Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2010, Side 4
4 FRÉTTIR 29. nóvember 2010 MÁNUDAGUR
Vongóð um að ná undirskriftum fimmtíu fyrirtækja:
„Í raun kynjagleraugu“
„Ég er gífurlega ánægð að þessi þrjú
fyrirtæki hafi tekið af skarið og skrif-
að undir sáttmálann og vona ég svo
sannarlega að önnur íslensk fyrirtæki
taki sér þau til fyrirmyndar,“ segir Inga
Dóra Pétursdóttir, framkvæmdastýra
UNIFEM á Íslandi.
Á fimmtudaginn skrifuðu Marel,
Deloitte og Rio Tinto Alcan undir Jafn-
réttissáttmála UNIFEM sem er alþjóð-
legt samstarfsverkefni UNIFEM og UN
Global Compact á árlegum morgun-
verðarfundi UNIFEM á Íslandi. Nú
þegar hafa hundruð alþjóðlegra fyr-
irtækja skrifað undir sáttmálann en í
honum eru sjö viðmið sem fyrirtæki
eiga að hafa að leiðarljósi til þess að
efla konur og auka þátt þeirra í at-
vinnulífinu.
Með þessu heita fyrirtækin því að
þau muni sýna samfélagslega ábyrgð,
verða fyrirmynd fyrir starfsfólk og hlúa
að sjálfbærri þróun svo eitthvað sé
nefnt.
„Þessi sáttmáli er í raun kynjagler-
augu fyrir stjórnendur fyrirtækja því
þessi viðmið eru leiðbeinandi fyr-
ir stjórnendur um hvernig þeir geta
bætt jafnrétti kynjanna innan fyrir-
tækjanna, bæði hér á Íslandi og einnig
á starfsstöðvum sínum víða um heim.
„Frjáls félagasamtök, ríkisstjórnir
og alþjóðlega stofnanir hafa barist fyrir
jafnrétti kynjanna í áratugi en það er í
raun vendipunktur að fyrirtækin beiti
sér í jafnréttisbaráttunni.
gunnhildur@dv.is
Við undirritun Jafnréttissáttmála UNIFEM Ég vona svo sannarlega að önnur
íslensk fyrirtæki taki þau sér til fyrirmyndar, segir framkvæmdastýra UNIFEM á Íslandi.
HANDFÆRAKRÓKAR Á
KOSTNAÐ KVÍABRYGGJU
Dómsmálaráðuneytið hefur gefið út
tilkynningu þess efnis að Geirmundur
Vilhjálmsson hafi verið veitt lausn frá
störfum á meðan ríkisendurskoðandi
fer yfir bókhald og fjármál fangelsisins
Kvíabryggju
DV hefur undir höndum gögn sem
sýna aðeins brot af þeim vörum sem
Geirmundur keypti út á reikning fang-
elsisins hjá stóru fyrirtæki hér á landi.
Á meðal þess sem keypt var eru fimm
handfærakrókar, en sjálfur á Geir-
mundur bát en Kvíabryggja engan.
Fjórir rafgeymar, en Kvíabryggja hefur
til umráða tvo bíla; Land Cruser-jeppa
og vörubíl sem mun ekki vera mikið
notaður, tvo rafala, dempara, kolasett,
Kenwood-bíltæki með geislaspilara og
mp3-spilara, fjóra hjólbarða sem sam-
kvæmt heimildum DV passa hvorki
undir Land Cruser-jeppa né vörubíl.
Einnig var keyptur tjaldhamar, nef-
hjólsfesting og loftfyllt nefhjól. Ekki
er þó hægt að fullyrða að allt á þessum
lista hafi verið keypt til einkanota.
Þetta eru bara dæmi um hvað var
keypt hjá þessu eina tiltekna fyrirtæki
og samkvæmt heimildum DV er upp-
hæðin þar um 3,5 milljónum króna
það sem af er árinu 2010. Hversu stór-
an hluta þeirrar upphæðar Geirmund-
ur er grunaður um að hafa notað í eig-
in þágu, og hve stór hluti fór í rekstur
fangelsisins, er ekki vitað en ljóst er að
kostnaðurinn þykir grunsamlega hár
fyrir eðlilegan rekstur.
