Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.2010, Side 17
FRÉTTIR 15. febrúar 2010 MÁNUDAGUR 17
Samkvæmt fréttum bandarískra
fjölmiðla banaði líffræðiprófess-
orinn Amy Bishop, sem skaut þrjá
vinnufélaga sína til bana í Alabama
í Bandaríkjunum á föstudaginn,
bróður sínum fyrir 24 árum.
Samkvæmt upplýsingum frá
núverandi lögreglustjóra í bænum
Braintree í Massachusetts, þar sem
atburðurinn átti sér stað árið 1986,
skaut Amy bróður sinn í brjóstið
með þeim afleiðingum að hann
lést.
Atvikið var úrskurðað slysaskot
og kom Amy Bishop aldrei fyrir rétt
vegna þess, sagði lögreglustjórinn í
Braintree, Paul Frazier.
Á föstudaginn gekk Amy Bi-
shop, samkvæmt bandarískum
fjölmiðlum, berserksgang eftir að
henni var neitað um fastráðningu
við Alabama-háskólann í Hunts-
ville, en lögreglan hefur ekki vilj-
að tjá sig um ástæður þess að æði
rann á Amy og haft var eftir tals-
manni háskólans, Roy Garner,
að tilefni fundarins hafi ekki ver-
ið málefni sem vörðuðu fastráðn-
ingu.
Gögn týnd í meira en 20 ár
Þeir sem Amy Bishop banaði á áð-
urnefndum fundi voru yfirmaður
líffræðideildarinnar og tveir aðr-
ir prófessorar, og þrír særðust í
skotárásinni og er ástand tveggja
þeirra alvarlegt.
Að sögn embættismanna á
Amy Bishop yfir höfði sér dauða-
refsingu ef hún verður sakfelld fyr-
ir morð. Eiginmaður hennar hef-
ur verið yfirheyrður vegna málsins
en ekki liggur fyrir hver aðild hans
kann að vera, ef einhver.
Núverandi lögreglustjóri í Bra-
intree hélt því sem fyrr segir fram
að Amy Bishop hefði aldrei verið
ákærð fyrir morðið á bróður henn-
ar, og að talið hefði verið að um
óhapp hefði verið að ræða. Fraz-
ier sagði ennfremur að þeir sem
komu að málinu á sínum tíma
hefðu tjáð sér að Amy Bishop hefði
skotið bróður sinn í kjölfar deilu,
hefði síðan flúið af vettvangi og að
lokum verið handtekin.
Frazier gaf í skyn að John Pol-
io, þáverandi lögreglustjóri í Brain-
tree, eða einhver fyrir hans hönd,
hefði fyrirskipað að Amy Bishop
yrði sleppt, og bætti við að gögn
um málið hefðu verið týnd og tröll-
um gefin í yfir tuttugu ár.
Polio vísar frásögn
Fraziers á bug
Einhver áhöld virðast vera um
framvindu málsins í Braintree árið
1986 því John Polio vísar frásögn
Fraziers á bug og fullyrðir að hann
hafi aldrei fyrirskipað að Amy Bi-
shop skyldi sleppt. Að auki neitar
Polio að skýrslur viðkomandi mál-
inu hafi týnst.
„Enginn gerði tilraun til yfir-
hylmingar. Við höfðum verk að
vinna. Við unnum verkið, not-
uðum eigin dómgreind við þær
kringumstæður,“ er haft eftir Pol-
io á vefsíðu BBC. Polio bætti því
við að svæðissaksóknarinn á þeim
tíma hefði ekki séð ástæðu til að
leggja fram kvörtun.
Yfirvöld í Massachusetts til-
kynntu að þau hefðu sett sig í sam-
band við lögregluna í Alabama
vegna málsins frá 1986, en eng-
in ákvörðun hefur verið tekin um
hvort lögreglurannsókn þess tíma
verði tekin upp að nýju.
olaso í framkvæmdastjórann og spurði
hvort „Francesca, sú sama og vanalega“
væri á lausu því hann myndi „elska að
fá góða yfirhalningu“.
Rógburður orðin þjóðaríþrótt
Á meðal þeirra sem lögreglan hefur
handtekið vegna málsins eru stofn-
endur Salaria Sport Village-klúbbsins.
Silvio Berlusconi er eðli málsins sam-
kvæmt ekki skemmt enda talið að hann
hafi horft til Bertolasos sem mögulegs
eftirmanns.
Silvio Berlusconi sagði vegna máls-
ins að það að rægja skóinn af fólki sem
ynni landinu gagn væri orðið að þjóð-
aríþrótt og að horfa ætti framhjá „smá-
vægilegum ójöfnum“ hjá þeim sem
ynnu að almannaheill.
Í Il Giornale, dagblaði í eigu fjöl-
skyldu Berlusconi, sagði að það væri
sorglegt að pólitísk réttsýni væri farin að
skjóta rótum á Ítalíu, og að jafnvel ríkir
og valdamiklir menn væru viðkvæmir
og þyrftu kynferðislega huggun.
