Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2010, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2010, Blaðsíða 8
8 fréttir 22. september 2010 miðvikudagur Guðmundur Jóhannesson ellilífeyris- þegi fær á bilinu 48 til 69 þúsund krónur á mánuði frá Tryggingastofn- un. Þá fær hann um þúsund krón- ur á mánuði frá lífeyrissjóðnum gildi og 53 þúsund krónur frá Lífeyrissjóði verzlunarmanna. Flesta mánuði þarf hann að draga fram lífið á 121 þúsund krónum á mánuði. Eiginkona hans er öryrki. Hann á að baki 56 ára starfs- feril á vinnuvélum og í erfiðisvinnu og segist aldrei hafa tekið sér svo mik- ið sem sumarfrí um ævina. Ekki einu sinni farið til útlanda. Hann segir það skelfilegt að lækka svona harkalega í launum við það að fara á ellilífeyri. Við blasi ekki áhyggjulaust ævikvöld, heldur þurfi hann að treysta á yfir- dráttarheimild hjá bankanum. Að- spurður um hvað hann sjái fram á í ellinni, svarar hann: „Ég sé bara ekki fram á nokkurn skapaðan hlut. Nema þá bara mótmæli.“ Krafinn um endurgreiðslu Síðasta starf Guðmundar áður en hann fór á eftirlaun var hjá verktaka- fyrirtæki sem varð gjaldþrota árið 2008. Hann átti inni fjögurra mánaða laun hjá fyrirtækinu og fékk á endan- um hluta þeirrrar kröfu greidda, alls um 593 þúsund krónur. Margir mán- uðir liðu hins vegar frá því honum var sagt upp störfum hjá fyrirtækinu þar til hann fékk launin. Þegar þessi greiðsla barst Guðmundi, ákvað Trygginga- stofnun ríkisins að krefja hann um endurgreiðslu upp á um 123 þúsund krónur vegna ofgreiðslu bóta. Ekki eru bæturnar frá Tryggingastofnun háar fyrir, en hann hefur síðustu mánuði þurft að taka á sig skerðingu upp á allt að 18 þúsund krónur á mánuði. „Þetta er ekkert annað en rán hjá Trygginga- stofnun,“ segir Guðmundur og bæt- ir við: „Á síðasta ári vann ég fyrir 900 þúsund krónum brúttó og þeir virðast ætla að taka nærri 20 þúsund á mán- uði af því sem ég á að greiða til baka hjá Tryggingastofnun.“ Guðmundur er svartsýnn á fram- tíðina. „Öllum lífeyrinum mínum var stolið þegar Lífeyrissjóður vörubíl- stjóra fór á hausinn. Ég fæ borgað út úr honum 1.050 krónur á mánuði. Svo fæ ég 53 þúsund frá Lífeyrissjóði verzl- unarmanna. Ég átti að fá 60 þúsund frá þeim en þeir lækkuðu framlagið,“ segir Guðmundur alvarlegur í bragði . Ekkert norrænt velferðarþjóð- félag „Ég hefði ekki farið á ellilaun ef ég hefði vitað að þetta væri svona. Þetta er ekk- ert réttlæti og þetta er ekki norrænt velferðarþjóðfélag. Þetta er þjófnaður af hálfu Tryggingastofnunar og það á háu stigi,“ segir hann. Guðmundur verður sjötugur í næsta mánuði, en sér ekki fram á að geta haldið almennilega upp á stór- afmælið. „Hvar á ég að halda upp á af- mælið mitt?,“ spyr hann og bendir á að að ekki séu allir svo lánsamir að haldin sé landssöfnun til styrktar þeim þegar þeir ná sjötugu. Aðspurður um hvaða áhrif það hafi á daglegt líf að hafa svona lágar tekj- ur, svarar hann: „Þetta er bara alveg skelfilegt. Það getur enginn lifað á 122 þúsund krónum á mánuði. Maður get- ur bara ekki hreyft sig, þó mann lang- aði til þess að gera eitthvað og eiga sér hobbí. Það er bara ekki hægt, alveg útilokað. Maður er bara útilokaður frá heiminum. Ég safnaði aldrei neinum milljónum. Ég hef staðgreitt allt sem ég hef keypt. Ég ek um á gömlum Toy- ota, árgerð 1996, sem ég staðgreiddi á sínum tíma.