Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2010, Page 8
8 MÁNUDAGUR 26. apríl 2010 FRÉTTIR
Hyggist skattrannsóknarstjóri ríkisins
kyrrsetja eignir fyrrverandi stjórnar-
formanna og forstjóra FL Group gríp-
ur hann í sumum tilvikum í tómt. Sér í
lagi ætli hann að frysta heimili þeirra.
Í síðustu viku var greint frá því
að skattrannsóknarstjóri ætli sér að
kyrrsetja eignir áðurnefndra manna
og eftir því sem DV kemst næst eru
það þeir Hannes Smárason, fyrrver-
andi forstjóri FL Group, Jón Ásgeir
Jóhannesson, fyrrverandi stjórnar-
formaður FL Group, Jón Sigurðsson,
forstjóri Stoða, áður FL Group, og
Skarphéðinn Berg Steinarsson, fyrr-
verandi stjórnarformaður FL Group.
Þeir voru allir í forsvari fyrir félagið á
árunum 2006 og 2007 og leikur grun-
ur á að tekjum hafi verið skotið undan
í rekstri félagsins með því að bókfæra
hlunnindi sem rekstrargjöld.
Ekki hefur skattrannsóknarstjóri
gefið út nákvæmlega hvaða eignir
um ræðir en eftirgrennslan DV sýnir
að erfitt gæti reynst að grípa húseign-
ir þeirra því allir hafa þeir fært húsin
yfir á konurnar, fyrir utan þann síðast-
nefnda.
Býr hjá frúnni
Jón Ásgeir býr á Sóleyjar-
götu, í glæsilegu húsi núm-
er 11 við götuna, en húsið
er í eigu Ingibjargar Stefan-
íu Pálmadóttur, eiginkonu
hans, og á hana hefur hús-
ið verið skráð frá árinu
2002. Samkvæmt
fasteignamati er
verðmæti hússins
tæpar 140 millj-
ónir króna en það
er nærri 600 fer-
metrar að stærð,
sé bílskúrinn tal-
inn með.
Það er
spurning hvort
skattrannsóknarstjóri eigi auðveldara
með að krækja í glæsibifreið Jóns Ás-
geirs, af tegundinni Range Rover. Bif-
reiðin sem hann ekur um á er nefni-
lega skráð á fjölmiðlafyrirtækið 365 og
þangað var bíllinn færður um síðustu
mánaðamót. Áður hafði bíllinn ver-
ið í eigu Baugs og síðar Haga
en Jón Ásgeir hefur haft af-
not af honum í gegnum
þessi fyrirtæki.
Lögheimilin úti
Bæði hafa þau Jón Ás-
geir og Ingibjörg flutt lög-
heimili sín til útlanda.
Það hefur
líka
Hannes Smárason gert og hann hefur
líka flutt húsið sitt yfir á sambýliskonu
sína. Það var í janúarmánuði 2008
sem húseign hans við Fjölnisveg 9 var
færð yfir á Unni Sigurðardóttur, sam-
býliskonu Hannesar, en bæði eru þau
búsett í Bretlandi.
Húsið við hliðina á, Fjölnis-
veg 11, keypti Hannes líka eftir
deilur við nágranna en húsið er
skráð á eignarhaldsfélag í hans
eigu, félagið Fjölnisvegur 9 ehf.
Samkvæmt upplýsingum frá
Landsbankanum hefur bank-
inn gengið að félaginu og því
húsinu númer 11 við
Fjölnisveg ásamt
íbúð þeirra í
London. Sam-
kvæmt þessu
er Hannes
sjálfur því
ekki skráður
með heimili
hér á landi
sem hægt er
að frysta.
