Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2010, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2010, Qupperneq 12
12 fréttir 7. júlí 2010 miðvikudagur Leynd ríkir yfir því hvaða lögfræðiálit Seðlabanki Íslands og Fjármálaeftir- litið miðuðu við þegar stofnanirnar beindu þeim tilmælum til fjármögn- unarfyrirtækja að endurreikna skyldi gengistryggð lán samkvæmt lægstu vöxtum Seðlabanka Íslands. DV ósk- aði eftir upplýsingum um hvort slíkt álit hefði verið unnið og hvort blað- ið gæti fengið aðgang að efni þess. Þeirri beiðni var hafnað. Gunnar Andersen, forstjóri Fjár- málaeftirlitsins, fullyrðir í samtali við DV að leitað hafi verið álits lögfræð- inga á tilmælunum. Hann segir mál- ið hafa verið skoðað fram og til baka í Fjármálaeftirlitinu og í samráði við lögfræðinga Seðlabanka Íslands. Aðspurður hversu margir lög- fræðingar hafi farið yfir tilmælin, segir hann nokkra hafa farið yfir þau. Aðspurður hvort álit lögfræðinganna hafi verið einróma, jánkar Gunnar því. „Ekki spurning,“ segir Gunnar. Hjá Seðlabanka Íslands fékkst eftirfarandi svar við fyrirspurn DV. „Lögfræðingar Fjármálaeftirlits- ins og Seðlabanka Íslands komu að gerð tilmælanna. Sameiginleg skjöl- uð lögfræðiálit liggja hins vegar ekki fyrir.“ Tilmælin sæta furðu Áhöld eru uppi um hvort tilmæli Fjármálaeftirlitsins og Seðlabanka Íslands hafi verið lögleg. Samkvæmt lögfróðum mönnum sem DV hef- ur ráðfært sig við, sætir það furðu þeirra að tilmælin hafi verið gef- in út. Einn af heimildarmönnum DV segir fjórðu grein laga um vexti og verðtryggingu skýra. Hún eigi ekki við sé samið um ákveðna vexti í lánasamningnum. Í lagagrein- inni segir að ef vaxtaviðmiðunin sé ekki tiltekin, skuli miða við lægstu vexti nýrra óverðtryggðra útlána hjá Seðlabanka Íslands. Þeir eru átta prósent. Þá segir að í verðtryggðum kröfum skuli vextir hafa hliðsjón af lægstu vöxtum á nýjum almennum verðtryggðum útlánum. Heimildar- maður DV kveðst hafa orðið gáttað- ur á því að tilmælin hafi verið sett fram þar sem þau stríði klárlega gegn þessum ákvæðum laganna og efast um að ákvörðun stofnan- anna hafi verið vel ígrunduð. Hann fullyrðir að með tilmælunum hafi stofnanirnar farið á svig við lög. Í átjándu grein laganna, sem stofnanirnar vísa einnig til til grundvallar tilmælunum, segir að ef samningur reynist ógildur beri kröfuhafa að endurgreiða skuld- ara þá upphæð sem hann hafi haft af skuldaranum. Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda, hefur einmitt vakið máls á því að lagaákvæðið veiti kröfuhafa engin réttindi held- ur fjalli það um réttarstöðu skuldara gagnvart kröfuhafa. Gunnar segist ekki vera sam- mála þeirri túlkun að stofnanirnar hafi farið á svig við lög um vexti og verðtryggingu. Hann segir eðlilegt að lögfræðingar komist að mismun- andi niðurstöðu. Vaxtaágreiningur fyrir dóm Á miðvikudag verður ágreiningur um gengistryggingu bílaláns tekinn fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur. Þar mun líklega fást niðurstaða í það hvaða vextir skulu standa á láninu. Þar gengur skuldarinn út frá því að ekki sé hægt að breyta lánaskilmál- um afturvirkt, honum í óhag. Því skuli vextir, sem koma fram í upp- runalegum lánasamningi, standa. Niðurstaða gæti fengist í málið með haustinu. Maðurinn keypti bifreið í nóv- ember árið 2007 og tók gengistryggt lán hjá Lýsingu upp á 3,9 milljón- ir króna. Í upphafi þurfti maðurinn aðeins að greiða 58 þúsund krónur á mánuði af láninu en með falli krón- unnar hækkaði það í 120 þúsund krónur. Lýsing leysti síðan bifreiðina til sín þegar skuldarinn réð ekki við afborganirnar, tók bílinn upp í kröf- una og seldi síðan aftur til annars aðila nokkru síðar fyrir mun hærra verð en hann hafði verið metinn á. „Þetta er svikamylla“ Sveinbjörn Ragnar Árnason, fyrrverandi eigandi Bílamarkaðarins, segir fjármögnunarfyrirtækin