Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2010, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2010, Blaðsíða 18
BINDISSKYLDA ÓLA BJÖRNS n Varamaður Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, fyrrverandi varafor- manns Sjálfstæðisflokksins, sá um- deildi varaþing- maður Óli Björn Kárason, hefur nú tekið sæti á Alþingi. Ýmsar reglur eru í gildi á þingi og í ein- stökum flokkum sem nýir þing- menn þurfa að undirgangast. Þess á meðal er sú kvöð að ganga með bindi. Þessi regla mun vera heilög innan Sjálfstæðisflokks- ins þótt einstakir þingmenn annarra flokka hafi gert uppreisn. Hermt er að Óli Björn hafi verið hugsi yfir þessari reglu enda hefur hann verið meira fyrir rúllu kraga en virðulegra háls- tau. Hann lét þó segjast og gengur nú um þing-sali með bindi. Þetta þykja vera tíðindi innan fjölskyldu hans og vinahóps. SKJALDBORG UM STYRKÞEGA n Steinunn Valdís Óskarsdóttir, al- þingismaður og styrkjadrottning, hefur mátt þola það í fjórgang að hópur fólks safnist saman framan við heimili hennar og krefjist afsagn- ar. Steinunn þáði ríflega styrki í aðdraganda prófkjara sinna en átti þó ekki Íslandsmet. Þótt margir telji sjálf- sagt að mótmælt sé framan við heimili fólks eru aðrir sem fordæma það sem þeir kalla aðför að friðhelgi þolend- anna. Umsátrið um Steinunni Valdísi mun hafa haft vakið samúðarbylgju með henni innan Samfylkingar þar sem samherjar hennar hafa slegið upp skjaldborg um þingmanninn. BLEKKINGAR ÞORSTEINS MÁS n Davíð Oddsson, ritstjóri Morg- unblaðsins, er harðorður varðandi æðstu stjórnendur Glitnis í andmæla- bréfi sínu til Sannleiksnefndarinnar. Segir Davíð að æðstu menn bank- ans hafi í aðdraganda hrunsins reynt að fá að láni stærstan hluta íslenska gjaldeyrisforðans gegn haldlausum veðum. Þarna vísar Davíð klárlega til stjórnarformannsins, Þorsteins Más Baldvinssonar, forstjóra Sam- herja, sem nú er einn af aðaleigend- um Moggans. Þorsteinn Már er þarna sakaður um að setja upp leikrit blekk- ingar til að bjarga bankanum. TRAUST Á VANRÆKSLUMANNI n Sannleiksskýrslan felur í sér áfell- isdóm yfir Davíð Oddssyni, fyrrver- andi seðlabankastjóra, sem að mati rannsóknarnefndarinnar er uppvís að vanrækslu. Þá má öllum vera ljóst af lestri skýrslunnar að Davíð sleppur af tæknilegum ástæðum þar sem hann stjórnaði án umboðs. Þessi niðurstaða breytir engu um traust stjórnar Árvak- urs til vanrækslumannsins sem situr áfram á ritstjóra- stóli í skjóli Þorsteins Más Baldvinssonar og Guð- bjargar Matthíasdóttur, athafnakonu í Vest- mannaeyjum. Íslenskir fjölmiðlar hafa verið hálfstjórnlausir allar götur frá því einstaklingar sátu við að krota fréttir og hugleiðingar á kálfsskinn. En nú hefur endurreisn- arstjórnin ákveðið að koma böndum á fjórða valdið. Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra er skörung- ur sem veit hverslu mikilvægt er að fjölmiðlum sé stjórnað af festu og ákveðni. Hún hefur því lagt fram frumvarp um Fjölmiðlastofu sem á að vera eins konar fjölmiðlaráð. Starfs- menn stofunnar munu fá það vald að fara inn á ritstjórnir og sækja þar gögn einstakra blaðamanna þegar grun- semdir eru um að ekki hafi allir notið sannmælis í umfjöllun viðkomandi fjölmiðils. Og í framhaldinu eiga víga-menn Katr-ínar að ákveða með hvaða hætti við- kom- andi fjölmiðill heldur áfram umfjöllun sinni. Ef þeim sýnist sem svo að ein- hver eigi rétt á leiðréttingu mun hún fara fram eftir skýrum