Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2010, Síða 3
GÆTI HAFT ÁHRIF UM
ALLT NORÐURHVEL
FRÉTTIR 26. apríl 2010 MÁNUDAGUR 3
Það er því ekkert grín
þegar eldstöðvar
spúa ösku og
gasi langtímum
saman.
þess án efa gæta að einhverju marki
á öllu norðurhveli jarðar hið minnsta.
En ræsi þetta gos Kötlu mun það
kalla enn meiri hörmungar yfir land
og þjóð með tilheyrandi búsifjum og
landskemmdum. Á hinn bóginn mun
veðurfarsleg kólnun með viðeigandi
uppskerubresti ekki hafa eins mik-
il áhrif á mannfall og skepnufall og
áður. Þökk sé bættum samgöngum
milli landa auk betri þekkingar og
upplýsingaflæðis.
Víðtæk áhrif Eldgosið í Eyjafjallajökli gæti haft víðtæk veðurfarsleg áhrif um allt
norðurhvel. Þessar mögnuðu myndir af gosinu tók Guðrún Ýr Bjarnadóttir.
„Það er ofboðsleg sorg í kringum
þetta hjá öllum aðilum. Þetta er
skelfileg staða, það er ekki ann-
að hægt að segja um það og full
þörf á hlýhug og stuðningi á
alla vegu,“ segir Sigurður Grét-
ar Sigurðsson, sóknarprestur í
Útskálaprestakalli, um bílslysið
sem átti sér stað á Hringbraut
við Mánagrund í Reykjanesbæ á
laugardagsmorgun. Þrjár stúlk-
ur slösuðust alvarlega í slysinu
og létust tvær þeirra á sunnu-
dag.
Tildrög slyssins voru þau að
jeppi sem stúlkurnar voru far-
þegar í rakst á staur og valt. Stúlk-
urnar voru fluttar á Landspít-
alann í Fossvogi í Reykjavík þar
sem þær hafa legið þungt haldn-
ar í öndunarvél. Pilturinn sem ók
bílnum slapp hins vegar án telj-
andi meiðsla. Hann var útskrif-
aður samdægurs af Heilbrigðis-
stofnun Suðurnesja.
Biðja fyrir stúlkunum
Tvær bænastundir voru haldn-
ar í Útskálakirkju í Garðinum yfir
helgina þar sem aðstandendum
gafst færi á samtali við prest. Fjöldi
manns sótti bænastundirnar og var
þar mikið af ungu fólki enda eiga
stúlkurnar marga vini og kunningja
sem eiga um sárt að binda. Sigurð-
ur segist hafa hvatt fólk til sam-
stöðu og hlýhugs til þeirra sem eiga
um sárt að binda vegna slyssins.
Tildrög bílslyssins liggja ljós
fyrir en ekki er hægt að greina frá
þeim að svo stöddu, að sögn Jó-
hannesar Jenssonar, yfirmanns
rannsóknardeildar lögreglunnar á
Suðurnesjum. Slysið varð þar sem
hestafólk hefur meðal annars að-
stöðu en þar skiptist vegurinn út
í Garð og í Sandgerði. „Við teljum
að tildrög slyssins liggi nokkuð ljós
fyrir en það er ekki hægt að skýra
frá þeim að svo stöddu,“ segir Jó-
hannes spurður um stöðu rann-
sóknarinnar á slysinu.
Haft uppi á vitnum
Sigurður segir að ökumaður bif-
reiðarinnar, sem er rétt innan við
tvítugt, hafi verið yfirheyrður vegna
málsins. Jóhannes gat þó ekkert
tjáð sig um hvað kom út úr þeirri
yfirheyrslu. Engin hálka var á veg-
inum þegar slysið varð, að sögn Jó-
hannesar.
Lögreglan á Suðurnesjum aug-
lýsti eftir hugsanlegum vitnum að
slysinu í fjölmiðlum á laugardag
en að sögn Jóhannesar gaf sig eng-
inn fram eftir þá tilkynningu. Sér-
staklega var óskað eftir að heyra í
manni sem var á vettvangi slyssins
og leyfði afnot af farsíma sínum.
„Við höfum hins vegar haft uppi á
aðilum sem voru þarna á ferð um
þetta leyti. Við höfðum uppi á þeim
eftir öðrum leiðum.“
Við teljum að tildrög slyssins liggi nokkuð ljós fyrir en það er ekki hægt
að skýra frá þeim að svo stöddu.
„OFBOÐS -
LEG SORG“
Íbúar í Reykjanesbæ eru slegnir vegna stúlknanna þriggja
sem slösuðust í alvarlegu bílslysi um helgina. Bænastundir
voru haldnar í Reykjanesbæ. Tvær af stúlkunum létust á
sunnudag. Tildrög slyssins þykja liggja ljós fyrir.
Rakst á staur Bíllinn rakst á staur og valt
síðan við hringtorgið við Mánagrund. Úr
kvöldfréttum Ríkissjónvarpsins.
Haft uppi á vitnum Lögreglan auglýsti
eftir vitnum að slysinu en enginn gaf sig
fram. Lögreglan hafði hins vegar uppi á
þeim sem voru þar á ferð.
Sandkassarnir á Lynghagarólu-
vellinum í Vesturbæ Reykjavík-
ur fá lengri lífdaga eftir að bar-
áttuglaðir hverfisbúar sannfærðu
borgarstarfsmenn um að hlífa
kössunum. Eftir samningaferli við
starfsmennina varð það úr að íbú-
arnir fá sjálfir að halda sandköss-
unum við.
Reykjavíkurborg hefur ákveðið
að fjarlægja alla sandkassa borg-
arinnar í sparnaðarskyni þar sem
afar dýrt þykir að skipta árlega
um sand í kössunum vegna heil-
brigðiskrafna. Framkvæmdin nær
til allra sandkassa á svokölluðum
opnum svæðum borgarinnar og
eru starfsmenn hverfastöðva langt
komnir með verkið. Sandkassarn-
ir tveir við Lynghagann verða þó
skildir eftir í höndum hverfisbúa.
Þetta kemur fram í tilkynningu
frá vináttufélagi leikvallarins við
Lynghaga, Grími. Í tilkynningunni
eru Reykvíkingar og útrásarvíking-
ar hvattir til að leggja sitt af mörk-
um. „Í stuttu máli fá sandkassarn-
ir tveir á Lynghagaróluvellinum að
vera þar áfram. Sandinn þarf hins
vegar að fjarlægja og setja nýjan í
hans stað. Borgin mun ekki leggja
sandinn til og þurfa íbúar að taka
höndum saman með aðföng og
fjármögnun. Rúmmetri af sandi
kostar nú um heilar 3.000 krón-
ur. Áhugasamir úrlausnarfélagar í
eða utan Gríms eru vinsamlegast
beðnir að hafa samband við félag-
ið til skrafs og ráðagerða. Þá eru
ferðalangar um aflandseyjar ytra
beðnir um að fylla töskur af sandi
á leið heim,“ segir í Grímstilkynn-
ingunni.
trausti@dv.is
Baráttuglaðir Vesturbæingar fengu að halda sandkassa:
Vilja sand frá auðmönnum
Barist fyrir kössunum Íbúar nærri Lyng-
haga í Vesturbænum fá að halda tveimur
sandkössum á róluvellinum þar eftir snarpa
baráttu við borgarstarfsmenn.
BIRGIR OLGEIRSSON og
EINAR ÞÓR SIGURÐSSON
blaðamenn skrifa: birgir@dv.is og einar@dv.is