Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2010, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2010, Side 4
4 MÁNUDAGUR 15. febrúar 2010 FRÉTTIR www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25 Airfree lofthreinsitækið Byggir á nýrri tækni sem eyðir • Svifryki, myglusveppi og ólykt • Gæludýraflösu og bakteríum • Vírusum og öðrum örverum • Er hljóðlaust og viðhaldsfrítt • Tilvalið á heimilið og skrifstofuna Hæð aðeins 27 cm Betra loft betri líðan Knúsuðu sig ekki til heimsmets Ekki tókst að slá heimsmetið í hópk- núsi í Mosfellsbæ á sunnudag eins og til stóð. Þá hófst Kærleiksvika í bænum með heimsmetstilrauninni sem fram fór á Miðbæjartorginu. 370 manns tóku þátt í hópknús- inu sem að vísu er Íslandsmet en heimsmetið, 636 manns samkvæmt heimsmetabók Guinness, verður að bíða þar til síðar. Kærleiksvikan stendur til 21. febrúar en í vikunni á kærleikurinn að verða ofar öllu í bænum. Mark- mið vikunnar er að hver einasti bæj- arbúi finni fyrir kærleik í sinn garð og gefi af sér kærleik. Skipað í nýja samninganefnd Búið er að skipa í nýja samninga- nefnd fyrir viðræður við Breta og Hollendinga um lausn á Icesa- ve-deilunni. Þessu greindi Rík- isútvarpið frá í gærkvöld. Þar var haft eftir Steingrími J. Sigfússyni fjármálaráðherra að búið væri að skipa í nefndina en ekki yrði greint frá því fyrr en í dag, mánu- dag, hverjir væru í nefndinni. Leitað væri eftir því að fá fund við Breta og Hollendinga sem fyrst. Rukkaðir um hverja krónu Hjörleifur Jakobsson, forstjóri Kjal- ars, segir rangt að skuldir félagsins við gamla Kaupþing, sem færðar voru yfir í Arion banka hafi ver- ið afskrifaðar að mestu leyti. Hið rétta sé að skuldirnar hafi verið færðar nið- ur í reikningum bankans í þá fjár- hæð sem bank- inn teldi sig geta innheimt en að hann sendi enn reikninga og reyni að innheimta kröfurnar í topp. Fjallað var um kröfurnar í grein um afskriftir á skuldum auðmanna og fyrirtækja þeirra í helgarblaði DV og byggt á frétt Viðskiptablaðsins, þar sem kom fram að skuldir Kjal- ars og fleiri fyrirtækja hefðu verið afskrifaðar í bókum bankanna, og bent á að sumir teldu þetta styrkja viðleitni skuldugra fyrirtækja og auðmanna að semja sig frá skuldum. Hvorki Kjalar ehf. né hluthafar í Kjal- ari eiga hlut í Arion banka með bein- um eða óbeinum hætti, segir Hjör- leifur Jakobsson, forstjóri Kjalars ehf., félagsins sem er að stærstum hluta í eigu Ólafs Ólafssonar. Þrá- felldur orðrómur hefur verið uppi um að Ólafur, Kjalar eða félög í þeirra eigu hafi keypt upp kröfur í bankann á spottprís til að vera meðal kröfu- hafa í bankann sem hafa núna eign- ast hann að mestu leyti. „Við höfum bara annað við þess- ar fáu krónur sem við eigum að gera,“ segir Hjörleifur aðspurður hvort Kjalar, eigendur Kjalars eða félög á þeirra vegum séu meðal eigenda bankanna. Mikið hefur verið rætt um að kröfur í þrotabú gömlu bankanna hafi gengið kaupum og sölum eftir hrun og það fyrir brot af upphafleg- um kröfum. Þessar kröfur urðu svo grunnurinn að því hverjir eignuðust bankana sem stofnaðir voru á rúst- um hinna gömlu. Orðrómurinn hef- ur verið sá að Ólafur eða félög á hans vegum hafi keypt upp þessar kröfur og þannig komist bakdyramegin inn í hóp núverandi eigenda bankanna. Kjalar var meðal stærstu hluthafa í Kaupþingi fyrir hrun. Ólafur hefur nú réttarstöðu grunaðra í rannsókn Ólafs Þórs Haukssonar, sérstaks sak- sóknara, á bankahruninu. Forstjóri Kjalars vísar sögusögnum á bug: Eigum ekki í bankanum Í eigu kröfuhafa Kröfuhafar eignuðust bankann sem reistur var á rústum Kaupþings. Ein af umfangsmestu aðgerðum embættis sérstaks saksóknara var gerð í Lúxemborg í síðustu viku þeg- ar farið var inn í bankann Banque Havilland og eitt heimahús. Voru ell- efu einstaklingar yfirheyrðir. Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksókn- ari, fór til Lúxemborgar á sunnudag- inn fyrir viku ásamt fjórum öðrum starfsmönnum embættisins. Síðasta þriðjudag var síðan gerð húsleit hjá Banque Havilland. Á fjórða tug lög- reglumanna frá Lúxemborg tók þátt í húsleitinni ásamt starfsmönnum sérstaks saksóknara. Starfsmenn sérstaks saksóknara komu aftur til landsins á laugardaginn. Í samtali við DV segir Ólafur Þór Hauksson að þeir sem hafi verið yf- irheyrðir séu allir þeir sem hafi get- að veitt upplýsingar um málið og séu búsettir í Lúxemborg. „Það lá fyrir að sækja tiltekin gögn í Banque Ha- villand. Þau reyndust vera þar og var lagt hald á þau,“ segir Ólafur Þór. Að sögn Ólafs Þórs var búið að vinna í því frá því í september 2009 að fá leyfi til þess að framkvæma þessa húsleit. Hann segir óhætt að fullyrða að þetta sé eitt af stærri málunum sem nú séu á borði sérstaks saksóknara og jafn- vel það stærsta. Rannsóknin beinist að hugsan- legum brotum vegna lánveitinga Kaupþings til félagsins Holly Beach S.A., sem er í eigu athafnamanns- ins Skúla Þorvaldssonar og félags- ins Trenvis Ltd., í eigu Kevins Stan- ford. Trenvis fékk lán til að kaupa skuldatryggingar á Kaupþing þegar skuldatryggingarálag bankans var mjög hátt. Ólafur segist ekki geta gefið upplýsingar um það hvort þeir hafi komist yfir bankareikninga í eigu Skúla Þorvaldssonar og Kevins Stan- ford. Fjármálaeftirlitið sendi mál Holly Beach og Trensvis til sérstaks saksóknara í ágúst 2009. Skúli Þor- valdsson var stærsti skuldari Kaup- þings í Lúxemborg í hópi einstakl- inga samkvæmt lánabók Kauþings sem lak á netið. Skuldaði hann bank- anum 652 milljónir evra eða um 115 milljarða íslenskra króna. Margvísleg brot Segja má að spjótin beinist að gamla Kaupþingi í Lúxemborg vegna margra mála. Auk hugsanlegra brota Holly Beach og Trenvis má nefna félagið Black Sunshine. Það hefur verið til skoðunar hjá Fjármálaeftir- litinu. Black Sunshine er skráð í Lúx- emborg. Í stað þess að afskrifa slæm lán flutti Kaupþing slæmar skuldir inn í Black Sunshine. Er talið að þær hafi numið allt að 80 milljörðum ís- lenskra króna. Ekki er vitað hvort þetta mál sé komið til sérstaks sak- sóknara. Orðrómur hefur verið um það, meðal annars í skrifum Agnes- ar Bragadóttur í Morgunblaðinu í mars 2009, að 500 miljóna evra lán sem Seðlabankinn veitti Kaupþingi hafi verið flutt beint inn í dótturfélag Kaupþings í Lúxemborg og þaðan inn á bankareikninga í svissneskum bönkum. Ólafur Þór vildi ekki tjá sig um það hvort embætti sérstaks sak- sóknara hafi verið að leita að þess- um peningum í húsleitinni í Lúx- emborg. Ármann Þorvaldsson hefur áður upplýst í samtali við DV að 200 milljónir evra af þessu láni hafi runn- ið til seðlabankans í Svíþjóð. Auk þess hafi 50 milljónir evra runnið til dótturfélags Kaupþings í Þýskalandi vegna Edge-reikninganna. Hann gat þó ekki upplýst hvað varð um hinn helminginn eða um 250 milljónir evra. Í eigu Rowland-fjölskyldunnar Í júlí 2009 eignaðist fjárfestinga- sjóðurinn Blackfish Capital Kau- þing í Lúxemborg. Sjóðurinn er í eigu bresku Rowland-fjölskyldunn- ar en eignir fjölskyldunnar voru í fyrra metnar á um 120 milljarða ís- lenskra króna. Var nafni bankans breytt í Banque Havilland. Sumar eignir og skuldir gamla Kaupþings voru síðan færðar til verðbréfafyrir- tækisins Pillar Securitisation S.A. Til þess að þetta væri hægt fékk bank- inn 320 milljóna evra lán frá yfirvöld- um í Belgíu og Lúxemborg eða sem nemur 56 milljörðum króna mið- að við núverandi gengi til að greiða innistæður. Að auki fékk bankinn 300 milljón evra lán eða 53 milljarða ís- lenskra króna frá innistæðutrygg- ingastjóði Lúxemborg. Bankinn fékk því yfir 100 milljarða íslenskra króna í lán frá yfirvöldum til að vera starf- hæfur. Rowland-fjölskyldan lagði síðan til 50 milljónir evra eða um níu milljarða íslenskra króna sem er ansi lítið í samanburði við lán frá stjórn- völdum í Belgíu og Lúxemborg. SKÚLI OG STANFORD RANNSAKAÐIR Sérstakur saksóknari gerði húsleit hjá Banque Havilland í Lúx- emborg í síðustu viku ásamt 40 manna lögregluliði frá Lúxem- borg. Verið er að skoða hugsanleg brot hjá félögum í eigu Skúla Þorvaldssonar og Kevins Stanford. ANNAS SIGMUNDSSON blaðamaður skrifar: as@dv.is Leitaði í Lúxemborg Sérstakur saksóknari gerði húsleit hjá Banque Havilland síðasta þriðjudag. MYND HEIÐA HELGADÓTTIR Húsleitir Hér má sjá byggingu Banque Havilland sem áður hét Kaupþing. Ellefu voru yfirheyrðir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.