Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2010, Blaðsíða 25
Boðið var upp á fimm marka veislu
í undanúrslitaleik Hollands og Úrú-
gvæ sem fór fram á hinum magn-
aða Green Point-velli í Höfðaborg
á þriðjudagskvöldið. Hollending-
ar tryggðu sér farseðilinn í úrslita-
leikinn með sigri, 3–2, en minnstu
munaði að Úrúgvæjar næðu að jafna
metin í uppbótartíma. Þetta verður
í fyrsta skiptið í 32 ár sem Hollend-
ingar leika til úrslita á HM. Úrúgvæ
hefur verið eitt af þeim liðum sem
hafa komið mest á óvart í keppninni
en draumur þeirra um þriðja heims-
meistaratitilinn er úti. Þeir fá þó
tækifæri til að vinna til verðlauna því
þeir mæta tapliðinu úr leik Þýska-
lands og Spánar í leiknum um brons-
ið á laugardaginn.
Leikurinn kláraður á þremur
mínútum
Fyrsta mark leiksins verður líklega
þegar upp er staðið talið það flottasta í
keppninni til þessa. Hinn 36 ára gamli
fyrirliði Hollands, vinstri bakvörður-
inn Giovanni van Bronchorst, skor-
aði þá ótrúlegt mark. Hann fékk bolt-
ann vel úti á vinstri kantinum, þrjátíu
metra frá marki, en lét bara vaða og
söng knötturinn í samskeytunum.
Die go Forlan jafnaði metin fyrir Úrú-
gvæ með öðrum þrumufleyg, fjórum
mínútum fyrir lok fyrri hálfleiks og þar
við stóð í bili. Líklega hefði markvörð-
ur Hollands, Marteen Stekelenburg,
átt að gera betur í markinu þegar For-
lan skoraði en vitað var fyrir keppn-
ina að markvarslan yrði líklega mesti
hausverkur Hollendinga.
Jafnræði var með liðunum í seinni
hálfleik en Hollendingar gerðu út
um leikinn á þriggja mínútna kafla í
seinni hálfleik. Wesley Sneijder skor-
aði sitt fimmta mark á mótinu með
lúmsku skoti á 70. mínútu og þrem-
ur mínútum síðar bæti Arjen Robb-
en við marki með skalla. Úrúgvæjar
náðu að skora mark í uppbótartíma
og settu gífurlega pressu á Hollend-
ingana undir lokin en hana stóðust
þeir appelsínugulu og leika til úrslita
á stærsta móti heims.
Langt frá því síðast
Hollendingar hafa ekki leikið til úr-
slita á heimsmeistaramótinu í knatt-
spyrnu frá því árið 1978. Þá töpuðu
þeir fyrir gestgjöfum Argentínu í
framlengdum úrslitaleik, 3–1. Fjór-
um árum áður lék Holland einnig
til úrslita, þá gegn gestgjöfum Vest-
ur-Þjóðverja, og töpuðu 2–1. Á þess-
um tíma var fremstur manna Johan
Cruyff en lið Hollands á þessum tíma
er jafnan kallað Cruyff-kynslóðin. Al-
tént er þetta lið talið það besta sem
aldrei vann heimsmeistarakeppn-
ina, þótt það hafi fengið tvö tækifæri
til þess.
United vill Sneijder
Breska blaðið Daily Mirror heldur því fram að Manchester United
ætli sér að landa hollenska miðjumanninum Wesley Sneijder frá
Inter. Sneijder fór á kostum með Inter í vetur og vann þrennuna
með liðinu. Þá hefur Sneijder farið á kostum með Hollandi á HM.
Sneijder hefur sagt að hann muni ekki fara aftur til Real Madrid
þó svo að Jose Mourinho sé þar við stjórn. Manchester United
ætlar sér að bjóða 25 milljónir punda í Hollendinginn öfluga sem
hefur verið einn albesti leikmaður HM til þessa.
tilboði hafnað í balotelli Inter
hafnaði tilboði Manchester City í ítalska vandræðagemsann
Mario Balotelli, samkvæmt umboðsmanni kappans. Balotelli
komst nokkrum sinnum upp á kant við Jose Mourinho í vetur
og fór í það minnsta tvisvar í agabann. Hinn nítján ára gamli
framherji á þó ár eftir af samningi sínum og virðist vera í plön-
um Inter fyrir næsta tímabil. City hefur verið iðið við kolann í
sumar og hefur nú þegar landað Jerome Boateng, David Silva
og Yaya Toure.
Forseti Alþjóðaknattspyrnusam-
bandsins, Sepp Blatter, hefur lýst
því yfir að þessi fyrsta heimsmeist-
arakeppni í Afríku hafi heppnast
vel. Hann segir að keppnin hafi gef-
ið hrjáðum heimi nýja von. Blatter
lagði mikið á sig til þess að HM færi
fram í Suður-Afríku og hefur staðið
rækilega við bakið á skipuleggjend-
um keppninnar, meira að segja þeg-
ar leit út fyrir að ekkert yrði tilbúið
á réttum tíma. Hann segir áhyggjur
„gömlu Evrópu“, eins og hann orðar
það, hafa verið óþarfar en þar bjóst
enginn við að fólk myndi flykkjast til
Suður-Afríku.
