Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2010, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2010, Blaðsíða 4
4 fréttir 7. júlí 2010 miðvikudagur Gæti misst Galtalækjarskóg Svo gæti farið að Karl Wernersson missti Galtalækjarskóg sem hann keypti árið 2007. Þrotabú Milestone hefur höfðað mál á hendur honum þar sem það telur að hann hafi greitt lánið sem hann fékk frá Milestone til að kaupa landið með ólöglegum arð- greiðslum. Í frétt RÚV í gær kom fram að kaup Karls á landinu hefðu verið að hluta eða öllu greidd með lánum frá Milestone. Í DV á mánudag kom fram að Karl hefði fengið á milli fjórar og fimm milljónir fyrir útihátíð sem haldin var á landi hans í Galtalækjarskógi. Margir sáttir við tilmælin Haraldur Ólafsson, forstöðumaður verkefna- og þjónustusviðs hjá SP- Fjármögnun, segir að margir við- skiptavinir fyrirtækisins séu sáttir við tilmæli Seðlabankans og Fjármálaeftir- litsins og hafi leitað eftir því að ganga frá samningum sínum við fyrirtækið. Haraldur segir að stefnt sé að því að greiðsluseðlar verði sendir út samkvæmt tilmælum Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins 1. septemb- er næstkomandi. Segir hann að þetta verði gert þangað til Hæstiréttur leysi úr þeim réttarágreiningi sem stendur eftir um dóm um ólögmæti gengis- tryggingar lána. Segir stjórnkerfið alvarlega sjúkt Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinn- ar, vandar ríkisstjórninni ekki kveðj- urnar vegna tilmæla Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins um vaxtavið- mið vegna gengistryggðra lána. „Hugleysi ríkisstjórnarinnar [...] er orðið slíkt að þeir þora ekki lengur að tala íslensku og hafa nú gefið út fyrir- mæli sem heita tilmæli,“ segir Þór á bloggsíðu sinni. Hann segir að embættiskerf- inu hafi ekki tekist að rökstyðja hvers vegna tilmæli þess um vexti séu rökrétt. Stjórnkerfi sem geti sett slíkt ferli af stað sé „alvarlega sjúkt“. Viðskiptavinir Toyota-umboðsins fá reikninga frá eignarhaldsfélaginu M. Kristinssyni ehf. þegar þeir skipta við umboðið. Félagið heitir eftir útgerðar- manninum og fjárfestinum Magnúsi Kristinssyni frá Vestmannaeyjum sem var eigandi Toyota hér á landi fyrir hrun. Viðskiptavinur umboðsins sem fór með bíl sinn í viðgerð hjá Toyota fyrir skömmu hafði samband við DV til að greina frá þessu. Hann var ekki sátt- ur við að greiða reikninga sem gefn- ir væru út af þessu félagi vegna þess hversu skuldsettur Magnús er, en fyr- ir liggur að afskrifa þarf stóran hluta af um 50 milljarða króna skuldum hans við gamla Landsbankann. Maðurinn tók það þó fram að hann væri afar sáttur við þjónustu Toyota en að nafnið á eignarhaldsfélaginu sem rukkar fyrir þjónustu fyrirtækis- ins væri ekki heppilegt í ljósi íslenska efnahagshrunsins. Forstjóri Toyota, Úlfar Steindórsson, segist skilja að viðskiptavinir félagsins séu ekki sáttir við að greiða reikninga sem gefnir séu út af þessu félagi og að þessu verði lík- lega breytt á næstunni. Magnús Kristinsson var einn skuldugasti maðurinn í íslenska bankakerfinu á árunum fyrir efna- hagshrunið. Hann var einn af eig- endum fjárfestingarfélagsins Gnúps sem fjárfesti í hlutabréfum FL Group og Kaupþingi. Félagið var fyrsta stóra íslenska fjárfestingarfélagið sem fór á hliðina og markaði fall þess í ársbyrj- un 2008 upphafið að íslenska efna- hagshruninu. Ekki búið að breyta nafninu Úlfar segir að nafnið á fyrirtækinu sé tilkomið vegna þess að Magnús hafi átt Toyota og ekki sé búið að breyta nafninu enn þá. Kröfuhafar Toyota, nýi og gamli Landsbankinn, ætla sér að selja umboðið á næstunni upp í skuldir Magnúsar við bankana. Kröfu- hafarnir hafa ekki getað tekið Toyota- umboðið yfir vegna þess að höfuð- stöðvar Toyota í Evrópu setja sig upp á móti því að bankar eigi Toyota-um- boð. Því þarf að selja umboðið til ann- ars einkaaðila, þó ekki banka, án þess að nýi og gamli Landsbankinn taki það nokkurn tímann formlega yfir. „Þetta eru tvö fyrirtæki. Annars vegar Toyota á Íslandi, sem er inn- flutningsfyrirtækið, og síðan er M. Kristinsson, sem er skilgreindur sem söluaðili, en það sér um að selja bíl- ana og þjónusta þá,“ segir Úlfar en það var seinna félagið sem sendi út reikn- inginn sem viðskiptavinur Toyota var ósáttur við að fá. „Nafnið á þessu fé- lagi er einfaldlega tilkomið vegna þess að Magnús átti þetta og því hefur ekki verið breytt enn þá,“ segir Úlfar. Hann segir að nafnið á félaginu eigi rætur sínar að rekja til ársins 2006 þegar Toyota-umboðinu var skipt upp í tvö félög, Toyota á Íslandi og svo M. Kristinsson ehf. „Nafnið á Magnúsi var bara notað, eins frumlegt