leiðbeining- um. Þannig gæti Mogginn þurft að birta sem aðalgrein á forsíðu að út- gerðarmenn væru beðnir afsökunar. Og fréttastofa Stöðvar 2 gæti fengið fyrirskipun frá ríkinu um að fyrsta frétt kvöldsins ætti að vera afsökun- arbeiðni til Jóns Ásgeirs Jóhannes- sonar sem borinn var röngum sökum kvöldið áður. Þetta yrði auðvitað stór- kostleg framför. Nú gætu fjölmiðlar ekki ráðskast með það sjálfir hvar og hvernig fréttir eru settar fram. Ein- hver kynni að tala um forræðishyggju en það er nokkuð langsótt. Þarna er einungis verið að koma skynsamleg- um böndum á fjórða valdið. Alþingi Íslendinga gæti í framtíðinni lagt hverri ritstjórn til einn starfsmann sem hefði óheftan aðgang að öllum upplýsingum blaðamanna og gæfi skýrslu beint til þingsins. Í frumvarpi Katr-ínar mennta-málaráðherra er önnur áhugaverð nýjung. Þar er gert ráð fyrir því að ríkið geti lokað á erlend- ar sjónvarpsstöðv- ar sem bjóða upp á siðferðilega rangt efni. Sem dæmi má nefna þætt- ina um Simp- son-fjölskylduna þar sem ótrúleg grimmd birtist íslenskum börnum. Þetta verður að stöðva sem allra fyrst svo Íslendingar skaðist ekki. Siðvæðing í krafti fjölmiðla-banns á sér fyrirmynd í Kína þar sem ríkið bannar Google vegna þess að margt misjafnt kemur upp úr leitinni þar. Þá er einn- ig fordæmi um það sama frá einstök- um arabaríkjum þar sem tiltekin er- lend tímarit eru bönnuð. Sú þjónusta er veitt við landamæri þeirra ríkja að verðir fara í gegnum tímarit og blöð ferðamanna og klippa úr þeim það sem telst vera ósiðlegt. Framtak menntamálaráðherra er öldungis frábært. Þegar ráðherrann hefur slökkt á Cartoon Network og Sky er hægt að setja upp landamæraeft- irlit Fjölmiðlastofu. Þá er hægt að fara yfir tímarit, DVD, geisladiska og bækur sem ferðamenn hafa í fórum sínum. Bannað er á Íslandi að auglýsa áfengi í fjölmiðlum. Í fjölda erlendra tímarita er að finna brennivínsauglýsingar. Þetta verður að klippa úr blöðunum áður en þau koma til Íslands. Síðan kann að vera nauðsynlegt að banna Google, rétt eins og Kínverjar gera. Það er frábært að ríkið skuli loksins hafa kveikt á nauðsyn þess að stjórna fjölmiðlum. Og þetta er einmitt það sem vantar á Íslandi. Algjöra þöggun í boði rík- isins. RÍKIÐ BANNAR SJÓNVARP „Kannski ekki næsta Hollywood en við eigum hér frábært kvikmynda- gerðarfólk sem hefur alla burði til að koma okkur á kortið,“ segir Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingar- innar í Reykjavík. Samfylkingin vill kanna möguleika á eflingu alþjóðlegr- ar kvikmyndahátíðar og mögulegri úthlutun lóðar fyrir kvikmyndaver í Reykjavík. ER REYKJAVÍK NÆSTA HOLLYWOOD? „Ég er sjötíu prósent öryrki eftir þetta.“ n Ásdís Rán um það þegar hún hljóp út á götu til að ná strætó og varð fyrir bíl á 80 kílómetra hraða. Hún hefur alla tíð glímt við mikil meiðsli síðan en hún var 15 ára. - Nýtt líf. „Lónið er ennþá blátt.“ n Kynningarstjóri Bláa lónsins, Magnea Guðmundsdóttir, þegar blaðamaður Extrablaðsins spurði hana hvort að Bláa lónið væri orðið grátt sökum öskufalls. - Extrablaðið. „Nei. Hef betra við tímann að gera.“ n Maggi mix, einn vinsælasti skemmtikraftur landsins um þessar mundir, aðspurður hvort hann hafi tekið þátt í skipulögðum mótmælum. - DV. „Ég er ekki þeirrar skoðunar.“ n Ólafur Ragnar Grímsson um þær skoðanir að helst megi ekki ræða Kötlugos við útlendinga af ótta við að styggja þá. Hann segir Kötlugos eitthvað sem allir þurfi að undirbúa sig undir, ekki bara Íslendingar. - DV. „...var sagður ljúga og var refsað harkalega fyrir.