Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2010, Síða 25
HANDBOLTINN HEFST Í kvöld, miðvikudag, hefst
handknattleikstímabilið formlega með meistarakeppni HSÍ. Þar eig-
ast við lið Hauka og Vals enn eitt árið en Haukar eru ríkjandi Íslands-
og bikarmeistarar. Valur tapaði fyrir Haukum í úrslitum bikarsins og
í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn. Miklar breytingar hafa
orðið á liðunum í N1-deildinni en Valsmenn hafa misst nánast heilt
byrjunarlið og fengið nýtt í staðinn. Haukar hafa verið afar sterkir á
undirbúningstímabilinu þrátt fyrir mikla blóðtöku og verður í meira
lagi fróðlegt að sjá hver hampar fyrsta bikar ársins.
STJÖRNUFAGNAÐARLÆTIN Á EUROSPORT Þó svo
Stjörnumenn Bjarna Jóhannssonar virðist hafa lagt upp laupana fyrir löngu í Pepsi-
deildinni rís frægðarsól leikmanna liðsins vegna víðfrægra fagnaðarláta alltaf hærra.
Í einum helsta markaþætti heims, Eurogoals á Eurosport, var drjúgt innslag um hátt
Stjörnumanna í fagnaðarlátum en marg oft hefur verið greint frá hinum og þessum
fjölmiðlum sem hafa komið til landsins að ræða við Stjörnustrákana. Stjórnendur
Pepsi-markanna á Stöð 2 Sport sögðust þó í síðasta þætti vera komnir með nóg af
þessu. „Það er bara ein umferð eftir. Við ættum að geta þolað þetta aðeins lengur,“
sagði Magnús Gylfason sem er annars orðinn þreyttur á tilraunum Stjörnumanna.
MOLAR
ERFIÐARA Í ENSKU
n Portúgalski varnarmaðurinn
Ricardo Carvalho sem gekk í raðir
Real Madrid frá Chelsea í sumar segir
mun erfiðara
að spila í ensku
úrvalsdeildinni
en þeirri
spænsku. „Þegar
ég byrjaði að spila
fyrir Chelsea var
það mun erfiðara
fyrir mig en þegar
ég byrjaði að
spila fyrir Real. Ég ólst upp í Portúgal
þar sem boltinn er mjög líkur
þeim sem spilaður er hér á Spáni,“
segir Carvalho sem kostaði Real 6.75
milljónir punda í sumar. „Ég hef notið
verunnar hjá Real enn sem komið er
og það er frábært að vera aftur undir
stjórn Mourinho,“ segir Carvalho.
BECKHAM Í TRÍNIDAD
OG TÓBAGÓ
n David Beckham gerir nú hvað hann
getur svo England fái að halda heims-
meistarakeppnina í knattspyrnu árið
2018. Beckham
er andlit breskrar
knattspyrnu og
langfrægasti
knattspyrnu-
maður þjóðar-
innar frá upphafi.
Beckham er þessa
dagana að fylgjast
með heims-
meistarakeppni u17 ára landsliða
kvenna sem fram fer í Trínidad og
Tóbagó. Að keppninni lokinni mun
hann halda risaknattspyrnuhátíð til
að skora stig hjá FIFA. „Trínídad og
Tóbagó hefur skapað marga frábæra
leikmenn,“ segir Beckham en hann
vann þrennuna með líklega þeim
allra besta, Dwight Yorke.
SKELLTU Á HICKS
n Stuðningsmenn Liverpool fögnuðu
margir á þriðjudaginn þegar þær
fregnir bárust að eignarhaldsfélagið
Blackstone hefði
slitið viðræðum
við eiganda
Liverpool, Tom
Hicks, sem
vonaðist til að
taka aftur við
félaginu. Í síðustu
viku hitti Hicks
stjórnarformann
félagsins, Martin Broughton, sem
var settur yfir af Royal Bank of Scot-
land til þess að selja félagið. Hicks
lét Broughton vita af áætlun sinni
um að styrkja Liverpool með 237
milljóna dollara innspýtingu. Þær
fréttir leiddu af sér þær sögusagnir
að Blackstone ætlaði sér að gefa Tom
Hicks tækifæri á að greiða niður
skuldir félagsins.
