Dagblaðið Vísir - DV - 27.01.2010, Page 24
ÞURFUM EKKERT AÐ PASSA MENN Sir Alex Ferguson, knattspyrnu-
stjóri Manchester United, segir það rugl að sérstaklega þurfi að segja leikmönnum hans
og Manchester City að hegða sér skikkanlega fyrir stórleikinn í deildarbikarnum. Liðin
mætast nú á heimavelli meistaranna en City hefur 2-1 forskot. „Ég hlusta ekki á svona.
Hegðun leikmanna í þessum leikjum hefur alltaf verið til fyrirmyndar. Bæði lið eru með
frábæra leikmenn sem virða reglur leiksins,“ segir Ferguson sem verður að vona að
hans menn verði áfram á markaskónum vilji þeir verja deildarbikarinn. Aston
Villa er nú þegar komið í úrslitaleikinn og bíður sigurvegarans úr rimmu
United og City.
David Gold finnst eins og hann og
David Sullivan hafi borgað allt of
mikið fyrir West Ham sem hann lík-
ir við bílslys. Þeir félagar keyptu 50%
hlut í West Ham af CB Holding, sem
eitt sinn var í eigu Björgólfs Guð-
mundssonar, og eru ráðandi í stjórn-
inni. Gold viðurkennir að þeir hafi
gert það aðeins vegna tengsla sinna
við félagið, en þeir eru báðir stuðn-
ingsmenn þess frá blautu barns-
beini. Fyrir hlutinn borguðu þeir
rúmlega 50 milljónir punda og er lið-
ið þar með verðmetið á 105 milljónir
punda eða um 21,5 milljarða kr.
„Það var náttúrlega brjálæði
hvað við borguðum mikið. Hver
blaðsíða sem við lásum uppljóstr-
aði nýju vandamáli. Bókhaldið var
það versta sem ég séð,“ segir Gold
en hann hagnaðist á sölu varnings
sem er bannaður innan 18 ára. Þá
á hann einnig Knickerbox-nærfata-
línuna sem er svo vinsæl.
Flestir stuðningsmenn West Ham
fagna því að eignarhaldi Íslendinga
sé lokið, enda steyptu Björgólfur og
félagar félaginu í gríðarlegar skuldir.
Hinn 73 ára gamli Gold sér þó ljós við
enda ganganna. „Enska deildin kem-
ur með meira fjármagn til liðanna
en nokkur önnur deild í heiminum.
Samt eru öll lið á hvínandi kúpunni.
Þetta er náttúrlega geðveiki. En við
ætlum að reka félagið fyrir opnum
tjöldum og ekki fara í neinn feluleik.
West Ham mun bjarga sér – sannið
þið til,“ segir David Gold.
tomas@dv.is
David Gold dregur ekkert úr óreiðunni sem var hjá Björgólfi:
LÍKIR WEST HAM VIÐ BÍLSLYS
UMSJÓN: TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON, tomas@dv.is
24 MIÐVIKUDAGUR 27. janúar 2010 SPORT
Hjörtu Íslendinga gátu loks sleg-
ið á venjulegum hraða á meðan þeir
horfðu á íslenska landsliðið í hand-
bolta þegar það mætti Rússlandi.
Strákarnir okkar gjörsigruðu Rússana,
38-30, sem var helst til of lítill sigur.
Leikurinn fjaraði út í svolitla vitleysu
undir lokin þar sem Rússarnir náðu
að minnka muninn og íslensku strák-
arnir biðu eftir lokaflautinu.
Staðan er afskaplega einföld hjá Ís-
landi. Þökk sé jafnteflinu gegn Króa-
tíu höfðu strákarnir allt í hendi sér og
þannig er staðan enn eftir sigurinn á
Rússum. Vinnist sigur á Norðmönn-
um á fimmtudaginn fer Ísland í und-
anúrslitin og leikur þar af leiðandi um
verðlaun. Hvort sem þau verða gull
eða brons. Norðmenn hafa þó sjaldan
ef aldrei verið sterkari og hafa leikið
afar vel á mótinu.