Margir reikningar
Kvíabryggja er með fjölda annarra
reikninga hjá hinum ýmsu fyrirtækj-
um og er verið að fara yfir úttektir
Kvíabryggju hjá þeim öllum. DV fékk
útprentanir á reikningum frá einu af
tveimur byggingarfyrirtækjum sem
Kvíabryggja verslar við. Reikningarn-
ir eru frá 1. september til 23. nóvem-
ber 2010 og er heildarupphæðin fyr-
ir þetta tímabil 650.250 krónum. Það
vekur upp spurningar um hversu dýrt
sé að reka fangelsið ef reikningar,
sem valdir eru af handahófi, fyrir þrjá
mánuði nema þessari upphæð. Þess-
ir reikningar sýna að meðal þess sem
keypt var á þessu tímabili var hurð og
hurðar karmur úr mahóní á samtals
40.544 krónur. Grunur um að eitthvað
óeðlilegt ætti sér stað vaknaði í sum-
ar við innra eftirlit á vegum Fangelsis-
málastofnunar.
Grundfirðingar í áfalli
Grundfirðingur sem blaðamaður
náði tali af sagði allan bæinn í áfalli
eftir að ljóst væri að Geirmundur
hefði verið leystur frá störfum.
Páll Winkel, forstjóri Fangelsis-
málastofnunar, fundaði á fimmtu-
dag með starfsmönnum Kvíabryggju
og samkvæmt heimildum DV voru
starfsmenn fangelsisins slegnir vegna
rannsóknar á fjárúttektum og leyf-
is Geimundar. Munu einhverjir hafa
fellt tár.
Ekki er vitað hversu langan tíma
mun taka að fara yfir bókhald og
reikninga þeirra fyrirtækja sem Kvía-
bryggja hefur átt í viðskiptum við en
málið er umfangsmikið.
Margar dularfullar úttektir er að finna í reikningum fangelsisins á Kvíabryggju. DV
hefur undir höndum gögn sem sýna að keyptir voru fimm handfærakrókar út á reikn-
ing fangelsisins, en forstöðumaðurinn, sem nú er kominn í leyfi, á sjálfur handfæra-
bát. Þá voru keypt Kenwood-bíltæki, demparar, fjórir rafgeymar og margt fleira.
6 fréttir
26. nóvember 2010 föstudagur
Opið virka daga 12-18
laugardag 12-16
Grensásvegi 8 -108 RVK
Sími: 517-2040
Góðir skór
á börnin
www.xena.is
St. 24-35
kr. 4.795.-
St. 24-35
kr. 4.795.-
St. 24-35
kr. 4.995.-
St. 24-35
kr. 4.795.-
Fréttir um samruna Storm Seafood og Eyrarodda rangar:
Samstarf um löndun og vinnslu
„Þetta er partur af samkomulagi sem
verið er að skoða hvort gangi eftir.
Þetta er spurning um samstarf um
löndun og vinnslu en það á eftir að
skýrast betur hvernig þetta þróast,“
segir Teitur Björn Einarsson, stjórn-
arformaður Eyrarodda á Flateyri, um
löndun út fiskiskipinu Stormi á Flat-
eyri.
Stormur landaði afla á Flateyri á
mánudaginn í fyrsta skipti en um var
að ræða nokkurs konar prufulönd-
un. Teitur segir þetta vera einn hlekk
í langri keðju til að styrkja stoðir
undir vinnsluna en eins og kunnugt
er þurfti Eyraroddi að segja upp öllu
sínu starfsfólki í haust. Síðan þá hef-
ur fyrirtækið leitað leiða til að finna
rekstrargrundvöll og ráða starfs-
menn til sín aftur.
Eyraroddi óskaði eftir heimild hjá
dómara um nauðasamningaumleit-
anir sem hefur verið staðfest. „Heim-
ild til nauðasamninga var veitt síð-
astliðinn miðvikudag og nú fer í gang
lögbundið ferli til að ná utan um
málið með okkar kröfuhöfum,“ segir
Teitur.
Aðspurður um þær fréttir að við-
ræður hafi staðið yfir um samruna
Storms Seafood og Eyrarodda segir
hann svo ekki vera og að það teng-
ist ekki samstarfinu um löndun og
vinnslu. Hann segir að það sé enn
óvíst með starfsmennina að svo
stöddu. „Við erum að reyna eins hratt
og við getum að fá einhverja niður-
stöðu sem gerir það að verkum að við
getum dregið uppsagnirnar til baka.
Sá tímapunktur er ekki kominn,“
bætir hann við.
gunnhildur@dv.is
Prufulöndun Teitur segir þetta einn hlekk í
langri keðju til að styrkja stoðir vinnslunnar.
