Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.2010, Page 10
10 fréttir 24. september 2010 föstudagur
Félagsmálaráðuneytið segir að því beri að vísa
kæru Jussanam Da Silva frá á grundvelli þess
að hún hafi borist of seint. Kæran barst 20
dögum of seint og ráðuneytið mun kanna
hvort hægt sé að taka hana fyrir ef veiga-
miklar ástæður eru fyrir seinkuninni. Elsa
Arnardóttir hjá Fjölmenningarsetri segir
tungumálaörðugleika og hátt flækjustig inn-
an kerfisins oftar en ekki ástæðu
þess að kærum er skilað of seint.
Vinnumálastofnun hefur hafnað
umsókn brasilískrar konu um áfram-
haldandi landvistar- og atvinnuleyfi
sökum þess að hún er skilin við ís-
lenskan eiginmann sinn. Er kon-
unni og dóttur hennar gert að yfir-
gefa landið fljótlega þrátt fyrir að hún
sé með atvinnu og sjái sjálfri sér far-
borða.
Mál Jussanam Da Silva er eins og
stendur á borði félagsmálaráðuneyt-
isins, það er kæra vegna synjunar
Vinnumálastofnunar á atvinnuleyfi,
sem aftur er bundið dvalarleyfi. Ekki
er búið að ákveða hvort mál hennar
verði tekið fyrir þar sem kæra barst
eftir að kærufrestur rann út.
Margrét Erlendsdóttir, deildar-
stjóri á stjórnsýslu- og mannauðs-
sviði í félags- og tryggingamálaráðu-
neytinu, staðfestir að borist hafi kæra
vegna synjunar Vinnumálastofnunar
á umsókn um tímabundið atvinnu-
leyfi fyrir Jussanam da Silva.
Ekki búið að ákveða hvort
kæran verði afgreidd
Margrét tilgreinir að samkvæmt lög-
um sé kærufrestur fjórar vikur frá því
að ákvörðun Vinnumálastofnunar
berst hlutaðeigandi aðilum. Í þessu
tilviki hafi kæran borist nokkru eftir
að fresturinn rann út og beri ráðu-
neytinu því að vísa kærunni frá nema
afsakanlegt verði talið að kæran hafi
ekki borist fyrr eða ef veigamikl-
ar ástæður mæli með því að kæran
verði tekin til efnislegrar meðferðar.
„Ráðuneytið skoðar nú ástæður
þess að kæran barst að liðnum kæru-
fresti og mun ákvörðun um hvort
efnisleg meðferð hennar fari fram
liggja fyrir mjög fljótlega,“ segir Mar-
grét. „Sótt er um umrætt atvinnuleyfi
á grundvelli 8. gr. laga um atvinnu-
réttindi útlendinga nr. 97/2002, eða
um tímabundið atvinnuleyfi vegna
starfs sem krefst sérfræðiþekkingar.
Verði niðurstaða ráðuneytisins sú að
taka beri málið til efnislegrar með-
ferðar felur það í sér nauðsynlega
gagnaöflun þar sem meðal annars er
óskað umsagnar Vinnumálastofnun-
ar sem síðan er send kærendum og
þeim gefinn kostur á að veita and-
mæli. Ekki er unnt að segja fyrir um
hve langan tíma slík málsmeðferð
muni taka komi til efnislegrar með-
ferðar málsins.“
Bréf Vinnumálastofnunar með
synjuninni er dagsett 29. júní en kær-
an barst ráðuneytinu 19. ágúst með
undirskrift Jussanam.
Harka í útgáfu atvinnuleyfa
Fjölmenningarsetur hefur það hlut-
verk að greiða fyrir samskiptum fólks
af ólíkum uppruna og efla þjónustu
við útlendinga sem búsettir eru á Ís-
landi eða vilja flytja hingað að utan.
Elsa Arnardóttir, framkvæmdastjóri
Fjölmenningarseturs, segir mikla
hörku í útgáfu atvinnuleyfa í því at-
vinnuástandi sem ríkir. Hún tel-
ur tungumálaörðugleika oft vera
ástæðu þess að kærum er skilað of
seint.
