Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2010, Blaðsíða 2
2 fréttir 24. nóvember 2010 miðvikudagur
Ólöf Nordal, Sjálfstæðisflokki, hvatti
til þess á Alþingi í gær að Ríkisend-
urskoðun og umboðsmaður Alþingis
tækju Árbótarmálið upp. Þar væri um
að ræða dæmalausa stjórnsýslu Stein-
gríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra.
Hann hefði auk þess farið með rangt
mál í svörum um Árbótarmálið á Al-
þingi síðastliðinn mánudag. Stjórnar-
þingmenn tóku einnig undir ákall um
bætta stjórnsýslu.
Sveinn Arason ríkisendurskoðandi
segir að innan embættisins sé málið
til umræðu en engin ákvörðun hafi
verið tekin. Embættið er sem kunn-
ugt er sjálfstæð eftirlitsstofnun Al-
þingis og heyrir ekki undir ríkisstjórn-
ina. „Reikningar Barnaverndarstofu
og samningar koma á endanum inn
á borð Ríkisendurskoðunar. Við get-
um líka tekið mál upp að eigin frum-
kvæði,“ segir Sveinn.
Steingrími ekki skemmt
Stengrímur J. Sigfússon fjármála-
ráðherra sagði á Alþingi síðastliðinn
mánudag að Barnaverndarstofa hefði
að því er virtist lekið einkatölvupósti
hans til Árna Páls Árnasonar, þáver-
andi félagsmálaráðherra, um upp-
gjör við rekstraraðila upptökuheim-
ilsins Árbótar í umræðum á Alþingi á
mánudaginn. „Það er svo önnur saga
hvernig sá einkapóstur milli okkar fé-
lagsmálaráðherra (Árna Páls Árna-
sonar) er allt í einu kominn í blöðin að
því er virðist í gegnum Barnaverndar-
stofu. Það er örugglega þeirra framlag
til þess að reyna að skapa sátt og frið
um þennan málaflokk,“ sagði Stein-
grímur.
Fréttablaðið, sem upphaflega birti
fréttir um afgreiðslu ráðherranna á
máli hjónanna á Árbótarheimilinu,
hefur nú upplýst að bæði félagsmála-
ráðuneytið og Barnaverndarstofa
hafi afhent gögn um málið að beiðni
blaðsins. Þar á meðal hafi verð um-
ræddur tölvupóstur Steingríms til
Árna Páls, sem dagsettur er 22. janúar
á þessu ári. Af því leiðir að tölvupóst-
urinn var ekki aðeins í fórum Árna
Páls og Steingríms sem einkabréf.
Bæði félagsmálaráðuneytið og Barna-
verndarstofa litu enda svo á að lokinni
lögfræðilegri athugun að tölvupóstur
Steingríms væri opinbert gagn sem
skylt væri að afhenda Fréttablaðinu.
Leyndarhyggja eða gagnsæi?
Þetta fær auk þess stuðning í gögnun-
um, sem DV hefur nú einnig aðgang
að. Í tölvupósti Bolla Þórs Bollason-
ar, ráðuneytisstjóra félagsmálaráðu-
neytisins, til Braga Guðbrandssonar,
forstjóra Barnaverndarstofu, 25. jan-
úar síðastliðinn, segir orðrétt: „Heill
og sæll. – Við hefðum gjarnan viljað fá
skrifleg viðbrögð frá þér vegna þeirra
atriða sem fram koma í tölvupósti fjár-
málaráðherra um Árbót.“
Þessi stutta beiðni Bolla Þórs er
samin aðeins þremur dögum eftir að
Steingrímur sendi umdeildan tölvu-
póst sinn til Árna Páls Árnasonar. Af
öllu má því ljóst vera að athugasemdir
Steingríms voru þegar í upphafi túlk-
aðar sem opinbert gagn málsins og því
ekki um neinn einkapóst að ræða eins
og Steingrímur gaf til kynna úr ræðu-
stól á Alþingi. Enda mætti spyrja hvort
ætlast hafi verið til þess að forstjóri
Barnaverndarstofu svaraði tölvubréfi
sem ráðherrar teldu sjálfir einka-
tölvupósta og þar með leynigögn inn-
an stjórnsýslunnar sem ekki mættu
koma fyrir augu skattgreiðenda. Stein-
grímur hafði auk þess gefið til kynna í
ræðustól að fjármálaráðuneytið hefði
áhyggjur af því að kostnaður færi úr
böndunum ef illa tækist til um úr-
lausn málsins. Hafi þær áhyggjur verið
á rökum reistar gat varla verið viðeig-
andi stjórnsýsla að afgreiða slíkt mál
fyrir hönd skattgreiðenda með einka-
bréfi.
Þingmannaþrýstingur
Eins og Fréttablaðið hefur greint frá
snýst Árbótarmálið um uppsögn á
samningi við hjónin Hákon Gunnars-
son og Snæfríði Njálsdóttur um rekstur
meðferðarheimilis að Árbót í Aðaldal
frá og með síðustu áramótum. Eftir því
sem DV kemst næst eiga þau hjónin og
reka þrjár bújarðir, Árbót, Berg og Sand
í Aðaldal. Auk þess eiga þau sumarbú-
staði í dalnum og einbýlishús á Húsa-
vík. Þau hafa rekið meðferðarheimili
fyri unglinga að Árbót í meira en tvo
áratugi við góðan orðstír. Snæfríður er
sveitarstjórnarmaður í Þingeyjarbyggð
fyrir Sjálfstæðisflokkinn og hefur ver-
ið á lista flokksins í kjördæminu fyr-
ir þingkosningar. DV hefur heimildir
fyrir því að bæði núverandi og fyrrver-
andi þingmenn Sjálfstæðisflokksins,
en einnig annarra flokka, hafi þrýst á
góða samninga við Hákon og Snæfríði.