Mynd: Páll Önundarson
Ósáttur við uMræðu uM EsB:
„Alið á ótta“
Umræðan um þetta stærsta hags-
munamál þjóðarinnar er því miður
á stigi fáránleikans á stundum,“ segir
Björgvin G. Sigurðsson, þingmaður
Samfylkingar. Hann segir að stærsta
ákvörðun þjóðarinnar á næstu miss-
erum sé hvort Ísland eigi að gerast
aðili að Evrópusambandinu og hvort
taka eigi upp evru í stað krónunnar.
Þetta segir Björgvin í nýjum pistli
á bloggsíðu sinni. Björgvin segir að
upptaka evru sé greiðasta leiðin til
endurreisnar landsins og stóri lær-
dómurinn af hruni efnahagskerfis-
ins. Hann bendir á Írland sem dæmi
og spyr hvar þeir stæðu ef þeir væru
að glíma við gjaldeyrishrun ofan í
vanda fjármálakerfisins.
„Þar er alið á ótta um innlimun í
stórríki ESB, afsal auðlinda, fullveld-
is og sjálfstæðrar tilveru þjóðarinn-
ar. Alið á því að Ísland yrði undir í
leit bandalagsins ógurlega að auknu
„lífsrými“ og því sé allt að óttast,
jafnvel sé þjóðerni, tunga og samfé-
lag í stórhættu.“
Björgvin segir að landbúnaðar-
og byggðamálin séu sér hugleikin.
Hann viðurkennir að sumir þættir
landbúnaðar gætu orðið fyrir ágjöf,
en um leið yrði breytingin til þess að
efla verulega aðra hluta hans, ekki
síst sprotana og nýjar greinar.
DV hefur traustar heimildir fyrir því
að Fangelsismálastofnun sé að at-
huga starfshætti Geirmundar Vil-
hjálmssonar, forstöðumanns fang-
elsisins á Kvíabryggju.
Grunur leikur á að Geirmundur
hafi misnotað reikninga Kvíabryggju
í eigin þágu en talið er að hann hafi
keypt vörur út á reikninga sem fang-
elsið er með hjá að minnsta kosti
tveimur fyrirtækjum. Samkvæmt
heimildum DV sýna reikningar þar
óeðlilegar úttektir sem samræmast
ekki umfangi og tækjakosti stofnun-
arinnar og mun upphæðin vera á bil-
inu 2–3 milljónir það sem af er árinu.
Eftir að hafa rannsakað málið óop-
inberlega hefur Fangelsismálastofn-
un séð ástæðu til að setja Geirmund
í leyfi.
Í samtali við DV á fimmtudags-
morgun kannaðist Geirmundur ekki
við neina rannsókn á sínum störfum.
„Ég er bara í vinnunni og við erum
bara að ganga frá ársuppgjöri og það
er ekkert að gerast svoleiðis. Það er
ekki stafur fyrir því að neitt svoleiðis
sé í gangi.“
Í leyfi frá störfum
Málið er enn á frumstigi en heimild-
ir herma að Geirmundur verði sett-
ur í leyfi frá störfum frá og með föstu-
deginum 26. nóvember. Ekki er vitað
nákvæmlega hvaða vörur hann á að
hafa keypt út á reikninga fangelsis-
ins á Kvíabryggju en þó eru heimild-
ir fyrir því að ýmislegt sem ekki ætti
að nýtast Kvíabryggju hafi verið skrif-
að á reikning fangelsisins sem og að
grunsamlega mikið magn af vissum
vörum hafi verið keypt.
Í samtali við DV vildi Páll Win-
kel fangelsismálastjóri hvorki neita
þessu né játa og sagðist „ekki vilja tjá
sig um einstaka mál“. Þá vildi Sveinn
Arason ríkisendurskoðandi ekki tjá
sig um málið og vísaði á viðkom-
andi ráðuneyti til að svara fyrispurn
blaðamanns.
Ekki náðist í Hauk Guðmunds-
son, skrifstofustjóra dómsmála- og
löggæsluskrifstofa, vegna málsins.
tók við af föður sínum
Geirmundur Vilhjálmsson hefur ver-
ið forstöðumaður á Kvíabryggju frá
árinu 2006 en áður starfaði hann þar
sem fangavörður. Hann tók við starf-
inu af föður sínum Vilhjálmi Péturs-
syni en Vilhjálmur var forstöðumað-
ur þar frá 1981 og hafði sjálfur starfað
sem fangavörður við fangelsið frá
1971. Móðir Geirmundar vann einn-
ig á Kvíabryggju, en hún var þar mat-
ráðskona fangelsisins.
