Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2010, Qupperneq 21
Það tók Íslend-
inga aldir að öðl-
ast sjálfstæði
undan oki er-
lendra afla. Það
er þó spurning
á hvaða tíma-
punkti sjálfstæðið
varð að veruleika,
hvenær við urð-
um raunverulega
sjálfstætt ríki. Var
það við stofnun
lýðveldisins árið
1944, eða var það kannski enn síð-
ar? Íslendingar öðluðust sjálfstæði
árið 1944, en engu að síður réðum
við ekki yfir stærstu og langmikilvæg-
ustu auðlind okkar, nytjastofnum á
Íslandsmiðum, þannig að spurning er
hvort við vorum í raun fullvalda, líkt
og menn hafa haldið fram að við höf-
um orðið árið 1918. Til þess að þjóð sé
fullvalda hlýtur hún að þurfa að ráða
ein yfir auðlindum sínum. Til þess að
ná því markmiði að njóta ein arðsins
af stærstu og langmikilvægustu auð-
lind okkar, fiskistofnunum, voru háð
fjögur hetjuleg þorskastríð gegn er-
lendum þjóðum. Þetta var í reynd til
þess að tryggja fullveldisrétt okkar yfir
nýtingu fiskistofnanna. Þannig má
færa fyrir því rök að fyrr höfum við í
reynd ekki verið fullvalda ríki.
Að útgerðarmenn eigi
nytjastofna
Við vorum ekki fyrr búin að vinna sig-
ur í síðasta þorskastríðinu árið 1976
og ná fullum yfirráðum yfir auðlind-
inni að græðgin innan okkar eigin
raða tók við. Ákveðið var af þröng-
um hópi að svipta þjóðina þessari
sameign sinni umsvifalaust og færa
varanlega í hendur ákveðins hóps
með það að markmiði að eignarréttur
yfir auðlindinni skapaðist. Allar göt-
ur síðan hafa færustu lögfræðingar
á snærum þessa hóps reynt að færa
fyrir því rök að auðlindin eða nýt-
ing hennar sé eign útgerðarmanna.
Í nýjasta tölublaði Úlfljóts gekk einn
þeirra svo langt að halda því fram
að þjóðin, eða ríkið, hefði í raun lítið
með nýtinguna að gera, heldur væri
algerlega lögfræðilega óyggjandi að
útgerðarmenn ættu nytjastofna sjáv-
ar og því ættu þeir einir að stjórna því
hvernig með þá væri farið. Þetta taldi
lögfræðingurinn að þeir ættu að gera
með því að stofna með sér veiðifélag,
líkt og gerist í ám og vötnum. Vissu-
lega er umrædd grein svo hrikalega
illa unnin lögfræðilega að það er út-
gefendum Úlfljóts til mikils vansa að
hafa birt hana, en engu að síður ætti
hún að vera mönnum viðvörun um
þá bíræfni sem gildir þegar kemur
að því að svipta þjóðina forræði yfir
þessari sameign sinni. Þessi draum-
sýn LÍÚ og þeirra undirsáta verður
að veruleika á endanum, verði ekki
gripið í taumana. Vondir hlutir ger-
ast nefnilega ekki eingöngu með að-
gerðum slæmra manna, heldur einn-
ig með aðgerðaleysi góðra manna.
Miskunnarlaus öfl
Það sem allir Íslendingar verða að
átta sig á er að þessir menn eru stað-
ráðnir í að svipta þjóðina stórum
hluta fullveldis síns, enda getur þjóð
sem búið er að svipta forræði yfir
auðlindum sínum vart talist fullvalda
í merkingu þess orðs, enda felst í full-
veldinu æðsta lagalega vald til þess
að skipa málum samfélagsins. Um-
rædd grein í Úlfljóti sýnir svo ekki
verður um villst að til stendur að
svipta þjóðina stórum hluta af full-
veldi sínu, fullveldisrétti yfir stærstu
auðlind sinni. Það verður að koma í
veg fyrir að þessum miskunnarlausu
öflum takist ætlunarverk sitt. Í stjórn-
arskrá verður að kveða á um að nátt-
úruauðlindir sem ekki eru í einka-
eign séu þjóðareign, jafnvel ríkiseign,
sem ekki megi selja né láta af hendi á
annan hátt, þó leigja megi afnotarétt
út gegn gjaldi til ákveðins tíma, sem
skal þá gert á jafnræðisgrundvelli í
samræmi við núverandi 65. gr. stjórn-
arskrárinnar. Þetta er lífsnauðsyn til
þess að koma megi í veg fyrir að að-
gerðaleysi góðra manna í framtíðinni
leiði til skelfilegra atburða, hvað þetta
varðar.
Sigríður SunnA EbEnESErS-
dóttir vann verkefni í meistaranámi
í mannfræði sem vakti athygli á
heimsvísu. Verkefnið varpar ljósi á
möguleg tengsl Íslendinga við
indíána. Niðurstöður hennar voru
birtar í American Journal of Physical
Anthropology og var vísað í þær í
stærstu dagblöðum heims.
