Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2010, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2010, Blaðsíða 6
6 MÁNUDAGUR 26. apríl 2010 FRÉTTIR Jónas Fr. Jónsson, fyrrverandi for- stjóri Fjármálaeftirlitsins, gagnrýnir embætti umboðsmanns Alþingis fyr- ir vissa þjónkun við íslensku bankana á árunum fyrir hrunið í skriflegum athugasemdum í skýrslu rannsókn- arnefndar Alþingis. Athugasemdirn- ar eru í viðauka við skýrsluna. Jónas hafði andmælarétt vegna þeirrar gagnrýni sem rannsóknar- nefndin setti fram á störf hans og gagnrýndi hann embættið í þeim. Tryggvi Gunnarsson, sem gegnir starfi umboðsmanns Alþingis, var einn þremenninganna í rannsókn- arnefndinni og má því líta svo á að gagnrýni Jónasar beinist að Tryggva. Inntakið í gagnrýni Jónasar Fr. snýst um það að embætti umboðs- manns hafi gert miklar kröfur til stjórnsýslunnar og Fjármálaeftirlits- ins og að fjármálafyrirtækjunum hafi verið bent á rétt sinn ef þau teldu að Fjármálaeftirlitið gengi of langt í gagnrýni sinni á þau. Í athugasemdum Jónasar segir um umboðsmann: „Umboðsmaður Alþingis hefur alla jafna gert strang- ar kröfur til stjórnsýslunnar og hélt meðal annars erindi á fundi hjá Fé- lagi lögfræðinga fjármálafyrirtækja 16. maí 2007 þar sem hann vakti at- hygli fyrirtækjanna á þeim mögu- leika að kvarta til umboðsmanns teldu þau á sér brotið við málsmeð- ferð Fjármálaeftirlitsins. Minnis- blað starfsmanns Fjármálaeftirlits- ins, sem sótti fundinn, liggur fyrir í skjalasafni stofnunarinnar. Af fram- ansögðu má ljóst vera að af hálfu Fjármálaeftirlitsins var lagður sífellt aukinn tími og vinna í öflun, rann- sókn og úrvinnslu á stórum áhættu- skuldbindingum.“ Jónas er því með þessu að segja að umboðsmaður Alþingis hafi átt þátt í því að draga tennurnar úr Fjármálaeftirlitinu og möguleik- um þess á að fylgjast með bönk- unum. Forstjóri Fjármálaeftirlitsins gagnrýndi embætti umboðsmanns Alþingis: Benti bönkunum á rétt sinn Deilt á umboðsmann Fyrrverandi forstjóri Fjármálaeftirlitsins deilir á umboðsmann Alþingis í athugasemdum sem hann sendi rannsóknarnefnd Alþingis. Umboðsmaður Alþingis, Tryggvi Gunnarsson, átti sæti í sannleiksnefndinni. Fíkniefni sem smitast af saur og eru borin innvortis til landsins geta valdið hættulegum sýkingum hjá þeim sem neyta efnanna. Dæmi eru um að fólk hafi smitast af lifrarbólgu A eftir að hafa neytt fíkniefna sem hafa smitast af saur úr manneskjunni sem bar þau innvortis í smokkum til landsins. HÆTTA Á SMITI AF SAURUGU DÓPI Í janúar var erlendur maður stöðvað- ur af Tollgæslunni á Keflavíkurflug- velli með 99 smokka innvortis sem innihéldu 650 grömm af amfetamíni. Efnin sem maðurinn bar til landsins reyndust smituð af saur sem hafði komist í snertingu við fíkniefnin í maga eða þörmum mannsins. Saur getur innihaldið mikið magn af veir- um og bakteríum. „Það eru verulega mengaðar bakteríur í saur og einn- ig hættulegar svo sem salmonellu- smit. Það sem menn hafa helst rekið augun í eru lifrarbólguveirur því það geta einnig verið veirusjúkdómar sem berast með saur,“ segir Harald- ur Briem sóttvarnalæknir, en hann hefur skoðað myndir sem lögrelgan á Suðurnesjum tók af smokkum sem maðurinn bar til landsins. „Á mynd- inni sést að saurinn hefur lekið inn í smokkinn og þetta er bara óþverri.