Vildi rífa og byggja nýtt
Jón á fasteignir á Unnarbraut 17 og
19 á Seltjarnarnesi. Hann færði báð-
ar fasteignirnar yfir á Björgu Fenger,
konu sína, 6. maí 2009. Jón hugð-
ist rífa Unnarbraut 19 og byggja þar
nýtt hús. Úrskurðarnefnd skipulags-
og byggingarmála felldi árið 2008 úr
gildi ákvörðun Seltjarnarnesbæjar
um að leyfa Jóni að rífa húsið. Ekkert
er áhvílandi á húsnæðinu á Unnar-
braut 19 en hina eignina keyptu Jón
og Björg árið 2004, samkvæmt upp-
lýsingum frá fasteignaskrá Íslands.
Skarphéðinn Berg Steinarsson
er sá eini af fjórmenningunum sem
er með skráð heimili sitt á eigin
kennitölu en hann býr á Melhaga 1
í Reykjavík. Sjálfur hefur hann sagt
rannsókn skattrannsóknarstjóra
snúa að FL Group en ekki honum
persónulega. Í síðustu viku gagn-
rýndi hann skattrannsóknarstjóra
fyrir að leka í fjölmiðla ákvörðun
um að kyrrsetja eignir hans. Með því
kunni embættið að gera sig vanhæft
til meðferðar mála og sekt um lög-
brot.
Það gæti reynst skattrannsóknarstjóra ríksins erfitt að frysta heimili fyrrverandi stjórn-
arformanna og forstjóra FL Group. Flestar húseignirnar eru á nöfnum eiginkvenna eða
sambýliskvenna, fyrir utan Skarphéðin Berg Steinarsson, fyrrverandi stjórnarformann
félagsins. Hann gagnrýnir leka hjá skattrannsóknarstjóra sem kunni að varða við lögbrot.
EIGNALITLIR
AUÐMENN
TRAUSTI HAFSTEINSSON og
ANNAS SIGMUNDSSON
blaðamenn skrifa: trausti@dv.is og as@dv.is
Fjölnisvegur 9 Glæsihúsið sem Hannes á við
Fjölnisveg í Reykjavík. Hannes keypti líka húsið
við hliðina af nágranna sínum eftir deilur við
hann um stækkun bílskúrs. MYND SIGTRYGGUR ARI
Kátir saman Báðir
eiga þeir Hannes og
Skarphéðinn Berg yfir
höfði sér að eignir þeirra
verði kyrrsettar vegna
grunsemda um að
tekjum hafi verið skotið
undan í rekstri FL Group.
„Hugmyndin er að leggja fram yfir-
lýsingu á fundinum á morgun sem
svarar spurningum Vilhjálms Bjarna-
sonar. Þetta mun gera Vilhjálmi erf-
iðara fyrir að stela senunni á fundin-
um og koma aðalatriðum málsins til
fjölmiðla,“ skrifar Stefán Sigurðsson í
tölvubréfi til nokkurra stjórnenda og
starfsmanna Glitnis 20. febrúar 2008.
„Ég held að við ættum ekki að gefa
Vilhjálmi of mikinn tíma á fundinum
til þess að undirbúa svör við svarinu.
Þannig að mínu mati ætti þetta ekki
að koma við upphaf fundarins,“ skrif-
ar Stefán í öðru bréfi sama dag.
Siðfræðihópur rannsóknarnefnd-
ar Alþingis gerir grein fyrir þessu í 8.
kafla skýrslunnar. Hinn 20. febrúar
2008, á aðalfundi Glitnis, ætlaði Vil-
hjálmur Bjarnason að gera athuga-
semdir við frægan starfslokasamning
sem gerður var við Bjarna Ármanns-
son árið 2007. Vilhjálmur mun hafa
ætlað að gagnrýna kaup Glitnis á
hlutabréfum í Glitni af Bjarna.
Þegar Bjarni Ármannsson lét af
störfum sem forstjóri Glitnis í maí
árið 2007 seldi hann hluti sína í bank-
anum fyrir sjö milljarða króna. Árið
2007 fékk hann 190 milljónir króna
í laun og þar af voru 100 milljónir
króna bónusgreiðsla. Bjarni hagnað-
ist um 381 milljón króna vegna kaup-
réttarsamninga.
