Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.2010, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.2010, Blaðsíða 16
16 fréttir 24. september 2010 föstudagur Þjóðfélag Þar sem enginn borgar Eftir að Magnús Magnússon missti heimili sitt á uppboði var honum boðið af sýslumanni að leigja hús- næðið fyrir 320 þúsund í þrjá mán- uði. Leigupphæðina segir hann vera þrefalda þá upphæð sem hann greiddi af lánum sínum á mánuði og lenti í vanskilum með. Hann segist algerlega magnþrota eftir glímuna við kerfið. „Ég er orðinn langþreyttur á baráttu minni til að ná fram lausn í mínum málum og veikindin hafa sett strik í reikninginn,“ segir hann. Magnús er í lyfjameðferð til að halda niðri hvítblæðinu og segir að þótt honum hefði verið skipað að leggjast inn á spítala þá hafi hann einfaldlega ekki haft tíma til þess. Álagið við að reyna að fá einhvers konar úrlausn hafi verið svo mik- ið. Nú sé hann alveg búinn að gefast upp. „Ég er búinn að berjast lengi en nú get ég ekki meira. Það er enginn tilgangur í því lengur. Ég er nú upp á aðra kominn og verð að láta staðar numið.“ Það verður að lækka lánin Spurður hvað honum finnist að eigi að gera segir hann málið vera ein- falt en það sé enginn pólitískur vilji til réttlátra framkvæmda. „Það verð- ur að lækka lánin og gera fólki kleift að borga af þeim miðað við þær tekj- ur sem það er með. Eins og staðan er í dag þá stefnum við í þjóðfélag þar sem enginn borgar af neinu. Bank- arnir eru hættir að kynda húsin. Heilu húsin, blokkirnar, hverfin og bæjarfélögin jafnvel, standa undir skemmdum. Hér verður eyðibyggð og örbirgð.“ Enginn góðvilji Magnús er svartsýnn á aðkomu stjórnvalda. „Það á að taka 20 millj- arða og setja í Íbúðalánasjóð, “ seg- ir hann og spyr hvort ekki væri nær að láta þá renna til fólksins? „Ég held það sé verið að fara með þetta þjóð- félag beina leið til andskotans. Ég kvíði því að fylgjast með því hvernig andrúmsloftið þróast hér næstu 2–3 mánuði. Það stefnir í að miklu fleiri missi heimili sín og mér sýnist eng- inn vilji til þess að bæta úr því.“ Verðmæt lóð Heimili Magnúsar við Elliðavatn stendur á rúmlega sexþúsund fer- metra lóð sem þykir eftirsótt bygg- ingarland. Magnús segir farir sín- ar ekki sléttar af samskiptum sínum við sýslumann og Arion banka. „Ég gat ekki verið viðstaddur uppboðið og því var Arion banka gert kleift að bjóða mér lágmarksréttindi. Því varð það svo að mér var boðið að leigja fyrrverandi heimili mitt á 320 þúsund krónur á mánuði í þrjá mánuði. Það eru afarkostir sem enginn getur tekið. Ég held að einhverjum hafi legið mik- ið á að fá lóðina í sínar hendur.“ Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn segir stopp Magnús sagði sögu sína í Kastljósi á miðvikudagskvöld. Ögmundur Jón- asson sat fyrir svörum og sagði að þótt hann vildi ekki ræða um ein- stök málefni, svo sem Magnúsar, þá væri nú kaldur veruleikinn að banka upp á. Hann sagði jafnframt Alþjóðagjaldeyrissjóðinn hafa ver- ið gagnrýninn á þá fresti sem veittir hafa verið og ekki vilja frekari fresti. Ögmundur sagðist jafnframt telja að enn væri að koma í ljós hvern- ig greiðsluúrræðin sem í boði eru gagnast fólki í raun og veru og að verið væri að fylgjast með stöðunni. Magnús sagðist ekki ánægður með svör Ögmundar. „Staðreyndin er sú að efnahagshrunið er ekki okkur að kenna og vegna hrunsins þá ná tugir þúsunda fjölskyldna á landinu ekki endum saman auk þess sem bankar og stjórnvöld gera lítið ann- að en stunda eignaupptöku hjá al- menningi. Almenningur lætur ekki bjóða sér þetta. Þótt að ég sé orðinn þreyttur og búinn að gefast upp þá vona ég að aðrir hafi ennþá þrótt til að halda áfram baráttunni.