HVERT FER GIVEN?
n Írski markvörðurinn Shay Given
hefur sætt sig fyrr við stöðu sína hjá
Manchester City en honum var gert
það ljóst eftir
fyrstu tvo leikina
að Joe Hart yrði
aðalmarkvörður
liðsins. Nú þarf
Given að dúsa á
bekknum fram að
áramótum, eða
þar til janúar-
glugginn opnar.
Mörg lið eru áhugasöm um Given,
þá sérstaklega Arsenal, en eftir fréttir
af kaupum á Maarten Stekelenburg
þykir líklegra að Given fari aðeins
að láni til Lundúna. Einnig hefur
Newcastle verið orðað við Given en
hann lék lengi með liðinu. Þýska liðið
Werder Bremen er einnig sagt hafa
haft samband við City samkvæmt
frétt í Daily Mail.
Einn alfærasti bardagaíþróttamaður
Íslands, Árni Ísaksson, betur þekktur
sem Árni „úr járni“, snýr aftur í búr-
ið þann 9. október þegar hann mætir
Norður-Íranum Scott Clist í MMA eða
blönduðum bardagalistum. Sú stað-
reynd að Árni sé að fara keppa aftur er
ótrúleg í ljósi þeirra meiðsla sem hann
varð fyrir á æfingu árið 2006.
Árni sleit þá nær allt sem hægt var
að slíta í öðru hnénu og töldu læknar
að hann gæti hugsanlega aldrei geng-
ið venjulega aftur. Hann er þó kom-
inn á fætur og rúmlega það. Árni æfir
nú með John Kavanagh, einum fær-
asta þjálfara heims, sem hefur meðal
annars haldið mikið utan um Gunnar
Nelson.
Áður en Árni meiddist var hann
búinn að skapa sér nafn í heimi
blandaðra bardagalista. Hann á að
baki ellefu bardaga, þar af átta sigra
og þrjú töp. Hann hefur bæði keppt
við og unnið bardagakappa sem í
dag eru á samningi hjá UFC, stærsta
MMA-sambandi heims. Frægt var
árið 2006 þegar Árni barðist þríveg-
is sama kvöldið og lagði alla sína
andstæðinga, þeirra á meðal Denn-
is Siver sem unnendur UFC ættu að
kannast við.
Árni keppir 9. október gegn Scott
Clist og svo á hann annan bardaga
13. nóvember sem fram fer í Belfast á
Norður-Írlandi. Mætir hann þar Ron-
an McKay í Cage Contenders 7 en í lok
ágúst barðist Gunnar Nelson við — og
gjörsigraði — Englendinginn Danny
Mitchell í Cage Contenders 6.
tomas@dv.is
Ótrúlegur bati Árna Ísakssonar:
Árni „úr járni“ aftur í búrið
MIÐVIKUDAGUR 22. september 2010 SPORT 25
KOMINN AFTUR
Árni „úr járni“
Ísaksson berst
tvívegis á næstu
vikum.
HRYLLILEGUR ENDIR
Á BITLAUSU SUMRI
Guðmundur hefur verið inn og
út úr liðinu og aðeins skorað þrjú
mörk í Pepsi-deildinni.
„Þetta er bara flottur punktur
yfir i-ið á frekar bitlausu sumri frá
mér,“ segir Guðmundur kaldhæð-
inn. „Ef strákarnir klára þetta á
laugardaginn ætla ég samt ekkert
að kvarta,“ bætir hann við, en vinni
Breiðablik Stjörnuna um helgina
verður liðið Íslandsmeistari í fyrsta
sinn. „Ég er ekkert stressaður fyr-
ir þennan leik. Það eru menn frá
en strákur eins og Andri Yeoman
hefur sýnt það þegar hann kemur
inn á að hann er frábær leikmað-
ur. Svo kom Tómas Óli frábærlega
inn síðast. Ég hef engar áhyggjur af
þessu,“ segir Guðmundur, en hver
er ástæðan fyrir hans dapra sumri?
