Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2010, Síða 16
16 MÁNUDAGUR 26. apríl 2010 FRÉTTIR
Rannsóknarskýrslur vegna hins
fræga skotbardaga við O.K. Corral
í Tombstone í Arisóna árið 1881
hafa komið í leitirnar eftir að hafa
verið týndar í hálfa öld.
Um er að ræða vitnisburð vitna að
skotbardaganum sem var á milli varða
laganna, þeirra á meðal Wyatt Earp,
og fjögurra útlaga. Þegar byssurnar
hljóðnuðu lágu þrír útlaganna í valn-
um. Skjölin sáust síðast árið 1960
þegar þau voru ljósrituð og standa
vonir til þess að sérfræðingum tak-
ist að gera læsilegar athugasemdir
sem ritaðar hafa verið á spássíur
skjalanna. Ekki er þó talið að skjöl-
in muni varpa nýju ljósi á atburða-
rásina þennan örlagaríka dag.
Skjölin fundust fyrir tilvilj-
un þegar verið var að hreinsa til í
geymslu í dómhúsi Cochise-sýslu í
Bisbee í Arisóna.
26. október árið 1881 stóðu Wyatt
Earp, bræður hans Virgil og Morgan,
og Doc Holliday andspænis útlögun-
um Billy og Ike Clanton og Frank og
Tom McLaury á bak við O.K .Corral
Í hálfrar mínútu skotbardaga voru
McLaury-bræðurnir og Billy Clant-
on felldir og var mikið fjallað um at-
vikið og eftirmál þess í fjölmiðlum
þess tíma. Skotbardaginn varð ein af
þjóðsögum Villta vestursins og Earp-
bræðurnir urðu hetjur fyrir bragðið.
Enn þann dag í dag eru áhöld um
hver skaut fyrsta skotinu og jafnvel
hvort allir útlagarnir voru vopnaðir.
Earp-bræðurnir sögðust hafa verið
að verja hendur sínar en stuðnings-
menn hinna föllnu útlaga sögðu að
um morð hefði verið að ræða.
Í skjölunum er að finna vitnisburð
Williams Claiborn, sem sagnfræðing-
ur segir hafa verið vin þeirra þriggja
sem skotnir voru til bana, og gefið er
í skyn í skjölunum að Doc Holliday
hafi mætt til bardagans með byssu
sem hann faldi undir síðum frakka.
Tombstone fagnar reglulega hlut-
verki bæjarins í sögu Villta vesturs-
ins og laðar að ferðamenn með svið-
setningu á skotbardaganum við O.K.
Corral árið 1881.
Þess má geta að fyrr í þessum
mánuði setti ríkisstjóri Arisóna í lög
ákvæði sem heimilar íbúum fylkisins
að ganga með hulin skotvopn án sér-
staks leyfis.
Skjöl um skotbardagann við O.K. Corral fundust fyrir tilviljun:
Skýrslur týndar í hálfa öld
Skotbardaginn sviðsettur Skotbardaginn við O.K. Corral er ein þekktasta
þjóðsaga Villta vestursins.
„Haggis“ er
hálendisdýr
Einn af hverjum fimm Bretum held-
ur að skoskt slátur, „haggis“, sé dýr
sem lifir í skosku Hálöndunum,
samkvæmt niðurstöðum könnunar
sem gerð var nýlega.
Könnunin var gerð á vegum
skyndibitaþjónustunnar Just-Eat.
co.uk og töldu átján prósent að-
spurðra að „haggis“ væri hálend-
isdýr og fimmtán prósent héldu að
um væri að ræða skoskt hljóðfæri.
Fjögur prósent héldu að „haggis“
væri persóna úr Harry Potter-sög-
unum.
Alls voru 1.623 spurðir og þar af
var 781 Skoti, og vissu fjórtán pró-
sent Skotanna ekki hvað „haggis“ er.
Einu skrefi nær
framsali
Bandarískur dómstóll hefur hafnað
beiðni leikstjórans Romans Polanski
um að vera dæmdur fjarverandi.
Polanski hefur dvalið í Sviss síðan
hann var handtekinn þar fyrir að
hafa haft samræði við þrettán ára
stúlku í Bandaríkjunum árið 1977.