og það nú er,“ segir Úlfar. Magnús á enn innflutningsfyrirtækið Úlfar segir að Magnús eigi þó enn þá innflutningsfyrirtækið formlega séð vegna andstöðu Toyota í Evrópu við að bankar eigi innflutningsfyrirtæki Toyota hér á landi. „Hann tengist söluaðilanum ekki beint en er form- lega í rauninni enn þá eigandi að inn- flutningsfyrirtækinu. Það hefur ekki verið klárað enn þá. Það er félagið sem Landsbankinn hefur verið með í undir búningi að setja í söluferli,“ segir Úlfar en hann segir að það sama gildi um Toyota í Evrópu og mörg önnur sérleyfisfyrirtæki. „Þau eru öll sam- mála um það að það henti ekki að bankar eigi fyrirtæki,“ segir forstjórinn. En hver er aðkoma Magnúsar Kristinssonar að Toyota-umboðinu í dag? „Engin,“ segir Úlfar en bætir við í gríni að það eina sem í raun tengi Magnús við Toyota-umboðið í dag sé að Magnús keyri um á Toyota. „Nafnið er bara eitthvað sem er enn þá á félag- inu. Við erum búnir að vera að velta þessu fyrir okkur í töluverðan tíma, að breyta um nafn á félaginu, en það hef- ur ekki verið klárað. Þetta er kannski ekki rétt gagnvart neinum, meðal ann- ars Magnúsi, og ég reikna með að við breytum þessu á næstunni. Ég ætla að taka upp þessa umræðu hér inn- anhúss,“ segir Úlfar og bætir því við að Toyota hafi þó ekki fengið margar kvartanir út af nafninu. VIÐSKIPTAVINIR TOYOTA BORGA M. KRISTINSSYNI Forstjóri Toyota, Úlfar Steindórsson, segist skilja að ekki sé heppilegt að viðskipta- vinir fyrirtækisins fái reikninga frá eignarhaldsfélagi sem nefnt er eftir Magnúsi Kristinssyni, fráfarandi eiganda þess. Til stendur að selja Toyota á Íslandi en Magnús á félagið enn vegna þess að Toyota í Evrópu vill ekki að bankar eignist Toyota-umboð. ingi f. vilhjálMSSon fréttastjóri skrifar: ingi@dv.is Engin aðkoma Úlfar segir að Magnús tengist Toyota ekki neitt í dag þó svo að hann sé enn skráður eigandi innflutningsfyrirtækisins. Eina tenging Magnúsar við Toyota sé að hann aki um á Toyota-bíl. Ósáttur við að greiða M. Kristinssyni Einn viðskiptavina Toyota segist hafa verið ósáttur við að fá reikninga frá eignarhaldsfélaginu M. Kristinssyni ehf. Forstjóri Toyota segist skilja að ekki sé heppilegt að innheimtuaðili Toyota sé nefndur eftir Magnúsi og að því verði breytt. Nafnið á þessu félagi er einfald- lega tilkomið vegna þess að Magnús átti þetta og því hefur ekki verið breytt enn þá. „Skarfar eins og ég sem eru komn- ir með yfir 15 ár í starfsaldur eru komnir í hæsta launaflokk sérfræði- lækna með kr. 533.157 á mánuði,“ segir Sigurður Böðvarsson krabba- meinslæknir sem lætur ýmis stór orð falla um starfsumhverfi og launamál lækna á Íslandi í viðtali við Lækna- blaðið. Hann mun hætta störfum hjá Landspítalanum á næstunni, því hann hefur fengið stöðu við Gunder son-sjúkrahúsið í Wiscon sin í Bandaríkjunum. Í viðtalinu segir hann meðal annars frá vaktakaupi. „Jafnaðarkaup á þessum vöktum er nú 1.910 krónur, 25 aurar á klukku- stund. Um daginn var ég á helgar- vakt og gekk stofugang laugardag og sunnudag á hóp 19 sjúklinga sem voru vafalaust í hópi veikustu sjúk- linga spítalans [...] Dóttir mín vann á sama tíma við að afgreiða kaffi og kleinur í Húsdýragarðinum fyrir 1.850 krónur á tímann.“ Sigurður segist ekki skilja hvernig ungt fólk eigi að geta lifað á Íslandi. Sjálfur hafi hann eytt miklu púðri í 15 ára sérnám í krabbameinslækning- um, sem hafi ekki verið námslána- hæft að öllu leyti, og hafi lítið upp- skorið síðan. „Persónulega tók ég 24,3 milljónir til húsnæðiskaupa rétt áður en ballið byrjaði sumarið 2004. Þetta er hagstæðasta lán sem hægt er að fá á Íslandi, í íslenskum krónum, verðtryggt og „aðeins“ 4,15% vext- ir. Á þeim sex árum sem nú eru liðin síðan ég tók lánið hef ég greitt rúm- ar 10 milljónir inn á höfuðstólinn. Árangurinn af því nú er sá að í stað þess að hann hefði lækkað um ein- hverjar milljónir eins og maður hefði vænst í siðuðu samfélagi er hann nú  kominn í rúmlega 31 milljón króna. Mér þykir ólíklegt að ungt fólk flykk- ist hingað heim úr námi upp á þessi kjör nema þá að því hafi tæmst ein- hvers staðar góður arfur.“ helgihrafn@dv.is Sigurður Böðvarsson fær starf í Bandaríkjunum: Sérfræðilæknir flýr land flýr land Krabbameinslæknirinn Sig- urður Böðvarsson hefur ákveðið að flýja land vegna erfiðra aðstæðna á Íslandi. • Dregur úr vöðvaspennu • Höfuð- háls- og bakverkjum • Er slakandi og bætir svefn • Notkun 10-20 mínútur í senn • Gefur þér aukna orku og vellíðan Verð: 9.750 kr. Nálastungudýnan Opið virka daga frá kl. 9 -18 Sími 569 3100 • Stórhöfða 25 • www.eirberg.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.