“ Spáir ofbeldi Guðmundur segir að hann hefði þurft að fá að lágmarki 80 þúsund krónur á mánuði frá Tryggingastofnun til þess að endar næðu saman. Það sé alveg lágmarkið. „Þá væri ég kominn með 152 þúsund á mánuði og það myndi sleppa að borga af íbúðinni. Ég næ ekki að borga af íbúðinni núna. Ég hef reynt að standa í skilum með því að hafa yfirdrátt,“ segir hann. Guðmund- ur segist ekki enn vera kominn í van- skil. „En það fer að líða að því. Þetta er stórkostlegur þjófnaður. 155 þús- und krónur er sagt vera lágmarkið fyrir eldri borgara og þá á ég að hafa það.“ Hann segist skera við nögl í öllum innkaupum og borði aðallega hafra- graut. „Það er ekki einu sinni grjóna- grautur með rúsínum í boði. Maður hefur ekki efni á að borga fyrir rúsín- ur enda er ríkisstjórnin búin að setja aukaskatt á þetta allt. Ég er ekkert hissa á því að fólk standi í biðröðum fyrir utan hjálparstofnanir þegar stað- an er svona.“ Guðmundur segist ekkert hafa á milli handanna. „Bara hreint ekki neitt. Arion banki dregur af mér 90 þúsund á mánuði fyrir íbúð, hita og rafmagn. Þá er eftir í mesta lagi 20–30 þúsund fyrir mat og þá verður maður að sníða sér stakk eftir vexti. Það er ekki einu sinni hægt að fá sér neftóbaksdós til að róa taugarnar. Gömlu kallarnir gerðu það áður fyrr; þeir fengu sér í nefið.“ Hann fer hörðum orðum um nið- urskurðaraðgerðir Árna Páls Árnason- ar sem bitnuðu á eldri borgurum, kall- ar lög frá því í júlí í fyrra hryðjuverkalög og segir Árna vera þjóf. „Menn hljóta að fara að gera eitthvað. Það væri gaman vita hvað Guðbjartur Hannes- son ætlar að gera við þetta fólk. Ann- ars verður bara uppreisn hérna. Það er ekkert annað,“ segir hann og spáir jafnvel ofbeldisaðgerðum. „Það væri auðvitað skelfilegt. Ég hef aldrei verið ofbeldismaður um ævina.“ „ÞETTA ER EKKERT RÉTTLÆTI“ Guðmundur Jóhannesson verður 70 ára í haust. Hann er ellilífeyrisþegi en þarf að láta sér um 120 þúsund krónur í heild- artekjur á mánuði að góðu verða. Hann var krafinn um endurgreiðslu á bótum frá Tryggingastofnun í fyrra, þrátt fyrir að hafa haft innan við 900 þúsund krónur fyrir árið. „Maður er bara útilokaður frá heiminum,“ segir hann. valGEir örn raGnarSSon blaðamaður skrifar: valgeir@dv.is Erfitt ÆViKVÖLD n mánaðargreiðslur frá gildi Lífeyrissjóði: 1.054 krónur á mánuði. n mánaðargreiðslur frá Tryggingastofnun: 48–69 þúsund á mánuði. n mánaðargreiðslur frá Lífeyrissjóði verzlunarmanna: 53.397 krónur n afborganir af íbúð, hita og rafmagni: um 90 þúsund krónur. n afgangur til matarkaupa: Oftast um 20–30 þúsund á mánuði. Nafn: guðmundur Jóhannesson Aldur: 69 ára Starfsferill: 56 ár Það er ekki einu sinni hægt að fá sér nef- tóbaksdós til að róa taugarnar. Gömlu kallarnir gerðu það áður fyrr; þeir fengu sér í nefið. Guðmundur Jóhannesson „Þaðerekki einusinnigrjónagrauturmeðrúsínumí boði.Maðurhefurekkiefniáaðborgafyrir rúsínurendaerríkisstjórninbúinaðsetja aukaskattáþettaallt.“Mynd róbErt rEyniSSon

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.