Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2010, Blaðsíða 30
Sumarið er komið sem kætir
marga. Grétar Rafn Steinsson,
knattspyrnumaður hjá Bolton
í Englandi, og eiginkona hans,
Manúela Ósk Harðardóttir, feg-
urðardrottning Íslands 2002, eru
þar á meðal. Þau fögnuðu árs-
tíðaskiptunum með því að fara
í verslunarferð á sumardaginn
fyrsta sem Manúela segir frá á
bloggsíðu sinni. Með í för var Jó-
hann, sonur Manúelu, og fengu
allir þrír fjölskyldumeðlimirn-
ir gjöf. Manúela fékk garðborð-
stofusett, sem samanstendur
af borði, sex stólum og tveimur
kollum, og sófasett og sólhlíf í
stíl, Grétar fékk grásanserað gas-
grill, sem samkvæmt myndinni
sem fylgir með bloggfærslunni
virðist alveg í stíl við húsgögnin,
og Jóhann litli fékk Lego-leikföng
auk ferðar í sjálft Legoland. Ekki
amaleg byrjun á sumrinu hjá fót-
boltafjölskyldunni í Bolton.
ANDVAKA OG
AUMUR EFTIR
TÖKUR
Sjónvarpsstjarnan og athafna-
konan Martha Stewart lýsti yfir
áhyggjum sínum af forsetafrúnni,
Dorrit Moussaieff, og íslensk-
um hestum í nýlegu spjalli við
New York Magazine. Blaðamað-
ur tímaritsins ræddi við Mörthu
þar sem hún var stödd á Tribe-
ca-kvikmyndahátíðinni og spurði
hana þá út í eldgosið á Íslandi
sem hefur valdið usla um heim
allan.
„Ég á marga vini á Íslandi og ég
hef ekkert heyrt frá þeim.“ Þekk-
ir þú forsetafrúna, Dorrit? „Það
eru liðnir margir dagar og ég hef
ekkert heyrt frá henni. En ég er
viss um að það sé í góðu lagi með
þau,“ sagði Martha um forseta-
frúna og bætti svo við. „En það er
svo mikil aska. Ég vorkenni alveg
hræðilega mikið greyið hestun-
um sem eru fastir þarna. Þeir geta
ekki andað!“
Martha Stewart var síðast á Ís-
landi sumarið 2008 en þá snæddi
hún einmitt kvöldverð með Dorr-
it og Ólafi Ragnari Grímssyni á
Bessastöðum. Aðrir gestir í veisl-
unni voru meðal annars Jón Ás-
geir Jóhannesson, Ingibjörg
Pálmadóttir, Björgólfur Thor,
Kristín Ólafsdóttir, Kári Stefáns-
son og Ólafur Jóhann Ólafsson.
En flest þessara nafna koma mik-
ið fyrir í nýútkominni skýrslu
rannsóknarnefndar Alþingis.
asgeir@dv.is
ÁHYGGJUR AF DORRIT
GARÐHÚS-
GÖGN, GRILL
OG LEGO
MARTHA STEWART HUGSAR TIL VINA SINNA Á ÍSLANDI:
ÞORSTEINN GUÐMUNDS ER FAÐIR THUG:
Gítarneglur frá náttúrunnar
hendi sem Snorri Helgason,
fyrrverandi söngvari Sprengju-
hallarinnar og nú sólótónlistar-
maður, hefur látið sér vaxa valda
honum nokkrum ama. Snorri
birtir mynd af nöglunum löngu á
Facebook-síðu sinni og segir þær
valda sér alls konar asnalegum
vandræðum, hann eigi til dæmis
erfitt með að nota síma. Nokkrir
fésbókarvina Snorra láta líka
í ljós vanþóknun sína á þessu
nýju „útliti“ hans, segja það
meðal annars perralegt. Snorri
verst fimlega og birtir gamla
mynd af Bob Dylan með álíka
ógnvekjandi nornaneglur, seg-
ir hann bóhem og svalan gaur
þrátt fyrir fingrahnífana og þetta
ætti því að sleppa svo lengi sem
hann lakki ekki neglurnar.
30 MÁNUDAGUR 26. apríl 2010 FÓLKIÐ
Þorsteinn Guðmundsson leikur ásamt
Steinda Jr. í tónlistarmyndbandi fyrir
væntanlega gamanþætti þess síðarnefnda,
Steindinn okkar. Þorsteinn segist hafa verið
svo kvalinn af harðsperrum eftir tökurnar
að hann taldi sig handleggsbrotinn. Steindi
lofar óvæntum uppákomum.
„Þetta var hræðilegt. Ég svaf ekki í tvo
daga eftir þetta,“ segir Þorsteinn Guð-
mundsson grínisti og leikari um hlut-
verk sitt sem Faðir Thug fyrir þættina
Steindinn okkar. Þættirnir fara í loftið
á Stöð 2 föstudaginn 30. apríl en að
þeim standa grínistinn Steinþór H.
Steinþórsson og Ágúst Bent Sigberts-
son. Í tónlistarmyndbandi sem verður
að finna í þáttunum leikur Þorsteinn
ógæfuprest og Steindi fermingarbarn.
„Ég hélt ég hefði handleggsbrotn-
að. Þetta voru svo mikil átök,“ held-
ur Þorsteinn áfram en í einu atriðinu
lyftir hann lóðum af miklum krafti.
„Við vorum þarna niðri í Jakabóli
og jakarnir hvöttu mig áfram af full-
um krafti. Ég held að það hafi stigið
mér til höfuðs,“ en það er kraftatröll-
ið Magnús Ver Magnússon sem rekur
Jakaból. „Þegar ég vaknaði svo daginn
eftir hélt ég að ég hefði rekið höndina
í eitthvað í svefni og brotið hana. Það
reyndist nú ekki rétt heldur voru þetta
bara harðsperrur,“ segir Þorsteinn
og hlær. „Ég er góður í dag. Það sem
drepur mann ekki styrkir mann.“
Fjöldinn allur af þjóðþekktum
einstaklingum mun leika í þáttunum
hjá Steinda og Bent en þar má með-
al annars nefna Helga Seljan, Haffa
Haff, Egil „Gillzenegger“ Einarsson,
Sindra Sindrason, Erp Eyvindarson,
Ólaf Darra Ólafsson og Jóhönnu Guð-
rúnu Jónsdóttur. Sjálfur er Þorsteinn
mjög spenntur fyrir þáttunum. „Það
var mjög gaman að vinna með þeim
strákunum og þeir koma með ferskan
andblæ inn í þetta.“
„Það gerast hlutir í þessu mynd-
bandi sem aldrei áður hafa gerst inni
í kirkju,“ segir Steindi þegar hann
er spurður út í myndbandið. „Svo
munu nokkur mjög óvænt andlit
skjóta upp kollinum,“ bætir hann
við en vill ekki gefa upp hverj-
ir séu þar á ferð. „Það mun koma
skemmtilega á óvart.“
Sjálfur hefur Steindi lengi lit-
ið upp til Þorsteins og segir hann
vera fyndnasta mann landsins.
„Það var mikill heiður að fá að
vinna með honum og læra af
honum í leiðinni.“ asgeir@dv.is
Þorsteinn Guðmundsson Fannst frábært
að vinna með Steinda og Bent en fékk svo
hræðilegar harðsprerrur að hann taldi þær
handleggsbrot.
Bent og
Steindi
Færa okkur
Steindann
okkar.
NORNA-
NEGLUR
A LA DYLAN