„Ég er mjög ánægður forseti í dag
og ég vonast svo sannarlega til þess
að verða enn ánægðari á sunnudag-
inn,“ segir Blatter en hann sagði að
yfir 500.000 manns hefðu lagt leið
sína til Suður-Afríku til að fylgjast
með keppninni. Þótt sæti hafi verið
auð á mörgum leikjum segir Blatt-
er aðsóknina þó hafa verið nægilega
góða. Eins er hann ánægður með að
merkir stjórnmálamenn hafa látið
sjá sig. Kanslari Þýskalands, Angela
Merkel, var mætt á síðasta leik Þjóð-
verja en einnig hafa Joe Biden, vara-
forseti Bandaríkjanna, og Bill Clin-
ton verið á leikjum.
„Hversu margir þjóðhöfðingjar
komu að sjá keppnina sýnir pólit-
ísku hlið fótboltans. Það vilja all-
ir láta mynda sig í stúkunni. Svona
er kraftur fótboltans mikill,“ segir
Blatter og bætir við:
„Fótboltinn gefur þessum hrjáða
heimi nýja von. Sjáið bara frétta-
tíma úti um allan heim. Það er eins
og heimurinn hafi stöðvast þegar
HM byrjaði. Við vonumst til þess að
í gegnum fótboltann geti allir orðið
betri manneskjur.“
tomas@dv.is
Sepp Blatter ánægður með HM í Suður-Afríku:
Tilraunin heppnaðist
hMmolar
Torres vill
úTskýringar efTir fríið
n „Ég býst við því að þegar HM er
lokið muni ég tala við fólkið hjá
Liverpool og það
muni útskýra
fyrir mér hver
staða mála er. Þá
fæ ég væntan-
lega að vita hver
framtíð félags-
ins er og tala við
nýja þjálfarann,“
segir Fernando
Torres, fram-
herji Liverpool sem er þessa dagana
upptekinn með Spáni á HM. „Það er
nægur tími til að tala saman en þeg-
ar HM er búið ætla ég í frí því ég hef
ekki fengið frí í þrjú ár. Ég mun hvíla
mig og þegar ég kem til baka verður
nægur tími til að ræða málin,“ segir
Fer nando Torres.
Þjálfari gana óviss
um framTíð sína
n Milovan Rajevac, þjálfari Gana,
er ekki viss um hvort hann ætli að
halda áfram með liðið. „Ég mun sjá
til hvað gerist.
Ég er enn að
melta leikinn
á móti Úrúgvæ
en auðvitað eig-
um við að vera
stoltir af árangri
okkar,“ segir
Rajevac en Gana
féll úr leik í átta
liða úrslitum í
leik gegn Úrúgvæ. „Árangur Gana
er frábær undir stjórn Rajevacs og
þannig á það halda áfram. Við kom-
umst þetta langt á HM og í úrslita-
leikinn á Afríkumótinu. Hann er
frábær þjálfari sem leikmennirnir
treysta,“ segir Asamoah Gyan, fram-
herji liðsins.
kuyT mikilvægur
n Hollenska goðsögnin Johan
Cruyff hefur verið duglegur að láta
gamminn geisa í fjölmiðlum á með-
an heims-
meistaramótið
hefur staðið.
Aðspurður
um mikil-
væga menn í
hollenska lið-
inu minntist
hann öllum
að óvörum á
hinn harð-
duglega Dirk
Kuyt en hvorki Wesley Sneijder nér
Arjen Robben. „Gegn Brasilíu hélt
Kuyt ekki bara Maicon út úr leiknum
heldur lagði hann upp sigurmark-
ið. Menn eins og Kuyt eru þyngdar
sinnar virði í gulli,“ segir Johan Cru-
yff sem sjálfur spilaði tvo úrslitaleiki
á HM.
lúðrarnir bannaðir
í nauTahlaupinu
n Borgaryfirvöld í Pamplona á Spáni
bönnuðu vuvuzela-lúðrana leiðin-
legu fyrir hið
árlega nauta-
hlaup sem
haldið var á
mánudaginn.
Vildu menn
meina að hljóð-
in færu mjög
í taugarnar á
nautunum og
ekki þyrfti að
æsa þau meira
upp, en margir hafa slasast illa við
það að hlaupa undan þessum risa-
stóru nautum. Það er þó spurning
hvort fari meira í taugarnar á naut-
unum, lúðrarnir eða að vera drepin
seinna um kvöldið. Þau geta allavega
ekki svarað því.
miðvikudagur 7. júlí 2010 25
Kátir Sepp Blatter og
Jacob Zuma, forseti
Suður-Afríku. H&N-MyND AFP
Holland leikur til úrslita á heimsmeistaramótinu í fótbolta eftir sigur á Úrúgvæ í
undanúrslitum, 3–2. Hollendingar hafa ekki leikið til úrslita frá því 1978 þegar liðið
tapaði gegn Argentínu. Úrúgvæjar börðust hetjulega en draumur þeirra um fyrsta
heimsmeistaratitilinn í 60 ár er úti.
32 ára bið
lokið
TóMAS þóR þóRðARSoN
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is
Draumurinn búinn Forlan skoraði
mark Úrúgvæ en hann fær ekki meira en
brons á HM. H&N-MyND AFP
Kátir voru karlar
Hollendingar
kættust mjög
þegar flautað
var til leiksloka
enda komnir í
úrslitaleikinn.