Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2010, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2010, Blaðsíða 10
10 MÁNUDAGUR 26. apríl 2010 FRÉTTIR Jákup á Dul Jacobsen, stofnandi og einn aðaleigenda Rúmfatalag- ersins, skuldaði rétt tæpa áttatíu milljarða íslenskra króna við fall bankanna síðla árs 2008. Skuld- irnar lágu í níu félögum tengdum Færeyingnum duglega sem sam- anlagt skulduðu 470 milljónir evra í viðskiptabönkunum þremur, Glitni, Kaupþingi og Landsbank- anum. Þetta kemur fram í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis þar sem fjallað er sérstaklega um út- lán stóru bankanna þriggja. Þar sést að lánin fóru vaxandi frá ár- inu 2005 og náðu hátindi í lok september 2008, nokkrum dög- um fyrir sjálft bankahrunið. Mest fengu fyrirtæki Jákups lánað hjá Kaupþingi en þar fóru lánin yfir 300 milljónir evra þegar hæst var. Það jafngildir yfir 50 milljörðum króna. Landsbankinn var ekki langt á eftir því við bankahrunið voru lánin þar innandyra rúmar 250 milljónir evra, eða rúmir 42 milljarðar króna. Korputorgið erfiðast DV hefur ekki heimild fyrir því hver staða lánanna er hjá bönk- unum, hvort greitt hafi verið inn á þau eða skuldir fengist afskrif- aðar. DV gerir ráð fyrir því að stór hluti lánanna sé tilkominn vegna byggingar verslunarmiðstöðvar- innar Korputorgs, sem var opn- uð í miðju bankahruninu, aðeins nokkrum dögum eftir að íslenska ríkið ákvað að taka yfir Glitni. Í því erfiða árferði sem þá var hættu verslanir við að opna búðir í versl- unarmiðstöðinni, jafnvel þrátt fyr- ir að rekstraraðilar hafi verið bún- ir að undirrita leigusamninga. Þannig sagði DV til að mynda frá því að bæði Office One og Max- raftæki hefðu hætt við að opna þar verslanir. Opnun Korputorgs, eða „Kreppu torgs“ eins og sumir kjósa að kalla það, fór fram nokkrum mánuðum síðar en áætlað var en meðal þeirra verslana sem þar opnuðu var stór húsgagna- og heimilisvörurverslun í eigu Jákups, Ilva á Íslandi sem tengt er erlendri keðju. Þrjú þeirra fé- laga sem skulduðu háar fjárhæðir í stóru bönkunum báru nafn Ilva í einhverri mynd. Staddur í Sjanghæ Jákup stofnaði Rúmfatalagerinn hér á landi árið 1987 sem staðsett var í Kópavogi. Ári síðar var opn- uð verslun á Akureyri en í dag eru þær orðnar fjórar talsins þar sem hægt er að kaupa lágverðsvörur af ýmsu tagi. Ein þessara fjögurra verslana er í Korputorgi. Á haustmánuðum síðasta árs voru fluttar fréttir af því í Séð og heyrt að Færeyingurinn væri flutt- ur af landi brott með fjölskyldu sína. Hann býr nú í Kína þar sem hann heldur utan um innkaup Rúmfatalagersins. „Ég kaupi svo mikið inn frá Kína að ég verð helst að vera hérna og passa upp á hlut- ina,“ sagði Jákup í viðtali við tíma- ritið þar sem fram kom að rúm- fatakóngurinn býr í Sjanghæ. Við vinnslu fréttarinnar voru gerðar tilraunir til að komast í samband við Jákup en án árang- urs. Skuldir í hlutafé? Fréttavefurinn visir.is greindi frá því síðastliðið haust að til stæði að Arion banki tæki yfir einhvern hluta skuldanna og breytti þeim í hlutafé. Þar kom fram að engar af- skriftir væru fyrirhugaðar á skuld- um Færeyingsins, eða fyrirtækj- um honum tengdum, heldur tæki bankinn yfir hlut í helstu eign- um hans, meðal annars Ilvu-hús- gagnaverslununum, Rúmfatala- gernum, turninum við Smáratorg, verslunarmiðstöðinni Glerár- torgi á Akureyri og verslunarmið- stöðinni Korputorgi. Þá staðfest- ir Jákup að viðræður við bankann stæðu