„Því er erfitt að svara. Ég hef
reynt að spila minn fótbolta en
kannski setti ég of mikla pressu á
sjálfan mig í byrjun sumars. En það
þýðir ekkert að hugsa um fortíðina.
Núna er það annað verkefni sem
bíður mín.“
Ég heyri betur í lækninum í vikunni
Grjótharður Guðmundur lætur vel fyrir
sér finna á vellinum. MYND TOMASZ KOLODZIEJSKI
Greint hefur verið frá því undanfarna
daga að heimsmeistarinn í Formúlu
1 frá því 2007, Finninn Kimi Raikkon-
en, vilji hætta í rallakstri og koma aft-
ur í Formúluna. Hefur hann viðrað
áhuga sinn við Renault um að gerast
ökumaður félagsins en semji Renault
við Kimi þarf einhver að víkja. Beind-
ust sjónir því eðlilega að hinum unga
Rússa Vitaly Petrov, þar sem Pólverj-
inn Robert Kubica hefur verið að
standa sig frábærlega. Petrov býr ekki
að jafnmiklum gæðum og Kubica og
Raikkonen en hann hefur peninga á
bak við sig.
Rússar vilja halda Rússanum
„Við verðum líka að hugsa um pen-
ingana því þetta eru viðskipti,“ segir
Gerard Lopez, eigandi Renault, sem
er alls ekki á sömu skoðun og liðstjóri
Renault, Eric Boullier, um að semja
við Kimi Raikkonen á staðnum. Vera
Vitaly Petrov hjá Renault hefur laðað
að sér rússnesk fyrirtæki sem styrkja
liðið. Bílaframleiðandinn Lada er orð-
inn styrktaraðili liðsins og þá hefur
fyrirtækið Vyborg Shipyard JSC einnig
gerst styrktaraðili. Skipasmíðastöðin
er með höfuðstöðvar í heimabæ Pet-
rovs og hefur aðeins gert samning út
keppnistímabilið. Þykir nokkuð ljóst
að samningurinn verði ekki fram-
lengdur verði Petrov látinn fara.
„Fyrirtæki vilja viðskipti við sigur-
lið þannig það helst allt í hendur. Það
er gríðarlega mikilvægt fyrir okkur að
byggja upp liðið núna og til þess þurf-
um við að nýta viðskiptalegu hliðina.
Raikkonen er góður ökumaður en Pet-
rov hefur 250 milljónir Rússa á bakvið
sig sem styðja hann. Við værum ein-
faldlega heimskir að láta eins og það
séu ekki viðskiptatækifæri í því,“ segir
Gerard Lopez.
Fer Kubica?
Vitaly Petrov hefur vakið verðskuld-
aða athygli á tímabilinu en hann er
þó aðeins með 19 stig í stigakeppninni
á meðan Robert Kubica er í áttunda
sæti með 108 stig. Nú er þó komin
upp sú staða að Petrov gæti einfald-
lega haldið Renault í gíslingu með
rússneskum peningamönnum og ef
marka má orð Gerards Lopez er hann
ekki að fara neitt. Nokkur pólsk blöð
upp hafa velt upp þeim möguleika að
Kubica gæti því horfið á braut en lið-
stjórinn Eric Boullier hefur ekki farið
leynt með aðdáun sína á Kimi Raikk-
onen. „Ef ég mætti myndi ég semja við
hann á staðnum,“ sagði Boullier í síð-
ustu viku.
Fyrrverandi heimsmeistari í Formúlu 1,
Kimi Raikkonen, vill aka fyrir Renault á
næsta ári og Renault vill fá Kimi Raikkon-
en. Ungi Rússinn Vitaly Petrov, sem ekur fyrir liðið, gæti
þó verið of góð gullgæs til að sleppa honum þótt gæði Raikkonen
séu töluvert meiri.
Með Renault
í gíslingu
TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is
Gæti orðið
mikilvægur
Rússneskir fjárfest-
ar vilja borga
undir liðið verði
Petrov áfram.