Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2010, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2010, Page 4
4 FRÉTTIR 29. nóvember 2010 MÁNUDAGUR Vongóð um að ná undirskriftum fimmtíu fyrirtækja: „Í raun kynjagleraugu“ „Ég er gífurlega ánægð að þessi þrjú fyrirtæki hafi tekið af skarið og skrif- að undir sáttmálann og vona ég svo sannarlega að önnur íslensk fyrirtæki taki sér þau til fyrirmyndar,“ segir Inga Dóra Pétursdóttir, framkvæmdastýra UNIFEM á Íslandi. Á fimmtudaginn skrifuðu Marel, Deloitte og Rio Tinto Alcan undir Jafn- réttissáttmála UNIFEM sem er alþjóð- legt samstarfsverkefni UNIFEM og UN Global Compact á árlegum morgun- verðarfundi UNIFEM á Íslandi. Nú þegar hafa hundruð alþjóðlegra fyr- irtækja skrifað undir sáttmálann en í honum eru sjö viðmið sem fyrirtæki eiga að hafa að leiðarljósi til þess að efla konur og auka þátt þeirra í at- vinnulífinu. Með þessu heita fyrirtækin því að þau muni sýna samfélagslega ábyrgð, verða fyrirmynd fyrir starfsfólk og hlúa að sjálfbærri þróun svo eitthvað sé nefnt. „Þessi sáttmáli er í raun kynjagler- augu fyrir stjórnendur fyrirtækja því þessi viðmið eru leiðbeinandi fyr- ir stjórnendur um hvernig þeir geta bætt jafnrétti kynjanna innan fyrir- tækjanna, bæði hér á Íslandi og einnig á starfsstöðvum sínum víða um heim. „Frjáls félagasamtök, ríkisstjórnir og alþjóðlega stofnanir hafa barist fyrir jafnrétti kynjanna í áratugi en það er í raun vendipunktur að fyrirtækin beiti sér í jafnréttisbaráttunni. gunnhildur@dv.is Við undirritun Jafnréttissáttmála UNIFEM Ég vona svo sannarlega að önnur íslensk fyrirtæki taki þau sér til fyrirmyndar, segir framkvæmdastýra UNIFEM á Íslandi. HANDFÆRAKRÓKAR Á KOSTNAÐ KVÍABRYGGJU Dómsmálaráðuneytið hefur gefið út tilkynningu þess efnis að Geirmundur Vilhjálmsson hafi verið veitt lausn frá störfum á meðan ríkisendurskoðandi fer yfir bókhald og fjármál fangelsisins Kvíabryggju DV hefur undir höndum gögn sem sýna aðeins brot af þeim vörum sem Geirmundur keypti út á reikning fang- elsisins hjá stóru fyrirtæki hér á landi. Á meðal þess sem keypt var eru fimm handfærakrókar, en sjálfur á Geir- mundur bát en Kvíabryggja engan. Fjórir rafgeymar, en Kvíabryggja hefur til umráða tvo bíla; Land Cruser-jeppa og vörubíl sem mun ekki vera mikið notaður, tvo rafala, dempara, kolasett, Kenwood-bíltæki með geislaspilara og mp3-spilara, fjóra hjólbarða sem sam- kvæmt heimildum DV passa hvorki undir Land Cruser-jeppa né vörubíl. Einnig var keyptur tjaldhamar, nef- hjólsfesting og loftfyllt nefhjól. Ekki er þó hægt að fullyrða að allt á þessum lista hafi verið keypt til einkanota. Þetta eru bara dæmi um hvað var keypt hjá þessu eina tiltekna fyrirtæki og samkvæmt heimildum DV er upp- hæðin þar um 3,5 milljónum króna það sem af er árinu 2010. Hversu stór- an hluta þeirrar upphæðar Geirmund- ur er grunaður um að hafa notað í eig- in þágu, og hve stór hluti fór í rekstur fangelsisins, er ekki vitað en ljóst er að kostnaðurinn þykir grunsamlega hár fyrir eðlilegan rekstur. Margir reikningar Kvíabryggja er með fjölda annarra reikninga hjá hinum ýmsu fyrirtækj- um og er verið að fara yfir úttektir Kvíabryggju hjá þeim öllum. DV fékk útprentanir á reikningum frá einu af tveimur byggingarfyrirtækjum sem Kvíabryggja verslar