Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.2010, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.2010, Blaðsíða 14
DÍSILOLÍABENSÍN UMSJÓN: BALDUR GUÐMUNDSSON, baldur@dv.is / ney tendur@dv.is el d sn ey ti 14 MIÐVIKUDAGUR 9. júní 2010 DRYKKJARFÖNG ILLA MERKT „Fulltrúar Neytendastofu skoðuðu 107 veitingastaði á höfuðborgar- svæðinu í þeim tilgangi að athuga hvort farið væri eftir reglum um verðmerkingar og aðrar upplýs- ingar. Skoðað var hvort matseð- ill væri með verðupplýsingum við inngöngudyr og hvort í upplýsing- um um drykkjarföng væri tilgreint magn. Til dæmis hvort gosglas sem kostar 500 kr, inniheldur það 33 cl af gosi eða 75 cl,“ segir á neytenda- stofa.is. Neytendur eiga á auðveld- an hátt að geta áttað sig á sam- henginu á milli þjónustu og verðs. Yfirleitt var verðskrá við inngang- inn en upplýsingar um drykki voru ófullnægjandi. „Einungis 40% veit- ingastaða voru með þetta atriði í fullkomnu lagi þó svo að fjölmarg- ir veitingastaðir hafi verið með það að hluta til,“ segir á síðunni en Neytendastofa hyggst fylgja könn- uninni eftir með annarri síðar. LÖNG BIÐ HJÁ EXPRESS n Lastið fær Iceland Express fyrir dapra símaþjónustu. Viðskiptavinur, sem þurfti að athuga með flug sem hann átti pantað, mátti bíða í hvorki meira né minna en 40 mínútur eftir að röðin kæmi að honum. Hann fékk þau svör að mikið væri að gera og sú sem svaraði sagði að hátt í 20 væru á eftir honum. SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS ÓDÝRT GRILLHÚS n Grillhúsið í Kringlunni fær lofið fyrir ódýran og góðan mat. Við- skiptavinur, sem borðaði þar í fyrsta sinn um daginn, sagði að hann hefði keypt hamborgara og franskar á innan við þúsund krónur. „Flestir réttirnir á matseðlinum kostuðu um eða innan við þús- und krónur, sem er mjög gott,“ sagði hann, himinlifandi. LOF&LAST ÍSBÚÐ VESTURBÆJAR ER ÓDÝRUST Ísbúð Vesturbæjar reyndist selja ódýrasta litla bragðarefinn sam- kvæmt glænýrri markaðskönn- un DV. Þar færðu mest fyrir pen- inginn, ef marka má könnunina. Verðmunur á kílóverði bragðarefs í Ísbúð Vesturbæjar og í Ísbúðinni Kringlunni er 56 prósent, en þar er ísinn dýrastur miðað við það magn sem þú færð. Ekki er lagt mat á það hvaða ís er bestur. Ísinn var vigtaður Könnunin fór þannig fram að DV fór í níu af helstu ísbúðum höfuð- borgarsvæðisins og bað um lítinn bragðaref með tveimur tegund- um af nammi, án þess að upplýsa að um verðkönnun væri að ræða. Bragðarefur er ís úr vél að viðbætt- um tveimur til fjórum tegundum af sælgæti. Þessu er svo hrært saman. Þegar út var komið var ísinn settur á nákvæma vog og þyngdin í kjöl- farið skráð. Fáeinum grömmum kann að skeika á þyngd ílátanna og skeiðanna en sá munur er óveru- legur. Því næst bragðaði blaðamað- ur ísinn á flestum stöðum, eins og þrek hans og heilsa entist til. Þeirri reynslu verður ekki sérstaklega gerð skil. Þó má nefna að ísarnir voru oft mjög þykkir og þungir í sér. Ís- inn í Ísbúð Vesturbæjar var áber- andi léttari (gamli ísinn) en hinir án þess að bragðið væri endilega betra. Það verður látið liggja á milli hluta en benda má á að ísbúðirnar bjóða yfirleitt margar tegundir af ís úr vél. Kostar á við lambasteik Lítill bragðarefur kostar á bilinu 600 krónur til 775 eftir því hvar hann er keyptur. Hann er ódýrast- ur í Ísbúð Vesturbæjar en dýrastur í Álfheimum. Þar sem lítill bragða- refur er ekki alls staðar jafnstór var brugðið á það ráð að reikna út kíló- verð. Þeir útreikningar leiða í ljós BALDUR GUÐMUNDSSON blaðamaður skrifar: baldur@dv.is Ódýrastur Þessi ís er bestur fyrir budduna, kostar 600 krónur. Ódýrasta ísbúðin Útreiknað kílóverð var lægst í Ísbúð Vesturbæjar en þar var einnig ákaflega snyrtilegt auk þess sem þjónustan var góð. Ef þú vilt fá lítinn bragðaref á lægsta verðinu skaltu beina viðskiptum þínum til Ísbúðar Vesturbæjar, samkvæmt könn- un DV. Þar kostar lítill bragðarefur 600 krónur og þú færð hlutfallslega mest fyrir peninginn. Dýrastur er ísinn í Kringlunni og Smáralind en útreiknað kílóverð þar er ríflega 2.000 krónur. Ólíkir bragðarefir Eins og sjá má voru boxin yfirleitt yfirfull, enda reyndist enginn ís léttari en um 350 grömm. Bragðarefurinn í Álfheimum var sá eini sem kom með loki (og lak því ekki) en Ísbúðin Laugalæk var sú eina sem bauð að fyrra bragði nammi ofan á ísinn. MYND SIGTRYGGUR ARI Skeifunni VERÐ Á LÍTRA 191,8 kr. VERÐ Á LÍTRA 188,8 kr. Algengt verð VERÐ Á LÍTRA 198,9 kr. VERÐ Á LÍTRA 195,9 kr. Algengt verð VERÐ Á LÍTRA 201,9 kr. VERÐ Á LÍTRA 198,9 kr. Dalvegi VERÐ Á LÍTRA 191,6 kr. VERÐ Á LÍTRA 188,6 kr. Fjarðarkaupum VERÐ Á LÍTRA 191,7 kr. VERÐ Á LÍTRA 188,7 kr. el d sn ey ti Algengt verð VERÐ Á LÍTRA 201,9 kr. VERÐ Á LÍTRA 198,9 kr.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.