar. Móðir Steinunnar var Rannveig Skúladóttir landfógeta Magnússonar. Móðir Símonar var Margrét Kristjánsdóttir, skipstjóra á Akranesi Símonarsonar, bróður Sig- urðar, langafa Páls sendiherra, föður Tryggva, fyrrv. bankastjóra í Íslands- banka. Annar bróðir Kristjáns var Bjarni, faðir Markúsar, fyrsta skóla- stjóra Stýrimannaskólans, afa Rögn- valds Sigurjónssonar píanóleikara. Móðir Margrétar var Þóra Jónsdóttir, ættföður Kópsvatnsættarinnar Ein- arssonar. Móðir Sigríðar var Sigríð- ur Jónsdóttir, koparsmiðs í Reykjavík Þórarinssonar, b. á Rauðamel Árna- sonar. Bróðir Þórarins var Magnús, faðir Magnúsar (Smith), sem fyrst- ur Íslendinga gat sér frægðarorð er- lendis fyrir skáksnilli sína. Hann varð tvisvar sinnum skákmeistari Kan- ada og tefldi auk þess á skákmótum í Bandaríkjunum með góðum árangri. 30 ÁRA Í DAG 30 ÁRA n Leo Sankovic Stelkshólum 4, Reykjavík n Aleksandar Salevic Strandaseli 3, Reykjavík n Shamekh Ibrahim Abdel H. Rezk Beykidal 2, Reykjanesbæ n Kjartan Ólafsson Ásakór 2, Kópavogi n Davíð Þór Ágústsson Kjarrmóum 3, Garðabæ n Óðinn Valdimarsson Safamýri 63, Reykjavík n Haukur Viðar Alfreðsson Löngumýri 57, Garðabæ n Guðrún Helga Elvarsdóttir Einbúablá 26a, Egilsstöðum n Ragnheiður Guðfinna Guðnadóttir Klapparstíg 35, Reykjavík n Einar Sigurðsson Naustabryggju 41, Reykjavík n Hafþór Fjalar Kristinsson Mosarima 10, Reykjavík n Rúna Björk Einarsdóttir Heiðarbraut 29a, Reykjanesbæ 40 ÁRA n Natalia Ravva Fellsmúla 2, Reykjavík n Victor Berg Guðmundsson Hjallabraut 35, Hafnarfirði n Lilja Ólafsdóttir Búhamri 42, Vestmannaeyjum n Egill Örn Einarsson Hulduhlíð 28, Mosfellsbæ n Guðmann Ísleifsson Sóleyjarima 83, Reykjavík n Þóra Sædís Bragadóttir Reykjadal, Flúðum n Eyþór Jónasson Iðutúni 15, Sauðárkróki n Ilzite Locmele Ásbraut 15, Kópavogi 50 ÁRA n Marek Bargiel Gerðavegi 33, Garði n Piotr Gardon Mjallargötu 9, Ísafirði n Óli Þór Einarsson Borgarhrauni 6, Grindavík n Ásdís Björk Bragadóttir Skessugili 12, Akureyri n Jóhann Aðalgeir Gestsson Stórhóli 7, Húsavík n Jóhann Þór Þórmundsson Álfatúni 15, Kópavogi n Júlíus Þórðarson Hátúni 10b, Reykjavík n Guðrún Jónsdóttir Skólavegi 7, Hnífsdal n Allan Ragnarsson Holtsbúð 95, Garðabæ 60 ÁRA n Helga Dýrleif Haraldsdóttir Ásvegi 3, Dalvík n Bergþór Magnússon Hólsvegi 17, Reykjavík n Ingveldur S. Kristjánsdóttir Hraunbrún 30, Hafnarfirði n Ásdís Sigurðardóttir Katrínarlind 3, Reykjavík n Símon Þorsteinsson Flúðaseli 95, Reykjavík 70 ÁRA n Bergljót Gunnarsdóttir Njarðargötu 9, Reykjavík n Jón Ólafsson Vesturhópi 1, Grindavík n Albert Finnbogason Lágholti 10, Mosfellsbæ n Friðbjörn B. Bjarnason Vallarbraut 11, Akranesi n Esther Ruth Isaksen Lækjasmára 6, Kópavogi n Jóhannes Stefánsson Þjóðbraut 1, Akranesi n Sturla Snorrason Efstahjalla 15, Kópavogi n Þorleifur Þórarinsson Strandaseli 1, Reykjavík 75 ÁRA n Steinunn Ólafsdóttir Vogalandi 16, Reykjavík n Jóhanna Elísabet Pálsdóttir Gautlandi 17, Reykjavík 80 ÁRA n Björn Olsen Jakobsson Frostafold 28, Reykjavík 85 ÁRA n Jóhanna Jóhannsdóttir Smárahlíð 5e, Akureyri 90 ÁRA n Karl Guðmundsson