Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2010, Blaðsíða 19
Myndin BoðBeri
er frumsýnd í dag. Þetta er fyrsta
mynd Hjálmars Einarssonar leikstjóra í
fullri lengd en myndin er gerð án
styrkja frá Kvikmyndasjóði. Hjálmar
segir myndina fjalla um uppreisn
einstaklinga í samtímasamfélagi.
Uppreisn í
samtímasamfélagi
Nú þegar sumarið er í hámæli, lík-
amar liggja úti um allt á Austurvelli
og jafnvel hefur heyrst af fólki sem
gengur hönd í hönd meðfram Ægi-
síðunni, er líklegt að margir séu að
spyrja sig eftirfarandi spurningar:
Er rómantísk ást til á Íslandi?
Halldór Laxness svarar því svo
í Paradísarheimt að rómantísk ást
hafi fyrst komið til Íslands á seinni
hluta 19. aldar. Illa fer þó fyrir ást
þeirri og söguhetjan endar sem ein
af ótal eiginkonum eldri mormóna.
En eru einhver dæmi um rómant-
íska ást hérlendis fyrir þann tíma
sem Laxness nefnir?
Íslendingasögurnar eru full-
ar af sögum af uppáferðum, og er
að minnsta kosti ein þeirra, Bósa
saga, tileinkuð þessu fyrirbæri sér-
staklega. Aðrar Íslendingasögur
segja frá lengri samböndum. Eitt
þekktasta dæmið má finna í Njálu,
þar sem Gunnar kvænist Hallgerði
vegna girndar, en ekki vegna þess
að þau séu samboðin hvort öðru
fjárhagslega. Allir vitrir menn mæla
gegn ráðahagnum, enda endar
þetta með ósköpum. Reglurnar eru
skýrar: Ef maður fellir hug til konu á
maður að ganga á fund föður henn-
ar og fá samþykki hans til hjóna-
bands. Allt annað hefur skelfilegar
afleiðingar.
Freyja, sól og máni
Það verður þó að hafa í huga að það
virðist afar fátítt að konur hafi ver-
ið giftar gegn vilja sínum. Það gerist
til dæmis oft í goðheimum að Freyja
sé lofuð einhverjum jötni í skiptum
fyrir veitta þjónustu. Æsirnir koma
sér þó ávallt undan því að efna lof-
orðið og svíkja heldur jötuninn með
því að breyta Loka í meri eða með
því að senda brúðgumanum Þór í
kvenmannsfötum í staðinn. Sömu
sögu má finna í Eyrbyggju, þar sem
berserkir eru drepnir á Vestfjörðum
eftir vel unninn störf, frekar en að
láta þá fá konuna sem þeim var lof-
að gegn vilja hennar.
Spes ást
En hvað með ást sem byggir ekki á
líkamlegri girnd? Um daginn spurði
dönsk stúlka hvort til væri ein-
hver dæmi um það sem hún kallaði
„ridderlig kærlighed“ í Íslendinga-
sögunum. Rolf Stavnem prófessor
í norrænum fræðum sagðist geta
nefnt tvö. Annars vegar var það þeg-
ar Þorsteinn drómundur, hálfbróð-
ir Grettis sterka fór til Miklagarðs,
þar sem hann var keyptur laus af
hefðarkonu sem hét því skemmti-
lega nafni Spes. Hitt er í Orkneyinga
sögu, þegar einn sögupersóna end-
ar í háborg rómantíkurinnar, París.
Ekkert dæmi virðist hins veg-
ar vera hægt að finna um rómant-
íska ást á Íslandi sjálfu. Svo virðist
vera að íslenskir karlmenn lagi sig
að breyttum aðstæðum í útlöndum,
en hirði lítt um slíkt heima fyrir. Ís-
lenskir karlmenn í ástarhug sjást
helst drafandi eftir Laugaveginum
aðfaranætur laugardaga og sunnu-
daga þar sem þeir eiga jafnerfitt
með gang og að mynda heilar setn-
ingar. En er við þá að sakast?
Saklausir karlmenn?
Tobba Marinósdóttir, sem þessa
stundina virðist vera helsti sér-
fræðingur Íslands í ástarmálum,
sagði um daginn frá 24 ára konu
sem hafði aldrei sofið hjá edrú.
Staðreyndin er nefnilega sú að ís-
lenskar konur eru sjaldnast í ást-
arhug nema eftir tíunda bjór.
Kannski höfum við bara aðlagast
aðstæðum hér líka? Ef til vill hafði
Halldór Laxness rangt fyrir sér, ef
rómantísk ást kom hingað á 19. öld
náði hún aldrei að skjóta rótum,
heldur hvarf inn í fjölkvænissam-
félagið í Utah. Og fólkið á Ægisíð-
unni er þá eflaust erlendir túristar.