KYNLÍF FYRIR VERKSAMNINGA
Silvio Berlusconi
og Guido Bertolaso
Hægri hönd Berlusconis
sætir rannsókn vegna
kynlífshneykslis.
MYND AFP
MYRTI
BRÓÐUR SINN
Amy Bishop, sem skaut til bana þrjá starfsmenn háskóla í
Huntsville í Alabama á föstudaginn, skaut fyrir tuttugu og
fjórum árum bróður sinn til bana í Braintree í Massachusetts.
Frásagnir af því atviki eru misvísandi.
KOLBEINN ÞORSTEINSSON
blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is
Amy Bishop
Líffræðiprófessor
með fortíð.
MYND AFP
Dalai Lama, útlægur andlegur leið-
togi Tíbeta, hvatti á sunnudaginn
landa sína til að halda ekki Losar-há-
tíðina, sem haldin er til að fagna nýju
ári í Tíbet.
Dalai Lama tók á móti þúsund-
um Tíbeta í helsta Búdda-musterinu
í Dharamsala í norðurhluta Indlands
á sunnudaginn sem alla jafna hefði
markað upphaf Losar-hátíðarinnar.
„Við höfum heyrt raddir frá Tíbet
sem segja að þeir muni ekki halda
Losar-hátíðna. Við ættum að virða
og bregðast við á sama hátt,“ sagði
Dalai Lama.
Að loknum bænum og trúarleg-
um athöfnum öðrum sagði Dalai
Lama að útlægir Tíbetar byggju við
margs konar frelsi sem Tíbetar í Tí-
bet nytu ekki.
Þetta er annað árið í röð sem Tíb-
etar í Dharamsala, höfuðstöðvum
Dalai Lama, fagna ekki nýju ári með
hefðbundnum hætti því síðastliðið
ár ákváðu útlægir Tíbetar allir sem
einn að gera slíkt hið sama vegna
eftirmála þess þegar Kínverjar brutu
á bak aftur róstur í Tíbet í mars 2008.
Dalai Lama er væntanlegur til
Bandaríkjanna eftir nokkra daga í
mikla óþökk kínverskra stjórnvalda
sem hvöttu bandarísk stjórnvöld á
föstudaginn til að hætta við heim-
sóknina.
Bandarísk stjórnvöld segja að
þau viðurkenni Tíbet sem hluta af
Kína, en vilja að ráðamenn í Beij-
ing tylli sér niður með Dalai Lama
og ræði ágreining sem er um fram-
tíð Tíbet.
Útlægir Tíbetar sýna löndum sínum í Tíbet stuðning í verki:
Enginn nýársfögnuður Tíbeta
Losar-hátíðarhöld í Lachung á Indlandi Annað árið í röð hyggjast Tíbetar ekki
fagna nýju ári.
Amman hafði betur
Sextug áströlsk amma hafði betur í
baráttu upp á líf og dauða við hákarl
undan ströndinni við Queensland í
Ástralíu um helgina. Konan, Paddy
Trumball, var að kafa með snorku í
grennd við Whitsunday-eyju þegar
hákarlinn réðist á hana.
Þrátt fyrir að hafa misst, að sögn
lækna, um 1,5 lítra af blóði og hafa
fengið djúp bitsár tókst Paddy að
sparka og slá hnefunum ítrekað í
trjónu hákarlsins og verjast árásum
hans þar til henni var bjargað um
borð í bát sem átti leið hjá.
Bréf prinsessu
boðin upp
Meira en þrjátíu bréf og kort skrif-
uð af Díönu prinsessu voru boðin
upp í Lundúnum á laugardaginn. Í
bréfunum og kortunum koma í ljós
ýmsar persónulegar upplýsingar og
á meðal annars að henni líkaði að
opna til dæmis afmælisgjafir sem
henni bárust áður en afmælisdagur
hennar rann upp, og einnig að hún
átti erfitt með að þola áhuga fjöl-
miðlanna.
Á uppboðinu var einnig að finna
þakkarbréf frá prinsunum Villhjálmi
og Harry frá bernskuárum þeirra.
Þau eru skrifuð á barnabréfsefni
með rithönd barns.
Þrjátíu ára dómur
Juan Maria Bordaberry, fyrrverandi
forseti Úrúgvaí, hefur verið dæmd-
ur til þrjátíu ára fangelsisvistar fyrir
valdarán sem tryggði honum völd í
landinu árið 1973, og mannréttinda-
brot. Juan Maria Bordaberry var
dæmdur fyrir brot gegn stjórnarskrá
landsins, níu tilvik þar sem um var
að ræða „mannshvarf með valdi“, og
tvö morð sem framin voru í pólitísk-
um tilgangi.
Bordaberry, sem er 81 árs, hefur
verið í stofufangelsi vegna morð-
anna tveggja síðan árið 2007.
Bordaberry tók völdin í landinu
með fulltingi hersins árið 1973, leysti
upp þingið og lagði niður stjórnar-
skrá landsins. Árið 1976 kom herinn
honum frá völdum fyrir annan leið-
toga sem hugnaðist hernum betur.