Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2010, Blaðsíða 23
miðvikudagur 7. júlí 2010 úttekt 23
Mun fortíðin
koma í bakið á þér?
BMi-stuðullinn
Margfaldaðu hæð þína með hæð þinni og
deildu með útkomunni í þyngdina.
Dæmi:
Ef þú ert 1,74 á hæð og þyngdin er t.d. 75
kg:
1,74 x 1,74 = 3,03
75 kg er deilt með 3,03 = BMI stuðull 24,75
Ef BMI er undir 18,5 ertu of létt/-ur.
Ef BMI er á milli 18,5 og 24,9 ertu eðlileg/-ur.
Ef BMI er á milli 25 og 29,9 þá ertu of
þung/-ur
Ef BMI er yfir 30 þjáistu af offitu
Ákjósanlegt BMI
Konur: 20,5-24,9.
Karlar: 22,0-26,4.
Byrjaðu upp á nýtt: Farðu í tékk
bæði á kynsjúkdómum og HIV. Vertu
hreinskilin/-n við lækninn þinn um
fortíð þína, sérstaklega ef þú ert í
barneignarhugleiðingum. Notaðu
smokkinn!
Þú reyktir marijúana
Það er enginn stórskaði ef þú
fékkst þér í haus annað slagið.
Reykingarnar gætu kom-
ið aftan að þér ef þú kveikt-
ir reglulega í. „Ef þú reyktir
marijúana daglega í 20 ár
gætirðu hafa þróað með
þér vandamál í önd-
unarfærum,“ segir
dr. Harold Kalant
við University of
Toronto. „Miklar
gras- og hassreyk-
ingar auka líkurn-
ar á lungnakrabba-
meini en samkvæmt
rannsóknum aukast
líkurnar ef þú reyktir
í tíu ár eða meira. Þeir
sem reyktu daglega gætu
fundið fyrir minniháttar
minnisvandamálum sem
gætu varað lengi.
Byrjaðu upp á nýtt:
Hreyfðu þig kröftulega á hverj-
um degi, það er gott fyrir lung-
un og heilann.
Þú áttir við átröskun
að stríða
Það er enginn stórskaði ef þú
bættir á þig og misstir meira en
fimm kg af og til en hefur verið
stöðug/-ur síðustu áratugi eða
tvo.
Röskunin gæti komið í bakið á
þér ef þú bættir á þig og misstir til
skiptis meira en fimm kg oft á ári
í gegnum árin. „Þessi vítahringur
hefur líklega hægt á efnaskiptun-
um og getu þinni til að þekkja
hungur og seddu,“ segir dr.
Cynthia Bulik hjá University of
North Carolina Eating Disor-
ders Program og höfundur
bókarinnar Crave: Why You
Binge Eat and How to Stop.
Að rokka fram og til baka í
þyngd getur einnig aukið lík-
ur á gallsteinakasti og veikt
ónæmiskerfið.
Byrjaðu upp á nýtt: Sigr-
astu á fitupúkanum hægt
og rólega því þannig áttu
mesta möguleika á að halda
honum í burtu. Forðastu
mat sem hefur verið algjör-
lega hreinsaður af fitu því
einhver fita er nauðsynleg
fyrir þig. Passaðu að fá nóg
af trefjum og kalsíum en hvort
tveggja minnkar líkur á gallstein-
um. Farðu í ræktina og byggðu þig
upp og reyndu að forðast stress og
álag. „Margir átröskunarsjúklingar
eru í mestri hættu á að falla þegar
þeir eru undir álagi,“ segir dr. Mary
Boggiano, geðlæknir við University
of Alabama í Birmingham.
Þýdd grein af www.health.com