Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2010, Blaðsíða 25
framstúlkur til þýskalands
Bikarmeistarar Fram í handknattleik kvenna mæta HSG
Bloomberg Lippe frá Þýskalandi í 16 liða úrslitum Evrópu-
keppni bikarhafa en dregið var í gær. HSG Bloomberg er sem
stendur í sjötta sæti í þýsku deildinni sem telur tólf lið en
Bloomberg-konur hafa unnið helming leikja sinna. Verkefnið
er því ærið fyrir Safamýrarstúlkur en þær geta þó prísað sig
sælar að þurfa ekki að ferðast lengra en til Þýskalands. Fram
hefur til þess lagt lið frá Sviss og Úkraínu að velli.
suarez sektaður Hollenska stórveldið Ajax hefur
ákveðið að sekta úrúgvæska framherjann Luis Suarez og dæma
hann í tveggja leikja keppnisbann fyrir að bíta andstæðing sinn í
leiknum gegn PSV um síðustu helgi. Suarez tók þá einhverja und-
arlegustu ákvörðun seinni tíma í boltanum og beit Otman Bakkal,
leikmann PSV, í öxlina í markalausu jafntefli liðanna. Hollenska
knattspyrnusambandið er einnig með málið inni á sínu borði og
gæti dæmt hann í bann. Suarez fékk þó að leika með Ajax gegn
Real Madrid í Meistaradeildinni í gærkvöldi.
mOlar
Skotar fá enga hjálp
n Forsvarsmenn skoska knatt-
spyrnusambandsins leita nú
logandi ljósi að dómurum sem
geta dæmt í
öllum deildum
landsins um
helgina en
skoskir dómarar
eru á leiðinni í
verkfall vegna
þeirra umsagna
sem þeir hafa
fengið og nokk-
urra líflátshótana. Írska deildin er
í vetrarfríi en formaður dómara-
sambands Írlands segir líklegast að
þeir ætli að standa með kollegum
sínum. Dómarasamband Wales
hefur útilokað að hjálpa Skotum,
Norður-Írar vilja ekki blanda sér í
málið og enska knattspyrnusam-
bandið segist ekki geta hjálpað
nágrönnum sínum.
engar áhyggjur
hjá ChelSea
n Salomon Kalou, leikmaður
Chelsea, telur að liðið geti aftur
komist á beinu brautina í ensku
úrvalsdeildinni
en þar hefur liðið
tapað þremur
af síðustu
fjórum leikjum.
„Við vorum að
vinna alla leiki
með þriggja til
fjögurra marka
mun en stund-
um verða leikirnir svo jafnir að
maður hættir að taka þær áhættur
sem við tókum. Þetta er bara hluti
af boltanum, þetta fer allt upp og
niður. Við erum búnir að vera í
meiðslavandæðum þannig við
höfum engar áhyggjur. Við þurfum
bara að halda einbeitingu og vinna
leiki aftur,“ segir Kalou.
Þægilega Stutt
frá efStu fjórum
n Hinn rándýri hægri bakvörður
Liverpool, Glen Johnson, er hæst-
ánægður með að vera ekki búinn að
missa af lestinni
hvað varðar
fjórða sætið og
þar af leiðandi
þátttökurétt í
Meistaradeild-
inni. Þrátt fyrir
hörmulega byrj-
un er Liverpool
nú aðeins sex
stigum frá Manchester City sem
náði fjórða sætinu um helgina. „Við
erum tiltölulega nálægt toppnum
þannig að ef við vinnum leiki
áfram er ég viss um að við náum
markmiðum okkar,“ segir Johnson
sem skoraði fyrsta mark Liverpool í
öruggum 3–0 sigri á West Ham um
síðustu helgi.
erfitt að halda
í WelbeCk
n Eric Black, aðstoðarknattspyrnu-
stjóri Sunderland, segir að það geti
orðið erfitt að halda í enska fram-
herjann Danny
Welbeck sem er
á láni hjá liðinu
frá Manchester
United út tíma-
bilið. Welbeck
skoraði tvö mörk
á mánudaginn
í 2–2 jafnteflinu
gegn Sunder-
land og hefur nú alls skorað þrjú
mörk í síðustu tveimur leikjum.
„Vonandi getum við fengið hann
endanlega til okkar. En ef hann
gerir jafnvel og ég býst við, skori
kannski fimmtán mörk, þá verður
afskaplega erfitt að halda í hann,“
segir Eric Black.
miðvikudagur 24. nóvember 2010 spOrt 25
Seinni hlutinn í baráttunni um Bret-
land á milli Manchester United og
Glasgow Rangers í Meistaradeildinni
fer fram í kvöld þegar United-menn
fara í heimsókn á Ibrox-völlinn. Fyrri
leik liðanna lauk með markalausu
jafntefli á Old Trafford en United hef-
ur unnið alla sína þrjá leiki síðan þá.
Manchester United er efst í C-riðli
með 10 stig, Valencia er með 7, Rang-
ers 5 og Bursaspor er án stiga.
Suður-Kóreumaðurinn Ji-Sung
Park segir United-menn ætla sér sig-
ur í Skotlandi til að geta slakað á í lok-
aleiknum gegn Valencia. „Við getum
farið þangað og náð í stig og komist
þannig í 16 liða úrslitin. Við ætlum
samt ekki að sækja eitt stig, heldur öll
þrjú. Það er mjög mikilvægt fyrir okk-
ur að vinna þennan leik því þá getur
stjórinn leyft sér að hvíla menn í lok-
aleiknum gegn Valencia,“ segir Park,
en United hefur betur innbyrðis gegn
Valencia eftir 1–0 sigur á útivelli.
