Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2010, Side 10
10 MÁNUDAGUR 15. febrúar 2010 FRÉTTIR
Spaugstofumenn fengu fund með Páli Magnússyni útvarpsstjóra til að fá framtíð þáttarins á hreint.
Niðurstaðan varð sú að veturinn sem nú er að líða er að öllum líkindum sá síðasti sem Spaugstofan
verður á dagskrá Sjónvarpsins. Heldur sínu striki fram á vor, segir Páll Magnússon en tjáir sig ekki um
framtíðina.
SPAUGSTOFAN FLAUTUÐ AF
Samkvæmt heimildum blaðsins verður
Spaugstofan slegin af í Sjónvarpinu þegar
útsendingum lýkur í vor. Spaugstofumenn
funduðu með Páli Magnússyni útvarpsstjóra
síðasta föstudag og þar var þeim tjáð að þátt-
urinn yrði ekki á dagskrá næsta vetur, að
óbreyttu.
Páll Magnússon útvarpsstjóri vildi ekki
tjá sig um málið að öðru leyti en að þáttur-
inn héldi sínu striki fram á vor eins og reikn-
að var með. „Annað er ekki komið í ljós frekar
en annað. Við erum ekki farin að leggja drög
að dagskrá næsta veturs,“ segir Páll.
Allt tekur enda
Spaugstofumaðurinn Karl Ágúst Úlfsson
staðfestir fundinn og segir þá félaga hafa ósk-
að eftir fundi til að ræða stöðu þáttarins. „Við
óskuðum eftir einhverjum upplýsingum um
hvað yfirstjórnin hefði hugsað sér um okkar
framhald því eins og við vit-
um öll er strangt aðhald í
fjármálum ríkisins. Svör-
in sem við fengum eru
ekki afdráttarlaus en
þó þannig að við þor-
um ekki að gera ráð
fyrir öðru en að við
séum á lokasprettin-
um. Ég held að það
verði skaði að
missa
þetta málgagn fólksins en þessar hörmungar
sem eru að dynja yfir okkur eru eins og nátt-
úruöfl og það er erfitt að eiga við þau,“ segir
Karl Ágúst.
Pálmi Gestsson segist ekki hafa heyrt að
slá ætti þáttinn af en að það sé ljóst að í ár-
ferði sem þessu sé allt í heiminum hverfult.
„Við höfum verið að hætta í 21 ár svo þessar
fréttir koma mér svo sem ekki á óvart. Á tím-
um sem þessum er svona sýn á samtímann
að mínu mati nauðsynleg en að sama skapi
gerir maður sér grein fyrir að allt tekur enda.
Það er bara spurning hvenær og af hverju
ekki núna eins og einhvern tímann seinna?“
segir Pálmi og bætir við að þeir hafi alltaf ver-
ið til viðræðu um framhald svo lengi sem þeir
finni að fólk hafi gaman af og vilji horfa.
Þáttur númer 375
Spaugstofan hefur skemmt Íslendingum í 21
ár en upphaflegu meðlimir hennar voru Örn
Árnason, Sigurður Sigurjónsson, Karl Ág-
úst Úlfsson, Randver Þorláksson og Þórhall-
ur Sigurðsson. Þegar Laddi yfirgaf þá félaga
kom Pálmi Gestsson í hans stað. Árið 2007
var Randver látinn taka pokann sinn. Brott-
reksturinn olli miklu fjaðrafoki og sitt sýndist
hverjum.