við. Reikningarn- ir eru frá 1. september til 23. nóvem- ber 2010 og er heildarupphæðin fyr- ir þetta tímabil 650.250 krónum. Það vekur upp spurningar um hversu dýrt sé að reka fangelsið ef reikningar, sem valdir eru af handahófi, fyrir þrjá mánuði nema þessari upphæð. Þess- ir reikningar sýna að meðal þess sem keypt var á þessu tímabili var hurð og hurðar karmur úr mahóní á samtals 40.544 krónur. Grunur um að eitthvað óeðlilegt ætti sér stað vaknaði í sum- ar við innra eftirlit á vegum Fangelsis- málastofnunar. Grundfirðingar í áfalli Grundfirðingur sem blaðamaður náði tali af sagði allan bæinn í áfalli eftir að ljóst væri að Geirmundur hefði verið leystur frá störfum. Páll Winkel, forstjóri Fangelsis- málastofnunar, fundaði á fimmtu- dag með starfsmönnum Kvíabryggju og samkvæmt heimildum DV voru starfsmenn fangelsisins slegnir vegna rannsóknar á fjárúttektum og leyf- is Geimundar. Munu einhverjir hafa fellt tár. Ekki er vitað hversu langan tíma mun taka að fara yfir bókhald og reikninga þeirra fyrirtækja sem Kvía- bryggja hefur átt í viðskiptum við en málið er umfangsmikið. Margar dularfullar úttektir er að finna í reikningum fangelsisins á Kvíabryggju. DV hefur undir höndum gögn sem sýna að keyptir voru fimm handfærakrókar út á reikn- ing fangelsisins, en forstöðumaðurinn, sem nú er kominn í leyfi, á sjálfur handfæra- bát. Þá voru keypt Kenwood-bíltæki, demparar, fjórir rafgeymar og margt fleira. 6 fréttir 26. nóvember 2010 föstudagur Opið virka daga 12-18 laugardag 12-16 Grensásvegi 8 -108 RVK Sími: 517-2040 Góðir skór á börnin www.xena.is St. 24-35 kr. 4.795.- St. 24-35 kr. 4.795.- St. 24-35 kr. 4.995.- St. 24-35 kr. 4.795.- Fréttir um samruna Storm Seafood og Eyrarodda rangar: Samstarf um löndun og vinnslu „Þetta er partur af samkomulagi sem verið er að skoða hvort gangi eftir. Þetta er spurning um samstarf um löndun og vinnslu en það á eftir að skýrast betur hvernig þetta þróast,“ segir Teitur Björn Einarsson, stjórn- arformaður Eyrarodda á Flateyri, um löndun út fiskiskipinu Stormi á Flat- eyri. Stormur landaði afla á Flateyri á mánudaginn í fyrsta skipti en um var að ræða nokkurs konar prufulönd- un. Teitur segir þetta vera einn hlekk í langri keðju til að styrkja stoðir undir vinnsluna en eins og kunnugt er þurfti Eyraroddi að segja upp öllu sínu starfsfólki í haust. Síðan þá hef- ur fyrirtækið leitað leiða til að finna rekstrargrundvöll og ráða starfs- menn til sín aftur. Eyraroddi óskaði eftir heimild hjá dómara um nauðasamningaumleit- anir sem hefur verið staðfest. „Heim- ild til nauðasamninga var veitt síð- astliðinn miðvikudag og nú fer í gang lögbundið ferli til að ná utan um málið með okkar kröfuhöfum,“ segir Teitur. Aðspurður um þær fréttir að við- ræður hafi staðið yfir um samruna Storms Seafood og Eyrarodda segir hann svo ekki vera og að það teng- ist ekki samstarfinu um löndun og vinnslu. Hann segir að það sé enn óvíst með starfsmennina að svo stöddu. „Við erum að reyna eins hratt og við getum að fá einhverja niður- stöðu sem gerir það að verkum að við getum dregið uppsagnirnar til baka. Sá tímapunktur er ekki kominn,“ bætir hann við. gunnhildur@dv.is Prufulöndun Teitur segir þetta einn hlekk í langri keðju til að styrkja stoðir vinnslunnar. Mynd: Páll Önundarson