“ Magnús Magnússon missti heimili sitt á uppboði í ágúst. Hann er óvinnufær vegna hvítblæðis og segir bar- áttuna við kerfið hafa fyllt sig miklu vonleysi. Hann spyr hvaða tilgangi það þjóni að gera fólk heimilislaust í stórum stíl og segist kvíða því hvernig andrúmsloft verði á landinu næstu mánuði. kristjAnA guðbrAndsdóttir blaðamaður skrifar: kristjana@dv.is Það á að taka 20 milljarða og setja í Íbúðalána- sjóð. margir standa í skilum en lifa í sárri fátækt Ung tveggja barna móðir með lán sín í frystingu hjá Íbúðalánasjóði fékk óvænt bréf um að íbúðin hennar hefði verið sett á nauðungarsölu. Henni finnst fólki misboðið með misjöfnum úrræðum og vill að stjórnvöld taki hlutverk sitt alvarlega hvað varðar aðbúnað fólks sem er nú í þúsundatali við að missa íbúðir sínar. Konan sem vill ekki koma fram undir nafni vegna starfs síns og vegna þess að henni finnst óþægi- legt að tjá sig opinberlega um fjárhagsörðugleikana setti fast- eignalán sitt hjá Íbúðalánasjóði í frystingu eftir að afborganir af láni hækkuðu umfram greiðslu- getu eftir hrun. „Eins og staðan var þá var boðið upp á að frysta lánin í þrjú ár og því tók ég enda eitt af þeim úrræðum sem stóð íbúðareigendum til boða og átti að bæta stöðu þeirra.“ Hún segir þessu síðan hafa verið breytt. Nú standi fólki aðeins til boða fryst- ing í eitt ár. „Allt í einu fékk ég eins og svo margir aðrir greiðsluseðil með áföllnum gjalddaga og upp- söfnuðum vöxtum í heimabank- ann. Flestir tóku ekki eftir því eða leiddu það hjá sér vegna þess að þeir trúðu því að þeir ættu rétt á frekari frystingu enda var ekkert samband haft við alla þessa að- ila. Fólk fékk síðan ábyrgðarpóst heim til sín með tilkynningu um að vegna ógreidds gjalddaga fari íbúðin á uppboð.“ 90 ára lán ættu að vera kostur Konan er tveggja barna móðir í föstu starfi. Eiginmaður henn- ar missti starfið í hruninu og því framfleytir hún ein heimilinu. Hún segist þó halda stöðu sína betri en margra annarra og að hún geti haldið íbúðinni ef fer í hart. Hún vinnur hjá fyrirtæki sem veitir meðal annars aðstoð við að greiða niður skuldir og leitar leiða til að auka á fjárhagslegt ör- yggi viðskiptavina svo hún er vel kunnug þeim hnútum sem þarf að leysa og hvernig hagstæðast er að létta byrðar vegna skuldbind- inga sinna. Konan segir að þrátt fyrir þá kunnáttu sé hindranir að finna í úrræðum stjórnvalda. Þau séu ekki réttlát. Hún bendir á að Íbúðalánasjóður græði ekki á því að setja íbúðir á uppboð og spyr hvort það felist ekki tækifæri í því að breyta kerfi íbúðalána. „Í Sví- þjóð er verið að bjóða upp á 90 ára lán og þar eru greiðslur miðaðar við launatekjur fólks. Þar í landi er ekki hægt að reka fólk út á leigu- markaðinn eins og nú er verið að gera. Ef fólk þénar meira á það þess kost að eignast meira í íbúð- inni ef það vill. Það þarf að endur- skoða kerfið miðað við raunveru- legar aðstæður fólks og byggja það upp aftur svo það gerist einfald- lega ekki aftur að fólk eigi á hættu á að missa heimili sín í stórum stíl.“ greiðsluaðlögun lélegur kostur Konan segir greiðsluaðlögunina ennfremur ekki jafn góðan kost og hún átti að vera. „Mér finnst staðan núna eftir dóm hæstarétt- ar vera grafalvarleg. Nú bíða 550 manns eftir úrræðum hvað þetta varðar. Þeir hafa fengið samþykkt- an nauðasamning til greiðsluað- lögunar og núna er það þannig að ábyrgðarmaður á kröfu á þann sem fór í greiðsluaðlögun sem getur leitt til gjaldþrots skuldar- ans og jafnvel þess að ábyrgðar- maðurinn lendi í greiðsluvanda. Allt þetta umstang er þá fyrir ekki neitt. “ Mikið misrétti Óréttlætið segir hún ennfremur koma fram í mismunandi úrræð- um sem fólki sé boðið upp á. Hún segir illa hafi verið brugðist við því alvarlega ástandi sem mynd- aðist í kjölfar efnahagshrunsins til að bæta stöðu skuldara og það sé að koma í ljós núna. „Nú er að verða ljóst hvaða úrræði fólki hafa verið boðin. Hverjir komast af og hverjir missa þakið ofan af sér. Þá kemur misréttið í ljós. Sumir eru að fá 15–30 milljónir felldar af lán- um. Öðrum er ekki boðið upp á nein úrræði. Mér verður sérstak- lega hugsað til þeirra sem rétt svo standa í skilum með allt sitt en lifa í sárri fátækt þess vegna. Það er að sjálfsögðu ekki réttlátt. Margir hverjir hætta einfaldlega að borga og bíða í nokkra mánuði eftir því að bankinn hafi samband og bjóði þeim til samningaviðræðna. Það er ótækt að staðan sé í raun og veru þannig. Lausnir stjórnvalda eru engar.“ kristjana@dv.is Það verður að lækka lánin Magnústelurenganpólitískanviljafyrir lækkunlána.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.