Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.2010, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIR 24. september 2010 FÖSTUDAGUR
LAGERSALA
www.xena.is
Mikið úrval af skóm
á alla fjölskylduna
Frábær verð
no1
st. 36-41 verð kr. 8995.-
no2
st. 36-41 verð kr. 8995.-
no3
st. 36-41 verð kr. 8995.-
no4
st. 36-46 verð kr. 8995.-
Opið virka daga 12-18
laugardag 12-16
Trúnaðarskjal Seðlabankans og FME frá 1. apríl 2008 bendir til þess að stjórnvöld
hafi þá þegar óttast alvarlegt áfall bankanna. Ráðherrarnir sem eiga yfir höfði sér
ákærur af hálfu Alþingis höfðu formlegan aðgang að trúnaðarupplýsingum í krafti
ráðuneytisstjóra sinna.
Í minnisblaði Seðlabankans og
Fjármálaeftirlitsins 1. apríl 2008
er sett fram aðgerðaáætlun að til-
lögu sérfræðings, Andrews Gracie,
til að bregðast við lausafjárvanda
bankanna. Ljóst er af minnisblað-
inu, sem DV hefur undir höndum
í heild sinni, að þá þegar höfðu
starfsmenn Seðlabankans, Fjár-
málaeftirlitsins og þriggja ráðu-
neyta dauðans áhyggjur af stöðu
bankanna. Meðal annars var gert
ráð fyrir að FME kannaði raun-
verulega stöðu þeirra. „Fjármála-
eftirlitið fer í vettvangsathugun
í viðkomandi fjármálafyrirtæki
til þess að kanna raunverulegt
ástand.“ Um þessa tegund eftir-
lits er vísað til laga um fjármála-
fyrirtæki. Ráða má af textanum
að FME hafði ekki á þessum tíma
beitt heimildum sínum til strangra
eftirlitsaðgerða. Þó er rætt um
nauðsyn þess að FME fái ríkari
heimildir með lagabreytingum,
meðal annars til að taka sér vald
hluthafafundar í bönkunum.
Í minnisblaðinu, sem trúnaður
ríkti um á þessum tíma, er fullum
fetum rætt að stjórnvöld taki í sín-
ar hendur full eignarráð yfir banka
með opinberu valdboði í formi
lagasetningar. „Við slíkar aðstæð-
ur vakna margvísleg lögfræði-
leg vandamál, meðal annars um
vernd eignarréttar og fleira eins og
Englandsbanki hefur bent á.“
„Aðkallandi ákvarðanataka“
Athyglisvert er að 1. apríl 2008 er
í aðgerðaáætlun fyrir Seðlabank-
ann gert ráð fyrir því að hann lýsi
yfir trausti sínu á fjármálakerfinu og
jafnvel einstökum bönkum.
Allt stjórnkerfið og fulltrúar þess
innan samráðshópsins um fjár-
málastöðugleika vissi um hættuna
samfara lánum Seðlabankans til
bankanna gegn slökum eða eng-
um tryggingum. Yfir bankanum
vofði þá þegar að tapa að minnsta
kosti 136 milljörðum króna vegna
ófullnægjandi veða í bankabréfum
sem seld höfðu verið af Icebank
fyrir bankahrunið 2008. Í trúnað-
arskjali, sem birt er í skýrslu rann-
sóknarnefndar Alþingis, er beinlín-
is talað um að grípa þurfi til aðgerða
til að draga úr mögulegri hættu.
Skjalið, sem DV hefur einnig undir
höndum, er dagsett 7. júlí 2008 og er
stílað til samráðshóps um fjármála-
stöðugleika frá Tryggva Pálssyni,
framkvæmdastjóra í Seðlabankan-
um. Yfirskrift bréfsins er „Aðkall-
andi ákvarðanataka stjórnvalda
vegna hættu á fjármálaáfalli“. Þess
má geta að slitastjórn Icebank neit-
aði nýverið að samþykkja liðlega
200 milljarða króna kröfu Seðla-
bankans í þrotabú bankans á þeirri
forsendu að lánin hefðu verið mála-
myndagjörningar og bankinn hefði
að líkindum brotið lög.
