Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2010, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2010, Side 12
12 FRÉTTIR 22. september 2010 MIÐVIKUDAGUR Gagnrýni og varnaðarorð Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra vegna ákæru á hendur ráðherrum veldur titr- ingi á Alþingi. Óljóst er hvort þingsá- lyktunartillögur um málshöfðun gegn þremur til fjórum fyrrverandi ráð- herrum njóti meirihlutafylgis innan þingsins. Nokkrir þingmenn Samfylk- ingarinnar lýstu efasemdum um máls- höfðunina á Alþingi í gær með svip- uðum rökum og fram höfðu komið í ræðu Jóhönnu. Ræða hennar í fyrra- dag kom mörgum þingmönnum VG verulega á óvart, ekki síst fyrir hversu afdráttarlaus gagnrýni hennar á þing- mannanefndina var. Mál nokkurra stjórnarliða, sem DV ræddi við í gær, var að Jóhanna hefði varpað sprengju inn í umræðuna um ráðherraábyrgð með ræðu sinni í fyrradag. Björn Valur Gíslason, þingmaður VG, segir að fyrir sér sé málið fjarri því að vera eins flókið og vinnan við sársaukafullan niðurskurð á vegum velferðarstjórnar jafnaðar- og vinstri- manna. „Nefndin vann sín störf á for- sendum laganna. Það er undarleg til- hugsun að hafa bærilega góð lög um ráðherraábyrgð og landsdóm án þess að reyna að nýta þau þegar ærið til- efni er til. Hér í landinu býr nú skuld- ug og reið þjóð við atvinnuleysi. Þrátt fyrir einhver álitamál verða mannrétt- indi ráðherranna virt að áliti helstu sérfræðinga. Þetta er mál sem er auð- velt fyrir mig að taka ákvörðun um í samanburði við sársaukafullan en óhjákvæmilegan niðurskurð innan velferðarkerfisins. Ég á aðild að þing- meirihluta sem kennir sig við velferð og niðurskurðurinn heldur frekar fyr- ir mér vöku en fáein álitamál varðandi landsdóm og ráðherraábyrgð,“ segir Björn Valur. Engin stjórnarslit Þingmenn innan Samfylkingarinnar eru ekki eins afdráttarlausir og telja vandasamt að horfa fram hjá því að Alþingi er nú í hlutverki saksóknara. Einn þeirra spyr jafnframt hvað gerast muni ef landsdómur sýknar ráðherr- ana eða vísar málum þeirra frá dómi á lagalegum forsendum. „Þurfa þá þingmenn, sem voru í hlutverki sak- sóknara, ekki að segja af sér?“ Skúli Helgason, Samfylkingunni, sagði að sú tilraun að skipa þing- mannanefnd til að fara yfir rann- sóknarskýrslu Alþingis, hefði mistek- ist. Nefndin var þríklofin um saksókn gegn ráðherrum þó svo að 7 af 9 nefndarmönnum hafi skrifað undir þingsályktunartillögur um málshöfð- un á hendur þremur til fjórum ráð- herrum. Ólína Þorvarðardóttir, Samfylking- unni, sagði í ræðu að mannréttindi og almannaheill stæðu ávallt ofar öðrum rökum í málinu þegar þingmenn hug- leiddu saksókn á hendur ráðherrum. Þingmenn Hreyfingarinnar lýstu undrun sinni á ræðu Jóhönnu á þing- fundi í gær og taldi Þór Saari víst að þingmenn VG gætu ekki sætt sig við málatilbúnað samstarfsflokksins. Úr ræðustóli benti Þór á að 13 þingmenn Sjálfstæðisflokks og 10 þingmenn Samfylkingarinnar hefðu stutt „hrun- stjórnina“, sem hann kallaði svo. Þótt málið sé eldfimt töldu liðs- menn hvorugs stjórnarflokkanna í gær að það setti samstarf stjórnar- flokkanna í uppnám. Rök Jóhönnu Jóhanna Sigurðardóttir sagði í and- svari á Alþingi í fyrradag – eftir að hafa flutt ræðu sína um saksókn gegn ráð- herrum – að hún talaði aðeins fyr- ir sig og sem þingmaður. Orð hennar hafa þó meira vægi en annarra þing- manna þar sem hún er forsætisráð- herra. Viðbrögð Atla Gíslasonar, for- manns þingmannanefndarinnar, verða meðal annars að skoðast í því ljósi en hann taldi jafnvel að höggva yrði á hnútinn með þingkosningum innan tíðar. Ræða hennar og nokk- urra annarra þingmanna Samfylking- arinnar á Alþingi í gær þykir ýmsum þingmönnum benda til þess að Sam- fylkingin hafi lagst í svipaða vörn fyr- ir Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur og Björgvin G. Sigurðsson og Sjálfstæð- isflokkurinn fyrir tvo fyrrverandi ráð- herra sína, þá Geir H. Haarde og Árna M. Mathiesen. Þráinn Bertelsson, sem genginn