„Starfsfólk Fjölmenningarseturs
hefur einungis afskipti af málum
þegar fólk leitar eftir aðstoð og þá
nýtur fólk trúnaðar. Þannig gæti ég
ekki tjáð mig um málefni Jussanam.,“
segir Elsa. Hún segir afar mikilvægt
að stjórnvöld taki tillit til þess varð-
andi kærufresti þegar innflytjendur
eiga i hlut hversu tímafrekt og erfitt
er fyrir innflytjendur að fá nauðsyn-
lega aðstoð. Bæði til að skilja bréfin
sem berast frá yfirvöldum sem oft
eru á mjög erfiðri íslensku og í fram-
haldinu gera sér grein fyrir mála-
vöxtum og fá aðstoð við að skrifa
kæruna.
Óásættanleg töf
Andrea Þórðardóttir, yfirmaður Juss-
anam í Hlíðaskjóli, segir ferlið tíma-
frekt og óásættanlegt að láta langan
tíma líða. Henni finnst erfitt sem Ís-
lendingi að horfa upp á meðferðina.
Það hljóti að vera svigrúm í kerfinu
til þess að veita góðri konu eins og
Jussanam Da Silva betri og skilvirk-
ari þjónustu. „Jussanam er kona sem
íslenskt samfélag ætti að bjóða vel-
komna af stolti. Hún hefur skilað af
sér góðri vinnu í tvö ár,“ segir Andrea.
Hún segist hafa kynnt sér lögin
vel þegar mál Jussanam krafðist at-
hygli hennar og það sem vakti athygli
hennar er að það er hægt að vísa
Jussanam úr landi þótt afgreiðslu
umsóknar hennar eða umfjöllun
um kæru sé ekki lokið. Jussanam Da
Silva er vongóð og segist trúa því að
hún fái að búa áfram á Íslandi. Ann-
að væri sorgleg niðurstaða. Hún vissi
ekki að tíminn sem hún hafði til að
leggja fram kæru væri svo naumur.
VÍSAÐ FRÁ VEGNA
FORMGALLA Jussanam Da Silva er von-góð og segist trúa því að hún fái að búa áfram á Íslandi. Annað væri sorgleg niðurstaða.
kriStJAnA guðbrAnDSDÓttir
blaðamaður skrifar: kristjana@dv.is
Jussanam er vongóð Ogþakkar
Íslendingumsýndanstuðningí
málinu.MynD rÓbErt rEyniSSon
DV100923380eða
DV1009233834
Hugsanlega síðustu tónleikar Jussanam á landinu:
Jussanam mótmælir með söng
Jussanam da Silva heldur tónleika í
kvöld, föstudagskvöld, klukkan 20 í
sal Austurbæjarskóla, ásamt píanó-
leikaranum Agnari Má Magnús-
syni og trommuleikaranum Cheick
Bangoura. „Ég ætla að mótmæla
í söng,“ segir Jussanam sem seg-
ist ætla að flytja mótmælalög, blús,
djass og þekkt íslensk lög sem hún
hefur samið við texta á portúgölsku.
„Ég vona að sem flestir sjái
sér fært að mæta því þetta verð-
ur kannski í síðasta skipti sem ég
syng á Íslandi ef allt fer á versta veg,“
segir Jussanam. Miða má kaupa í
Draumalandi í Austurbæjarskóla og
kosta þeir 1.000 krónur.
Agnar Már Magnússon píanó-
leikari segist eiga von á fullu húsi
miðað við hvað fjölmiðlar hafa verið
áhugasamir um málið og segir það
leiðinlegt að í ljósi aðstæðna Jussan-
am gætu þetta verið hennar síðustu
tónleikar. Agnar kynntist Jussanam
þegar hún bað hann um að spila
með sér á Jazzhátíð Reykjavíkur í
fyrra. „Við höfum verið að troða upp
saman síðan þá. Bossanova-tónlist-
in er henni í blóð borin og hún hefur
margt að gefa bæði til tónlistarsam-
félagsins okkar og samfélagsins alls.
Tónlistin verður eitthvað svo rétt
í hennar flutningi, það gerir fasið,
tungumálið og tilfinningin. Það þýð-
ir ekkert fyrir Íslendinga að herma
þetta eftir. Það er missir að henni og
mér finnst þetta hið sorglegasta mál
því hún stóð sig vel í öllu því sem
hún tók sér fyrir hendur.“
kristjana@dv.is
Agnar Már Másson á von á fullu
húsi Hannsegirþaðsorglegtverðiþetta
síðustutónleikarJussanamhérálandi.