Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2010, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 26. apríl 2010 MÁNUDAGUR 17
Þúsundir gengu um götur víða
á Spáni á laugardaginn til að
mótmæla friðhelgi vegna borg-
arastyrjaldarinnar á Spáni og
ákærum á hendur dómaranum
Baltasar Garzon sem rannsakað
hefur dauða fólks í valdatíð ein-
ræðisherrans Franciscos Franco á
árunum 1939 til 1975.
Stuðningsmenn Garzons segja
að ákærur á hendur honum séu
árás á réttarfarslegt sjálfstæði,
en öfga hægriflokkar hafa sakað
Garzon um að hafa misnotað vald
sitt með því að reyna að ýta úr vör
fyrstu skilmerkilegu rannsókninni
á borgarastyrjöldinni 1936 til 1939.
Baltasar Garzon vakti heims-
athygli árið 1998 þegar hann gaf
út alþjóðlega handtökuheim-
ild á hendur Augusto Pinochet,
fyrrverandi einræðisherra Chile,
vegna meintra pyntinga og drápa
á spánskum ríkisborgurum.
Stuðningsmenn Baltasars
Garzon segja að enn sé að finna
í landinu opið sár sem þurfi að
græða, og mótmælagöngur voru
skipulagðar í tuttugu spánskum
borgum á laugardaginn, og einn-
ig við sendiráð Spánar í Lundún-
um, Dyflinni, Brussel, Lissabon,
París, Mexíkó og Buenos Aires.
Í Madríd tóku mannréttinda-
sinnar, leikarar og fjölskyldumeð-
limir fórnarlamba einræðisstjórn-
ar Francos þátt í göngunni.
Skammt frá létu falangistar
að sér kveða. Þeir voru um þrjú
hundruð talsins og héldu á borða
sem á stóð „Stoltir af sögu okk-
ar“, en þeir voru stuðningsmenn
Franc os í borgarastyrjöldinni.
Baltasar Garzon hefur áfrýjað
ákæruatriðunum á þeim grund-
velli að Luciano Varela, dómari við
hæstarétt, hafi aðstoðað óvildar-
menn Garzons með ákærurnar. Ef
Garzon verður sakfelldur á hann
yfir höfði sér tíu ára fangelsisvist
auk banns við frekari dómarastörf-
um.
Á brattann að sækja hjá þekktum spánskum dómara:
Sakaður um misnotkun valds
Baltasar Garzon dómari Hann er í miklum metum hjá mannréttindasinnum.
MYND AFP
Vill svelta þá sem
ekki þiggja störf
Digby Jones, lávarður og fyrrverandi
viðskiptaráðherra Bretlands, telur að
það eigi að svelta atvinnulaust fólk,
sem ekki þiggur það starf sem því
býðst, þannig að það neyðist til að fá
sér vinnu í stað þess að þiggja þús-
undir punda í bætur.
Ummælin lét Jones falla í sjón-
varpsþætti á BBC um ungt atvinnu-
laust fólk þar sem hann spjallaði við
tvo karlmenn. Annar þeirra sagði
að hann og kærasta hans fengju um
12.000 pund árlega, sem ættu að nýt-
ast til atvinnuleitar og sem húsnæð-
isbætur, og því sæju þau enga ástæðu
til að fá sér vinnu.
„Ef ég væri að horfa á þennan þátt
myndi ég kasta einhverju í sjónvarps-
tækið og segja „Hlunkist af rassgat-
inu og farið að vinna“, og við ættum
að fella niður allar bætur til ykkar
og svelta ykkur þar til þið færuð að
vinna,“ sagði Digby Jones.
Ófrjósemisaðgerðir
án samþykkis
Mannréttindasamtök telja að tug-
þúsundir ungra kvenna í Úsbekistan
hafi verið gerðar ófrjóar án þeirra
samþykkis og að það hafi verið gert
að skipan Islams Karimov, forseta
landsins, sem hefur ríkt með harðri
hendi í landinu síðastliðin tuttugu
ár. Tilgangurinn er sagður vera að
halda niðri fjölda fátækra í landinu.
Mannréttindasinnar segja að að
fjöldaófrjósemisaðgerðir hafi hafist
árið 2003, en fallið niður tveimur
árum síðar vegna mikilla mótmæla.
Sagt er að aðgerðirnar hafi verið
teknar upp að nýju í febrúar þegar
læknum var skipað að mæla með
ófrjósemisaðgerð sem „áhrifaríkri
getnaðarvörn“.
Fullyrt er að læknum hafi verið
gert að telja „að minnsta kosti tvær
konur“ í mánuði á að fara í ófrjó-
semisaðgerð. Læknum sem ekki
tókst slíkt var refsað og þeir sektaðir.
SMOKKAR OG SAMSÖNGUR
skjalinu hefur verið settur í önnur störf
samkvæmt upplýsingum frá utanríkis-
ráðuneytinu, en smáatriði úr skjalinu
urðu opinber eftir að það komst í hend-
ur starfsmanna á Sunday Telegraph.
Sendiherra Bretlands í Páfagarði átti
fund með háttsettum embættismönn-
um Páfagarðs til að lýsa hryggð bresku
ríkisstjórnarinnar vegna málsins.
Samsöngur með
Englandsdrottningu
Í skjalinu er einnig stungið upp á því
að Benedikt páfi sýni í verki harða af-
stöðu sína í málum sem varða barna-
níð innan vébanda kirkjunnar með
því að „reka óheiðarlega biskupa“ og
koma á laggirnar hjálparlínu fyrir mis-
notuð börn.
