Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2010, Qupperneq 15
starfsmaður verslunarinnar í ljós
óánægju sína með verðkönnun-
ina og sagði að hún væri villandi
þar sem verðin ættu eftir að lækka.
Það á hins vegar væntanlega við
um hinar verslanirnar líka – verð-
in kunna að lækka eftir því sem
nær dregur jólum. Hann afhenti
blaðamanni auglýsingu frá Máli
og menningu þar sem afsláttur er
auglýstur af tíu bókum. Afsláttur-
inn gildir frá síðasta laugardegi
til miðvikudags, 1. des. Rétt er því
að nefna að bókin Furðustrand-
ir eftir Arnald Indriðason kostar
3.880 krónur, Dömusiðir eftir Þor-
björgu Marinósdóttur 2.790 krónur
og Þokan eftir Þorgrím Þráinsson
2.790 krónur fram á miðvikudag í
Máli og menningu. Afslátturinn af
þessum bókum, ásamt sjö öðrum,
er auglýstur 30 til 32 prósent. Það er
í tveimur tilvikum af þremur tölu-
vert hærri prósentutala en raun ber
vitni, miðað við verðin á föstudag-
inn.
Þúsund krónur á hverja bók
Meðalmunur á hæsta og lægsta
verði á þeim sautján bókum sem
kannaðar voru er rúm 36 prósent.
Að jafnaði munar rúmum 1.100
krónum á verðinu í Bónus, þar sem
bækurnar voru ódýrastar og í Máli
og menningu, þar sem þær voru
að jafnaði dýrastar í könnun föstu-
dagsins. Sá sem kaupir tíu bækur
fyrir jólin getur því sparað sér ríf-
lega 11.000 krónur ef hann verslar
þar sem bækurnar eru ódýrastar í
stað þess að versla þar sem þær eru
dýrastar.
Rétt er að taka fram að í þess-
ari verðkönnun er ekkert mat lagt
á þjónustu verslananna – til dæm-
is hvað varðar innpökkun eða skila-
rétt, svo dæmi séu tekin.
SÝNI HEIMILUM SKILNING „Fjármálafyrirtæki hafa
í mörgum tilvikum veitt íbúðalán til heimila og einstaklinga með mjög
lágar tekjur þó svo að engar forsendur væru fyrir að viðkomandi gæti
staðið undir þeim. Eðlilegt er að fjármálafyrirtæki axli ábyrgð á slíkum
lánveitingum með verulegum afskriftum,“ segir á heimasíðu Neytenda-
samtakanna. Þar er fjallað um skuldavanda heimilanna og segir að fjár-
málafyrirtæki virðist hafa mikið svigrúm til afskrifta skulda þegar kemur
að fyrirtækjum. Samtökin ætlast til að þau sýni skuldavanda heimilanna
ekki minni skilning og leysi hann eins fljótt og auðið er.
SMART OG SMARTER Neytendastofu barst erindi frá sól-
baðsstofunni Smart þar sem kvartað var yfir notkun Sohosólar á heitinu
Smarter í auglýsingum og utan á húsnæði sólbaðsstofunnar. Stofnun-
in komst að þeirri niðurstöðu að heitin og auglýsingaskiltin, Smart og
Smarter, séu mjög lík og auðvelt fyrir neytendur að ruglast á fyrirtækjun-
um. Heitið Smarter geti einnig gefið í skyn að um sé að ræða sama eða
nátengt fyrirtæki og Smart. „Neytendastofa taldi Sohosól því brjóta gegn
ákvæðum laga um viðskiptahætti og markaðssetningu og bannaði félag-
inu notkun á heitinu Smarter,“ segir á neytendastofa.is.
MÁNUDAGUR 29. nóvember 2010 NEYTENDUR 15
Verðkönnun ASÍ á matvöru:
Svipað verð í Bónus og Krónunni
Umboðsmaður skuldara segir að
dómur Hæstaréttar, þar sem kröfu-
höfum er heimilt að ganga að
ábyrgðarmönnum einstaklinga sem
gengist hafa undir nauðasamning til
greiðsluaðlögunar, skýri hugsanlega
bresti í því úrræði sem greiðsluað-
lögun eigi að vera.
„Vakin er athygli á því að dómur-
inn hefur ekki áhrif á greiðslustöðv-
un þeirra sem sótt hafa um greiðslu-
aðlögun einstaklinga og er ekki hægt
að ganga að ábyrgðarmönnum um-
sækjenda,“ segir í tilkynningu frá
embættinu.
Fram kemur að dómurinn nái
sérstaklega til staðfestra nauða-
samninga til greiðsluaðlögunar, það
er, þeirra sem fengu samning um
greiðsluaðlögun sem samþykkt-
ur hafi verið af dómsstólum en séu
ekki frjálsir samningar eins og þeir
sem umboðsmaður skuldara hafi
milligöngu um. Ekkert sé því til fyr-
irstöðu að kröfuhafar skuldara sam-
þykki frjálsan samning sem innihaldi
ákvæði þess efnis að kröfur sem gefn-
ar séu eftir samkvæmt samningi um
greiðsluaðlögun falli einnig niður
gagnvart ábyrgðarmönnum. Með
öðrum orðum að þeir sem hafa skrif-
að upp á lán hjá öðrum sitji ekki í
súpunni.