er til liðs við VG, brást illa við málflutn- ingi Árna Páls Árnasonar, efnahags- og viðskiptaráðherra, á þingfundi í gær. Ekki hefði verið ástæða til að taka mark á orðum Jóhönnu þar sem hún hefði setið í „hrunstjórninni“. Öðru máli gegndi um Árna Pál sem ekki átti sæti í henni. Þótti Þráni sem hann hefði dregist inn í ameríska lögfræði- sápu af billegri gerðinni. „Þessi mál- futningur á heima í réttarsal. Það vill svo til að ég er staddur í þingsal. Hér er ekki verið að sækja mál eða verja mál. Hér er verið að fjalla um þings- ályktunartillögu nefndar sem hefur unnið gott starf sem allir hafa sam- einast um að róma [...] Allir hafa tal- að um það að hér þurfi að breyta öll- um sköpuðum hlutum, lagfæra, færa á betri veg, opna og gera gegnsærra að tillögum nefndarinnar. En þegar kemur að því að taka ábyrgð er sam- spillingin á fullu.“ Einbeittar viðvaranir Óvæntar og einbeittar viðvaran- ir Jóhönnu til þingheims voru einn- ig studdar ýmsum rökum sem varla geta talist bera vott um pólitíska sér- hygli. Það á einnig við um andstöðu sjálfstæðismanna við málshöfðun gegn ráðherrum en þeir hafa bent á meinbugi sem snúa meðal annars að mannréttindum og formlegri saka- málarannsókn. Í ræðunni, sem öllu fjaðrafokinu olli, kvaðst Jóhanna á löngum þing- mannsferli hafa flutt tillögur um end- urskoðun og breytingar á lagaum- gjörð ráðherraábyrgðar sem nú reynir í fyrsta skipti á. Hefur hún meðal ann- ars lagt til að kannaðir verði kostir og gallar þess að leggja af landsdóm og að ábyrgð og saknæmi ráðherra yrði vegið og metið fyrir almennum dóm- stólum. Þess má geta að seint á tíunda áratugnum var mælt með endurskoð- un laga um ráðherraábyrgð með- al annars á grundvelli ófullnægjandi refsiheimilda og ákvæða sem reyna um of á mat dómenda í núgildandi lögum. Þessar tillögur komu fram eftir að þingið samþykkti árið 1998 þings- ályktunartillögu frá Jóhönnu um rétt- arbrot í stjórnsýslunni. Í ræðu sinni benti Jóhanna í öðru lagi á breytt viðhorf og þróun á sviði mannréttinda, meðal annars um rétt- láta málsmeðferð. Hún vísaði til þess að mjög svipað landsdómskerfi væri í Danmörku og Mannréttindadómstóll Evrópu hefði í svonefndu Tamílamáli komist að því að landsdómskerfið bryti ekki í bága við mannréttinda- sáttmála Evrópu. Hún benti þó á að viðkomandi ráðherra hefði vísvitandi brotið lög, fengið öll gögn í hendur og átt þess kost að koma sjónarmið- um sínum á framfæri á öllum stigum málsins. Óeðlilegt fyrirkomulag Í þriðja lagi gerði Jóhanna athuga- semdir við að sakborningar gætu ekki fengið mál sitt endurskoðað á æðra dómsstigi. Reyndar benti Jó- hanna á annmarka á skipan í lands- dóm sem gæfi tilefni til efasemda um hlutleysi og hæfi dómstólsins. Hún benti á að síðast þegar valið var í dóminn hefðu Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur verið við völd. Í fjórða lagi taldi Jóhanna eðlilegt að þingnefndin hefði leitað skriflegs álits til að mynda hjá Feneyjanefnd- inni sem fjallar um stjórnskipunar- rétt á vegum Evrópuráðsins. Spyrja hefði mátt nefndina hvort réttarstaða JÓHANN HAUKSSON blaðamaður skrifar: johannh@dv.is SAKSÓKN GEGN RÁÐ- HERRUM Í UPPNÁMI Þetta er mál sem er auðvelt fyrir mig að taka ákvörðun um í samanburði við sársaukafullan en óhjá- kvæmilegan niðurskurð innan velferðarkerfisins. Renni málshöfðun gegn þrem- ur til fjórum ráðherrum út í sandinn virðist einsýnt að aðeins stjórnendur og helstu eigendur föllnu bankanna verði kallaðir til ábyrgðar og dæmdir vegna bankahruns- ins en hvorki ráðherrar né embættismenn. Þótt Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráð- herra hafi varpað sprengju inn í umræðuna um málshöfðun Alþingis gegn ráðherrum eru engin merki þess að það hafi áhrif á stjórnarsamstarfið. Forsætisráðherra Málnokkurrastjórnarliða, semDVræddiviðígær,varaðJóhanna hefðivarpaðsprengjuinníumræðunaum ráðherraábyrgðmeðræðusinniífyrradag. MYNDIR SIGTRYGGUR ARI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.