Tillaga var gerð að því að páfi
bæðist afsökunar á Spanish Armada,
spánska flotanum sem sigldi gegn
Englendingum árið 1588 í þeim til-
gangi að steypa Elísabetu I Englands-
drottningu af stóli, eða syngja með
Elísabetu Englandsdrottningu í góð-
gerðarskyni.
Talsmaður utanríkisráðuneytisins
sagði að þar á bæ væru menn „afar
leiðir“ vegna plaggsins. „Margar
hugmyndir í skjalinu eru augljóslega
vanhugsaðar, næfar og virðingar-
lausar,“ sagði talsmaður ráðuneytis-
ins.
Með opinn
faðminn Stungið
var upp á samsöng
Benedikts páfa og
Englandsdrottningar.
MYND AFP
Íbúar jarðar ættu að fara varlega í þeirri viðleitni að ná sam-
bandi við geimverur að mati breska eðlisfræðingsins Step-
hen Hawking. Að hans mati er skynsamlegra að reyna að
forðast samband við þær.
Eðlisfræðingurinn Stephen Haw-
king velkist ekki í vafa um til-
vist geimvera. En að hans mati
ættu jarðarbúar að forðast eftir
fremsta megni að ná sambandi
við þær.
Þessi skoðun Hawkings kom
fram í nýrri heimildarþáttaröð á
sjónvarpsstöðinni Discovery, en
í henni setur Hawking fram síð-
ustu vangaveltur sínar um helstu
leyndarmál alheimsins.
Líf fyrirfinnst að mati Haw-
kings nánast örugglega í mörg-
um öðrum hlutum alheimsins og
sagði hann að það væri „fullkom-
lega rökrétt“ að draga þá álykt-
un. Rök Hawkings hvað varðar
geimverur eru, hvað hann varð-
ar, sáraeinföld. Hann bendir á
að 100 milljarða sólkerfa sé að
finna í alheiminum, sem hvert
um sig samanstandi af hundruð-
um milljóna stjarna og í svo miklu
rými sé fráleitt að ætla að Jörðin
sé eina plánetan þar sem líf hafi
þróast.
Einföld dýr
„Í mínum stærðfræðiheila gerir
fjöldinn það að verkum að hug-
myndin um geimverur er fullkom-
lega rökrétt. Raunverulega áskor-
unin felst í því að komast að því
hvernig þær raunverulega eru,“
sagði Hawking.
Hawking telur að stærstur hluti
geimvera sé svipaður örverum eða
einföldum dýrum, í líkingu við
þau sem ráðið hafa ríkjum á Jörð-
inni stærsta hluta sögu hennar.
Hann telur ekki fráleitt að ætla
að geimverur myndu einfaldlega
þurrka Jörðina af öllum hennar
náttúruauðlindum og færa sig síð-
an um set. „Við þurfum bara að líta
til sjálfra okkar til að sjá hvernig
viti borið líf kynni að þróast í eitt-
hvað sem við vildum ekki standa
frammi fyrir. Ég ímynda mér að
þær þrífist í stórum skipum eftir
að hafa klárað allar auðlindir á eig-
in plánetu. Þróaðar geimverur af
því tagi myndu hugsanlega verða
flakkarar sem vildu sigra og ný-
lendugera hverja þá plánetu sem
yrði á vegi þeirra,“ sagði Hawking.
Svolítið áhættusamt
Á liðnum tíma hafa verið send út í
geim könnunarför með myndum
af manninum um borð og teikn-
ingum sem sýna staðsetningu
Jarðarinnar. Útvarpsbylgjur hafa
verið sendar út í geim í von um
að ná tengslum við eitthvað sið-
menntað samfélag geimvera.
Stephen Hawking kemst að
þeirri niðurstöðu að það sé „svo-
lítið áhættusamt“ að reyna að
koma á tengslum við geimverur.
„Ef geimverur heimsækja okkur
einhvern tímann held ég að nið-
urstaðan yrði í líkingu við afleið-
ingarnar af því þegar Kristófer
Kólumbus kom fyrst til Ameríku,
en það kom ekki vel út fyrir frum-
byggja Ameríku,“ sagði Stephen
Hawking.
BER AÐ VARAST
GEIMVERURNAR
KOLBEINN ÞORSTEINSSON
blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is
Þróaðar geim-verur af því tagi
myndu hugsanlega
verða flakkarar sem
vildu sigra og nýlendu-
gera hverja þá plánetu
sem yrði á vegi þeirra.
Stephen Hawking
Segir rökrétt að
viðurkenna tilvist
geimvera.
Nautabani
stangaður illa
Einn frægasti nautabani Spánar, Jose
Tomas, var stangaður alvarlega í
nautaati í Mexíkó um helgina. Tom-
as fékk tíu sentimetra skurð í nárann
og slagæð rifnaði þegar hann var
stangaður af nauti í nautaati í Agu-
ascalientes.
Jose blæddi svo heiftarlega að
auglýst var eftir blóðgjöfum á staðn-
um, en Jose Tomas er í tiltölulega
sjaldgæfum blóðflokki, A+.
Síðan var farið með Tomas á
sjúkrahús, en þá hafði hann misst
nokkra lítra blóðs.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem
Tomes er stangaður af nauti. Hann
var til dæmis stangaður tvisvar sinn-
um í einum og sama bardaganum í
júní árið 2008.