Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2010, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2010, Page 6
6 fréttir 22. september 2010 miðvikudagur Mátti ekki senda læknisvottorð starfsmanns á aðra starfsmenn: Bæjarstjóri braut lög Ásgerður Halldórsdóttir, bæjar- stjóri Seltjarnarness, braut per- sónuverndarlög þegar hún áfram- sendi læknisvottorð Ólafs Melsted, framkvæmdastjóra tækni- og umhverfissviðs á Seltjarnarnesi, í tölvupósti til nokkurra starfs- manna bæjarins. Þetta er úrskurð- ur Persónuverndar. DV hefur fjallað töluvert um mál framkvæmdastjórans og bæjar- stjórans undanfarna mánuði. Deil- ur Ólafs og Ásgerðar hófust fyrir um ári þegar bæjarstjórinn kallaði framkvæmdastjórann á fund og, að hans sögn, veitti honum munn- lega áminningu í starfi. Í kjölfar- ið leitaði hann liðsinnis lögmanns sem krafðist skriflegra svara um áminninguna. Ólafur fór svo í veik- indaleyfi í janúar og hefur verið frá störfum síðan. Deilurnar nú snúast einmitt um læknisvottorð vegna veikindanna sem Ásgerður áfram- sendi til nokkurra starfsmanna bæjarins þann 27. janúar. Ólafur taldi að Ásgerði hafi ver- ið óheimilt að áframsenda vottorð- ið og ákvað því að leita til Persónu- verndar. Lögmaður Seltjarnarness mótmælti í erindi til nefndarinnar að Ásgerður hefði brotið lög. Upp- lýsingarnar sem fram komu í vott- orðinu hafi verið almenns eðlis og ekki að finna sérstakar upplýsingar um heilsufar eða lýsingu sjúkdóms Ólafs. Það var hins vegar mat Persónu- verndar að um hafi verið að ræða viðkvæmar persónuupplýsingar í skilningi gildandi laga og ekkert hafi komið fram í gögnum máls- ins um að nauðsynlegt hafi verið að senda læknisvottorðið á aðra starfsmenn. Í samtali við DV í síðasta mán- uði sagðist Ólafur vera að undirbúa málsókn gegn bænum. Snýr málið að meintu einelti bæjarstjórans í hans garð, auk þess sem hann seg- ist hafa verið tekinn af launaskrá þrátt fyrir að hafa fengið framleng- ingu á veikindaleyfi sínu. „Það er allt í fullum gangi ennþá. Álit Per- sónuverndar er inn í þann banka og ætti að styrkja minn málstað enn frekar,“ segir Ólafur í samtali við DV. einar@dv.is Braut lög Bæjarstjóranum var óheimilt að senda læknisvottorðið á aðra starfsmenn. Fyrrverandi ráðuneytisstjóri: Forsetinn að skilja heiminn Róbert Trausti Árnason, fyrrver- andi ráðuneytisstjóri utanríkisráðu- neytisins og starfsmaður Samtaka atvinnulífsins í Brussel, segir að svo virðist sem Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sé byrjaður að skilja heiminn. Hann gagnrýnir Ólaf fyrir að hafa aldrei komið í heimsókn til alþjóðastofnana í Brussel til að kynna sér heimsmálin. „Kínverjar eru hins vegar hér, sem mý á mykjuskán. Þeir skilja heiminn. Enda vel að sér um öll heimsmál,“ segir Róbert Trausti í pistli sem hann ritar á vef Pressunn- ar. Róbert segir að Ólafur virðist hins vegar hafa fengið brennandi áhuga á nýjustu heimsmálunum í Kína – Norðurskautsmálunum. „Ég er mjög hissa á þessu, því ég hélt að forsetinn hefði ekki nokkurn áhuga á þessum málum. Að Norður- heimskautið hefði einfaldlega ekki nóg seiðmagn fyrir forsetann. Gott að mér skjátlast. Hér er sennilega orðin breyting á viðhorfum forset- ans, og ef svo er, þá ber að fagna því,“ segir Róbert og bætir við að Ólafur sé þar með orðinn öflugur liðsmað- ur í þeirri viðleitni atvinnulífsins að nýta tækifærin sem siglingar um svæðið bjóða upp á. „Það blasir við að forseti Íslands, Ólafur Ragn- ar Grímsson, er byrjaður að skilja heiminn.“ Leynd í Lúxemborg Nítján félög í Lúxemborg og bankinn Banque Havilland vilja ekki að emb- ætti sérstaks saksóknara fái gögn úr bankanum afhent í tengslum við rannsókn þess á markaðsmisnotkun Kaupþings. Frá þessu greindi frétta- stofa Stöðvar 2 á þriðjudagskvöld. Fram kom að nú sé rannsókn máls- ins í biðstöðu þar sem beðið er úr- skurðar rannsóknardómara í Lúx- emborg um afhendingu gagna sem fengin voru í húsleit hjá Banque Havilland í Lúxemborg í febrúar. Það munu hafa verið forsvarsmenn nítj- án félaga og Banque Havilland sem kærðu afhendingu gagnanna. Hagfræðideild Landsbankans spáir því að peningastefnu- nefnd Seðlabankans muni lækka stýrivexti um 0,75 pró- sentustig á vaxtadegi á þriðju- dag. Stýrivextir verði því 6,25 prósent. Þetta kemur fram í til- kynningu frá bankanum. Hagfræðideildin telur