Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2010, Page 14
14 fréttir 24. nóvember 2010 miðvikudagur
B: Þú segist hafa stungið hann,
lýstir því og spurningin er: Gerðir þú
þér ekki grein fyrir því að þú varst að
drepa manninn?
G: Jú, ég held ég hafi gert það. [...]
B: En þegar þú labbaðir í burtu
sem sagt frá vettvangi og skilur
Hannes þarna eftir [...], var þér ekki
ljóst að maðurinn var látinn?
G: Nei.
B: Ertu ekki öruggur á því?
G: Ég vildi bara komast í burt, ég
vildi ekki vera þarna. [...]
K: Heyrðu það kom í ljós að hníf-
urinn svona fannst á svolítið öðrum
stað heldur en úlpan við höfnina,
hvaða skýringu hefur þú á því?
G: Fannst hnífurinn?
K: Já.
G: Ja, hann var ofan í pokanum,
en var hann búinn að stinga gat á
pokann.
K: Hver var búinn að stinga gat á
pokann?
G: Hnífurinn, hann stakkst út.
K: Hann stakkst út, þú sagðir að
þú hefðir ráfað um bryggjuna, varstu
eitthvað að ráfa um með hnífinn?
G: Nei, ég var bara sjálfur þarna.
K: Hann fannst aðeins frá sko,
200–300 metra frá þessum stað sem
úlpan var, eða frá þessari bryggju þar
sem þú sagðist dorga.
G: Hann var ofan í pokanum, ég
man eftir að hafa sett hann ofan í
pokann.
B: Þannig að þú hefur enga
skýringu á því af hverju hann finnst
þarna annar staðar?
G: Ekki nema hann hafi dottið úr
pokanum?
K: Við eigum sko myndband frá
höfninni þar sem þú sést labba úr
bílnum með eitthvað í hendinni en
við sjáum það kannski ekki alveg en
þú hendir einhverju undir bryggj-
una eins og þú hefur skýrt frá. Hverju
hentir þú undir bryggjuna, var það
bara úlpan eða var það eitthvað
meira?
G: Fyrst henti ég pokanum svo
henti ég úlpunni ofan á pokann,
það var bara grjót þarna niðri undir
bryggjunni.
K: Varstu bæði með pokann og
úlpuna þegar þú ferð út úr bílnum?
G: Úlpan var í skottinu, úlpan og
pokinn voru bæði í skottinu, ég hélt
á því bæði.
K: Þreifstu bílinn eftir þetta?
G: Nei, ég hef aldrei þrifið bílinn.
K: Þú hefur aldrei þrifið bílinn.
Þú sagði mér að þú sankaðir þessum
hlutum að þér sko og þú varst búinn
að greina frá því að þú hefðir fengið
hnífinn út í Húsasmiðjunni, stolið
honum þar. Hvaðan kemur úlpan?
G: Ég held að mamma hafi keypt
hana handa mér einhvern tímann,
ég man ekkert hvenær, hún vara
bara heima hjá mér.
K: En límbandið hvar keyptir þú
það eða tape-ið?
G: Húsasmiðjunni.
K: Manstu hvenær það var sem
þú keyptir það?
G: Nei.
K: En latexhanskarnir hvenær
stalstu þeim úr vinnunni?
G: Það var einhvern tímann eftir
að við fluttum í Borgartúnið.
K: Hvenær fluttuð þið í Borgar-
túnið?
G: Í apríl held ég.
K: Og svo sagðir þú að þú hefðir
keypt lambhúsettuna í 66°Norður,
hvenær var það?
G: Ég man ekkert hvenær það var.
K: Var það á þessu ári eða síð-
asta?
G: Það var, það var það síðasta
sem ég keypti held ég.
K: Síðasta sem þú keyptir?
G: Já.
K: Hvaða 66°Norður ?
G: Hafnarfirði.
K: Þarna, þarna sem... ?
G: Eða ég held að þetta sé í Kópa-
vogi, þetta er þarna sem Sorpan er
og hérna Latibær. 66°Norður.
K: Við höfum rætt sko um þessa
Vestmannaeyjaferð, voru þessi
áform byrjuð þegar þú varst í Vest-
mannaeyjum?
G: Nei, ég vildi bara gleyma öllu
þá, ég vildi bara drekka þá.
B: Svo það er bara eitt líka sem
mig langaði til að spyrja þig um.
Þessir hlutir sem þú nærð í smátt og
smátt og á einhverjum tíma. Þeir eru
þá liðir í því að undirbúa þig til þess
að drepa Hannes?
