Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.2010, Page 22

Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.2010, Page 22
22 fréttir 24. september 2010 föstudagur Þrjátíu og sex prósent þeirra Íslend- inga sem létust í fyrra dóu vegna sjúkdóma í blóðrásarkerfi, að því er fram kemur í nýjum tölum frá Hag- stofunni. Það er sama hlutfall og árið áður og raunar svipað og undanfar- in ár. 2002 Íslendingar létust í fyrra á sama tíma og 5.027 fæddust. Sé að- eins tekið mið af barnsfæðingum og andlátum fjölgaði Íslendingum því um ríflega þrjú þúsund í fyrra. Þann 1. janúar voru Íslendingar 317.630 talsins og hafði fjölgað um 38 þús- und frá árinu 2000. Litlar breytingar milli ára Hagstofan heldur utan um töl- fræði um það hvers vegna Íslend- ingar deyja en fram kemur að ekki hafi orðið teljandi breytingar á dán- artíðni eftir helstu flokkum dánar- meina frá fyrra ári. „Vegna fámenn- is á landinu geta þó tilviljanasveiflur milli ára verið nokkrar og ber því að taka samanburði um dánarmein milli einstakra ára varlega,“ segir á vef Hagstofunnar. Af þeim 729 Íslendingum sem lét- ust úr blóðrásarsjúkdómum í fyrra dóu 350 úr blóðþurrðarhjartasjúk- dómum og 159 úr heilaæðasjúkdóm- um. Krabbamein eru sem fyrr næst- stærsti flokkur dánarmeina. Í fyrra dóu 562 af völdum illkynja æxla eða krabbameina en það er svipað- ur fjöldi og síðustu ár. Flestir þeirra dóu úr lungnakrabbameini en sam- kvæmt vef Krabbameinsfélagsins má rekja 90 prósent lungnakrabbameina til reykinga. 56 létust vegna illkynja æxlis í eitil- og blóðmyndandi vef en 50 létust vegna krabbameins í ristli, 19 konur og 31 karl. Þá létust 53 karl- ar úr illkynja æxli í blöðruhálskirtli en aðrar tegundir illkynja æxla voru fátíðari, samkvæmt Hagstofunni. 140 ótímabær dauðsföll Á eftir blóðrásarsjúkdómum og krabbameinum dóu flestir úr sjúk- dómum í öndunarfærum árið 2009, eða 175. Dauðsföll vegna ytri orsaka og eitrana eru fjórði stærsti flokkur- inn þegar kemur að dauðsföllum. Undir þann flokk falla óhöpp of ýms- um toga, til dæmis umferðaróhöpp, sjálfsvíg, manndráp og atburðir þar sem óvíst er um ásetning. Hundrað og átján þeirra sem létust í fyrra falla í þennan flokk en tölfræði yfir dánar- orsakir í fyrra er nánast óbreytt frá ár- inu á undan. Þá má geta þess að 140 ótíma- bær dauðsföll urðu á Íslandi í fyrra. „Ótímabær dauðsföll eru andlát vegna tiltekinna dánarorsaka sem hefði mátt komast hjá með viðeig- andi meðferð eða forvörnum.“ Lífsstílsbreytingar Guðmundur Þorgeirsson, hjarta- læknir og prófessor við læknadeild Háskóla Íslands, segir að víðast hvar í heiminum séu hjarta- og æða- sjúkdómar algengasta dánarorsök- in. Hann segir hins vegar að gríð- arlega góður árangur hafi náðst á Íslandi undanfarin ár. „Ef við lítum á aldursstaðlaðar dánarorsakir, þar sem jafn gamlir einstaklingar eru bornir saman, hefur dánartíðni úr kransæðasjúkdómum lækkað gríð- arlega á Íslandi, eða um 80 prósent. Þetta miðast við tímabilið frá 1980 til 2005,“ segir Guðmundur. Hann segir ástæðurnar fyrst og fremst mega rekja til lífsstílsbreyt- inga. „Það er nú minni neysla á mett- aðri fitu þannig að meðalkólesteról á Íslandi hefur lækkað, reykingatíðn- in hefur verulega lækkað og með- alblóðþrýstingur hefur líka lækkað talsvert - líklega vegna minni salt- neyslu,“ segir hann og bætir við að margt sé á góðri leið en við munum aldrei geta útrýmt þessum sjúkdóm- um alveg. „Úr einhverju verðum við að deyja,“ segir hann. Þjóðin