Starfslokasamningurinn var
harðlega gagnrýndur. Bjarni ákvað í
kjölfar bankahrunsins að borga hluta
fjármunanna til baka um leið og
hann viðurkenndi að hafa gert mis-
tök í aðdraganda hrunsins.
Vilhjálmur Bjarnason, formaður
Félags fjárfesta, var hluthafi og spari-
fjáreigandi í Glitni. Hann var einn
þeirra fáu er gagnrýndu stjórnunar-
hætti íslenskra bankamanna í góð-
ærinu.
Ekki náðist í Stefán Sigurðsson en
hann er framkvæmdastjóri eigna-
stýringar hjá Íslandsbanka.
helgihrafn@dv.is
Vildu þagga niður í Vilhjálmi
Stjórnendur Glitnis skipulögðu aðalfund til þess að hluthafi fengi ekki athygli:
Óþægilega
gagnrýninn
Stjórnendur Glitnis
vildu ekki að Vil-
hjálmur Bjarnason
„stæli senunni“ á
aðalfundi Glitnis.
Fékk umhverfis-
viðurkenningu
Svandís Svavarsdóttir umhverfis-
ráðherra afhenti Sigrúnu Helga-
dóttur náttúruverndarviðurkenn-
ingu Sigríðar í Brattholti við athöfn
í Þjóðmenningarhúsinu á sunnu-
dag. Sigrún Helgadóttir hefur helg-
að starfskrafta sína umhverfismál-
um, ekki síst við að miðla fræðslu til
barna og ungmenna en einnig hefur
hún lagt mikla áherslu á mikilvægi
þess að auka skilning almennings á
náttúru og umhverfi. Haldið var upp
á dag umhverfisins á sunnudag með
afhendingu viðurkenninga og ýms-
um viðburðum.
Við sama tækifæri fékk prent-
smiðjan Oddi afhentan Kuðunginn,
umhverfisviðurkenningu umhverfis-
ráðuneytisins, og nemendur Hvols-
skóla voru útnefndir varðliðar um-
hverfisins.
Óku á ölvaðir
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
hafði á laugardaginn hendur í hári
fjögurra karlmanna sem voru í bif-
reið sem ekið var á ljósastaur í Hafn-
arfirði. Lögreglan hafði ekki fundið
út á laugardaginn hver fjórmenn-
inganna það var sem ók bílnum en
grunur lék á að þeir hafi allir verið
undir áhrifum áfengis. Auk þess lék
grunur á að þeir hefðu neytt fíkni-
efna. Þeir gistu allir fangageymslur
lögreglunnar.
Fólk eyði
tröllahvönn
Náttúrustofa Vestfjarða hvetur garð-
eigendur til að fjarlægja tröllahvönn,
einnig kölluð bjarnarkló, úr görðum
sínum. Margir láta fegurð hennar
blekkja en hún er í reynd eitruð og
hættuleg. Ef blöð eða stönglar eru
brotnir af henni getur safi hennar
aukið ljósnæmi húðarinnar og vald-
ið þannig miklum brunasárum.
Börnum stafar sérstök hætta af
henni en dæmi eru um að þau hafi
brunnið illa eftir að hafa leikið sér
með tröllahvönn.
Árétting
Í frétt DV um málefni Glitnis,
Tómasar Hermannssonar og
Stapa fjárfestingafélags á föstu-
daginn í síðustu viku kom fram
að fyrirtækjasvið Glitnis hefði
kynnt fjárfestinguna fyrir Tómasi.
Frétt DV mátti skilja sem svo að
að vinur Tómasar, Vilhelm Már
Þorsteinsson, núverandi fram-
kvæmdastjóri fyrirtækjasviðs
Íslandsbanka, hefði einnig verið
yfir fyrirtækjasviðinu um sum-
arið 2008 þegar Tómas fjárfesti
í Stapa. Vilhelm tók hins vegar
ekki við fyrirtækjasviðinu fyrr en
eftir hrunið 2008.