G: Já.
B: Það var ekkert annað sem kom
upp í hugann þinn?
G: Fyrst var þetta bara eins og ég
var að segja, ég var að reyna að ýta
þessu til hliðar bara til þess að gera
eitthvað í því, þá fékk ég þessa hugs-
un og einhvern veginn fór hún þegar
ég bara byrjaði að gera eitthvað í
sambandi við hana, þegar ég byrjaði
að plana þá fór hún svo kom hún
aftur og þá hélt ég áfram það sem
ég var komin. Ég reyndi eins og ég
gat að ýta henni frá mér en hún kom
alltaf aftur.
K: Nú er þessi hugsun eða þrjá-
hyggja að sækja á þig, reyndir þú að
fá einhverja svona aðstoð við henni
hjá einhverjum sérfræðingum?
G: Nei, ég vissi ekki að það væri
eitthvað að hjá mér sko, ég pældi
ekkert í því.
K: Þú pældir ekkert í því.
G: Ég hélt ég gæti séð um þetta
sjálfur sko. Eins og ég sagði ég hafði
stoppað mig áður, ég hélt ég gæti
bara stoppað mig.
K: Hvernig leið þér þegar þú varst
búinn að koma þessu í kring svona,
sem sagt búinn að verða Hannesi að
bana?
G: Mér leið illa, mér leið svo rosa-
lega illa...en bara einhvern veginn,
fannst heimurinn hrynja í kringum
mig, ég reyndi að halda áfram og
vonaðist til að mæta í vinnuna, ég fór
á æfingar, annað fór ég ekki.
K: Nú ertu búinn að lýsa æfing-
unum þarna þar sem þú varst í þessu
Jiu Jitsu?
G: Já.
K: Hvenær byrjaðir þú að æfa Jiu
Jitsu?
G: Fjórir mánuðir síðan, held ég.
K: Fjórir mánuðir. Fórstu að æfa
Jiu Jitsu í tengslum við þessi plön?
G: Nei, ég fór á japönskunám-
skeið í janúar eða febrúar, mig lang-
aði að læra japönsku, Ég hitti þar
einn strák sem var að æfa Jiu Jitsu og
mig langaði eiginlega bara, þetta er
meira bara partur af náminu ég hef
hrifist mjög af japönsku og öllu jap-
önsku og mig langaði bara að læra
þessa bardagaíþrótt. Það tengdist
ekkert Hannesi.
K: En þegar þú varst að æfa bar-
dagaíþróttina vikuna áður en þú
varðst Hannesi að bana, var það í
tengslum við þessi áform um að
verða honum að bana?
G: Nei, ég bara æfði, ég æfi og
æfi og mætti alltaf á æfingar og tek
þjálfunina mína í gegn, ég vildi bara
koma mér í form. [...]
B: Kannski eitt sem að mig langar
til að tala við þig um. Þegar að hérna,
þú vissir það að þegar að tæknideild-
in skoðaði skottið á bílnum þá gaf
þar svörun um blóð.
G: Já.
B: Var það á þeim stað sem þú
hafðir sett pokana?
G: Ég veit ekkert hvar sá staður
var en ég setti það vinstra megin í
vinstra horninu.
B: Þannig að þú stóðst yfir skott-
inu, þá var það vinstra megin?
G: Já.
K: Vinstra megin í skottinu þá
miðað við að þú standir fyrir aftan
skottið.
G: Ef ég stend og horfi á skottið.
K: Já.
G: Inn í skottið þá var það vinstra
megin.
B: Þú segist ekki hafa talað um
þetta við nokkurn mann eða leitað
eftir hjálp, skrifaðir þú eitthvað um
þetta, þessar óskir þínar?
G: Þetta var allt í hausnum á mér.
B: Var allt í höfðinu.
K: Þú hefur ekkert bloggað eða
skrifað þessi áform niður eða?
G: Nei.
K: Varstu einn að verki eða var
einhver með þér?
G: Ég var bara einn.
K: Hverju viltu bæta við þetta?
G: Ég... það er auðvitað allt of
seint að fara að sjá eftir eftir núna, ég
vona bara að ég nái einhvern tím-
ann að sigrast á hvaða veg sem ég
(óskýrt)... Ég vona að mínir nánustu
geti fyrirgefið mér.