þyngist Guðmundur segir að þó góður ár- angur hafi náðst séu neikvæðir þætt- ir líka til. „Þjóðin er að þyngjast og al- gengi sykursýki fer aðeins hækkandi fyrir vikið. Enn þá er nokkuð stór hluti þjóðarinnar kyrrsetufólk, jafn- vel þótt líkamsrækt í frístundum hafi aukist verulega,“ segir hann og bæt- ir við að þótt verulega hafi dregið úr reykingum á undanförnum áratug- um reyki enn um 20 prósent fullorð- inna karlmanna. Það vegi þungt þeg- ar komi að heilbrigðisvandamálum. Guðmundur segir að grundvallar- atriðin í forvarnarstarfi séu einföld: „Mataræði þarf að vera fjölbreytt og hollt, við þurfum að stunda reglu- bundna hreyfingu, vera reyklaus og tileinka okkur hófsemi í lífsháttum,“ segir hann. Stjórnvöld ýti undir neyslu á hollum mat Aðspurður segir Guðmundur æskilegt að hollur matur á borð við grænmeti og ávexti sé ódýr í samanburði við annan mat. „Öll þessi tilboð á sælgæti, til að mynda um helgar, eru andstæð öllum hollustusjónarmiðum,“ segir hann og bætir við að í Bandaríkjunum versni mataræðið eftir því sem lífs- kjörin versni og atvinnuleysi aukist. Það sé vegna þess að óhollur matur sé ódýrari en hollur matur. Gísli Jónsson hjartalæknir tekur í sama streng og segir óheppilegt hvað hollur matur sé dýr samanborið við sætindi. „Verslanakeðjan Kiwi í Nor- egi tók upp á því að draga 25 prósenta virðisaukaskatt af ávöxtum og græn- meti. Það væri íhugunarvert fyrir stjórnvöld að kanna slíka möguleika til að ýta undir neyslu á ávöxtum og grænmeti, svo dæmi séu tekin,“ segir hann. Gísli tekur í sama streng og Guð- mundur þegar hann er spurður um áhættuþætti hjarta- og æðasjúk- dóma. Hann telur þó að streita sé vanmetinn áhrifaþáttur. Rannsókn sem hann hafi gert í tengslum við nám sitt hafi sýnt að margir hafi tal- að um að hafa verið undir miklu and- legu álagi síðustu dagana fyrir krans- æðastíflu. Hann segir enn fremur að yfirvöld ættu að einbeita sér að for- vörnum þegar kemur að hjarta- og æðasjúkdómum. „Það er oft verið að spara aurinn en henda krónunni – með því að leggja ekki nógu mikið fé í mannauð og fyrirbyggjandi starfsemi. Til lengri tíma sparar það samfélginu miklar upphæðir,“ segir hann. Flestir deyja úr æðasjúkdómum Sjúkdómar í blóðrásarkerfi eru sem fyrr algengasta dánarorsök Íslendinga. Hjartalæknar segja að mataræði og lífsstíll Íslendinga hafi breyst til batnaðar en þjóðin sé engu að síður að þyngjast. Fjölbreytt mataræði, hreyfing, reykleysi og hófsemi skipti mestu þegar kemur að hjarta- og æðasjúkdómum. baLdur guðmundSSon blaðamaður skrifar: baldur@dv.is Lífslíkurviðfæðinguvoru79,1árað meðaltaliíríkjumOECDárið2007 oghöfðuaukistumrúmtíuárfrá árinu1960.Árið2007voruævilíkur áÍslandi81,2ár,eðaþærfimmtu hæstumeðalríkjaOECD.Lífslíkur íslenskrakarlavoru79,4ár,aðeins lægrieníSvissþarsemþærvoru hæstar.LífslíkurkvennaáÍslandivoru 82,9áreðaí10.–12.sætiOECD-landa ásamtAusturríkiogNoregi.Hæstar voruþæríJapan,86,0ár.Kynjamunur áævilíkumviðfæðinguvar5,6árað meðaltaliíríkjumOECDenminnstur áÍslandi,3,5ár. Verðum 81 árs Dánarorsök ÍslenDinga 2009 Vegna ytri orsaka (t.d. slysa) 5,9% Sjúkdómar í öndunarfærum 8,7% blóðrásarsjúkdómar 36,4% Krabbamein 28,1% aðrar ástæður 20,7% Úr einhverju verðum við að deyja. algengasta dánar- orsökin Hreyfing,fjöl- breyttmataræði,reykleysi oghófssemiskiptirmestu þegarkemuraðhjarta- ogæðasjúkdómum. margir hreyfa sig ekki Guðmundur segirennnokkuðstóranhlutaþjóðar- innarkyrrsetufólk.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.