Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2010, Qupperneq 9

Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2010, Qupperneq 9
FRÉTTIR 15. febrúar 2010 MÁNUDAGUR 9 Allar gerðir gólf- og frágangslista Borðplötur, sólbekki og stigaþrep Stór og smá sérverkefni Smíðum úr gegnheilum gæðavið Smiðjuvegi 16 ( Rauð gata ) – 200 Kópavogi – sími 544–5200 – netfang golflistar@golflistar.is Stóru Reykjum – 641 Húsavík – sími 464–3910 – netfang sogin@golflistar.is www. golflistar.is B IR T ÍN G U R Ú T G Á F U F É LA G KUNNINGJAR TREYSTA UNDIRTÖK Í VIÐSKIPTUM hópi svonefndra útrásarvíkinga, en hann fékk 9 milljarða króna kúlulán í Landsbankanum þremur dögum fyr- ir fall hans. 26. maí 2008 úrskurðaði Sam- keppniseftirlitið um skyldu til að til- kynna samruna BYRs og Glitnis á grundvelli samkeppnislaga þar eð sömu mennirnir færu í raun með eignarhald og völd í báðum fjár- málafyrirtækjunum. Áfrýjunarnefnd um samkeppnismál felldi ákvörðun Samkeppniseftirlitsins hins vegar úr gildi 5. september 2008, réttum mán- uði fyrir bankahrun. Niðurstaðan, sem ógilt var, er for- vitnileg ekki síst í ljósi atburða sem síðar urðu. Úrskurður Samkeppniseftirlitsins var svohljóðandi: „Með hliðsjón af því að þorri hlutafjár eða drjúgur hluti stofnfjár í BYR og Glitni eru í eigu sama fyrir- tækjahóps, tengslum þeim sem fyrir- finnast innan þessa fyrirtækjahóps, ásamt því að fjárhagsleg afkoma þessara aðila er verulega samtvinnuð og með hliðsjón af tengslum stjórnar- manna félaganna tveggja og þeirri staðreynd að meirihluti stjórnar- manna BYRs og Glitnis tengjast máls- aðilum og hafa gert um nokkurt skeið telur Samkeppniseftirlitið að tilkynn- ingarskylda á grundvelli 17. gr. sam- keppnislaga hafi stofnast. Það er því niðurstaða Samkeppn- iseftirlitsins að félögin FL group hf., Primus eignarhaldsfélag ehf., Baug- ur hf., Sund hf., Saxhóll hf., BYGG hf., Imon ehf. og Materia Invest ehf. fara sameiginlega með yfirráð yfir Glitni banka hf. og Byr sparisjóði. Ber fram- angreindum fyrirtækjum að tilkynna samrunann í samræmi við ákvæði 17. gr. samkeppnislaga.“ Klíkuskapur ræður enn ferðinni Þræðir Sjálfstæðisflokksins og eig- endahóps Glitnis fléttuðust saman víðar en hér greinir. Einar Örn Ólafsson, núverandi forstjóri Skeljungs, hýsti stuðnings- mannafélag Bjarna Benediktsson- ar, formanns Sjálfstæðisflokksins, að Einimel 18 í Reykjavík langt fram yfir prófkjör og síðar þingkosningarnar 2007. Einar Örn og Bjarni eru tengdir í gegnum Ingimund Sveinsson arki- tekt, föðurbróður Bjarna. Reyndar var Einar Örn eitt sinn stjórnarmað- ur í SUS, Sambandi ungra sjálfstæð- ismanna, 1999 til 2001. Einar Örn var yfirmaður fyrir- tækjasviðs gamla Glitnis og síðar Ís- landsbanka. Hann var á sínum tíma lykilmaður við sölu á Skeljungi úr höndum Pálma Haraldssonar til nú- verandi eigenda, Birgis Bieltvedts og Guðmundar Arnar Þórðarsonar, en Glitnir hafði sölutryggt eign Pálma í Skeljungi. Einar Örn var einnig lykilmað- ur í Glitni við sölu á Árvakri, útgáfu Morgunblaðsins, til Þórsmerkur ehf., en eigendur þess eru nánast allir inn- vígðir sjálfstæðismenn. Í júní í fyrra greindi DV frá laxveiði- ferðum í Ponoi-ána í Rússlandi í boði Glitnis sumarið 2007. Með í slíkri ferð var Gísli Marteinn Baldursson, borg- arfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. Heim- ildarmenn DV töldu hann hafa verið með í för vegna vinatengsla sinna við Einar Örn, framkvæmdastjóra fyrir- tækjasviðs Glitnis á þeim tíma. Í apríl í fyrra var Einari Erni vik- ið úr Íslandsbanka vegna trúnað- arbrests og tók skömmu síðar við forstjórastöðu hjá Skeljungi. Aðaleig- endur Árvakurs eru nú meðal þeirra sem gera tilboð í 49 prósenta hlut Ís- landsbanka í Skeljungi, en það er fé- lag í eigu Guðbjargar Matthíasdóttur í Vestmannaeyjum. DV sagði frá því seint í maí í fyrra að trúnaðarbrestur Einars Arnar við yfirstjórn Íslandsbanka hafi átt rætur til tölvupósta sem innra eftirlit bankans skoðaði í fór- um hans. ...þegar óveðurs-ský höfðu hrann- ast upp á alþjóðlegum lánsfjármörkuðum, áttu þrír valdamikiklir menn viðskiptalífsins fund með Geir H. Haarde, for- sætisráðherra. Þorsteinn M. Jónsson Þorsteinn sat í stjórn FL-Group þegar ákveðið var að veita Sjálfstæðisflokknum 30 milljóna króna styrk. Það gerði einnig Kristinn Björnsson og Magnús Kristinsson var í varastjórn. Einar Örn Ólafsson Einar Örn fór fyrirvaralítið úr Íslandsbanka í fyrra til Skeljungs. Þræðir eigenda Glitnis og Byrs lágu saman með margvíslegum hætti þegar hann var yfirmaður fyrirtækja- sviðs.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.