“ n Fórnarlamb misnotkunar sem reyndi að segja frá því sem barn er var refsað fyrir. DV hefur undanfarið fjallað um karlmenn sem hafa orðið fyrir misnotkun. - DV. „Ástríða mín er í bókaút- gáfunni. Ég vona að þetta eyðileggi ekki fyrir mér þar“ n Tómas Hermannsson, bókaútgefandi og fjárfestir, þegar hann var spurður af hverju hann tók yfir 17 milljarða fjárfestingu rétt fyrir hrunið 2008 - DV. Dómarar Davíðs Héraðsdómur Reykjavíkur hef-ur nú staðfest að spilling og van-ræksla hafi átt sér stað við skipan dómara. Árni Mathiesen, sem þá var fjármálaráðherra og settur dómsmála- ráðherra, skipaði Þorstein Davíðsson sem héraðsdómara á Norðausturlandi. Sigrún Guðmundsdóttir dómari kemst að þeirri skýru niðurstöðu að með veitingu embættis- ins til einstaklings sem var metinn hvað lak- asti kosturinn úr hópi umsækjenda hafi ver- ið brotið gegn umsækjanda sem talinn var vera miklu hæfari til þess að vera dómari. Þessi niðurstaða kemur í kjölfar álits um- boðsmanns Alþingis sem fordæmdi skipun- ina á sínum tíma. Árni Mathiesen var líklega handbendi annarra við þessa skipan. Björn Bjarnaon, þáverandi dómsmálaráðherra, vék sæti þar sem Þorsteinn hafði verið að- stoðarmaður hans. Það tók hinn setta ráð- herra aðeins skamman tíma án yfirlegu að ákveða að skipa þann úr hópi umsækjenda sem hafði hvað minnsta hæfni. Klárlega naut umsækjandinn þess að vera sonur fyrr- verandi forsætisráðherra og að hafa komið undan handarjaðri dómsmálaráðherra. Þetta er ekki eina dæmið um þá spilling- armóðu sem umlykur skipan dómara. Áður hafði frændi Davíðs Oddssonar, Ólafur Börk- ur Þorvaldsson, verið skipaður í Hæstarétt af Birni Bjarnasyni. Seinna var vinur og spila- félagi Davíðs, Jón Steinar Gunnlaugsson, skipaður í Hæstarétt. Báðir höfðu verið lágt metnir af hæfisnefnd í samanburði við aðra umsækjendur. Þetta eru örfáir þeirra sem skilgreinast sem dómarar Davíðs. Pólitísk spilling af versta tagi hefur ráðið för. Það er verkefni nýrra valdhafa að hreinsa út óvær- una og tryggja að dómstólarnir séu hlutlaus- ir og dómarar hafnir yfir vafa. Ragna Árna- dóttir dómsmálráðherra hefur áttað sig á spillingunni og lagt til að skipun dómara komi til kasta Alþingis. Það er jákvætt skref í rétta átt. En það má ekki gleymast að minni- pokamennirnir sitja ennþá sem dómarar. Þetta er hluti af gamla spillta Íslandi. Nú er spurt hvort dómurinn yfir Árna Mathiesen verði til gagns eða ekki. Getur það verið að íslenska ríkið greiði rúmar þrjár milljónir í bætur fyrir ráðherrann fyrrverandi og þar við sitji? Kannski er þó von um siðvæðingu dómstólanna. Sigrún dómari hefur sett ný viðmið. REYNIR TRAUSTASON RITSTJÓRI SKRIFAR: Pólitísk spilling af versta tagi hefur ráðið för. 18 MÁNUDAGUR 26. apríl 2010 UMRÆÐA SANDKORN LYNGHÁLS 5, 110 REYKJAVÍK ÚTGÁFUFÉLAG: DV ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Lilja Skaftadóttir FRAMKVÆMDASTJÓRI: Bogi Örn Emilsson RITSTJÓRAR: Jón Trausti Reynisson, jontrausti@dv.is og Reynir Traustason, rt@dv.is FRÉTTASTJÓRI: Ingi Freyr Vilhjálmsson, ingi@dv.is DV Á NETINU: DV.IS AÐALNÚMER: 512 7000, RITSTJÓRN: 512 7010, ÁSKRIFTARSÍMI: 512 7080, AUGLÝSINGAR: 512 7050. SMÁAUGLÝSINGAR: 515 5550. Umbrot: DV. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. LEIÐARI SPURNINGIN SVARTHÖFÐI BÓKSTAFLEGA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.