Í bréfi Tryggva er rætt um stöðu-
mat og sagt berum orðum að „...
lausafjárstaða bankanna verður
orðin óviðunandi á næstu mánuð-
um að öðru óbreyttu og hætta er á
innlánsflótta. Afl ríkissjóðs er tak-
markað í erlendum gjaldeyri og
bandamönnum fer fækkandi.“
Innstæðutryggingar í
uppnámi
Í umræddu bréfi kemur fram að
Tryggingarsjóður innstæðueigenda
hafi átt langt innan við 20 milljarða
króna handbæra á sama tíma og
lágmarks tryggingavernd sjóðsins
hafi numið 115 milljörðum króna.
„Lánstraust sjóðsins er væntanlega
afar takmarkað.“
Í bréfinu eru kynntar þrjár leið-
ir til að bregðast við bankahruni og
er ein þeirra sú að hið opinbera yfir-
taki banka líkt og gert var við Glitni
og síðar hina bankana tvo og fékk
vanda þeirra allra í fangið. „Ef illa
tekst til gæti komið upp sú staða
að ríkissjóður gæti ekki staðið við
skuldbindingar sínar,“ segir í skýrsl-
unni.
Í lok bréfsins segir að kalla verði
til aðgerðahóp tafarlaust: „Á veg-
um stjórnvalda/samráðshópsins
þarf án tafar að kalla til aðgerðahóp
í fullu starfi. Velja þarf stjórnanda og
fá ráðgjafa til aðstoðar.“
Ljóst er að ráðuneytisstjórar og
þar með trúnaðarmenn þriggja
fyrrverandi ráðherra sem hugsan-
lega verða leiddir fyrir landsdóm,
höfðu aðgang að öllum ofangreind-
um upplýsingum og áætlunum um
viðbrögð gegn mögulegu fjármálaá-
falli frá því snemma árs 2008. Þetta
eru ráðuneytisstjórar Geirs H. Haar-
de, fyrrverandi forsætisráðherra,
Árna M. Mathiesen, fyrrverandi
fjármálaráðherra, og Björgvins G.
Sigurðssonar, fyrrverandi viðskipta-
ráðherra.
JÓHANN HAUKSSON
blaðamaður skrifar: johannh@dv.is
VORU UPPLÝSTIR UM
HÁALVARLEGA STÖÐU
Vissi hann ekki einnig? TrúnaðarskjölinbendatilþessaðBjörgvinG.
Sigurðsson,þáverandiviðskiptaráðherra,hafiveriðupplýsturumgrafalvarlega
stöðubankannasnemmaárs2008.
Lán án trygginga DavíðOddssyni,
þáverandiseðlabankastjóra,var
þegarárið2008kunnugtumhættuna
áþvíaðSeðlabankinnkynniað
tapa140milljörðumkrónavegna
glannalegralánveitinga.
Yfir bankanum vofði þá þegar
að tapa að minnsta
kosti 136 milljörðum
króna vegna ófull-
nægjandi veða...
Hrækti framan í
lögreglumann
Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt
tvítugan pilt í sjö mánaða skilorðs-
bundið fangelsi fyrir ýmis brot. Var
maðurinn meðal annars sakfelldur
fyrir að hrækja í tvígang framan í lög-
reglumann og hóta tveimur öðrum
lögreglumönnum lífláti. Jafnframt
hótaði hann því að skera börn þeirra á
háls. Atvikið átti sér stað í lögreglubíl í
Reykjanesbæ aðfaranótt laugardags-
ins 14. febrúar 2009. Þá var maðurinn
dæmdur fyrir umferðar- og fíkniefna-
brot, meðal annars fyrir að hafa ekið
undir áhrifum áfengis og annarra
fíkniefna í nokkur skipti.