Þorgeirsstöðum, Höfn í Hornafirði n Margrét Ásgeirsdóttir Eiðismýri 30, Seltjarnarnesi 75 ÁRA Í GÆR 20 MIÐVIKUDAGUR 27. janúar 2010 ÆTTFRÆÐI 30 ÁRA n Krzysztof Nasiadko Álftamýri 38, Reykjavík n Ingunn Guðrún Einarsdóttir Gautlandi 21, Reykjavík n Ása Björk Antoníusdóttir Kjalarlandi 19, Reykjavík VIP n Óskar Guðlaugsson Bergþórugötu 57, Reykjavík n Steinar Vignir Þórhallsson Sunnubraut 6, Vík n Róbert Rúnarsson Tröllakór 20, Kópavogi n Harpa Elín Haraldsdóttir Hátúni 2, Vík n Sara Hörn Hallgrímsdóttir Iðufelli 6, Reykjavík n Björg Sigurjónsdóttir Hlíðartúni 33, Höfn í Horna- firði n Eyþór Antonsson Böggvisbraut 3, Dalvík n María Fjóla Björnsdóttir Birkiholti 2, Álftanesi n Högni Ólafsson Heiðargerði 29e, Vogum n Ólöf Ellertsdóttir Knútsstöðum, Húsavík n Gísli Konráð Björnsson Þingási 2, Reykjavík n Jóhanna Lilja Hólm Túnbraut 9, Skagaströnd n Oscar Gunnar Burns Heiðargerði 5, Vogum 40 ÁRA n Andrzej Józef Tabor Bæjarhrauni 4, Hafnarfirði n Halldóra Konráðsdóttir Eyrarvegi 25a, Akureyri n Sveinbjörg M. Ingibjargardóttir Fellahvarfi 16, Kópavogi n Sigurður Pálmason Álfholti 12, Hafnarfirði n Högni Friðrik Högnason Silfurgötu 37, Stykkishólmi n Margrét Blöndal Bárugötu 17, Reykjavík n Berglind Ásgeirsdóttir Smárarima 56, Reykjavík n Einar Halldór Jónsson Sjávargrund 9b, Garðabæ n Edda Júlía Helgadóttir Breiðagerði 21, Reykjavík n Ásgerður Helga S. Kroknes Heiðarhrauni 13, Grindavík n Málfríður Hafdís Ægisdóttir Skólabrekku 9, Fáskrúðsfirði n Hafdís H. Bárudóttir Rauðavaði 25, Reykjavík 50 ÁRA n Ingibjörg Þóra Stefánsdóttir Grandavegi 1, Reykjavík n Ragnheiður Matthíasdóttir Víðihlíð 2, Sauðárkróki n Anna Helga Aradóttir Klausturhólum, Selfossi n Heiðrún Sigurðardóttir Kirkjuteigi 19, Reykjanesbæ n Sigrún Ágústa Héðinsdóttir Kambsmýri 12, Akureyri n Halldór Brynjar Þráinsson Suðurgötu 78, Akranesi n Margrét Gunnarsdóttir Lautasmára 24, Kópavogi n Dagbjört Hanna Sigdórsdóttir Brekkubæ 26, Reykjavík n Snorri Magnússon Háhæð 27, Garðabæ n Viðar Magnússon Brekkubyggð 10, Garðabæ n Lidia Kolosowska Akurgerði 7a, Akureyri n Else Möller Akri, Vopnafirði n Irena Alicja Staszczuk Fljótaseli 11, Reykjavík n Eiríka Guðrún Árnadóttir Heiðarholti 1f, Reykja- nesbæ n Erna Borgþórsdóttir Grundarhúsum 17, Reykjavík n Dagný Zoëga Gauksrima 5, Selfossi 60 ÁRA n Karl S. Hannesson Grundarási 4, Reykjavík n Eyjólfur Bergþórsson Sólheimum 22, Reykjavík n Þóroddur Friðrik Þóroddsson Hátúni 8, Reykjavík n Valdís Kristinsdóttir Holtsbúð 40, Garðabæ n Snæbjörn Benediktsson Kárhóli, Húsavík n Sigríður J. Einarsdóttir Kársnesbraut 7, Kópavogi n Grétar B. Þorsteinsson Fífumóa 2, Selfossi n Ragnar Sigurður Ólafsson Ægisbyggð 16, Ólafsfirði n Magnús Welding Jónsson Eikjuvogi 23, Reykjavík n Magnús Friðbergsson Hagalandi 4, Mosfellsbæ 70 ÁRA n Amalía Jónsdóttir Kjarnagötu 16, Akureyri n Una Olga Ragnarsdóttir Lövdal Melaheiði 17, Kópavogi n Aðalheiður Kristjánsdóttir Erluási 2, Hafnarfirði n Gunnar Óskarsson Hjallavegi 21, Reykjavík n Stefanía Rósa Sigurjónsdóttir Holtateigi 25, Akureyri 75 ÁRA n Jón Laxdal Arnalds Fjólugötu 