hafa frá því fyrir hrun starfrækt „svikamyllu“ þar sem vörslusviptir bílar séu metnir langt undir mark- aðsvirði. Hann segir bílasala ekki þora að stíga fram og tjá sig um málið af ótta við að það gæti ógnað viðskiptum þeirra. Sveinbjörn segir nauðsynlegt að fram fari rannsókn á þessum málum sem fyrst. Sveinbjörn Ragnar Árnason bíla- sali og fyrrverandi eigandi bíla- sölunnar Bílamarkaðurinn geng- ur fram fyrir skjöldu og bendir á það sem hann kallar „svikamyllu“ fjármögnunarfyrirtækja. Svein- björn segir að bílasalar séu al- mennt hræddir við að segja frá því sem hefur viðgengist hjá fjár- mögnunarfyrirtækjunum af ótta við að missa af viðskiptum. Svein- björn hefur sjálfur selt bílasöl- una sína og hyggur á að flytja úr landi. Hann hefur því ákveðið að leysa frá skjóðunni í viðtali við DV. Hann segir nauðsynlegt að farið verði í gagngera rannsókn á þess- um málum hið fyrsta. Einangraður hópur „Fyrir hrun var maður far- inn að taka eftir því að þröngur hópur manna fékk yfirráðarétt yfir vörslusviptum bifreiðum,“ segir Sveinbjörn og segir ekkert hafa breyst í þeim málum. Enn þá séu sömu aðilar að braska með vörslusvipta bíla. „Þetta er náttúrulega bara hagfræði, „buy cheap and sell high“, ég meina þetta var bara búið til fyrir þessa aðila.“ Hann segir alla þá sem eitthvað hafa verið í bílabrans- anum vita hvernig fyrirtæk- in starfa, flestir bílasalar komist aldrei í það að kaupa vörslusvipta bíla, það sé einangraður hópur manna tengdur fjármögnunar- fyrirtækjunum sem sitji að kjöt- kötlunum. „Þetta er bara vara sem fæst ódýrt, hversu ódýrt væri spennandi að vita ef rannsókn á þessum málum færi í gang,“ segir Sveinbjörn. Bílar metnir niður Sveinbjörn tekur dæmi af Mercedes Benz C200 bifreið, árgerð 2005, sem er á almennum markaði metin á 3,3 milljónir króna. Eigandinn missir bifreiðina til fjármögnunarfyrirtæk- is vegna vanskila. Bíllinn er tekinn í skoðun hjá fyrirtækinu og metinn. Almenn afföll eru fimmtán prósent. Tekin er þriggja prósenta söluþókn- un. Þá hleypur viðgerðarkostnaður oft á hundruðum þúsunda. Það getur verið vegna rispu á húddi eða annarra minniháttar galla sem engin áhrif hafa á mark- aðsvirði bílsins en þjóna þeim til- gangi að lækka matið. Samkvæmt dæminu hér að framan, myndi fjármögnunarfyrirtækið að lok- um einungis greiða lántakanda 1,6 milljónir fyrir bílinn, en eftir- stöðvarnar, 1,7 milljón, væru eftir hjá lántakanda, þrátt fyrir að ekkert hefði í raun verið gert fyrir bílinn. „Þannig er lántakandinn að tapa enn þá meiru og gróðinn fer í vasa einhvers þröngs hóps,“ segir Svein- björn. Sveinbjörn segir að bifreiðinni sé því næst komið í sölu í gegnum þröngan hóp aðila sem virðast fá að sýsla með bifreiðarnar. Fjár- mögnunarfyrirtækið afhendir bíl- inn á 1,3 milljónir króna hratt og örugglega til bílasölu. Bifreiðin er með háan álagningarstuðul, því vera kann að hægt sé að selja bif- reiðina allt að þrisvar sinnum þar til hún nær markaðsverði sínu. Því telur Sveinbjörn að ákveðnar bílasölur hafi í raun getað selt bíla á brunaútsölu en þrátt fyrir lágt verð hagnast umtalsvert. Í kring- um þessar bílasölur hafi mynd- ast aðilar sem hafi keypt bifreið- arnar mjög hratt og ódýrt og selt til næsta aðila. Þegar endanlegur aðili, sem borgar markaðsverð, hefur eignast bifreiðina má áætla að tveir til þrír aðilar hafi hagn- ast um 300 þúsund krónur hver. Dæmin eru enn umfangsmeiri þegar um dýrari bifreiðar er að ræða. Sömu bílasölur hagnast „Ákveðið fjármögnunarfyrirtæki hér í bæ setti bíl inn á netið, og ég sem bílasali var með eftirspurn eft- ir svona bíl, og hafði samband við starfsmenn fyrirtækisins og var alltaf bent á að hafa samband við sömu bílasöluna,“ segir Sveinbjörn en hann heldur því fram að örfá- ar bílasölur hafi verið einráðar á markaðnum með vörslusvipta bíla. „Það er síðan engin tilviljun