Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.2010, Qupperneq 29
miðvikudagur 22. september 2010 sviðsljós 29
www.birkiaska.is
Minnistöflur
Bætir skammtímaminnið. Nýtist
fólki sem er undir álagi og fæst
við flókin verkefni. Hentar vel
fyrir eldri borgara, lesblinda og
nemendur í prófum. Dregur úr
streitu, eykur ró og bætir skap.
www.birkiaska.is
Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á bæði
vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar
starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar
efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum,
dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox).
Birkilaufstöflur
söngkonan Rihanna hélt um helgina gæsapartí fyrir vin-konu sína og starfs-
systur, Katy Perry. Rihanna
sá um að skipuleggja dag-
inn fyrir Perry en hún mun
ganga í það heilaga með
breska grínistann Russell
Brand í kringum áramótin.
Dagurinn hófst í Las
Veg as þar sem Rihanna,
Perry og 25 manna fylgdar-
lið skemmtu sér við sund-
laugina á Hard Rock-hót-
elinu. Ekki vantaði áfengið
og kræsingarnar sem gest-
irnir röðuðu í sig í blíð-
unni. Þar næst fór hópurinn, sem ferðaðist um í risa-
eðalvagni, að sjá Cirque du Soleil-sýninguna KA. Eftir
sýninguna hélt partíið svo áfram á nætur-
klúbbnum XS þar sem skemmtanahald stóð
fram á morgun.
Eins og venjan er í veislum af þessu tagi
var mikið drukkið og sú regla höfð á að glas
gæsarinnar tæmdist aldrei. Enda setti Perry
færslu á Twitter-síðu sína og sagði: „Búin að skrá mig á
biðlista fyrir nýja lifur.“
Brasilíska ofurfyrirsætan Gisele Bündchen geislaði af gleði þeg-ar hún lék við son sinn í Hudson River Park í New York á laugar-
dag. Sá stutti heitir Benjamin Brady og er níu
mánaða. Benjamin er fyrsta barn Gisele sem
er þrítug.
Benjamin skemmti sér ekki síður vel en
mamma hans og hló og skríkti án afláts.
Gisele er ein frægasta fyrirsæta heims en hún
var mætt aftur á sýningarpallinn aðeins örfá-
um mánuðum eftir að hafa átt Benjamin.
Geislar af gleði
Gisele Bündchen með syni sínum:
Gisele Bündchen Ásamt
syninum Benjamin Brady
í Vegas
Rihanna og Katy Perry:
Gæsapartí
Djamm! Perry sagðist
þurfa nýja lifur eftir kvöldið.
Vín og kræsingar Við
sundlaugarbakka í Las Vegas.
Með Joe Dirt-útlitið
Britney með nýja hárgreiðslu:
Söngkonan Britney Spears skartaði nýrri klippingu á dögunum. Um er að ræða eins konar nútíma útgáfu af
klippingu kvikmyndapersónunnar
Joes Dirt sem hinn smávaxni David
Spade lék á sínum tíma. Eins og sjá
má á myndunum eru hárgreiðslurn-
ar alls ekki ósvipaðar, en klipping
Joes Dirt vakti einmitt mikla lukku
þegar myndin kom út árið 2001.
Má segja að hárgreiðslan hafi fest
sig í sessi sem hárgreiðsla banda-
ríska sveitalúðans, hins svokallaða
„redneck“ eins og sveitalúðarnir eru
kallaðir á móðurmálinu.
Britney Dirt? Ekki
ósvipaðar hárgreiðslur.