Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2010, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2010, Qupperneq 2
GÆTI HAFT ÁHRIF UM ALLT NORÐURHVEL 2 MÁNUDAGUR 26. apríl 2010 FRÉTTIR Eldgos á Suðurlandi hafa oftar en ekki leitt miklar hörmungar yfir íslenska þjóð. Reynslan kennir okkur að áhrif- anna gætir víða og stundum lengi og þá með margvíslegum hætti. Næg- ir að nefna horfelli, bæði manna og dýra, sveitir leggjast í eyði auk þess sem eldgos sem hér hafa orðið hafa haft áhrif á veðurfar víða um jörðina og þá til kólnunar. Enda þótt gosið í Eyjafjallajökli sé á mælikvarða margra annarra gosa fremur lítið er rétt að hafa í huga að enn vitum við ekki hversu lengi það varir og hvort það muni leiða til eld- virkni í nálægum eldstöðvum. Allt á þetta eftir að skýrast er fram í sækir. Reglulegar hörmungar Sé horft á söguna er eins og reglu- lega komi hörmungartímabil með til- heyrandi harðindum. Árið 1755 gerði afar öflugt Kötlugos og segir í Ferða- bók Eggerts Ólafssonar og Bjarna Pálssonar að 6. október hafi skollið á niðaþoka með miklu öskufalli svo að- eins sást örfá skref áfram. Töluverður vindur var og frost. Svo segir: „Ask- an smaug einnig í gegnum föt okk- ar og inn á okkur bera. Við urðum svartir í andliti...allt sem við hrækt- um úr okkur var kolsvart. Hestarnir gátu hvorki bitið né haldið augunum opnum. Tveir þeirra urðu blindir af því að augnlokin greru saman.“ Í kjöl- far þessa atburðar lagðist fjöldi bú- jarða í Vestur-Skaftafellssýslu í eyði. Á þessari lýsingu má glöggt gera sér í hugarlund hvernig ástand getur orðið og sem vel getur orðið enn þann dag í dag. Sýn eldklerksins „Þann 8. júní 1783 á Hvítasunnuhá- tíð gaus hér upp eldur upp úr afrétt- arfjöllum sem eyðilagði land, menn og skepnur með sínum verkunum nær og fjær.“ Þetta kemur fram í ævi- sögu Jóns Steingrímssonar eldklerks. Þetta gos var raunar með stærstu gos- um sögunnar, þó óvíða mjög þykkt. Í heimildum segir að svartur mökkur hafi borist af fjöllum og öskufall hafi orðið í byggð. Almyrkt varð í húsum og hægt var að rekja spor í öskunni. Ennfremur segir að gert hafi óþolandi sviða í augum og á beru hörundi. Í þessu gosi var líka hraunrennslið það mesta sem runnið hefur á jörðinni í einu gosi og rann hraunið yfir fjölda bæja í sveitinni. En askan var verst, hún dreifðist um allt land. Hún reyndist innihalda alls kyns eiturefni eins og brennistein, saltpétur og flúor auk vatnsgufu og koldíoxíðs auk þess sem hún lokaði að miklu leyti fyrir inngeislun sólar- innar og því töluðu menn um móðu- harðindi enda átti hún eftir eftir að hafa afdrifarík áhrif. Brennisteins- samböndin í móðunni mynduðu brennisteinssýru með blöndun við raka loftsins. Afleiðingin var að móðan brenndi göt á allt það sem fyrir var, til dæm- is nýrúið sauðfé sem og mannfólkið. Flúorinn hafði skelfileg áhrif á dýrin. Í verstu tilvikunum freyddu bein svo tennur duttu úr grasbítum og þeir hættu að nærast og gátu ekki jórtrað. Þá voru dæmi um að vöxtur tanna væri mjög misjafn með tilheyrandi vandamálum við að nærast. Þá hafði flúorinn áhrif á fætur dýranna svo þau gátu vart gengið. Í þessum hörmung- um fækkaði sauðfé um allt að 80%, hrossum um 60% og nautgripum um 50%. Hér hefur ekki verið minnst á hversu kvalafullt þetta hefur verið fyr- ir dýrin. En það var fleira. Meira að segja létust kettir og þá úr hungri því móð- an útrýmdi öllum