Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2010, Page 29
miðvikudagur 24. nóvember 2010 sviðsljós 29
Vinir Ryans Reynolds og eiginkonu hans Scarlett Johansson hafa áhyggj-
ur af því að hjónin séu við það að
skilja. Þau eru bæði verkefnum
hlaðin og verja afar litlum tíma
saman. Þegar þau eru saman rífast
þau og er hvorugt viljugt til þess
að gera málamiðlanir til að bjarga
sambandinu. Ferillinn er númer
eitt, segir náinn vinur. „Þau eru að
vinna í sambandserfiðleikunum sem eru eingöngu vegna þess hversu mikið
þau vinna. En ekkert er líklegt til að breytast nema annaðhvort Scarlett eða
Ryan láti undan og það er ekki líklegt. Scarlett hættir ekki við neitt af sínum
verkefnum og vill það alls ekki og þannig líður Ryan líka.“
Ferillinn ernúmer eitt
Ryan Reynolds og scaRlett Johansson eiga í sambandserfiðleikum:
Fallegt par í vanda ferill scarlett og
ryans blómstrar en það sama er ekki
hægt að segja um samband þeirra.
Slúðurheimar Hollywood loga eftir að raunveru-leikastjarnan Kim Kar-dashian og fyrirsætan
Gabriel Aubry sáust saman á
leik með Los Angeles Lakers á
sunnudag. Gabriel er fyrrver-
andi kærasti leikkonunnar Halle
Berry en þau voru saman í ein
fimm ár og eiga dótturina Nöhlu
sem er tveggja ára. Kim og Gab-
riel skemmtu sér vel á leiknum
þar sem Lakers vann Golden
State Warriors 117–89.
Margir fjölmiðlar hafa haldið
því fram að þarna sé nýtt par á
ferðinni en Kris Jenner, móð-
ir Kim, hefur neitað því. Hún
var gestur í spjallþætti Geroge
Lopez í vikunni og þar sagði
hún: „Hann er vinur Kim ... bara
vinur.“ Ekki eru þó allir á því að
gleypa það hrátt og hafa slúður-
bloggarar haft orð á því að þau
séu einfaldlega bæði of falleg til
að vera vinir.
„Bara
vinir“
Kim Kardashian og Gabriel Aubry:
Kim og gabRiel Trúir þú
því að þau séu bara vinir?
Paris Hilton lætur ekkert á sig fá:
Paris Hilton var mynduð í bak og fyrir í síðustu viku meðan hún vann af sér hluta 200 klukkustunda þegnskylduvinnu í Los Angeles. Dóminn hlaut hún fyrir að hafa eiturlyf í fórum sínum og að
trufla störf lögregluþjóns. Paris málaði yfir veggjakrot og
mætti ekki í neinum lörfum til vinnu heldur skartaði for-
láta Christian Louboutin-skóm. Hún var einnig förðuð og
almennt vel tilhöfð og lætur púlið og málningarsletturnar
ekki hafa áhrif á stílinn.
Í Louboutin-
skóm í þegn-
skylduvinnu
djamm eða þegn-
skylduvinna? Hver
er munurinn? nánast
enginn, heldur Paris.
www.birkiaska.is
Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á bæði
vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar
starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar
efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum,
dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox).
Birkilaufstöflur
www.birkiaska.is
Minnistöflur
Bætir skammtímaminnið. Nýtist
fólki sem er undir álagi og fæst
við flókin verkefni. Hentar vel
fyrir eldri borgara, lesblinda og
nemendur í prófum. Dregur úr
streitu, eykur ró og bætir skap.