Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2010, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2010, Blaðsíða 24
Mourinho vill SchweinSteiger Spænska blaðið AS greindi frá því á þriðjudaginn að Þjóð- verjinn Bastian Schweinsteiger væri ofarlega á óskalista Joses Mourinho hjá Real Madrid. Fyrir voru þar Ítalinn Daniele De Rossi og Englendingurinn Steven Gerrard. De Rossi fær ekki að fara frá Roma og þá er Gerrard of dýr fyrir Real Madrid. Reynd- ar vilja Bayern-menn ekki missa Schweinsteiger og hafa sett á hann verðmiða upp á 55 milljónir evra sem gæti einnig verið of hátt fyrir Real. ofurfloppið farið heiM Úkraínski mið- vörðurinn Dmytro Chygrynski er farinn aftur heim til Shaktar Don- etsk frá Barcelona fyrir 15 milljónir punda. Börsungar keyptu hann síðasta sumar á 25 milljónir punda og varð hann um leið dýrasti varnarmaður í sögu spænska boltans. Hann lék aðeins fjórtán leiki fyrir Barcelona en náði sér aldrei á strik. Hann fékk ekki einu sinni tækifæri undir lok leiktíðarinnar þegar þrír miðverðir Barcelona voru frá vegna meiðsla eða leikbanna. Eina huggun Börsunga er sú að þeir fá nú 15 milljónir til að eyða í nýja leikmenn. Þjóðverjar fengu ekki góðar fréttir í gær þegar kolkrabbinn Páll, sem er á sædýrasafninu í Oberhausen, valdi sigurvegara í undanúrslitaleik Þýskalands og Spánar sem fram fer í kvöld. Í búr Páls voru settir glerkassar, annar með fána Þýska- lands og hinn með fána Spánar og valdi hann kassann með spænska fánanum. Páll hefur enn ekki spáð rangt fyrir um úrslit leikja Þjóðverja á mótinu, hann hefur alltaf spáð Þýskalandi sigri nema fyrir eina ta- pleik liðsins gegn Serbíu. Þessar skondnu spár hófust fyr- ir tveimur árum á meðan á Evrópu- mótinu í Sviss og Austurríki stóð. Þá valdi Páll alltaf réttan sigurvegara nema í úrslitaleiknum. Hann sagði sína menn í Þýskalandi vinna þann leik en Spánverjar stóðu uppi sem sigurvegarar, 1-0, með marki Fern- andos Torres. Gæti það því verið huggun fyrir Þjóðverja að vita að eini leikurinn sem Páll hefur spáð rangt fyrir um í tveimur mótum tengist Spáni. „Okkur brá mikið þegar hann valdi Spán,“ segir Tanja Munzig, talsmaður sædýrasafnsins. „Það eru ekki bara mennirnir sem gera mistök, dýr geta einnig haft rangt fyrir sér. Við verðum að vona að Páll hafi ekki rétt fyrir sér um þennan leik. Spáin fer þannig fram að tveir glerkassar með mat eru lagðir í búr Páls. Á öðrum kassanum er fáni Þýskalands og á hinum fáni móth- erja þess. Það fer svo eftir því hvorn matarkassann Páll opnar á und- an hvorum hann spáir sigri. Í þetta skipti valdi hann Spán. tomas@dv.is Kolkrabbinn sem spáir alltaf rétt: Páll spáir Spáni sigri hMmolar Blanc stoltur n Laurent Blanc hefur tekið við rúst- um franska landsliðsins. Hann spáir lítið í það sem gerðist og vill horfa fram á veginn. „Ég er mjög stolt- ur af því að vera orðinn þjálfari franska lands- liðsins. Fyrir mér er Frakkland ofar öllu og var það alltaf á ferli mínum. Sem leikmaður lifði ég frábærar stundir með liðinu. Það er ekki mitt að úrskurða um hvað gerðist í Suður-Afríku. Nú er ég tek- inn við og verð bara að einbeita mér að því sem ég vil ná fram hjá liðinu,“ segir Blanc. Engin þvinguð risakaup n Nýr forseti Barcelona, Sandro Rossel, segir að ekki verði hægt að þvinga félagið til að borga himinhá- ar fjárhæðir fyrir Cesc Fabregas frá Arsenal. Katalónarnir hafa ekki farið leynt með að Fabregas er nú efstur á óskal- istanum eftir að liðið landaði David Villa fyrr í sumar. „Við munum ekki borga 50 til 60 milljónir evra fyrir Cesc, það kemur ekki til greina,“ segir Rossel. Fabregas hefur þrálega verið orðaður við Börsunga og skildi engan undra ef hann klæðist treyju Spánarmeist- aranna áður en langt um líður. snýr Ekki aftur til Englands n Úrúgvæski framherjinn Diego Forlan ætlar ekki að spila aftur á Englandi en hann lék við miður góð- an orðstír hjá Manchester United á sínum tíma. Tottenham hefur verið mjög áfram um að landa honum þótt Harry Red- knapp hafi haft smáá- hyggjur af launakostn- aði. Hann þarf þó ekki að hafa áhyggjur mikið lengur. „Ég mun aldrei spila aftur á Eng- landi þó að ég eigi góðar minning- ar þaðan. Við erum að byggja upp frábært lið hjá Atletico Madrid og ætlum okkur eitt af fjórum efstu sæt- unum,“ segir Diego Forlan. allt dunga að kEnna n „Ég er leiður yfir gengi Brasilíu en það kemur mér ekki á óvart hversu fljótt liðið datt úr keppni,“ segir miðjumaðurinn Juninho Pernam- bucano, fyrr- verandi leik- maður Lyon og brasilíska landsliðs- ins. „Liðið var gallað og það var Dunga að kenna. Af hverju tók hann Ronald- inho ekki með? Þótt hann sé ekki einu sinni upp á sitt besta er hann betri en flestir. Þannig hefði hann getað létt ábyrgðinni af Kaka sem var ekki eins góður og hann getur verið. Það vantaði svo mikið í þetta lið,“ segir Juninho sem vildi sjálfur fá sæti í landsliðshópnum. 24 uMSJón: TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON tomas@dv.is 7. júlí 2010 miðvikudagur Vondar fréttir? Páll segir að Spánn vinni. H&N-MyND AFP Það verður sannarlega risastór Evrópuslag- ur í kvöld þeg- ar Þýskaland og Spánn mætast í undanúrslitum heimsmeist- arakeppn- innar í fót- bolta. Bæði lið hafa verið afar sannfær- andi á mót- inu og aðeins tapað einum leik hvort. Síð- ast þegar liðin mættust höfðu Spánverjar sig- ur, 1-0, með marki Fern- andos Torres, en það mark tryggði Spánverj- um sigur í Evrópu- keppninni í Sviss og Austurríki fyr- ir tveimur árum. Bæði lið eru með sjóðheita fram- herja. David Villa hjá Spáni er marka- hæsti maður keppninnar með fimm mörk en Miroslav Klose hjá Þýska- landi hefur skorað fjögur og vantar aðeins eitt mark til að jafna met hins brasilíska Ronaldos yfir markahæstu menn í lokakeppni HM frá upphafi. Erfitt að bera þá saman Miroslav Klose verður án Thomas Müller í framlínunni en Bæjarinn ungi verður í leikbanni. Því verður einblínt enn meira á að Klose skori en hann setti tvö mörk í átta liða úr- slitunum gegn Argentínu. „Það er erfitt að bera þá saman. Báðir hafa einstaka hæfileika til að klára færi,“ segir Joachim Löw, þjálfari Þýska- lands. „Ég var aldrei í vafa um að velja Klose. Hann leggur sig alltaf hundrað prósent fram fyrir Þýska- land og þannig menn vill maður hafa í landsliðinu,“ segir Löw, en Klose skoraði aðeins þrjú mörk í þýsku úr- valsdeildinni í vetur. „Það er alltaf hægt að finna hann og hann er alls ekki eigingjarn mið- að við hvað hann hefur skorað mörg mörk. Ég spila líka með honum hjá Bayern og veit alveg hvers hann er megnugur,“ segir Thomas Müller sem verður fjarri góðu gamni í leikn- um. Klose er að spila í sinni þriðju heimsmeistarakeppni og hefur alls skorað fjórtán mörk. Hann er næstmarkahæstur á HM frá upp- hafi ásamt þýsku goðsögninni Gerd Müller en efstur á blaði er Brasilíu- maðurinn Ronaldo sem hefur skorað fimmtán mörk í lokakeppni HM. Næstum því jafngóður og Messi David Villa hefur þurft að sjá um markaskorun fyrir spænska landslið- ið þar sem félagi hans í framlínunni, Fernando Torres, hefur verið heillum horfinn á mótinu. Torres hefur enn ekki skorað mark og hefur verið tek- inn af leikvelli frekar snemma í síð- ustu tveimur leikjum. Alls hefur Villa skorað fimm mörk á HM til þessa, þar af einu tvö mörk Spánar í útslátt- arkeppninni, en það hefur dugað. „Hann getur skotið með hægri og vinstri og er mjög teknískur. Hann er næstum jafnfullkominn leikmað- ur og Lionel Messi,“ segir Klose um kollega sinn í spænska liðinu. „Hann er leikmaður sem allt liðið verð- ur að verjast því það er ekki nokkur möguleiki fyrir einn varnarmann að ætla að hafa hemil á honum.“ Skori David Villa gegn Þýskalandi jafnar hann markamet Rauls með spænska landsliðinu sem er 44 mörk. Reynd- ar tók það Raul 104 leiki að skora svo mörg mörk en leikurinn hjá Villa í kvöld verður hans 64. TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON blaðamaður skrifar: tomas@dv.is Þýskaland og Spánn mætast á miðvikudagskvöldið í seinni undan- úrslitaleik heimsmeistaramótsins í Suður-Afríku. Tvö ár eru síðan Spánn lagði Þýskaland í úrslitaleik Evrópu- keppninnar. Framherjar liðanna, Miro- slav Klose hjá Þýskalandi og David Villa hjá Spáni, hafa farið á kostum á HM. Einvígi framhErjanna Fimm marka maður David Villa getur ekki hætt að skora fyrir Spán. Eitt mark í metið Skori Klose gegn Spáni jafnar hann met Ronaldos yfir flest mörk í lokakeppni HM.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.