Kappsmál að styðja
Ísland
Ólafur Ragnar Grímsson forseti
átti í gær fund með Vladimír Pútín,
forsætisráðherra Rússlands. Pútín
talaði um mikilvægi þess að sam-
starf Íslands og Rússlands yrði eflt
á komandi árum. Lega landanna,
nágrenni og sameiginlegir hags-
munir á norðurslóðum kallaði eftir
auknum og nánum samskiptum
ríkjanna. Pútín hvatti einnig til þess
að íslenskir aðilar tækju virkan þátt
í jarðhitanýtingu á Kamtsjatkasvæð-
inu. Hann hyggst senda forustu-
menn rússneskra ríkisstofnana og
svæðisstjórnar Kamtsjatka hingað
til lands til að þeir gætu kynnt sér þá
víðtæku jarðhitanýtingu sem Íslend-
ingar hafa þróað. Á fundinum sagði
Pútín að rússneskum stjórnvöldum
hefði verið kappsmál að styðja Ís-
land á tímum fjármálakreppunnar.
Slíkur stuðningur væri hluti af erind-
isbréfi Rússa innan Alþjóðagjaldeyr-
issjóðsins.
Strandaglópum
bjargað
Björgunarsveitirnar Pólstjarnan
frá Raufarhöfn og Hafliði frá
Þórshöfn voru kallaðar út á
fimmtudag vegna báts sem
strandaði rétt norðan Raufar-
hafnar. Einnig fór björgunarskip
Slysavarnafélagsins Landsbjarg-
ar, Gunnbjörg frá Raufarhöfn, á
staðinn, með spotta og dæl-
ur. Erfiðlega gekk að ná hinum
strandaða bát á flot og gekk það
hægt þrátt fyrir að veður væri
ágætt. Ekki var talin mikil hætta á
ferðum. Fjórir skipverjar voru um
borð í bátnum sem strandaði.
Tveggja ára fangelsi fyrir fjögurra ára misnotkun:
Misnotaðiungastúlku
Hinn 77 ára gamli Sveinbjörn
Tryggvason var í Hæstarétti Íslands í
gær dæmdur í tveggja ára óskilorðs-
bundið fangelsi fyrir að hafa mis-
notað stúlku kynferðislega frá því
hún var 14 ára þar til hún var 18 ára.
Fram kemur í dómnum að maður-
inn hafi tælt stúlkuna með gjöfum,
meðal annars, peningum, skartgrip-
um og fatnaði og nýtt sér yfirburði
sína gagnvart henni vegna aldurs-
og þroskamunar til að hafa við hana
nánast daglega samræði og önn-
ur kynferðismök á heimili hans í
Kópavogi. Með úrskurði sínum stað-
festi Hæstiréttur dóm Héraðsdóms
Reykjavíkur frá 2. febrúar.
Sveinbjörn kvaðst fyrir dómi hafa
kynnst stúlkunni í september 2001
og viðurkenndi að hafa haft tíð sam-
skipti við hana frá þeim tíma. Hann
gekkst við því að hafa reglulega gefið
stúlkunni gjafir. Hann hélt því fram
að hann hefði ekki vitað um réttan
aldur stúlkunnar fyrr en hún var orð-
in 18 ára gömul. Þetta þótti Hæsta-
rétti afar ótrúverðugt. Sveinbjörn
viðurkenndi að hafa haft samræði og
önnur kynferðismök við stúlkuna á
heimili sínu en framburður hans um
það hvenær hann hóf að brjóta gegn
stúlkunni var nokkuð á reiki og þótti
það rýra trúverðugleika framburðar
hans að mati Hæstaréttar.
Fram kemur í dómsorðum
Hæstaréttar að Sveinbjörn eigi sér
engar málsbætur, hann hafi brotið
gróflega og ítrekað gegn ungri stúlku
á viðkvæmu aldurs- og þroskaskeiði
hennar. Brotin voru viðvarandi og
stóðu í langan tíma.
Auk þess að dúsa í fangelsi í tvö ár
þarf Sveinbjörn að greiða stúlkunni
1,2 milljónir króna í skaðabætur.
Tveggja ára dómur Sveinbjörn
Tryggvasonfékktveggjaárafangelsi
fyriraðmisnotaungastúlkudaglegaí
fjögurár.