Því virðist nú lítið geta komið í
veg fyrir að Roman Polanski verði
framseldur til Bandaríkjanna, en
svissnesk yfirvöld segjast þó ekki
muni taka ákvörðun þar að lútandi
fyrr en niðurstöður í mögulegum
áfrýjunum af hálfu Polanskis liggja
fyrir.
Roman Polanski hefur verið í
stofufangelsi í Sviss síðan hann var
handtekinn þar í september.
Mugabe styður
Írana
Robert Mugabe, forseti Simbabve,
hefur lýst yfir stuðningi við kjarn-
orkubrölt Írana og segir það „réttlæt-
anlegt“, en Mahmoud Ahmadinejad,
forseti Írans er staddur í Simbebve
nú um stundir.
Sagði Mugabe að bæði löndin
hefðu verið „óverðskuldað lítillækk-
uð og refsað af Vesturlöndum“.
Mahmoud Ahmadinejad opnaði
viðskiptasýningu í Bukawayo, næst-
stærstu borg Simbabve, og sagði
Morgan Tsvangirai, forsætisráðherra
landsins, að það væri „eins og að fá
moskítóflugu til að lækna malaríu“.
Tsvangirai sendi engan úr sínum
flokki til að taka á móti Ahmadin-
ejad þegar hann kom til landsins og
má teljast nokkuð ljóst að Íransfor-
seti sé ekki hátt skrifaður hjá hon-
um.
SMOKKAR OG SAMSÖNGUR
Skjal úr utanríkisráðuneyti Bretlands
sem inniheldur fjölda hugmynda
sem varða heimsókn Benedikts
XVI páfa til landsins hefur
komið utanríkisráðuneytinu
í vandræði. Hugmyndunum
sem um ræðir var varpað
fram í hálfkæringi og
ekki ætlað að koma
fyrir almenn-
ingsaugu.
Utanríkisráðuneyti Bretlands hefur
beðist afsökunar á „heimskulegu“ skjali
þar sem stungið er upp á því að þeg-
ar Benedikt XVI páfi kæmi til landsins
væri hægt að hefja markaðssetningu á
„Benedikt“-smokkum.
Í skjalinu er að finna hugmyndir að
ýmsu sem hægt væri að bjóða páfa að
sjá og gera á meðan heimsókn hans
stendur yfir, en hann er væntanlegur í
september. Á meðal þess sem stungið
er upp á er að páfa verið boðið að opna
fóstureyðingastofu og leggja blessun
sína yfir hjónaband samkynhneigðra.
Í yfirlýsingu utanríkisráðuneytisins
segir að skjalið sé afurð hugmynda-
umræðu um hvað væri hægt að gera á
meðan heimsókn páfa stendur og að
það endurspeglaði í engu sjónarmið
ráðuneytisins.
Hneykslanlegir mannasiðir
Malcolm Patrick McMahon, biskup í
Nottingham, var ómyrkur í máli vegna
uppákomunnar og sagði að um væri að
ræða „hneykslanlega mannasiði“.
„Ég tel það vera afar slæmt þegar
við bjóðum einhverjum til lands okk-
ar - einhvers á borð við páfann - og svo
fær hann svona meðferð,“ sagði McMa-
hon og bætti við að hann teldi fyrst
og fremst um að ræða hneykslanlega
mannasiði.
McMahon taldi þó ólíklegt að kaþól-
ikkar tækju innihald skjalsins nærri sér
því þeir væru „vanir slæmri fjölmiðla-
umfjöllun“.
Starfsmaðurinn sem bar ábyrgð á
skjalinu hefur verið settur í önnur störf
samkvæmt upplýsingum frá utanríkis-
ráðuneytinu, en smáatriði úr skjalinu
urðu opinber eftir að það komst í hend-
ur starfsmanna á Sunday Telegraph.
Sendiherra Bretlands í Páfagarði átti
fund með háttsettum embættismönn-
um Páfagarðs til að lýsa hryggð bresku
ríkisstjórnarinnar vegna málsins.
Samsöngur með
Englandsdrottningu
Í skjalinu er einnig stungið upp á því
að Benedikt páfi sýni í verki harða af-
stöðu sína í málum sem varða barna-
níð innan vébanda kirkjunnar með
því að „reka óheiðarlega biskupa“ og
KOLBEINN ÞORSTEINSSON
blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is
Margar hugmynd-ir í skjalinu eru
augljóslega vanhugsaðar,
næfar og virðingarlausar.