Ósáttur við uMræðu uM EsB: „Alið á ótta“ Umræðan um þetta stærsta hags- munamál þjóðarinnar er því miður á stigi fáránleikans á stundum,“ segir Björgvin G. Sigurðsson, þingmaður Samfylkingar. Hann segir að stærsta ákvörðun þjóðarinnar á næstu miss- erum sé hvort Ísland eigi að gerast aðili að Evrópusambandinu og hvort taka eigi upp evru í stað krónunnar. Þetta segir Björgvin í nýjum pistli á bloggsíðu sinni. Björgvin segir að upptaka evru sé greiðasta leiðin til endurreisnar landsins og stóri lær- dómurinn af hruni efnahagskerfis- ins. Hann bendir á Írland sem dæmi og spyr hvar þeir stæðu ef þeir væru að glíma við gjaldeyrishrun ofan í vanda fjármálakerfisins. „Þar er alið á ótta um innlimun í stórríki ESB, afsal auðlinda, fullveld- is og sjálfstæðrar tilveru þjóðarinn- ar. Alið á því að Ísland yrði undir í leit bandalagsins ógurlega að auknu „lífsrými“ og því sé allt að óttast, jafnvel sé þjóðerni, tunga og samfé- lag í stórhættu.“ Björgvin segir að landbúnaðar- og byggðamálin séu sér hugleikin. Hann viðurkennir að sumir þættir landbúnaðar gætu orðið fyrir ágjöf, en um leið yrði breytingin til þess að efla verulega aðra hluta hans, ekki síst sprotana og nýjar greinar. DV hefur traustar heimildir fyrir því að Fangelsismálastofnun sé að at- huga starfshætti Geirmundar Vil- hjálmssonar, forstöðumanns fang- elsisins á Kvíabryggju. Grunur leikur á að Geirmundur hafi misnotað reikninga Kvíabryggju í eigin þágu en talið er að hann hafi keypt vörur út á reikninga sem fang- elsið er með hjá að minnsta kosti tveimur fyrirtækjum. Samkvæmt heimildum DV sýna reikningar þar óeðlilegar úttektir sem samræmast ekki umfangi og tækjakosti stofnun- arinnar og mun upphæðin vera á bil- inu 2–3 milljónir það sem af er árinu. Eftir að hafa rannsakað málið óop- inberlega hefur Fangelsismálastofn- un séð ástæðu til að setja Geirmund í leyfi. Í samtali við DV á fimmtudags- morgun kannaðist Geirmundur ekki við neina rannsókn á sínum störfum. „Ég er bara í vinnunni og við erum bara að ganga frá ársuppgjöri og það er ekkert að gerast svoleiðis. Það er ekki stafur fyrir því að neitt svoleiðis sé í gangi.“ Í leyfi frá störfum Málið er enn á frumstigi en heimild- ir herma að Geirmundur verði sett- ur í leyfi frá störfum frá og með föstu- deginum 26. nóvember. Ekki er vitað nákvæmlega hvaða vörur hann á að hafa keypt út á reikninga fangelsis- ins á Kvíabryggju en þó eru heimild- ir fyrir því að ýmislegt sem ekki ætti að nýtast Kvíabryggju hafi verið skrif- að á reikning fangelsisins sem og að grunsamlega mikið magn af vissum vörum hafi verið keypt. Í samtali við DV vildi Páll Win- kel fangelsismálastjóri hvorki neita þessu né játa og sagðist „ekki vilja tjá sig um einstaka mál“. Þá vildi Sveinn Arason ríkisendurskoðandi ekki tjá sig um málið og vísaði á viðkom- andi ráðuneyti til að svara fyrispurn blaðamanns. Ekki náðist í Hauk Guðmunds- son, skrifstofustjóra dómsmála- og löggæsluskrifstofa, vegna málsins. tók við af föður sínum Geirmundur Vilhjálmsson hefur ver- ið forstöðumaður á Kvíabryggju frá árinu 2006 en áður starfaði hann þar sem fangavörður. Hann tók við starf- inu af föður sínum Vilhjálmi Péturs- syni en Vilhjálmur var forstöðumað- ur þar frá 1981 og hafði sjálfur starfað sem fangavörður við fangelsið frá 