Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2010, Qupperneq 29
SVIÐSLJÓS 15. febrúar 2010 MÁNUDAGUR 29
OXYTARM
Endurnærir og hreinsar ristilinn
Allir dásama OXYTARM
Í boði eru 60-150 töflu skammtar
DETOX
30days&
Betri apótekin og Maður lifandi www.sologheilsa.is.
Losnið við hættulega kviðfitu og
komið maganum í lag með því að
nota náttúrulyfin Oxytarm og
30 days saman -120 töflu skammtur -
Umbo›s- og sölua›ili
Birkiaska ehf.
sími: 551 9239
www.birkiaska.is
Vali› fæ›ubótarefni ársins 2002 í Finnlandi
Minnistöflur
www.birkiaska.is
Birkilauf- Betulic
Birkilauf hefur góð áhrif á bæði vökvajafnvægi
líkamans og húð, örvar starfsemi nýrna og
þvagfæra. Hraðar efnaskiptum og losar vatn
úr líkamanum, dregur úr bólgum og afeitrar
líkamann (detox).
Jessica Alba á frumsýningu Valentine´s Day:
Bar Refaeli í Sports Illustrated:
SÚ HEITASTA
Baðfataspekingar og almennir áhuga-menn um kvenfólk virðast vera sam-mála um það að fyrirsætan Bar Refaeli
sé sú allra heitasta í hinni frægu baðfataútgáfu
Sports Illustrated þetta árið. Refaeli er samt
sögð allt annað en sátt við það að Brooklyn
Decker hafi verið valin á forsíðuna í ár. Refaeli
prýddi hana í fyrra en hún var fyrst í blaðinu
árið 2007.
Refaeli er kærasta leikarans Leonardos Di
Caprio. Ekki er langt síðan parið tók saman á
ný eftir að hafa verið hætt saman um þó nokk-
urn tíma. Refaeli þykir með fegurstu fyrirsæt-
um heims og því margir sem öfunda hann Leo.
Öfundin er þó beggja vegna borðsins því stúlk-
urnar hata nú ekki leikarann unglega.
Bar Refaeli Er eld-,
sjóðandi-, brennheit.
Ósátt Vildi vera
á forsíðunni.
Hin fjöruga Amy Wine-house hefur ákveðið að gefa kettina sína en hún
á samtals ellefu stykki. Hún hef-
ur nú þegar gefið guðdóttur sinni,
Dionne Bromfield, tvo þeirra og
talað við dýraverndarsamtök um
að taka við þeim sem eftir eru.
Söngkonan, sem enn er í
meðferð, er sögð í uppnámi
vegna þess að henni þótti afskap-
lega vænt um kettina sína. „Hún
varð einfaldlega að gefa þá. Þeir
voru úti um allt, upp um allt og
Amy hafði enga stjórn á þeim,“
segir heimildarmaður við tíma-
ritið Sun.
Af öðru er það að frétta af
stúlkunni að hún dvelur nú á Jamaíka við
vinnslu á þriðju plötu sinni og hyggst reyna að endurnýja
sambandið við fyrrverandi eignmann sinn, Blake Fielder-Ci-
vil, sem nýlega er sloppinn úr fangelsi.
Amy Winehouse á 11 stjórnlausa ketti:
GEFUR KETTINA SÍNA
Lítur ögn betur út Amy
á leið úr afmæli guðdóttur
sinnar í byrjun febrúar.
Hefur ekki átt sjö dagana
sæla Hún þarf nú að gefa frá
sér kettina sína því hún hefur
enga stjórn á þeim.
Ástralski leikarinn Ryan Kwanten segir í viðtali við tímaritið August Men að
hann hafi aldrei ætlað til Holly-
wood. Hann sér eflaust ekki eft-
ir því í dag en hann hefur gert
það mjög gott í vampíruþáttun-
um True Blood. „Það var aldrei á
planinu að flytja til Hollywood en
þegar ég kom til L. A. sökkti borgin
tönnum sínum í mig og vildi ekki
sleppa. Sama hvað ég reyndi.“
Ryan segist leggja mikið upp úr
því að einangrast ekki í leiklistinni.
„Mér finnst mikilvægt að eiga ann-
að líf en leiklistina. Ég held að það
séu mistök sem of margir leikarar
gera. Þeir þekkja því ekkert annað.“
Ryan segir samt að leiklistin verði
ekki áhugaverð fyrr en maður helli
sér í hana af fullum krafti. „Og svo
þegar stærri og betri hlutverk fara
koma þá uppgötvar maður fag-
mennskuna í þessu.“
Ryan Kwanten
úr True Blood:
Ætlaði aldrei
til Hollywood