yfir en fullyrti að engar skuldir yrðu afskrifaðar. Eftir því sem DV kemst næst er hluti hinna skuldugu félaga Jákups gjaldþrota og verið að vinna í því að selja eignir úr móð- urfélaginu, Lagerinn ehf., og dótt- urfélögum þess. Þannig hefur ekki aðeins Arion banki leyst til sín hluti í móðurfélaginu heldur einnig Landsbankinn, sem tekið hefur yfir stærstan hluta dótturfé- lagsins SMI ehf. Frumkvöðull ársins Jákup hlaut Viðskiptaverðlaun DV, Stöðvar 2 og Viðskiptablaðs- ins árið 2000 en þá voru verslan- ir Rúmfatalagersins orðnar tíu talsins; ein í Færeyjum, fjórar í Kanada og fimm á Íslandi. Hann tók við verðlaununum úr hendi Valgerðar Sverrisdóttur, þáver- andi viðskiptaráðherra, sem lof- aði Færeyinginn fyrir stórhug og frumkvæði. „Nú síðast vakti Jákup eftirtekt í íslensku viðskiptalífi með þátttöku sinni í uppbyggingu Smáratorgs í Kópavogi þar sem enn eru metnaðarfullar fyrir- ætlanir um frekari uppbygg- ingu. Með svipuðum stór- hug var ráðist í byggingu Glerártorgs á Akureyri, glæsilegrar verslunar- miðstöðvar sem opn- uð var nú í haust. Það er því óhætt að segja að hvar sem Jákup Jacobsen kemur að atvinnurekstri megi sjá merki um stórhug, frum- kvæði og óbil- andi drifkraft til uppbygging- ar og framfara. Jákup Jac- obsen er því sannkallað- ur frumkvöð- ull,“ sagði Valgerður skömmu áður en hún veitti Jákup verð- launin. Stórtækur Árið 2004 voru verslanir Rúm- fatalagersins orðnar 38 talsins; ein í Færeyjum, 20 í Kanada, fjórar á Ís- landi og 13 í Eystra- saltslöndunum. Frá 1987 hafði reksturinn vaxið frá einni versluni í heimalandinu yfir í 38 verslanir í 6 löndum. Jákup þakkaði framsýni sinni vel- gengnina en heppni spil- aði þar líka inn í þar sem hann hefði verið rétti maðurinn á réttum tíma. Þannig sagðist Jákup í viðtali við Viðskiptablaðið hafa leiðst út í verslunarrekstur fyrir tilviljun þegar hann var 25 ára gamall og hafði áður verið lengi á sjó. Þá var hann staddur með föður sínum í Danmörku og fóru þeir í dansk- an Rúmfatalager. Þar hafi mað- ur í versluninni komið að þeim, uppgötvað að þeir væru Færey- ingar og tilkynnt þeim að landi þeirra hefði ætl- að að stofna versl- un í Færeyjum en hætt við það. Buð- ust Jákup þarna átta gámar af vörum sem biðu á hafnarbakk- anum í Færeyjum. Hann ákvað að grípa tækifærið þrátt fyrir að félagar hans stríddu hon- um á því að hafa farið úr sjómennsku yfir í það að selja gardínur og sængurföt. RÚMFATAKÓNGUR SKULDAR 80 MILLJARÐA Félög tengd Jákupi á Dul Jacobsen, öðrum aðaleigenda Rúmfatalagersins, skulduðu 470 milljónir evra í stóru viðskiptabönkunum þremur, Glitni, Kaupþingi og Landsbankanum, þegar þeir hrundu. Hann flutti af landi brott á haustmánuðum þar sem hann býr með fjölskyldunni í Sjanghæ. TRAUSTI HAFSTEINSSON blaðamaður skrifar: trausti@dv.is Lánaskuldir félaga Jákups hjá bönkunum þremur: n 2005: 270 milljónir evra n 2006: 300 milljónir evra n 2007: 410 milljónir evra n 2008: 470 milljónir evra Skuldug félög tengd Jákupi: n Lagerinn ehf. n SMI ehf. n Lagerinn Dutch Holding B.V. n Stekkjarbrekkur ehf. n Jysk Linen´n Furniture Inc. n Ilva Furniture Ltd. n Ilva A/S n Ilva Holdings A/S n Önnur félög Skuldir Jákups Ég kaupi svo mikið inn frá Kína að ég verð helst að vera hérna og passa upp á hlutina. Býr í Kína Séð og heyrt sagði frá því í haust að Jákup væri fluttur til Sjanghæ þar sem hann fylgist með inn- kaupum Rúmfatalagersins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.