Klunnalegir Rússar
Það sást strax við upphaf leiksins gegn
Rússunum af hverju þeir hafa ekki
unnið nema einn leik, gegn Úkraínu.
Þeir eru einfaldlega arfaslakir. Og þeg-
ar þeir mættu frábærri íslenskri vörn
og einbeittu íslensku liði áttu þeir
hreinlega ekki séns. Fyrir mótið var
sagt að á því myndu mætast fimmtán
bestu þjóðir heims, og svo Austurríki.
Þessi blaðamaður á þó enn eftir að sjá
Rússana vinna Austurríkismenn í lok-
aleik sínum á fimmtudaginn.
Íslensku strákarnir komu sér fljótt
í góða forystu, 10-3, og þar með var
björninn unninn. Það sem eftir fylgdi
var meira og minna bara venjulegur
dagur í vinnunni fyrir strákana okkar
sem völtuðu yfir svifaseina Rússana.
Óþarflega mikið af mistökum var þó
gert bæði í vörn og sókn en oftar en
ekki bætti hver og einn fyrir sín mis-
tök með marki eða góðri vörn.
Frábær Sturla
Þrátt fyrir yfirburðina í leiknum kom
Logi Geirsson ekkert inn á og verð-
ur að spyrja hvort hann sé einfald-
lega heill. Það hefur svo sem ekkert
verið nein vöntum á gæðum á vinstri
vængnum en það er afar sérstakt að
Logi fékk ekki að koma inn á í mín-
útu í leiknum. Í staðinn kom önnur
stórskytta úr Hafnarfirði inn á. Ólaf-
ur Guðmundsson sem hefur verið
áhorfandi á mótinu lék síðustu átta
og hálfa mínútu leiksins. Ólafur kom
afar ákveðinn inn og ætlaði sér að
skora. Kappið var þó heldur meira
en forsjáin og negldi hann boltanum
tvisvar marga metra yfir áður en hann
skoraði sitt fyrsta mark á stórmóti
með góðu gegnumbroti. Guðmund-
ur þjálfari og íslenska liðið mátti þó
alveg við smá mistökum nýliðans og
því ekkert nema jákvætt að hann hafi
fengið nokkrar mínútur.
ÍR-ingurinn Sturla Ásgeirsson
var þó sá sem stal senunni. Eftir að
Guðjón Valur hafði klúðrað tveimur
dauðafærum ákvað Guðmundur bara
að hvíla varafyrirliðann stóran hluta
leiksins. Sturla kom af fítonskrafti inn
í leikinn og skoraði sex mörk úr jafn-
mörgum skotum, bæði með fallegum
innstökkum úr horninu jafnt og góð-
um hraðaupphlaupsmörkum. Afar
gott að vita að Sturla er klár í verkefn-
ið.
Kemur í ljós með Loga
„Við komum ákveðnir til leiks, náðum
forystunni og gáfum hana aldrei eft-
ir. Við lékum alveg frábærlega bæði
í vörn og sókn,“ sagði Guðmundur
Guðmundsson, þjálfari Íslands, hæst-
ánægður við RÚV eftir leikinn. „Við
héldum langan fund um morguninn
þar sem við fórum yfir það sem við
ætluðum að gera og hverni við mynd-
um leysa hlutina.“
Guðmundur var ánægður með
að geta gefið Ólafi nokkrar mínút-
ur en sagði: „Við erum auðvitað með
sextán manns á bekknum en það
eru takmörk fyrir því hvað maður
getur rúllað þessu mikið,“ og bætti
NORÐMENN SÍÐASTA HINDRUNIN
Ísland vann öruggan sigur á Rússlandi, 38–30, í öðrum leik
sínum í milliriðli 1 á Evrópumótinu í handbolta. Rússarnir
áttu ekki möguleika gegn Íslandi og var nokkuð ljóst af hverju
Rússarnir hafa ekki unnið fleiri leiki en raun ber vitni. Ólafur
Guðmundsson fékk loks tækifæri í skyttunni en annar leik-
maður sem setið hefur mikið á bekknum, Sturla Ásgeirsson,
kom einnig inn á og átti stórleik. Vinni Ísland Noreg á fimmtu-
daginn fer liðið í undanúrslit.