Ef rómantísk ást átti einhvern tím-
ann séns hérlendis hvarf sá mögu-
leiki með lengdum opnunartímum
skemmtistaðanna. Því að korter
í þrjú gæinn er hrein hátíð miðað
við korter í sex gæjann.
Er rómantísk ást til á Íslandi?
Farið að reglum Þessi litla andafjölskylda var í göngutúr í miðborg Reykjavíkur á þriðjudag þegar ljósmyndari DV átti leið hjá.
Eins og löghlýðnum borgurum sæmir fór mamman með ungana sína yfir á gangbraut og komst litla fjölskyldan klakklaust leiðar
sinnar í fylgd vegfaranda. Mynd Hörður SveinSSon
1 EngEyjarprins í stórfram-kvæmdum Benedikt Einarsson
og Birgitta Haukdal, eiginkona
hans, standa í framkvæmdum við
Bakkaflöt í Garðabæ.
2 „órEiðufólk mun því nEita að borga samkvæmt tilmælum
þEirra“ Jónas Kristjánsson segir að
Seðlabankinn og FME séu réttilega
talin ganga erinda bankanna.
3 lEynist týnd stúlka í gröf mafíósa? Ítalska lögreglan
rannsakar dularfullt mannshvarf frá
árinu 1983.
4 margEir pétursson hættir í stjórn mp banka Margeir
Pétursson, stofnandi MP banka,
hættir í stjórn bankans um næstu
mánaðamót.
5 vilja Ekki samEinast skuld-ugu ÁlftanEsi Erling Ásgeirssyni,
formanni bæjarráðs í Garðabæ,
hugnast ekki að Garðabær taki við
skuldum Álftaness.
6 lÁ læstur í kistu í tvö og hÁlft Ár Indverjinn Rajan Killaker
fannst á lífi í líkkistu þar sem hann
hafði legið í tvö og hálft ár.
mest lesið á dv.is myndin
Hver er maðurinn?
„Hjálmar Einarsson, kvikmyndagerðar-
maður og handritari.“
Hvað drífur þig áfram?
„Að ná settum markmiðum.“
Hvar ertu uppalinn?
„Ég er Breiðhyltingur, úr Seljahverfinu.“
Hvað þykir þér skemmtilegast að
gera?
„Mitt líf er í 24 sekúndum. Það er bara
bíó.“
Áttu þér uppáhaldsleikstjóra?
„Það er alltaf erfitt að finna einhvern
einn, fer eftir dögum. Núna er það Milos
Forman.“
Hvaða myndir hefur þú gert á
undan þessari?
„Þetta er fyrsta myndin í fullri lengd.
En ég hef gert stuttmyndirnar Löglegir
krimmar og Gildran. Svo hef ég gert
haug af industry-myndum, auglýsingum
og tónlistarmyndböndum.“
um hvað fjallar Boðberi?
„Hún fjallar um uppreisn einstaklinga í
samtímasamfélagi.“
Hvað hefur myndin verið lengi í
vinnslu?
„Tæp tvö og hálft ár.“
Hvernig er að vera kvikmynda-
gerðarmaður á Íslandi í dag?
„Erfitt, sérstaklega þegar maður fær
aldrei styrki frá Kvikmyndasjóði. Þetta er
alveg sjálfstæð mynd.“
Hvaða verkefni eru fram undan?
„Það er ýmislegt á prjónunum. Ég er að
vinna að heimildarmynd og einnig að
vinna að tveimur handritum.“
Hvað ætlar þú að gera í sumarfrí-
inu?
„Frí, hvað er það?“
maður dagsins
kjallari
„Nei, ég er ekki sammála því að einn
hópur lántakenda hafi svo til enga vexti
á sínum lánum.“
Björn KarlSSon
51 ÁRS VERKFRæðINGuR
„Nei, en ég var þar í anda.“
loji HöSKuldSSon
23 ÁRA TóNLISTAR- oG LISTAMAðuR
„Ég hef ekki tekið þátt í þeim og það
stendur ekki til.“
Helga dögg ÞórSdóttir
29 ÁRA ÞRoSKAÞJÁLFI
„Nei, en ég vildi að ég gæti sagt já.“
rÁn Flygenring
22 ÁRA GRAFÍSKuR HöNNuðuR
„Nei, ég tók ekki þátt í þeim.“
KriStjana Mjöll Sigurðardóttir
50 ÁRA NÁMS- oG STARFSRÁðGJAFI
tókst þú þÁtt í mótmælunum við sEðlabanka íslands?
dómstóll götunnar
miðvikudagur 7. júlí 2010 umræða 19
„Svo virðist vera að íslenskir
karlmenn lagi sig að
breyttum aðstæðum í
útlöndum, en hirði lítt
um slíkt heima fyrir.“
valur gunnarSSon
rithöfundur skrifar