1971. Móðir Geirmundar vann einn- ig á Kvíabryggju, en hún var þar mat- ráðskona fangelsisins. Geirmundur var á árum áður far- sæll frjálsíþróttamaður og setti með- al annars héraðsmet Snæfellsness- og Hnappadalssýslu í sleggjukasti á Steinþórsmótinu árið 2006. Fangelsismálastofnun hefur hafið rannsókn á starfsháttum Geirmundar vilhjálms-sonar, forstöðumanns Kvíabryggju. Grunur leikur á að hann hafi misnotað reikninga fangelsisins í eigin þágu. Hann kannast sjálfur ekki við neitt slíkt. GRUNAÐUR UM AÐ MISNOTA ALMANNAFÉ Hanna ÓlafsdÓttir blaðamaður skrifar: hanna@dv.is Ég er bara í vinn-unni og við erum bara að ganga frá árs- uppgjöri og það er ekk- ert að gerast svoleiðis. til rannsóknar Óopinber rann- sókn hefur farið fram á starfsháttum Geirmundar, en hún snýr að því sem virðast óeðlilegar úttektir af viðskiptareikningum fangelsisins. fangelsið Kvíabryggja Geirmundur hefur verið forstöðu- maður fangelsisins frá árinu 2006. DV hefur und-ir höndum gögn sem sýna aðeins brot af þeim vörum sem Geir- mundur keypti út á reikn- ing fangelsisins hjá stóru fyrirtæki hér á landi. HANNA ÓLAFSDÓTTIR blaðamaður skrifar: hanna@dv.is Leystur frá störfum Geirmundur Vilhjálmsson hefur verið leystur frá störfum á meðan ríkisendurskoðandi fer yfir bókhald og fjármál Kvíabryggju. Fjölþrepa bakbrettið • Eykur sveigjanleika • Linar bakverki • Bætir líkamsstöðu • Auðvelt í notkun • Má nota hvar sem er Opið virka daga kl. 9 -18 og á laugardögum kl. 11 - 16 Verð: 7.950 kr. Stórhöfða 25 • Sími 569 3100 • www.eirberg.is 26. nóvember 2010 SÁLFRÆÐINEMAR SÁRIR: Kennari baðst afsökunar „Nemendur þessa fags voru sárir þegar þeir sáu þessi ummæli enda margir lagt mikla vinnu í þessar skýrslur,“ segir Pálmar Ragnars- son, formaður Animu, félags sálfræðinema, í yfirlýsingu sem hann sendir frá sér vegna Face- book-skrifa Elísu Guðnadóttur, stundakennara við sálfræðideild Háskóla Íslands. Opinskáar um- ræður mynduðust á Facebook- síðu Elísu þar sem hún lýsti því yfir að hún væri að fara yfir „svaka- lega lélegar skýrslur,“ og bætti við: „Það mætti halda að ég hafi verið að tala við vegg seinustu 5 vikurn- ar.“ Í kjölfarið urðu umræður um agaleysi nemenda í háskólum, og síðar í umræðunni sagði Elísa: „Ég bara skil ekki hvað þetta fólk er að gera í tímum eða í skóla yfir höfuð. Það virðist innan við 10% vera að fylgjast með og meðtaka, restin er í tölvunni.“ Þessi ummæli féllu í grýttan jarðveg hjá nemendum í sálfræði. „Umræddur stundakennari bað alla nemendur fagsins afsökun- ar og tók einnig fram að margar skýrslur hefðu verið mjög góðar,“ segir í yfirlýsingu Pálmars. Hann segir þessi ummæli vera langt frá því að vera almenna skoðun kennara í deildinni og geti margir þeirra frábæru fastráðnu kennara sem kennt hafa lengi við deildina vottað dugnað nemenda. Hann segir í yfirlýsingunni sálfræðinema vera með duglegri og metnaðarfyllri nemendum há- skólans í einni af erfiðari deildum hans. Hann segir að vissulega sé það rétt að einhverjir geti fylgst betur með í kennslustundum og gott væri að athuga leiðir til að ná því fram. Jens Fjalar Skaptason, formað- ur Stúdentaráðs Háskóla Íslands tók undir orð Pálmars í samtali við DV og sagði að skrifin væru fyrir neðan allar hellur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.