Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.2010, Page 10
10 miðvikudagur 9. júní 2010 fréttir
Besti flokkurinn lærir að stjórna borginni:
Leyninámskeið Besta flokksins
Jón Gnarr, verðandi borgarstjóri,
var ekki á meðal þeirra borgarfull-
trúa sem sátu námskeið um stjórn
Reykjavíkurborgar á þriðjudag. Allir
nýir borgarfulltrúar og varaborgar-
fulltrúar voru boðaðir á þriggja tíma
námskeið skömmu eftir hádegið.
Á námskeiðinu áttu þessir nýju
fulltrúar Reykvíkinga að læra hvernig
stjórnsýslu í borginni er háttað. All-
ir borgarfulltrúar Besta flokksins, að
Jóni undanskildum, og fyrsti vara-
borgarfulltrúinn mættu á námskeið-
ið. Flestir nýju borgarfulltrúarnir
virtust spenntir og göntuðust sumir
með það að það tæki einungis þrjá
klukkutíma að læra að stjórna Reykja-
vík. Auk fulltrúa Besta flokksins voru
mættir þeir Hjálmar Sveinsson og
Geir Sveinsson fyrstu varaborgarfull-
trúar Samfylkingar og Sjálfstæðis-
flokks. Var að heyra á borgarfulltrú-
um nýju meirihlutaflokkanna að allir
væru sammála um að meirihlutavið-
ræðurnar á milli Samfylkingarinnar
og Besta flokksins gengju vel. Nám-
skeiðið var haldið í fundarherbergi
borgarráðs á þriðjudag og stóð frá
klukkan eitt til fjögur. Vænta má þess
að nýju fulltrúarnir hafi lært sitthvað
nýtt á námskeiðinu þar sem flest-
ir þeirra koma úr allt öðrum áttum
en opinberri stjórnsýslu. Eins og DV
hefur greint frá hafa engir borgarfull-
trúar Besta flokksins áður tekið þátt í
pólitík og því spurning hvort þriggja
tíma námskeið um stjórn Reykjavík-
urborgar hafi dugað.
adalsteinn@dv.is
Nýir borgarfulltrúar Fulltrúar Besta flokksins auk
varaborgarfulltrúa frá Samfylkingu og Sjálfstæðisflokki
sátu námskeið um stjórnsýslu í borginni.
Fleiri en hundrað umsóknir bár-
ust embætti sérstaks saksóknara um
störf sem voru auglýst þar í lok síðasta
mánaðar. Umsóknarfrestur um störf-
in rann út á mánudag. „Það fer vel á
því að setja saman hæfileikaríkt fólk
í þessar rannsóknir,“ segir Ólafur Þór
Hauksson, sérstakur saksóknari.
Embættið auglýsti meðal annars
eftir lögfræðingum, lögreglumönn-
um, viðskiptafræðingum eða verk-
fræðingum með reynslu úr heimi
fjármálanna, sérfræðingum á sviði
upplýsingatækni og háskólamennt-
uðum einstaklingum með fagreynslu
sem nýttist embættinu. Þá var einnig
auglýst eftir skrifstofufólki.
Farið yfir bakgrunn umsækjenda
Ólafur Þór útilokar ekki að fólk sem
hafi einhverja starfsreynslu úr föllnu
bönkunum verði ráðið til starfa hjá
embættinu. „Við förum yfir ýmislegt í
samtalinu þegar við erum að ráða fólk,
bakgrunn þess og fleira. Við þurfum
að gæta að því að þeir aðilar sem við
erum að ráða séu með þannig starfs-
fortíð að þeir geti komið að þessum
rannsóknum. Að hluta til er æskilegt
að það liggi fyrir þekking innan emb-
ættisins á starfsháttum bankanna og
vinnubrögðum þar. Þetta verður að
meta í hverju tilviki fyrir sig,“ segir Ól-
afur.
Í haust er gert ráð fyrir því að um
áttatíu starfsmenn verði að störfum
hjá embættinu. Upphaflega störf-
uðu þar fjórir en nú eru þeir þrjátíu
og fimm talsins. Embættið mun lík-
lega flytja sig um set á næstunni í hús-
næði sem nær utan um þennan fjölda
starfsmanna. Talið er að um nítján
hundruð fermetra húsnæði þurfi und-
ir starfsemina.
Fjölgun hjá Fjármálaeftirliti
Þá er stefnt að því að starfsmenn
rannsóknarhóps Fjármálaeftirlitsins
á málefnum tengdum bankahruninu
verði sautján með haustinu. Þeir eru
nú fimm. Þar með munu um hundrað
manns starfa hjá Fjármálaeftirlitinu.
Fjármálaeftirlitið auglýsti eftir
fólki til starfa nú um helgina. Gert er
ráð fyrir því að rannsóknarhópurinn
muni fullskipaður samanstanda af tíu
einstaklingum með viðskipta-, hag-
fræði-, eða verkfræðimenntun, fjór-
um lögfræðingum, tveimur til þremur
í tölulegri greiningu og einum aðstoð-
armanni. Þar er bæði auglýst eftir fólki
með mikla reynslu og minni.