músum á svæðinu. Ekki þarf að taka fram að heyfengur brást algjörlega sem leiddi til þess að skepnur dóu úr hungri. Afleiðingin varð eymd og hungursneyð í landinu, einkum þó á suðaustanverðu land- inu. Veturinn 1783-1784 var harð- ur. Hann einkenndist af langvarandi kuldum og úrkomu. Það liggur nærri að kuldatíðin hafi varað frá desem- ber 1783 og fram eftir sumri 1784. Töl- urnar töluðu sínu máli. Í móðuharð- indunum fækkaði landsmönnum úr 48.884 fyrir gos niður í 38.368 árið 1786 eða um 12.516 einstaklinga sem er fækkun um 25,6%. Í Skaftafellssýsl- unum létust tæplega 40% íbúanna. Gosinu lauk 7. febrúar 1784. Geta endurtekið sig Það sem menn þurfa að átta sig hér á er að svona náttúruhamfarir geta endurtekið sig enn þann dag í dag. Auðn og tóm um sveitir landsins verða oft raunin í kjölfar slíkra at- burða. Vissulega yrði ekki um sama horfelli að ræða í dag og þarna varð en náttúruhamfarirnar sem slíkar geta endurtekið sig. Og þó Eyjafjallagosið sé ennþá fremur lítið má sjá svipaða hluti vera að gerast. Jarðir að leggjast í eyði, gripaflutningar fara í fullan gang og menn reyna af veikum mætti að nýta vélar og tæki til hreinsunarstarfa. En eyðileggingin getur orðið hrika- leg þótt á endanum nái þessi svæði sér á strik á ný í komandi framtíð en þó stundum ekki fyrr en eftir langan tíma. Gæti haft veðurfarsleg áhrif En vitandi um þessa miklu ösku- myndun og dreifingu hennar og kuldatíðina sem kom í kjölfarið hafa menn reynt að meta hvaða áhrif Skaftáreldagosið hafði á veðurfar þess tíma. Svarið er eiginlega það að áhrif- in urðu um alla jörð. Á norðurhveli jarðar hafa sum líkön bent til þess að lofthiti hafi lækkað um allt að 3 gráð- ur að jafnaði, sem telst mjög mikið í heimi vísindanna . Þessi kólnun hef- ur áhrif á alla uppskeru bænda með- al annars í Evrópu og þegar trjáhring- ar eru skoðaðir frá þessum árum má greina að þeir eru litlir og vesælir og má sjá slíkt í trjám bæði vestan og austan Atlantsála. Þá er jafnvel talið að þetta hafi haft áhrif á veðrahring- rásina á suðurhveli jarðar sem leitt hafi til mikilla þurrka á sumum svæð- um. Það er því ekkert grín þegar eld- stöðvar spúa ösku og gasi langtímum saman. Slíkt leiðir til hörmunga með einum öðrum hætti. Þó vart sé hægt að tala um að gosið í Eyjafjallajökli muni hafa mikil áhrif til kólnunar miðað við stöðu þess og afleiðingar í dag er vert að hafa í huga að við sjáum alls ekki fyrir endann á því og áhrif- um þess. Þó má allt eins áætla, að það standi álíka lengi og síðasta gos í Eyja- fjallajökli 1821-1823 þó með hléum verði og haldi það áfram að framkalla ösku á þessum tíma, að þá mun veð- urfarslegra og efnahagslegra áhrifa Eldgosið í Eyjafjallajökli gæti haft veður- farsleg áhrif um allt norðurhvel jarðar. Eld- gos á Suðurlandi hafa jafnan kallað miklar hörmungar yfir íslensku þjóðina og er ekki útséð með hvenær það hættir og þar með hver áhrifin verði af því. Fullyrða má hins vegar að það muni leiða til kólnunar. SIGURÐUR Þ. RAGNARSSON jarð- og veðurfræðingur skrifar af vettvangi eldgossins: Víðtæk áhrif Eldgosið í Eyjafjalla- jökli gæti haft víðtæk veðurfarsleg áhrif um allt norðurhvel. Þessar mögnuðu myndir af gosinu tók Guðrún Ýr Bjarnadóttir. Regluleg hörmungatímabil Eldgos á Suðurlandi hafa kallað hörmungar yfir þjóðina og kennir sagan okkur að áhrifa þeirra gætir víða.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.