„Falli ábyrgð ekki niður samhliða
samningi um greiðsluaðlögun getur
ábyrgðarmaður átt endurkröfurétt
á þann skuldara sem fékk greiðslu-
aðlögun. Það getur leitt til þess að
skuldari fari í gjaldþrot og er greiðslu-
aðlögunin þá fyrir bí. Fái ábyrgðar-
maður ekkert upp í kröfu sína get-
ur hann jafnframt þurft að leita eftir
greiðsluaðlögun. Sæki fjármálafyrir-
tæki það hart að ganga að ábyrgðar-
mönnum, getur skuldavandi heimil-
anna aukist margfalt. Því er það afar
mikilvægt að ná samkomulagi við
fjármálafyrirtæki um að þeir muni
ekki ganga að kröfuhöfum,“ segir í til-
kynningunni. baldur@dv.is
Dómur Hæstaréttar flækir málið:
Brestur í greiðsluaðlögun
Afdrifaríkur dómur? Skuldavandinn getur aukist að mati umboðsmanns
skuldara. MYND SIGTRYGGUR ARI
Verslun Heildarverð* Munur
Bónus 58.435 kr.
Griffill 60.484 kr. 3,5%
Hagkaup 65.400 kr. 11,9%
Eymundsson 68.717 kr. 17,6%
Office 1 69.699 kr. 19,3%
Mál&Menning 77310 kr. 32,3%
*VERÐ Á SÖMU 17 BÓKUM.
VERÐMUNUR
Í BÓKABÚÐUM
HELMINGS VERÐMUNUR Á BÓKUM
Bók Höfundur/ar Bónus Griffill Hagkaup Eymundsson Office 1 M&M Mesti munur
10.10.10 – Logi Geirsson Henry Birgir Gunnarsson n 3.979 4.252 3.980 n 4.999 4.792 4.990 25,4%
Á valdi örlaganna Kristján Jóhannsson n 3.989 4.252 3.990 4.190 4.792 n 4.990 25,1%
Árni Matt Árni Mathiesen n 3.994 4.225 4.490 4.540 n 5.192 4.990 30,0%
Ástin og stjörnumerkin Ellý Ármannsdóttir n 2.898 2.953 n 3.990 n 3.990 3.192 n 3.990 37,7%
Dömusiðir Þorbjörg Marinósdóttir n 2.598 2.740 2.780 2.790 3.192 n 3.490 34,3%
Ég man þig Yrsa Sigurðardóttir n 3.978 3.983 3.980 n 5.190 4.712 4.990 30,5%
Furðustrandir Arnaldur Indriðason n 3.575 3.699 3.690 3.980 3.990 n 4.280 19,7%
Gunnar Thoroddssen Guðni Th. Jóhannesson n 4.531 4.589 4.890 n 5.999 5.592 4.790 32,4%
Hið dökka man - saga Catalinu Þórarinn Þórarinsson og Jakob Bjarnar Grétarsson n 3.367 3.377 n 4.690 3.460 3.752 n 4.690 39,3%
Hreinsun Sofi Oksanen n 3.694 4.118 3.840 3.840 4.392 n 4.490 21,5%
Lífsleikni Egill Einarsson n 2.593 2.594 2.990 2.790 3.192 n 3.990 53,9%
Stelpur Kristín og Þóra Tómasdætur n 3.358 3.743 3.480 3.490 3.992 n 4.990 48,6%
Útkall – Pabbi, hreyflarnir loga Óttar Sveinsson n 3.853 3.894 4.180 4.190 4.792 n 4.990 29,5%
Walt Disney matreiðslubók Frá Walt Disney n 2.748 2.752 3.290 3.990 3.192 n 3.990 45,2%
Þokan Þorgrímur Þráinsson n 2.648 2.652 3.480 2.790 3.192 n 3.990 50,7%
Þú getur eldað Annabel Karmel n 2.680 2.682 n 2.680 3.490 3.192 n 3.990 48,9%
Önnur líf Ævar Örn Jósepsson n 3.952 3.979 4.980 4.999 4.549 n 5.680 43,7%
Samtals í krónum: 58.435 kr. 60.484 kr. 65.400 kr. 68.717 kr. 69.699 kr. 77.310 kr. 36,3%
Verðsamanburður á 17 vinsælum bókartitlum
KÖNNUNIN VAR GERÐ FÖSTUDAGINN 26. NÓVEMBER 2010 Á MILLI KL. 13.30 OG 15.00. Birt með fyrirvara um innsláttarvillur HÆSTA VERÐ LÆGSTA VERÐ
Bónus alltaf ódýrast Griffill er að jafnaði aðeins um 3% dýrari en Bónus. Bókabúð Máls & Menningar er oftast dýrust.
MYND RÓBERT REYNISSON
Jólabjórinn rýkur út
Samkvæmt fréttum frá ÁTVR er ljóst
að landinn hefur beðið með eftir-
væntingu eftir jólabjórnum í ár. Tölur
fyrir fyrstu þrjá dagana leiða í ljós að
salan var næstum 130 prósentum
meiri en í fyrra. Fyrstu þrjá daganna
var mest selt af Tuborg
Julebryg, ýmist í dós eða
flösku, eða alls 32.100
lítrar. Það eru 43 prósent
af heildarsölu jólabjórs
en þess má geta að hann
fékk miðlungseinkunn
í árlegri bragðkönnun
DV á jólabjór. Þá má
nefna að þessa fyrstu
þrjá daga seldist 177
prósentum meira
af Kalda jólabjór en
fyrstu þrjá dagana
í fyrra, rétt eins og
Tuborg Julebryg í
dós. Um 131 prósenti
meira seldist af Viking
jólabjór nú en fyrstu
dagana í fyrra.