GUÐJÓN VALUR Hafði sig hægan gegn Rússunum.
TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is
Alexander Petersson
Var frábær gegn Rússlandi.
Allt í rúst David Gold og David Sullivan,
nýjum eigendum West Ham, finnst þeir
hafa borgað of mikið fyrir liðið.
ENSKA ÚRVALSDEILDIN
PORTSMOUTH - WEST HAM 1-1
0-1 Matthew Upson (52.),
1-1 Danny Webber (76.).
ÚLFARNIR - LIVERPOOL 0-0
TOTTENHAM - FULHAM 2-0
1-0 Peter Crouch (27.), 2-0 David Bentley (60.).
BOLTON - BURNLEY 1-0
1-0 Chung-young Lee (35.)
STAÐAN
1. Man.Utd. 23 16 2 5 53:20 50
2. Arsenal 22 15 3 4 59:25 48
3. Chelsea 21 15 3 3 52:18 48
4. Tottenham 23 12 5 6 44:24 41
5. Liverpool 23 11 5 7 40:26 38
6. Man.City 21 10 8 3 42:30 38
7. A.Villa 21 10 6 5 29:18 36
8. Birmingham 21 9 6 6 21:19 33
9. Fulham 22 7 6 9 26:26 27
10. Everton 21 6 8 7 30:34 26
11. Stoke 21 6 7 8 19:26 25
12. Blackburn 22 6 6 10 23:39 24
13. Sunderland 21 6 5 10 30:38 23
14. Wigan 20 6 4 10 23:44 22
15. Bolton 21 5 6 10 29:42 21
16. West Ham 22 4 8 10 29:38 20
17. Úlfarnir 22 5 5 12 18:38 20
18. Burnley 22 5 5 12 22:44 20
19. Hull 22 4 7 11 20:46 19
20. Portsmouth 21 4 3 14 19:33 15
BOLTON ÚR FALLSÆTI
n Bolton er komið er fallsæti í
ensku úrvalsdeildinn. Liðið mætti
Burnley á þriðjudagskvöldið en
það var fyrsti leikur nýja stjórans,
Owen Coyle, gegn sínum gömlu
félögum. Bolton hafði sigur, 1-0,
og var það einnig fyrsti sigur
Coyle með Bolton-liðið. Kóreu-
maðurinn Cho-young skoraði
markið í fyrri hálfleik. Með tapinu
fer Burnley niður í fallsæti en það
er í fyrsta skiptið á leiktíðinni sem
það gerist. Grétar Rafn Steinsson
lék að vanda allan leikinn fyrir
heimamenn í Bolton en Jóhannes
Karl Guðjónsson var ekki í leik-
mannahópi Burnley. Portsmouth
er ennþá jarðað við botnsætið
eftir jafntefli gegn West Ham á
útivelli, 1-1. Þar kom miðvörður-
inn Matthew Upson heimamönn-
um yfir en Danny Webber jafnaði
metin fyrir gestina sem hafa nú
aðeins fimmtán stig að loknum
tuttugu og einum leik. Hermann
Hreiðarsson var að sjálfsögðu í
byrjunarliði Portsmouth í leikn-
um. Tottenham vann góðan sig-
ur á Fulham, 2-0, á heimavelli á
sama tíma og Liverpool missteig
sig í baráttunni um fjórða sætið
með markalausu jafntefli gegn
Úlfunum. Hefur því Tottenham
þriggja stiga forskot á
Liverpool í barátt-
unni um fjórða
sætið og næstu
lið, Manchest-
er City og Aston
Villa eiga leiki til
góða á Liverpool.
MOLAR