Park býst fastlega við magnaðari
stemningu í kvöld eins og var þegar
liðin mættust tímabilið 2003/2004 í
sömu keppni. Vill Park líkja leikjum
liðanna við þá baráttu sem myndast
þegar Suður-Kórea og Japan mætast
í landsleik.
„Andrúmsloftið í þessum leikj-
um milli liða frá Englandi og Skot-
landi er allt öðruvísi en í öðrum leikj-
um í Meistaradeildinni. Það er mun
illgjarnara, stuðningsmenn standa
allan tímann og svo fer rosalega stór
hluti umfjöllun blaðanna í þessa
leiki,“ segir Park.
tomas@dv.is
Baráttan um Bretland færist á Ibrox:
Vilja sigur í Skotlandi
Skallamark landsliðsfyrirliðans Sölva
Geirs Ottesen fyrir FCK gegn Ros-
enborg í umspili um sæti í Meistara-
deildinni tryggði liðinu einn milljarð
íslenskra króna. Góður árangur liðs-
ins í riðlakeppninni hefur fært liðinu
enn meiri tekjur, en FCK getur enn
bætt í gullkistuna í kvöld þegar liðið
mætir rússneska liðinu Rubin Kaz-
an á útivelli. Nái strákarnir frá Kaup-
mannahöfn í stig í Rússlandi kom-
ast þeir í 16 liða úrslitin að því gefnu
að stórlið Barcelona leggi gríska liðið
Panathinakos að velli sem er neðst í
D-riðli. Sölvi Geir hefur setið á vara-
mannabekk FCK að undanförnu en
hann brotnaði á hendi fyrir rúmum
mánuði síðan.
Gullkistan belgist út
FCK er með óheyrilega yfirburði í
dönsku úrvalsdeildinni en þar hef-
ur liðið ekki enn tapað leik. Fjárhags-
staða liðsins hefur batnað svo um
munar eftir að Sölvi skallaði boltann
í netið gegn Rosenborg og tryggði
liðinu sæti í riðlakeppni Meistara-
deildarinnar. Fyrir það eitt að spila
umspilsleikina fengu bæði FCK og
Rosenborg 2,1 milljónir evra eða
sem nemur 323 milljónum íslenskra
króna.
Fyrir það að komast inn í riðla-
keppnina fékk FCK svo 3,8 milljón-
ir evra plús 550.000 þúsund á hvern
leik, samtals 7,1 milljónir evra eða
sem nemur einum milljarði króna.
FCK hefur nú unnið tvo leiki í riðla-
keppninni en fyrir hvern sigur gefur
UEFA 800.000 evrur en 400.000 fyr-
ir jafntefli. FCK hefur gert eitt jafn-
tefli. Samtals hafa Danirnir því rakað
inn 11,2 milljónum evra, samtals 1,7
milljörðum króna. Fyrir að komast í
útsláttarkeppnina fær hvert félag svo
þrjár milljónir evra til viðbótar þannig
komist FCK þangað verður hagnaður
félagsins orðinn vel yfir tveimur millj-
örðum íslenskra króna.
Frábært tímabil
Brasilíski framherjinn César Sant-
in hefur farið á kostum með FCK á
tímabilinu. Hann er búinn að skora
tólf mörk í sautján leikjum í dönsku
úrvalsdeildinni þar sem liðið hef-
ur hvorki meira né minna en sextán
stiga forystu eftir sautján umferðir og
er enn taplaust.
„Þetta tímabil hefur verið draumi
líkast,“ sagði hann í aðdraganda leiks-
ins gegn Rubin Kazan í kvöld. „Við
höfum samt unnið fyrir öllu sem við
höfum fengið á tímabilinu. Það voru
vissulega mikil vonbrigði að falla úr
leik í bikarnum en að komast í 16 liða
úrslit Meistaradeildarinnar fær mann
til að gleyma svoleiðis hlutum. Við
unnum Rubin Kazan á heimavelli og
getum gert það aftur. Það verður samt
erfitt því það er virkilega gott lið,“ segir
César Santin.
FCK getur bætt
í gullKistuna
Landsliðsfyrirliðinn Sölvi Geir Ottesen
og félagar hans í danska knattspyrnulið-
inu FC Kaupmannahöfn gætu komist í 16
liða úrslit Meistaradeildarinnar í kvöld
með hagstæðum úrslitum. Liðið hefur
nú þegar rakað inn sem nemur 1,7 millj-
örðum íslenskra króna á þátttöku sinni
í Meistaradeildinni og meiri peningur
bíður þeirra handan við hornið.
tómaS þór þórðarSOn
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is
Við unnum Rubin Kazan á heima-
velli og getum gert það
aftur. Það verður samt
erfitt því það er virki-
lega gott lið.
Í 16 liða úrslitin? Sölvi Geir og félagar geta komist í 16 liða úrslitin í kvöld.
mynD rEutErS
Kominn aftur Rooney snéri aftur í liðið gegn Wigan um helgina og honum hefur
verið lofað níutíu mínútum í kvöld. mynD rEutErS