að bíl- arnir voru verðmetnir niður úr öllu valdi,“ segir hann. Sveinbjörn seg- ir að fyrirtækin hafi og séu enn þá að verðmeta bíla langt undir mark- aðsvirði þeirra. „Ég hef séð reikn- ing vegna verðmats á Porsche Cay- enne jeppa, árgerð 2004, uppá 212 þúsund krónur,“ segir Sveinbjörn sem hefur lengi beðið eftir því að farið yrði í rannsókn á þessum mál- um. Lítill áhugi á rannsókn Sveinbjörn segist hafa talað við bankastjóra eins ríkisbankanna sem og regluvörð varðandi mál er tengist fjármögnunarfyrirtæki í eigu bankans en undirtektirnar hafi verið dræmar. „Ég sagði hon- um að ég væri með upplýsingar um að þeir væru að svindla með vörslusvipta bíla og það liti mjög illa út þar sem þröngur hópur manna væri að féfletta almenn- ing með því að fá bílana ódýrt til sín og selja þá dýrt,“ segir Svein- björn og bætir við að hvorugur þeirra hafi haft áhuga á að rann- saka eða skoða málið frekar. „Ég hefði talið að ef þeir hefðu ekkert að fela hlytu þeir að fagna rann- sókn til þess að hreinsa mann- orð sitt.“ Sveinbjörn tekur fram að það sem hann sé að segja hafi lengi verið í umræðunni en eng- inn hafi þorað að bjóða þessum fyrirtækjum birginn. Stórgræða á þessu „Þeir eru eins og hrægammar sem koma bara í vörur sem er hægt að græða á, þetta er bara lögmál og enginn er að spá í þetta,“ segir Sveinbjörn og bætir við að hér á landi vanti leiðir fyr- ir venjulega borgara til að koma slíkum málum í rannsókn. Hann hvetur fólk sem hefur misst bíla í vörslusviptingu að krefjast þess að fá afsölin af vörslusvipting- um sínum, en þannig muni það sjá svart á hvítu hvað bílarnir séu teknir lágt upp í. „Þeir sem komast í að kaupa vöru ódýrt og selja hana með miklum hagn- aði sleppa því tækifæri ekki frá sér, þetta er svikamylla sem hef- ur fengið að viðgangast í alltof mörg ár,“ segir Sveinbjörn og lík- ir starfsháttum fyrirtækjanna við glæpastarfsemi. Að lokum spyr hann: „Hvers vegna eru það bara sérstakir aðilar sem fá þessa bíla svona ódýrt? Það er af því að þeir eru að stórgræða á þessu.“ jón BjaRki magnúSSon blaðamaður skrifar: jonbjarki@dv.is Beiðni DV um aðgang að lögfræðiálitum Fjármálaeftirlitsins og Seðlabankans var hafnað: Brutuhugsanlegalögmeðtilmælunum Sveinbjörn Ragnar Árnason FyrrverandieigandibílasölunnarBílamarkaðurinnsegirfjármögnunarfyrirtækinhafa starfrækt„svikamyllu“fráþvífyrirhrun. Lántakandi bifreiðarinnar Mercedes Benz C200 árg. 2005 missir hana vegna vanskila.  Áætlaðmarkaðsverð: 3.300.000 kr. Vörslusvipting/skoðun/verðmat Bifreiðinermetinniðurúröllusamhengi.                                      Viðgerðarkostnaðurhleypuroftáhundruðumþúsundakróna. Afföll: 15% Söluþóknun: 3% Annarkostnaður: Bifreiðintekinniðurumt.d.: 1.700.000 kr. Samtalserþvíbifreiðintekiná: 1.600.000 kr. Mismunurplús*eftirstöðvarerusendarlántakenda. (*Hér verður ekki tekið tillit til raunverulegrar stöðu skuldara vegna bílalánsins). nBifreiðinnierþvínæstkomiðísöluígegnumtryggðarviniSP-Fjármögnunar. Þröngurhópurvirðistfáaðsýslameðþessarbifreiðar. nFjármögnunarfyrirtækiðafhendirbílinná1.300.000kr.hrattogörugglegatil umræddrarbílasölu. nBifreiðinermeðháanálagningarstuðul,þvíkannaðverahægtaðseljahana alltaðþrisvarþartilhúnnærmarkaðsverðisínu.ÞvítelurSveinbjörnaðein ákveðinbílasalahafiíraungetaðseltbílaábrunaútsöluenþráttfyrirlágtverð hagnastumtalsvert.Íkringumþessarbílasölurhafimyndastaðilarsemhafa keyptbifreiðarnarmjöghrattogódýrtogselttilnæstaaðila.Þegarendanlegur aðili,semborgaru.þ.b.markaðsverð,hefureignastbifreiðinamááætlaaðtveirtil þríraðilarhafihagnastum300þúsundkrónurhver. nDæmineruennumfangsmeiriþegarumdýraribifreiðareraðræða. Dæmi Sveinbjörns af vörslusviptingu Þeir eru eins og hrægammar sem koma bara í vörur sem er hægt að græða á, þetta er bara lögmál og það er enginn að spá í þetta.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.