Geirmundur var á árum áður far-
sæll frjálsíþróttamaður og setti með-
al annars héraðsmet Snæfellsness-
og Hnappadalssýslu í sleggjukasti á
Steinþórsmótinu árið 2006.
Fangelsismálastofnun hefur hafið rannsókn á starfsháttum Geirmundar vilhjálms-sonar, forstöðumanns Kvíabryggju. Grunur leikur á að hann hafi misnotað reikninga fangelsisins í eigin þágu. Hann kannast sjálfur ekki við neitt slíkt.
GRUNAÐUR UM AÐ
MISNOTA ALMANNAFÉ
Hanna ÓlafsdÓttir
blaðamaður skrifar: hanna@dv.is
Ég er bara í vinn-unni og við erum
bara að ganga frá árs-
uppgjöri og það er ekk-
ert að gerast svoleiðis.
til rannsóknar Óopinber rann-
sókn hefur farið fram á starfsháttum
Geirmundar, en hún snýr að því
sem virðast óeðlilegar úttektir af
viðskiptareikningum fangelsisins.
fangelsið Kvíabryggja
Geirmundur hefur verið forstöðu-
maður fangelsisins frá árinu 2006.
DV hefur und-ir höndum gögn
sem sýna aðeins brot af
þeim vörum sem Geir-
mundur keypti út á reikn-
ing fangelsisins hjá stóru
fyrirtæki hér á landi.
HANNA ÓLAFSDÓTTIR
blaðamaður skrifar: hanna@dv.is
Leystur frá störfum Geirmundur
Vilhjálmsson hefur verið leystur frá
störfum á meðan ríkisendurskoðandi fer
yfir bókhald og fjármál Kvíabryggju.
Fjölþrepa
bakbrettið
• Eykur sveigjanleika
• Linar bakverki
• Bætir líkamsstöðu
• Auðvelt í notkun
• Má nota hvar sem er
Opið virka daga kl. 9 -18 og á laugardögum kl. 11 - 16
Verð: 7.950 kr.
Stórhöfða 25 • Sími 569 3100 • www.eirberg.is
26. nóvember 2010
SÁLFRÆÐINEMAR SÁRIR:
Kennari
baðst
afsökunar
„Nemendur þessa fags voru sárir
þegar þeir sáu þessi ummæli enda
margir lagt mikla vinnu í þessar
skýrslur,“ segir
Pálmar Ragnars-
son, formaður
Animu, félags
sálfræðinema, í
yfirlýsingu sem
hann sendir frá
sér vegna Face-
book-skrifa Elísu
Guðnadóttur,
stundakennara við sálfræðideild
Háskóla Íslands. Opinskáar um-
ræður mynduðust á Facebook-
síðu Elísu þar sem hún lýsti því yfir
að hún væri að fara yfir „svaka-
lega lélegar skýrslur,“ og bætti við:
„Það mætti halda að ég hafi verið
að tala við vegg seinustu 5 vikurn-
ar.“ Í kjölfarið urðu umræður um
agaleysi nemenda í háskólum, og
síðar í umræðunni sagði Elísa: „Ég
bara skil ekki hvað þetta fólk er að
gera í tímum eða í skóla yfir höfuð.
Það virðist innan við 10% vera að
fylgjast með og meðtaka, restin er
í tölvunni.“ Þessi ummæli féllu í
grýttan jarðveg hjá nemendum í
sálfræði.
„Umræddur stundakennari bað
alla nemendur fagsins afsökun-
ar og tók einnig fram að margar
skýrslur hefðu verið mjög góðar,“
segir í yfirlýsingu Pálmars.
Hann segir þessi ummæli vera
langt frá því að vera almenna
skoðun kennara í deildinni og geti
margir þeirra frábæru fastráðnu
kennara sem kennt hafa lengi við
deildina vottað dugnað nemenda.
Hann segir í yfirlýsingunni
sálfræðinema vera með duglegri
og metnaðarfyllri nemendum há-
skólans í einni af erfiðari deildum
hans. Hann segir að vissulega sé
það rétt að einhverjir geti fylgst
betur með í kennslustundum og
gott væri að athuga leiðir til að ná
því fram.
Jens Fjalar Skaptason, formað-
ur Stúdentaráðs Háskóla Íslands
tók undir orð Pálmars í samtali við
DV og sagði að skrifin væru fyrir
neðan allar hellur.