að ólíklegt sé að peningastefnu- nefndin verði jafn djörf og í ágúst þegar hún afréð að lækka stýrivextina um eitt prósentu- stig. Ástæðan er sögð sú að nú styttist í að efnahagsáætlun íslenskra stjórnvalda verði tek- in fyrir hjá Alþjóðagjaldeyris- sjóðnum. LandsBankinn: Stýrivextir lækki Leigjendur eru illa settir á leigumarkaði. Leiguverð er oft hærra en afborganir sem sliga eigendur íbúðarhúsnæðis og margar kvartanir berast Neytendasamtökunum vegna óíbúðarhæfra íbúða og ótryggs ástands. Framkvæmdastjóri Neytendasam- takanna segir leigumarkaðinn á Íslandi ekki sambærilegan við nágrannalönd. MIKIL VANDRÆÐI Á LEIGUMARKAÐI Hátt leiguverð, uppurið trygg- ingafé, óíbúðarhæft húsnæði og ótryggur leigutími eru helstu um- kvörtunarefni leigjenda á íslensk- um leigumarkaði. Hann hefur þanist út síðustu misseri í kjölfar efnahagshrunsins. Margar fjölskyldur hafa misst húsnæði sitt og neyðast á leigu- markað og með þeim eykst krafan um betri þjónustu við leigjendur. Þetta má merkja í flóði kvartana til Neytendasamtakanna vegna leigumála. Allt árið í fyrra bárust 218 erindi eða fyrirspurnir vegna leigumála, en þá voru leigumál í 11. sæti yfir fyrirferðarmestu flokk- ana. Gera má ráð fyrir að erindin í ár verði um 400 svo um talsverða aukningu er að ræða og stefnir í að kvartanir vegna leigumála verði einn af þremur efstu málaflokkum Neytendasamtakanna. Neytendasamtökin geta þó enn sem komið er ekki brugðist við þeim öllum því ágreiningur um húsaleigu þar sem leigusali er ein- staklingur, fellur ekki undir neyt- endamál. „Við erum ekki leigjendasam- tök,“ segir Hildigunnur Hafsteins- dóttir, lögfræðingur Neytenda- samtakanna, sem segir að oft sé ekki beinlínis um neytendamál að ræða þar sem staðan sé oftast sú að einn einstaklingur leigir öðrum. „Við hófum ekki skráningu á húsa- leigumálum sem sérstökum flokki fyrr en árið 2009 en þá höfðum við tekið eftir talsverðri aukningu og töldum því rétt að skrá þessi mál sérstaklega.“ stuðningur stjórnvalda lítill Þuríður Hjartardóttir, fram- kvæmdastjóri Neytendasamtak- anna, segir það hafa verið stefnu stjórnvalda í áratugi að beina al- menningi í kaup eða byggingu á eigin húsnæði fremur en að tryggja honum stöðugan og ódýran húsa- leigumarkað. Leigumarkaður á Ís- landi hafi þannig alltaf verið mjög ólíkur öðrum þjóðum og almenn- ingsálitið sé fremur að þetta úr- ræði sé tímabundið eða sökum fá- tæktar. „Það er mjög ólíkt nágranna- þjóðum okkar, sem hafa góðan og tryggan húsaleigumarkað,“ seg- ir Þuríður. „Um leið hefur hags- munabarátta leigjenda einnig ver- ið merkt þessu almenningsáliti og ekki fengið sterkar raddir eða stuðning frá stjórnvöldum. Eftir hrunið hefur þetta eitthvað breyst og nú þykir skynsamlegt að leigja fremur en festa sig í verðtryggð- um húsnæðislánum á háum vöxt- um. Svo ekki sé talað um þær fjöl- skyldur sem hafa misst allt sitt og eru tilneyddar til að fara út leigu- markaðinn. En fasteignamarkað- ur á Íslandi er mjög óstöðugur og erfitt að spá um hvert framhaldið verður,“ segir Þuríður. eldri kona tapaði tryggingafé Þuríður tekur dæmi um mál sem koma inn á borð Neytendasamtak- anna. „Eldri kona hafði verið með íbúð á leigu í nokkur ár. Við upp- haf leigutímans hafði hún innt af hendi tryggingarfé sem hún krafð- ist svo skila á þegar leigutíman- um lauk. Á leigutímanum hafði hún flutt í aðra íbúð í eigu leigu- sala og bárust þau svör að trygg- ingarféð væri uppurið þar sem það hefði verið notað til að bæta skemmdir á fyrri íbúðinni. Kon- unni hafði hins vegar aldrei ver- ið tilkynnt um neinar skemmdir. Konan leitaði til leiðbeininga- og kvörtunarþjónustunnar sem hafði milligöngu í málinu sem lauk með því að ákveðið var að endurgreiða helming fjárins, uppreiknað sam- kvæmt verðtryggingu og áföllnum vöxtum.“ Neytendasamtökin hafa boð- ið félagsmálaráðuneytinu til við- ræðna um að opna leiðbeininga- stöð gegn þjónustusamningi. Ráðuneytið hefur ekki enn brugð- ist við tilboði samtakanna sem fóru á fund þáverandi félagsmálaráð- herra í maí á þessu ári. kristjana guðBrandsdóttir blaðamaður skrifar: kristjana@dv.is Það er mjög ólíkt nágranna- þjóðum okkar, sem hafa góðan og tryggan húsaleigumarkað. Hildigunnur Segir kvartanir vegna leigumála flæða inn til Neytendasam- takanna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.