Fékk athygli
á heimsvísu
gæsir Þessar gæsir voru til í að fá brauðbita frá gangandi vegfaranda við Tjörnina í Reykjavík á þriðjudaginn. Mynd róbErt rEyniSSon
1 Heilsuútrásin sem mistókstÍ DV á mánudaginn var nærmynd af
Birni Leifssyni í World Class.
2 krossmaður: „Þetta er bara ekki rétt“ Fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri Krossins um frétt um
ásakanir kvenna á hendur Gunnari
Þorsteinssyni.
3 skopteikning veldur upp-námi: „Þið eruð skítHælar“
Fjörugar umræður hafa spunnist
undir mynd skopteiknarans Henrýs
Þórs Baldurssonar af Marinó G.
Njálssyni.
4 „tek ekki Þátt í Þessu“ Fremsti knattspyrnudómari landsins,
Kristinn Jakobsson, mun ekki dæma í
skosku deildinni um helgina.
5 skotum rignir á kóreuskag-anum Meira en tvö hundruð
sprengjum hefur rignt yfir suðurkór-
esku eyjuna Yeonpyeong.
6 viking Jóla bock bestur í bragðkönnun dv
Ótvíræður sigurvegari í bragðkönn-
un DV á besta jólabjórnum.
7 Ferðamönnum verði bannað að sækJa kaFFiHúsin Í Amster-
dam er frjálsleg fíkniefnalöggjöf.
mest lesið á dv.is myndin
Hver er maðurinn? „Ég er fjölskyldu-
kona, mannfræðingur og doktorsnemi.“
Hverjar eru æskuslóðirnar? „Reykjavík,
Akureyri, Lillehammer og Kópavogur.“
Eigum við íslendingar ættir að rekja
til indíána? „Mjög lítill hluti Íslendinga
á ættir að rekja til konu sem líklegt er að
hafi verið Indíáni.“
Hvað hefur þú fyrir stafni þessa
dagana? „Ég var að hefja doktorsnám í
mannerfðafræði á Ítalíu. Auk þess er ég
tveggja barna móðir. Er með eina fjögurra
mánaða og aðra sem var að byrja í öðrum
bekk hérna úti svo að það er í nógu að
snúast þessa dagana.“
Hver var kveikjan að verkefni þínu?
„Rannsókn doktors Agnars Helgasonar
hjá Íslenskri erfðagreiningu á uppruna
Íslendinga. Hann stakk upp á því við
mig að ég rannsakaði þessa sérstöku
hvatberaarfgerð sem hann fann.
Niðurstöður mastersrannsóknar minnar
voru síðan teknar saman í greininni sem
var birt í American Journal of Physical
Anthropology.“
rannsóknin hefur hlotið mikla
athygli í heimspressunni, hvað finnst
þér um það? „Það er auðvitað alltaf
skemmtilegt þegar íslenskar rannsóknir
vekja athygli á heimsvísu. Ég er ákaflega
heppin að hafa fengið tækifæri á að
rannsaka svona áhugavert efni. Þrátt
fyrir að þessi rannsókn hafi aðeins fjallað
um erfðasögu fárra Íslendinga þá opnar
hún fyrir vísindalega umfjöllun um efni
sem snertir sögu Íslendinga og það er
vissulega ánægjulegt.“
Áttu þér einhverjar fyrirmyndir? „Það
væri einna helst mamma mín og vinkonur
mínar. Þær búa yfir kostum sem ég reyni
að tileinka mér.“
Hvað drífur þig áfram? „Ég vil vera
börnunum mínum góð fyrirmynd.“
Hver eru helstu áhugamál þín?
„Þessa dagana er það ítalska og ítölsk
matargerð.“
uppáhaldsbókin? „The Hundred Secret
Senses eftir Amy Tan.“
Á hvað ertu að hlusta þessa dagana?
„IPodinn hans Tóta, kærasta míns.“
maður dagsins
„Nei, það held ég ekki.“
Jón ingvAr KArlSSon brunE
21 áRS NEMI
„Já, það held ég.“
guðMundur guðMundSSon
19 áRA NEMI
„Já, upp á þátttöku.“
Sigurður Þór SigurðSSon
á HLAuPAALDRI, SÉRFRæðINGuR
„Alls ekki.“
rAgnAr SvErriSSon
30 áRA DANSKENNARI
„Nei, það held ég ekki.“
ElíSAbEt bJArnAdóttir
20 áRA NEMI
ætlar Þú að kJósa á laugardaginn?
dómstóll götunnar
miðvikudagur 24. nóvember 2010 umræða 21
Sjálfstæð þjóð án fullveldis?
Þórður már
Jónsson
lögfræðingur skrifar
Vondir hlutir gerast nefnilega
ekki eingöngu með að-
gerðum slæmra manna,
heldur einnig með að-
gerðaleysi góðra manna.
kjallari