“ Lengi að skila efnum Alda Hrönn Jóhannsdóttir, lögfræð- ingur hjá Lögreglustjóranum á Suð- urnesjum, segir mál þar sem fólk reyni að smygla fíkniefnum til lands- ins talsvert algeng. „Við erum ítrek- að að sjá að þessi efni sem eru borin innvortis til dæmis í smokkum hafa smitast af saur úr þeim sem ber efn- in til landsins,“ segir Alda en oft getur það tekið langan tíma fyrir einstakl- ing sem smyglar efnum innvortis að losa sig við þau. „Ég hreinlega man ekki hvað lengsti tíminn er sem ein- staklingur hefur verið að skila efnun- um frá sér, en mig minnir að það hafi tekið hann sex til tíu vikur.“ Öll flóran í saur Að sögn Haraldar Briem er saur- mengun ein aðalváin sem menn standa frammi fyrir í dag. „Þess vegna er verið að hvetja fólk til að þvo hendur. Fólk getur verið með þessa frægu nóroveiru sem er allt- af að valda niðurgangspestum. Það getur verið með lifrarbólgu A og síð- an eru það salmónellur sem eru allt saurgerlar. Það er öll flóran sem get- ur verið í saur, til dæmis blóðkreppu- sótt, kólera og í rauninni hvað sem er,“ segir Haraldur og bendir sér- staklega á lifrarbólgusmit. „Við feng- um faraldur af lifrarbólgu A fyrir all- mörgum árum þar sem líklegt er að smit milli fólksins, sem var fíkniefna- neytendur, hafi borist með neyslu saurmengaðra fíkniefna.“ Hættuleg veirusýking Haraldur segir lifrarbólgu A vera hættulega. „Þetta er veirusýking sem berst í lifrina og hún bólgnar upp og gallgangarnir stíflast. Viðkomandi verður gulur og það eru talsverð veik- indi sem fylgja þessu sem geta staðið vikum eða jafnvel mánuðum saman. Því eldra sem fólk er því hættulegra verður að smitast af lifrarbólgu A og dauðsföll hjá eldra fólki eru þekkt. Þetta er mjög varasamur sjúkdómur og landlæknisembættið skilgreinir hann sem hættulegan, tilkynninga- skyldan sjúkdóm.“ Hættuleg veikindi „Oft er þetta fólk sem er ekki vel á sig komið líkamlega og hefur mögu- lega verið í fíkniefnaneyslu lengi og þannig borið sýkingar,“ segir Alda Hrönn og bætir við. „Mér finnst skelfilegt til þess að hugsa að fólk sé að neyta þessara efna sem eru flutt til landsins með þessum hætti – efni sem geta valdið einstaklingum hættulegum líkamlegum veikindum í kjölfar neyslu þeirra,“ segir Alda. Saurmenguð efni í sölu Á mynd sem lögreglan á Suðurnesj- um tók af einum smokknum sést vel hvernig hvítt amfetamínið er orð- ið brúnleitt að lit. „Þessi mynd segir okkur í rauninni hversu langt saur- smitið berst inn í efnið í smokknum og hvað það er orðið litað af smiti. Þegar við náum þessum efnum ekki fara þau á markað og fólk veit ekk- ert hvaða sýklar eru í þessum efn- um. Það geta verið fleiri sjúkdómar en lifrarbólga A sem fólk er að sýkjast af sem notar efni sem eru smituð af saur. Fólk veit ekkert hvernig fíkni- efni sem það neytir eru tilkomin – kannski með þessum hætti,“ segir Alda. Þarf einungis að snerta Haraldur Briem segir verulega hættu á að saurmenguð fíkniefni smitist við neyslu. „Ef fíkniefni mengast af saur er talsverð hætta á að bakteríur eða veirur komist í þann sem neytir efn- isins. Jafnvel þótt efni sem eru saur- menguð séu einungis handfjötluð nægir það til að valda smiti. Það þyrfti að sjóða efnin til að komast hjá sýk- ingu. Ef smitefnið er í fíkniefninu er bara veruleg hætta á að fólk smitist.