Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2010, Page 23
27. janúar 2010 MIÐVIKUDAGUR 23
1. Þú segir honum hluti sem þú hefur ekki
sagt neinum öðrum. Þá erum við ekki að
tala um eitthvert raus eftir of mikið af Merlot
heldur að þig langi virkilega til að trúa
honum fyrir öllu því persónulegasta sem
hefur á daga þína drifið.
2. Þú leyfir honum að sjá þig viðkvæma.
Það er lítið mál að vera hamingjusöm með
einhverjum þegar allt er í góðu standi. En
hvað með erfiða tíma? Viltu fara heim til hans
þegar þú missir vinnuna, amma þín deyr eða
þú áttir einfaldlega ömurlegan dag?
3. Þú virðir hann. Þú vilt ekki breyta honum.
Auðvitað getur verið ýmislegt sem pirrar þig,
líkt og ljóta skyrtan sem er í uppáhaldi hjá
honum eða sú staðreynd að honum þyki enn
þá skemmtilegt að spila tölvuleiki, en þú ert
hrifin af honum. Svo einfalt er það.
4. Þú vilt að hann hitti foreldra þína. Þú
ert hreykin af honum og vilt monta þig en
upplifir ekki að þú þurfir að búa til afsakanir
fyrir hann.
5. Þú sérð hann fyrir þér í framtíðinni. Þegar
þú hugsar um lífið sem bíður ykkar saman
geturðu ekki annað en brosað.
6. Þú óttast ekki að vera ósammála honum.
Þú veist að þið getið rifist án þess að
niðurlægja hvort annað. Þið takið hvort
annað alvarlega, líka þegar þið vitið að þið
hafið rétt fyrir ykkur.
7. Þú vilt leysa öll meiriháttar ágreinings-
efni. Þótt þið séuð ósammála um stóru
málin sem snerta framtíðina ertu til í að hitta
hann á miðri leið.
8. Þið hlæið saman. Hlátur er eitt það besta í
heimi. Þið verðið að geta fengið hvort annað
til að hlæja.
9. Þú ert svo hrikalega, ótrúlega, fáránlega
spennt fyrir honum. Þið laðist hvort að
öðru og þér finnst hann einfaldlega sexí.
Ef hann er ekki þín venjulega týpa er enn
líklegra að hann sé sá eini sanni.
10. Þið þegið saman. Þú finnur þig ekki knúna
til að blaðra eitthvað bara til að segja
eitthvað.
11. Þú ert þú sjálf í kringum hann. Þú
ritskoðar ekki allt sem þú segir og ert
hvorki stressuð né of sjálfsmeðvituð nálægt
honum.
12. Þú þarfnast hans passlega mikið. Þú sakn-
ar hans þegar hann er í burtu en ert ekki
uppáþrengjandi. Þú lifir spennandi lífi þótt
hann sé ekki við hlið þér allan sólarhringinn.
13. Þú ert ekki afbrýðisöm. Þú getur farið út
með vinum hans, líka þeim sem eru kven-
kyns. Þú vilt að hann stundi sín áhugamál
áfram.
14. Hann gerir þig að betri manneskju. Þér
finnst þú gáfuð, fyndin, aðlaðandi, sniðug
og einfaldlega besta útgáfan af sjálfri þér
þegar hann er nálægt.
15. Hann einfaldlega skilur þig. Hann veit um
hvað þú snýst. Sú tilfinning er verndandi og
notaleg - og þú ættir að upplifa hana með
manneskjunni sem þú ákveður að verja
lífinu með.
15 atriði sem sanna að þig eigið saman: