Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2010, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2010, Blaðsíða 2
2 fréttir 7. júlí 2010 miðvikudagur „Ég var ólátabelgur og hlýddi ekki,“ segir söngkonan landsfræga Ellen Kristjánsdóttir en lögreglumað- ur snéri upp á handlegg hennar í mótmælunum við Seðlabanka Ís- lands á mánudag. „Lögreglumað- urinn var hins vegar of fljótur á sér og við bæði sek að því leytinu til,“ segir Ellen um málið en hún segist hafa talað við lögreglumanninn eft- ir málið. „Við skiljum við þetta mál í góðu og er allt í lagi á milli okkar eftir þetta,“ segir Ellen sem fann fyr- ir afar miklum sársauka í hendinni á mánudag eftir viðskipti sín við lög- reglumanninn. Var frekar sár Handleggur hennar var blár og marinn og segist hún hafa þurft að fara upp á sjúkrahús. Atburða- rásin var á þá leið að Ellen settist við inngang Seðlabanka Íslands en lögreglan bannaði henni að vera þar. Hún taldi sig eiga rétt á að vera þarna og sagðist í samtali við DV.is vilja fá að sjá það skriflegt frá lög- reglunni að hún mætti ekki vera við innganginn. Þegar hún neitaði að fara endaði það með fyrrgreind- um afleiðingum. „Mér var rosalega illt og þótti þetta leiðinlegt. Það er hins vegar allt í lagi með mig en ég var frekar sár eftir að þetta gerðist,“ segir Ellen sem tekur það fram að henni finnist lögreglan hafa stað- ið sig afar vel við að sinna gæslu í þeim mótmælum sem hafa verið á Íslandi en sjálf tók hún þátt í bús- áhaldabyltingunni. Ungt fólk í fangelsi Ellen segist hafa verið að mótmæla gengistryggðum og verðtryggðum lánum. „Einnig var ég að mótmæla því hvernig ríkisstjórnin kemur fram við fólkið í landinu og einnig var ég að mótmæla Alþjóðagjald- eyrissjóðnum,“ segir Ellen sem sjálf er með gengistryggt lán á bílnum sínum og hljóðfæri sem eru í eigu hennar og eiginmanns hennar, Ey- þórs Gunnarssonar píanóleikara. Þar á meðal er flygill sem Ellen tek- ur þó fram að hafi kostað innan við það sem venjulegt píanó kostar. „Og eins og allir vita hafa slík lán hækk- að gífurlega. Bíllinn sem við hjónin keyptum fyrir fimm árum ættum við að vera búin að borga upp en svo er ekki eins og staðan er í dag.“ Hún segir það vera hrikalegt að horfa upp á hvernig lánin hafa farið með ungt fólk og einstæðar mæður. „Sérstaklega ungt fólk. Það er eins og það sé í fangelsi vegna þessara lána.“ Ráðherrar ruglaðir Hún segist hafa orðið fyrir miklum vonbrigðum með núverandi ríkis- stjórn sem hún segir engan veginn vera að standa sig. „Sjálf kaus ég vinstristjórn í síðastliðnum kosn- ingum og tók virkan þátt í því að reyna að koma þeim sem leiddu okkur í hrunið frá. En mér finnst þessi ríkisstjórn engan veginn vera að standa sig,“ segir Ellen og er ekki par hrifin af frammistöðu Stein- gríms J. Sigfússonar fjármálaráð- herra og Gylfa Magnússonar, við- skipta- og efnahagsráðherra. „Mér finnst þeir vera í rauninni ruglaðir þegar maður heyrir að þeir séu í nánu samstarfi við Alþjóða- gjaldeyrissjóðinn. Nú bíður maður bara eftir að það verði kosið aftur,“ segir Ellen. Reiði í þjóðfélaginu of mikil einföldun Kolbrún Baldursdóttir sálfræðingur segir mótmæli síðastliðinna daga ekki endurspegla reiðina sem býr í þjóðfélaginu í dag. Ástæðan sé sú að hún sé afar mismunandi eftir því hvar hagsmunir hvers og eins liggja. „Mér finnst fólk vera reitt yfir svo mismunandi hlutum. Þegar einn hópur er reiður vegna gengistryggðra lána er annar hópur, sem ekki tók lán fyrir neinu, reiður vegna þess að hann gæti þurft að borga með skattgreiðslum sínum vegna þessara gengistryggðu lána. Það er mikil reiði í fólki en út af mismunandi hlutum.“ Hún segir það einnig vera algjörlega rangt að segja að almenningur sé reiður vegna gengistryggðra lána. „Það er talað um almenning eins og almenningur sé allur eins. Það er talað um að þeir sem eru með bílalán séu almenningur en almenningur er langtum stærri hópur,“ segir Kolbrún. Hún segir ljóst að það ríki mikil ólga á milli þessara hópa og sjáist það best á samskiptasíðum og á bloggi Íslendinga. „Þessar tvær fylkingar sem eru hvað mest áberandi í dag eru þeir sem ekki tóku lán og finnst ósanngjarnt að þeir sem eru með gengis- tryggð lán sleppi létt frá sínum skuldum. Svo eru það þeir sem tóku gengistryggð lán og finnst yfirvöld hafa brotið á sér. Það sést best að það fer algjörlega eftir hagsmunum fólks hvar reiði þeirra liggur.“ Hún segir einnig vera vöntun á því að flokka skuldara á Íslandi í dag. Til að mynda sé ekki hægt að bera saman skuldugt fjölskyldufólk sem tók lán fyrir sinni fyrstu fasteign og svo eyðsluseggi sem tóku lán fyrir þremur jeppum sem standa í innkeyrslunni. „Þetta er svona almenn umræða sem þarf að taka.“ Söngkonan Ellen Kristjánsdóttir er með gengistryggt lán á bíl og hljóðfærum sem hún og eiginmaður hennar Eyþór Gunnarsson keyptu. Hún segist hafa verð ólátabelgur sem ekki hafi hlýtt tilmælum lögreglu með þeim afleiðingum að lögregluþjónn snéri upp á handlegg hennar. Hún hefur orðið fyrir vonbrigðum með ríkisstjórnina og bíður eftir að gengið verði til kosninga á ný. TÓK MYNTKÖRFULÁN FYRIR HLJÓÐFÆRUM Við skiljum við þetta mál í góðu.biRGiR olGEiRsson blaðamaður skrifar: birgir@dv.is skýr skilaboð Hér sést einn þátttakandi mótmælanna á þriðjudag gefa yfirvöld- um skýr skilaboð með löngutöng. Alþjóðleg mótmæli Hér sést mótmælaspjald eins mótmælendanna við Seðlabankann á þriðjudag. Athygli vekur að textinn er líka á ensku.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.