11a, Reykjavík n Sigfús Gunnlaugur Emil Skúlason Lækjarbrún 26, Hveragerði n Þórunn Jónsdóttir Háengi 6, Selfossi n Hafsteinn Hjaltason Grenimel 42, Reykjavík n Sigurður H. Þorsteinsson Dalseli 17, Reykjavík n Guðbjörn Ingvarsson Burknavöllum 1b, Hafnarfirði 80 ÁRA n Óskar Jónsson Túngötu 19, Sandgerði n Steinar Júlíusson Trönuhjalla 13, Kópavogi n Guðlaug Kristófersdóttir Máshólum 2, Reykjavík n Sigurjón Hreiðar Gestsson Víðihlíð 10, Reykjavík n Þóra Hallgrímsson Vesturbrún 22, Reykjavík n Hafliði Kristbjörnsson Álftarima 24, Selfossi 85 ÁRA n Zophanía G. Briem Hvassaleiti 56, Reykjavík n Jón Magnússon Hlaðhömrum 2, Mosfellsbæ n Vilborg Friðjónsdóttir Arnarvatni 3, Mývatni 90 ÁRA n Margrét Sigurðardóttir Hringbraut 50, Reykjavík n Guðrún Finnbogadóttir Ránarbraut 15a, Vík 95 ÁRA n Anna G. Hallsdóttir Kleppsvegi 64, Reykjavík TIL HAMINGJU INGJU AFMÆLI 27. JANÚAR Ragnheiður fæddist á Selfossi en ólst upp í Hvítárholti í Hruna- mannahreppi. Hún var í Flúða- skóla, stundaði nám við Fjöl- brautaskóla Suðurlands á Selfossi, stundaði nám við Hólskóla og lauk þaðan prófum sem hestafræðing- ur og leiðbeinandi, tamningamað- ur, reiðkennari og þjálfari. Ragnheiður sinnti ýmsum verslunar- og þjónustustörfum með skóla en hefur starfað við tamningar frá því á unglingsár- unum. Hún hefur lengst af verið heimavinnandi sl. þrjú ár. Ragnheiður hefur starfaði í hestamannafélaginu Herði í Mos- fellsbæ. Þá hefur hún keppt mikið í ýmsum hestaíþróttum. Fjölskylda Eiginmaður Ragnheiðar er Ari Hermann Oddsson, f. 22.1. 1975, múrari. Synir Ragnheiðar og Ara Her- manns eru Kristján Hrafn Arason, f. 26.6. 2003; Oddur Carl Arason, f. 12.5. 2007. Hálfsystur Ragnheiðar eru Elín Ósk Hölludóttir, f. 29.9. 1972, fangavörður á Litla-Hrauni; Rakel Eyja Þorvaldsdóttir, f. 4.1. 1990, nemi. Foreldrar Ragnheiðar eru Halla Sigurðardóttir, f. 12.8.1953, starfs- maður við álverið í Straumsvík og fyrrv. bóndi í Hvítárholti, og Þor- valdur Jón Kristinsson, f. 13.5. 1955, húsasmiður í Reykjavík. Ragnheiður Þorvaldsdóttir REIÐKENNARI OG TAMNINGAMAÐUR 30 ÁRA Á FIMMTUDAG Össur fæddist í Kópavogi en ólst upp á Seltjarnarnesi. Hann var í Mýrarhúsaskóla og Valhúsaskóla og stundar nú nám við Fjölbrauta- skólann í Breiðholti. Össur hefur starfað við Láshús- ið frá sautján ára aldri. Össur hefur stundað hesta- mennsku sl. tíu ár og á dálítið stóð. Fjölskylda Unnusta Össurar er Theodóra Arn- dís Berndsen, f. 26.10. 1977, starfs- maður hjá Ölgerð Egils Skalla- grímssonar. Börn Theodóru Arndísar eru Alexandra Dögg, f. 12.4. 1997; Björn Elvar, f. 26.6. 2002; Stefanía Dúa, f. 2.4. 2005. Systur Össurar eru Margrét Rut Valdimarsdóttir, f. 7.10. 1977, leikskólakennari og nemi í guð- fræði við HÍ; Aðalheiður Ósk Valdimarsdóttir, f. 3.1. 1986, hár- greiðlukona. Foreldrar Össurar eru Valdimar Eggertsson, f. 12.9. 1951, verslun- armaður í Reykjavík, og Ásta Mar- grét Sigurjónsdóttir, f. 12.10. 1955, húsmóðir. Össur Pétur Valdimarsson VERSLUNARMAÐUR TIL HAMINGJU AFMÆLI 28. JANÚAR sm aa r@ d v. is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.