Kallaður í viðtal
Sá hópur sem metinn er hæfastur út
frá starfsferilskrám fer í skriflegt verk-
efni auk viðtals hjá Fjármálaeftirlit-
inu. Í viðtalinu er meðal annars spurt
út í fyrri störf og reynslu umsækjenda.
Samkvæmt upplýsingum frá Fjár-
málaeftirlitinu verður farið vandlega
yfir reynslu og metið hvort hún geti
á einhvern hátt hamlað viðkomandi
í starfi. Þá verður leitað umsagna um
umsækjandann. Hjá Fjármálaeftirlit-
inu er því ekkert heldur sem hindr-
ar það að starfsfólk gömlu bankanna
verði ráðið til starfa.
Fleiri en hundrað umsóknir bárust sérstökum saksóknara nú í
byrjun þessa mánaðar. Til stendur að fjölga starfsmönnum emb-
ættisins um helming. Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksókn-
ari, útilokar ekki að fólk með reynslu úr föllnu bönkunum verði
ráðið til starfa. Fjármálaeftirlitið gerir slíkt ekki heldur.
RÓbeRt HlyNuR balduRssoN
blaðamaður skrifar: rhb@dv.is
Að hluta til er æskilegt að það
liggi fyrir þekking innan
embættisins á starfs-
háttum bankanna og
vinnubrögðum þar.
Fjármálaeftirlitið Auglýsti eftir
starfsfólki nú um helgina. Aflað verður
umsagna um umsækjendur.
Ólafur Þór Hauksson
Þarf að fjölga starfsmönn-
um sínum um fjörutíu
með haustinu. Þar sækist
hann eftir margvíslegri
reynslu umsækjenda.
Útiloka ekki að
ráða hrunfólk
forseti heimsækir
Ísland
Forseti Eistlands Toomas Hendrik
Ilves og eiginkona hans verða í
opinberri heimsókn á Íslandi á
fimmtudag og föstudag. Þau koma
til landsins á miðvikudag og hefst
heimsóknin með hátíðlegri athöfn
á Bessastöðum á fimmtudag. Í kjöl-
farið fylgir viðræðufundur forseta
landanna en síðan munu þeir ræða
við blaðamenn. Frá Bessastöðum
heldur forseti Eistlands til Höfða þar
sem Hanna Birna Kristjánsdóttir
borgarstjóri tekur á móti eistnesku
gestunum. Þá mun forseti Eistlands
heimsækja Alþingi þar sem Ásta
Ragnheiður Jóhannesdóttir mun
eiga með honum fund.
Dómurum
fjölgað
Tillögur um fjölgun dómara
verða lagðar fram í haust, að sögn
Rögnu Árnadóttur dómsmálaráð-
herra, en þær munu væntanlega
fela í sér að hæstaréttardómur-
um fjölgi um þrjá. Í skýrslu slita-
stjórnar Kaupþings til kröfuhafa
bankans kom fram að um þúsund
mál til viðbótar ættu eftir að koma
til kasta dómstóla vegna föllnu
bankanna. Í fréttum RÚV á þriðju-
dag sagði Ragna að nýlega hefði
dómurum við Héraðsdóm Reykja-
víkur verið fjölgað um fimm og að
farið yrði yfir stöðuna á næstunni
með Hæstarétti og dómstólaráði.
Nýir dómarar taka þá væntanlega
til starfa á næsta ári.
lÍÚ fordæmir
vinnubrögð Jóns
Stjórn Landssambands íslenskra
útvegsmanna fordæmir þau vinnu-
brögð sem Jón Bjarnason, sjávar-
útvegs- og landbúnaðarráðherra,
viðhafði í aðdraganda og við útgáfu
nýlegrar reglugerðar um takmark-
anir á dragnótaveiðum. Reglugerðin
gildir til fimm ára frá og með 1. sept-
ember næstkomandi og tekur til sjö
fjarða. Í tilkynningu sem LÍÚ sendi
frá sér kemur fram að engin vísinda-
leg rök hafi legið að baki reglugerð-
inni og ekki hafi verið tekið tillit til
athugasemda dragnótarmanna og
annarra hagsmunaaðila sem lögðust
gegn hugmyndunum.
Fara fram hjá
kjararáði
Landsbankinn hefur stofnað sér-
stakt félag utan um dótturfélög sín
og kemst þannig fram hjá því að
hlýta úrskurðum kjararáðs. Þetta
kom fram í kvöldfréttum Stöðvar 2
á þriðjudag. Þannig getur bankinn
greitt framkvæmdastjórum hærri
laun en ella. Í lögum kjararáðs
kemur fram að enginn ríkisstarfs-
maður skuli hafa hærri laun en
forsætisráðherra, eða 935 þúsund
krónur á mánuði. Í frétt Stöðvar 2
kom fram að fjármálaráðuneyt-
ið ætlaði að taka málið upp við
Bankasýslu ríkisins.