K: Við ætlum að taka hlé á yfir-
heyrslu núna. 13:19.... Yfirheyrslan
er komin í gang aftur og og klukkan
er 13:38 og það er eins og áður að
þú ert grunaður um að hafa orðið
Hannesi Helgasyni að bana, sunn-
daginn 15. ágúst 2010 í Háabergi 23,
þér er óskylt að svara spurningum
varðandi sakarefnið en kjósir þú að
tjá þig ertu áminntur að segja satt og
rétt frá. Nú það sem ég var að hugsa
um að gera núna, ef að þú treyst-
ir þér til þess, er að teikna svona
herbergið hjá Hannesi og rúmið og
inn í herbergið og hvar Hannes lá í
rúminu þegar þú sást hann fyrst. Þá
er bara að nota blaðið svona hvernig
herbergið er. [...]
K: Það er ein spurning kannski,
hvernig vissir þú að enginn var
heima þarna fyrr um kvöldið þegar
þú fórst í þennan könnunarleiðang-
ur... kvöldið áður sem sagt?
G: Ég byrjaði að labba og svo man
ég að Hildur sagðist ætla að fara
á einhverja tónleika með honum
Hannesi.
K: Og hvenær sagði hún þér það?
G: Hún sagði mér það kvöldið
áður.
K: Kvöldið áður, tónleika með
Hannesi hvert?
G: Í Vogunum, einhverja Bubb-
atónleika.
K: En þegar að þú ert þarna um
nóttina, hvernig vissir þú að Hannes
var einn heima?
G: Ég bara hélt það eins og ég
segi, Hildur fór að djamma og þeg-
ar Hannes er ekki með henni þá er
hann oftast bara sofandi. [...]
G: Ég frétti þegar ég var þarna í
Eurovision að einhver væri að sofa
þarna niðri í kjallaranum hjá þeim
en ég vissi ekkert að það væri ein-
hver annar að búa þarna niðri þegar
ég fór.
K: Segðu mér annað þegar þú
keyptir lambhúshettuna, þú sagðist
hafa keypt á í 66°Norður, með hverju
borgaðir þú hana?
G: Peningum.
K: Með peningum, hvað kostaði
hún?
G: Tvö þúsund kall eða eitthvað.
K: Keyptir þú lambhúshettuna
fyrir eða eftir þjóðhátíð?
G: Fyrr.
K: Fyrr, fyrir eða eftir Eurovision?
G: Held ég eftir Eurovision.
K: Eftir Eurovision.
G: Bara um sumarið held ég.
K: Núna um sumarið?
G: Já.
K: Þannig að þú keyptir hana á
milli Eurovision og eyjahátíðarinnar
um verslunarmannahelgina?
G: Já, ég held það, ég er nokkuð
viss um það, já. [...]
K: Hverju viltu bæta við þetta?
G: Ekkert.
K: Eitthvað meira?
B: Nei, ég held að þetta sé komið
nokkurn veginn.
K: Þá ætla ég að segja skýrslu, yf-
irheyrslu lokið og klukkan er 13:48.
K: Það er kannski smá viðbót
og klukkan 13:49 þegar yfirheyrslu
er framhaldið. Heyrðu við ætlum
að sýna þér mynd af hnífnum sem
fannst í Hafnarfjarðarhöfn.
G: Ok.
GS: Það er að segja sem að þess-
ir...?
K: Þessir piltar fundu við Hafnar-
fjarðarhöfn?
G: Þetta er hann.
K: Þetta er hnífurinn, ertu alveg
viss?
G: Hann er blár, þetta er hann.
K: Þú ert búinn að teikna hann
fyrir okkur, þú kannast við þennan
hníf?
G: Já.
K: Er þetta sami hnífurinn sem
þú notaðir til að verða Hannesi Þór
Helgasyni að bana?
G: Já.
K: Eitthvað sem að, þekkir þú
einhver séreinkenni á hnífnum?
G: Hann er blár og með rönd
hérna, hún fór af.
K: Og þetta er sá hnífur sem þú
fékkst í Húsasmiðjunni þegar þú
varst að vinna þar?
G: Já.
B: Það er kannski eitt bara, var
hann einhvern tíma brýndur?
G: Nei, ég hef aldrei brýnt hann.
K: Heyrðu þá ætla ég bara, er eitt-
hvað sem þú vilt bæta við?
G: Nei.
K: Þá segjum við yfirheyrslu lokið
og klukkan er 13:52.
Heimili Hannesar Þórs Grunur beindist fljótlega að Gunnari Rúnari þrátt fyrir að hann hefði reynt að fela vegsummerki.
Hannes og Hildur á góðri stundu Gunnar Rúnar segir í játningunni að hann
hafi aldrei verið reiður út í Hannes og segir hann hafa verið „rosalega almennileg-
an og fínan gaur“.