Fjarar undan rekstrinum
Eftirspurn eftir vistun ungmenna á Ár-
bót féll umtalsvert eftir að starfsmað-
ur á meðferðarheimilinu varð uppvís
að kynferðislegu ofbeldi gegn stúlk-
um sem þar höfðu verið vistaðar. Nýt-
ingin var komin niður undir 50 pró-
sent og horfurnar ekki jákvæðar. Fyrir
réttu ári taldi Barnaverndarstofa, sem
greiddi árlega 76 milljónir króna til
heimilisins, ekki lengur verjandi að
halda starfseminni áfram. Þess má
geta að framlagið miðaðist við að með-
ferðaraðilarnir, Hákon og Snæfríður,
bæru fulla fjárhagslega ábyrgð á öllum
rekstrinum.
Fulltrúum barnaverndarnefnda
voru kynntir tveir kostir, að halda starf-
seminni áfram að Árbót og hins veg-
ar að opna annað heimili nær höfuð-
borgarsvæðinu, að Geldingalæk. Í
minnisblaði frá 26. nóvember 2009
er því lýst að fulltrúar barnaverndar-
nefnda hafi stutt seinni kostinn, þó
þannig, að Árbót yrði ekki lokað nema
annað heimili opnaði. Niðurstaðan
varð að Barnaverndarstofa sagði skrif-
lega upp samningnum við Snæfríði og
Hákon 30. desember í fyrra.
30 milljóna samningur
Steingrímur svaraði spurningum Óla-
far Nordal á Alþingi, en hún tók upp
Árbótarmálið á þingi í kjölfar um-
fjöllunar Fréttablaðsins. Fyrir liggur
að málinu var lokið með 30 milljóna
greiðslu til Hákonar og Snæfríðar gegn
vilja og ráðleggingum Barnavernd-
arstofu. Steingrímur sagði meðal
annars: „Það er þannig með þessa
samninga að í þeim er ekki ótvírætt
uppsagnarákvæði, heldur endurskoð-
unarákvæði. Þetta viðurkenndi Barna-
verndarstofa í reynd með því að ganga
til viðræðna við rekstraraðilana í fram-
haldi af því að hafa tilkynnt þeim um
uppsögn í lok árs.“
Í 18. grein samningsins segir hins
vegar orðrétt: „Komi til ófyrirséðra
breytinga, sem að mati annars eða
beggja samningsaðila, raski forsend-
um samnings þessa, getur hvor að-
ili um sig óskað endurskoðunar eða
uppsagnar samningsins. Hér getur til
dæmis verið um að ræða að eftirspurn
eftir þjónustu meðferðarheimilisins
verði til muna minni en áætlað er...
Uppsagnarfrestur skal þá vera 6 mán-
uðir.“
Víst er uppsagnarákvæði
Ákvæðið í 18. grein samningsins er
ótvírætt og stangast því á við það sem
Steingrímur hélt fram úr ræðustól á
Alþingi, hver svo sem framvinda máls-
ins svo varð vegna inngripa hans og fé-
lagsmálaráðherra. Enda segir orðrétt í
bréfi Bolla Þórs Bollasonar, ráðuneyt-
isstjóra í félagsmálaráðuneytinu, til
Barnaverndarstofu þann 14. desem-
ber 2009: „Af þessu tilefni tekur ráðu-
neytið fram að að vel athuguðu máli er
niðurstaða þess sú að óhjákvæmilegt
sé að segja upp samningi Barnavernd-
arstofu við Árbót. Ráðuneytið fellst
því á tillögu Barnaverndarstofu um að
samningnum verði sagt upp fyrir árs-
lok 2009.“
Í uppsagnarbréfi Barnaverndar-
stofu til Snæfríðar og Hákonar þann
StjórnSýSla
gamla ÍSlandS
Hitnað hefur í kolunum á Alþingi og
innan stjórnarráðsins vegna 30 milljóna
lokasamnings sem þingmenn í Norðaustur-
kjördæmi beittu sér fyrir að gerður væri
við aðstandendur Árbótarheimilisins í
Að aldal. Málið þykir lykta af kjördæma-
poti og fyrirgreiðslustjórnmálum sem
stangast á við fyrirheit um bætta stjórn-
sýslu og vinnubrögð innan stjórnarráðsins.
jóhann haukSSon
blaðamaður skrifar: johannh@dv.is
heitt undir fjármálaráðherra Hitinn
íÁrbótarmálinu,semSteingrímurJ.
Sigfússontalaðiumítölvupóstiíjanúar,
ernúundirhonumsjálfum.
Vildi fylgja samningi og lækka kostnað
BragiGuðbrandsson,forstjóriBarnavernd-
arstofu,varsakaðurumaðlekagögnumtil
Fréttablaðsins.Þaðreyndistrangt.
Árbótarheimilið ÞingmenníNorðaustur-
kjördæmibeittusérfyrirað30milljónaloka-
samninguryrðigerðurviðaðstandendur.