Þátturinn hefur verið á meðal alvinsæl-
astu sjónvarpsþátta í íslensku sjónvarpi en
eftir að áhorfskannanir voru teknar upp hef-
ur það mælst mest sem þáttur af þessu tagi
hefur hlotið. Þátturinn hefur þannig verið
vikulegur hluti af heimilislífi og samfélags-
umræðu Íslendinga í tvo áratugi og þannig
matreitt íslenskan veruleika og sér í lagi sam-
félagsmálin ofan í landsmenn. Eftir hvern
þátt loga bloggheimar en Pálmi segir netið
ekki endilega gefa rétta sýn á skoðun lands-
manna. „Þetta net er ólíkindatól. Ef einhverj-
um þar mislíkar eitthvað hellir hann úr skál-
um reiðar sinnar á blogg sitt á meðan hinn
þögli meirihluti, sem er ekki í bloggheimum,
lætur minna fyrir sér fara. Í gegnum tíðina
höfum við fundið fyrir alls kyns viðbrögðum,
allt frá því að vera rifnir í tætlur, því sumum
er óneitanlega uppsigað við okkur, og í hina
áttina. Við erum búnir að skrifa 375 þætti og
það væri skrítið ef skoðanir fólks væru ekki
skiptar.“
Guðlast og yfirheyrsla
Flestir muna líklega eftir þættinum þegar
veikindi borgarfulltrúans Ólafs F. Magnús-
sonar voru tekin fyrir. Mörgum þótti allt of
langt gengið en Pálmi segir þá félaga aldrei
ætla að ráðast á fólk persónulega. „Ég hermi
ekki eftir forsetanum af því að mér er illa
við hann eða beri ekki virðingu fyrir hon-
um. Ólafur var opinber persóna og hann og
hans veikindi voru í öllum fjölmiðlum og
við drógum dám af þeirri umfjöllun,“ segir
Pálmi og bætir við að umtalaðasti Spaug-
stofuþátturinn hljóti hins vegar að vera
páskaþátturinn árið 1997 þegar þeir gerðu
grín að síðustu kvöldmáltíðinni. Í kjölfar-
ið hafi allt ætlað um koll að keyra sem hafi
endað með því að fimmmenningarnir voru
yfirheyrðir af Rannsóknarlögreglu ríkis-
ins og sakaðir um guðlast. Pálmi segir eng-
an ákveðinn Spaugstofumann vilja ganga
lengra en hina. Þeir séu oftast nær samtaka
í efnistökum sínum. „Eins ólíkir karakter-
ar og við erum þá erum við einkennilega
samstiga og þess vegna hefur þetta kannski
gengið svona vel. Við erum ólíkir menn með
ólíkar skoðanir en finnst nauðsynlegt að
tala tæpitungulaust um málin. Við erum oft-
ast sammála hversu langt má ganga og vilj-
um ekki vera ósmekklegir, ódrengilegir né
sparka í liggjandi fólk.“
Vináttan mest virði
Spaugstofan mun eiga 25 ára afmæli í haust.
Karl Ágúst segir óskandi að þeir félagar geti
haldið upp á áfangann í sjónvarpinu. „Það
er freistandi að ljúka þessum aldarfjórðungi
með hvelli og ef það verður ekki þar sem við
byrjuðum, í sjónvarpinu, þá verður það ann-
ars staðar og með öðrum hætti. Það er sárt
að hugsa til endaloka þessa þáttar enda sér-
stakt að kveðja fyrirbæri sem hefur stjórnað
lífi okkar í svona langan tíma. Okkar samstarf
á vafalaust eftir að halda áfram en það er
samstarfið við starfsfólkið í sjónvarpinu sem
maður á eftir að sakna,“ segir Karl Ágúst og
bætir við að það hefði aldrei hvarlað að hon-
um árið 1985 að 25 árum síðar væru þeir enn
að skemmta fólki með samfélagsgríni sínu.
Pálmi tekur í sama streng. „Það sem átti
að vera fjórir prufuþættir er allt í einu orð-
ið að ævistarfi og því hlýtur maður að leiða
hugann að því hvað þetta hefur verið far-
sælt samstarf. Það er hreint ótrúlegt hvað við
erum góðir vinir og mér er fyrirmunað að
skilja hvernig svona náið samstarf hefur get-
að gengið. Himintunglin hljóta að hafa hjálp-
að okkur að hitta á töfrastund þegar hópur-
inn var samansettur. Þetta er búið að vera
magnað og mikil forréttindi sem hafa falist
í því að geta sest niður með vinum sínum á
morgnana og rætt um það sem er að gerast
í samfélaginu okkar. Ég held að ég geti tal-
að fyrir hönd okkar allra þegar ég segi að við
erum mjög stoltir af þessu fyrirbæri sem hef-
ur unnið sér svipaðan sess og veðurfréttirnar
í sjónvarpinu. Við félagarnir erum allir góð-
ir vinir og þótt við hittumst ekki mikið utan
vinnutíma erum við í miklu sambandi. Það
er margt sem stendur upp úr eftir þennan
tíma en fyrst og síðast er það þessi vinátta og
samstarf okkar sem er manni mest virði.“
indiana@dv.is
Við þorum ekki að gera ráð fyrir öðru en að við
séum á lokasprettinum.
Síðasti veturinn
Spaugstofan hefur enn
meira en helmingsáhorf
en það virðist ekki
duga til þegar kemur
að ákvörðunum um
niðurskurð. MYND BRAGI ÞÓR
Í fótspor Randvers Umdeilt var þegar Randveri
var sagt upp 2007. Nú fer restin af Spaugstofunni
sömu leið, samkvæmt heimildum blaðsins.
Pálmi Gestsson Þrátt fyrir miklar
vinsældir hefur Spaugstofan stundum
gengið of langt að margra mati. Eftirmál
vegna páskaþáttarins ársins 1997 enduðu
á borði Rannsóknarlögreglu ríkisins.