“ JÓHANNES KRISTJÁNSSON blaðamaður skrifar: johanneskr@dv.is „Þegar við náum þessum efnum ekki fara þau á mark- að og fólk veit ekkert hvaða sýklar eru í þess- um efnum“ Sóttvarnalæknir Haraldur Briem segir að veruleg hætta sé á að saurmenguð fíkniefni smiti þá sem neyta efnanna af bakteríu- eða veirusýkingum. Átján smokkar Þarna sjást átján smokkar af þeim 99 sem maðurinn reyndi að smygla til landsins. Brimborg kærir borgina Brimborg hyggst kæra Reykjavíkur- borg til umboðsmanns Alþingis fyrir stjórnsýslulagabrot, valdníðslu og fyrir að breyta lögum um lóðarskil afturvirkt. Áður hafði fyrirtækið kært borgina til sveitarstjórnaráðuneytis sem úrskurðaði Brimborg í vil. Málið snýst um lóð sem bílaumboðið keypti af borginni árið 2005 en eftir banka- hrunið óskaði fyrirtækið eftir að skila lóðinni. Reykjavíkurborg hefur þrátt fyrir úrskurði þess efnis neitað að taka við lóðinni fram til þessa og nú reynir á málið hjá umboðsmanni Alþingis. Innanlandsflug niðri í tvo daga Svo gæti farið að öllu innanlands- flugi verði aflýst fram á miðvikudag gangi veðurspár eftir. Samkvæmt spá Veðurstofunnar fyrir vikuna stefnir í að Keflavíkurflugvöllur og Reykjavík- urflugvöllur verði ónothæfir, jafnvel fram á miðvikudag. Árni Gunnars- son, framkvæmdastjóri Flugfélags Íslands, segir fyrirtækið tapa um átta til níu milljónum króna á dag en 1.800 manns áttu bókað far innanlands með vélum flugfélagsins á sunnudag. Flug- umferð um Egilsstaðaflugvöll var mjög takmörkuð um nýliðna helgi vegna spár um dreifingu gjósku en völlurinn er á svokölluðu svörtu svæði þar sem magn ösku er yfir þeim mörkum sem framleiðendur þotuhreyfla setja. Flugbókanir hrynja Flugbókanir eftir eldgosið í Eyjafjalla- jökli hafa hrunið og mikið tjón hefur orðið hjá íslenskum flugfélögum, bæði í innanlands- og millilanda- flugi. Gífurleg röskun hefur verið á flugi vegna öskufalls frá gosinu og flest flug hafa verið í uppnámi undanfarna daga. Forsvarsmenn flugfélaga hafa setið sveittir við að halda uppi flug- samgöngum hérlendis og milli landa en sala á flugi til og frá landsins hefur snarminnkað eftir eldgosið. Þá hefur DV greint frá því undanfarna daga að rekstraraðilar í ferðaþjónustu hafa orðið fyrir talsverðum afbókunum undanfarið og stefnir í slakt ferða- mannasumar á Íslandi. Með skrúfjárn í gegnum tollinn Íslendingur hafði samband við DV um helgina til að greina frá því að hann hefði komist með 19 cm langt skrúfjárn í handfarangri gegnum öryggishliðið á Kefla- víkurflugvelli og á flugvellinum í Osló. Maðurinn ætlaði sér ekki að vera með skrúfjárnið á sér þegar hann fór í gegnum tollinn og áttaði hann sig ekki á því fyrr en hann var kominn í gegnum tollinn. Maðurinn furðaði sig á því að hann hefði komist með skrúfjárnið í gegnum tollinn en þetta gæti bent til að öryggisgæslu á flugvöllunum tveimur sé ábótavant.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.